Vísir - 08.07.1980, Side 15
vísm
Þriðjudagur 8. júli 1980.
íki.. fljiii
Sveinn Björnsson og Jón Krabbe á skrifstofu
sendirábs tslands f Danmörku. Þeir störfuöu
saman á hinum örlagariku timum i Danmörku
1940, en islenska utanrikisþjónustan var stofn-
sett vegna hernáms Danmerkur.
..Þetta er liklega eina stofnunin þar sem rikis-
starfsmenn eru flutningsskyldir — og fluttir á
milii landa” — „venjulega er þarna um aö ræöa
þriggja til fimm ára timabil” sagöi Hannes Haf-
stein yfirmaöur Alþjóöadeildarinnar.
UtanriKispjónustan fjörutiu ára:
Starfið er llfandi og
tilbreytlngarríkt
Sjónarsviðið er Kaup-
mannahöfn, að morgni
dags hinn 8. apríl. Ber-
lingske Tidende og
Nationaltidende flytja
ískyggilegar viðvaranir,
sem danskir fréttaritarar
í Berlín höfðu getað sent
frá sér, þrátt fyrir harða
ritskoðun.
Viö þessi tiöindi hófu þeir
Sveinn Björnsson þáverandi
sendiherra i Danmörku og siöar
fyrsti forseti Islenska lýöveldis-
ins, og Jón Krabbe trúnaðar-
maður tslands I danska utan-
rikisráðuneytinu, athuganir á
stöðu mála, á undan dönskum
hernaðarsérfræðingum. Þeir
fengu upplýsingar um vélvædd-
ar herdeildir á ferð frá
Holtsetalandi norður á bóginn
og óvenjumiklar skipaferðir um
sundið.
Sveinn Björnsson náði sima-
sambandi við Hermann Jónas-
son, forsætisráðherra og skýröi
L
Sigurður M. Þorsteinsson sat
frammi i móttöku er Visir kom
aðvifandi. „Ég er nú rétt búinn
aö starfa hér i 2 mánuöi eftir aö
hafa veriö 36 ár I lögreglunni”.
„Jú, hér koma margir og frá
ýmsum löndum, svo starfið er
mjög lifandi og tilbreytingar-
rikt”.
honum frá yfirvofandi hættu á
að Danmörk yrði hertekin.
Daginn eftir, marseruðu svo
þýskar hersveitir inn I Dan-
mörku án nokkurs viönáms
danskra yfirvalda, sem tóku
skömmu slðar þá óhjákvæmi-
legu ákvörðun að gefast upp.
Vegna hinna válegu tiðinda,
frá Danmörku, samþykkti
Alþingi, daginn eftir hernámið,
ályktun þess efnis, að
Islendingar tækju að svo stöddu
meðferð utanrlkismála I eigin
hendur. A grundvelli þessarar
ályktunar voruslðan gefin út
bráðabirgðalög nr. 120, 8. júli
1940 um Utanrlkisþjónustuna
erlendis.
Utanríkisþjónustan islenska
er þvl 40 ára I dag — en allt frá
sambandslögunum 1918, réðu
Islendingar sjálfir yfir utan-
rikismálum sinum, ákváðu
hvaða stefnu skyldi fylgt en
danska utanrikisráðuneytiö
annaðist meðferð utanrikismála
fyrir þeirra hönd og samkvæmt
fyrirmælum þeirra.
Þessi samskipti fóru fyrst i
stað i gegnum forsætisráöherra
en 1926 var sérstakur maður
ráðinn til þess að annast þessi
störf I forsætisráöuneytinu.
Smám saman jukust störfin
og visir að skrifstofu varð til,
sem fékk heitið utanrikismála-
deild. 1 fyrstu var þar einn full-
trúi og skrifstofustúlka, sem
fjölgaöi töluvert er lslendingar
tóku sjálfir aö gera viöskipta-
samninga i rikari mæli við út-
lönd.
I dag starfa nú við utanrlkis-
þjónustuna 69 manns. Þar af
starfa 24 i aðalráöuneytinu, 4 i
varnarmáladeild og 39 erlendis,
auk tveggja viðskiptafulltrúa.
Auk þessa fjölda eru 18 manns
sem starfa við aðstoðarstörf,
s.s. húsveröir og bilstjórar.
Vlsir leit inn á skrifstofur
Utanrikisráðuneytisins við
Hverfisgötu, i tilefni afmæiisins
en þar lét starfsfólk ekki afmæl-
ið raska starfinu og vann af
kappi.
—AS.
„Það hefur slnar jákvæðu og
neikvæðu hliðar að vera sendur
utan” sagði Sveinn Björnsson,
sendiráöunautur, „en gallarnir
aukast þegar framl sækir t.d.
vegna barna.”
„Hér höfum við til umfjöllunar
hin margbreytilegustu mál, svo
sem fjárreiður sendiráða og
þjónustu, milligöngu I barnsfað-
ernismálum, hjónaskilnaöar-
mál og ýmislegt sem tengist sið-
an dómsmálaráðuneytinu”
sagði Gunnar Snorri Gunnars-
son, fulltrúi i almennu deildinni.
15
E/GENDUR
B/FRE/ÐA
Verkstæði okkar verður
lokað vegna sumarleyfa
frá 18. júlí til 5. ágúst.
Sveinn Egi/sson hf.
Skeifan17. Sími 85100
GULL - SILFUR
Kaupum brotagull og silfur, einnig mynt og
minnispeninga úr gulli og silfri.
Staðgreiðsla. Opið 10-12 f.h. og 5-6 e.h.
w
Islenskur útflutningur
Ármúla 1 Sími 82420
Tilkynning
frá Framleiðsluráði
/andbúnaðarins ti/ framleiðenda
i alifugla og svinarækt
Ákveðið hefur verið að afhenda eigendum ali-
fugla og svina sérstök kort, sem veita þeim
heimild til kaupa á kjarnfóðri án þess að þurfa
að greiða að fullu það kjarnfóðurgjald, sem
nýlega hefur verið ákveðið með lögurrt.
Leyfisveitingín gildir tíl loka september næst-
komandi og miðast við 25% af því kjarnfóður-
magni sem viðkomandi aðilar geta fært sönn-
ur á að þeir haf i keypt á sl. ári til svína og ali-
fuglaræktar.
Framleiðendur skulu senda Framleiðsluráði
samanteknar upplýsingar um kjarnfóðurkaup
sl. árs ásamt verslunarnótum yfir kaupin.
Þörf nýrra framleiðenda verður metin sér-
staklega. Leyfiskortin verða síðan send við-
komandi aðilum jafnóðum og þau verða tilbú-
in. Umsóknum skal fylgja nafn og nafnnúmer
viðkomandi umsækjenda ásamt greinilegu
heimilisfangi.
Þeir sem til þess hafa aðstöðu geta skilað um-
sóknum og sótt leyfin sjálfir á skrifstofu
Framleiðsluráðs í Bændahöllinni,Reykjavík.
Afhending leyfanna hefst mánudaginn 7. júlí.
Reykjavík, 5. júlí 1980.
Framleiðsluráð landbúnaðarins.
Biaðburðarfólk
óskast:
Þórsgata
Baldursgata
Freyjugata
Sjafnargata