Vísir - 09.07.1980, Síða 2
vtsm
Mi&vikudagur 9. júli 1980
2
Hve mörg dagblöð kaup-
irðu á dag?
Hör&ur Júliusson, Höfn i Horna-
firöi: — Ég kaupi ekkert blað.
Eirikur Peterson, Danmark: —
Þrjú dagblöð á dag.
Hrönn Egilsdóttir, fóstra: — Það
er voðalega misjafnt. Stundum
kaupi ég tvö.
Stefán Þóröarson, trétæknir: —
Oftast kaupi ég eitt.
Rúnar Þorleifsson, vinnur I
frystihúsinu i Dalvik: — Ég kaupi
svona eitt blað á dag.
Húsavik:
Sigurvegarinn á Húsavik, GuOmundur Salómonsson, smýgur gegnum eitt hliöiö: Hann er meö langfæst refsistig f keppninni a&
þessu sinni, auk þess sem hann hefur unniö ökuleiknina á Húsavik þrjú ár I röö.
Visismyndir Einar Gu&mundsson.
Slgraði Driðja
árið í rðði
Metárangurnáðist i ökuleikni
80 á Húsavik þegar keppnin var
haldin þar þriðjudaginn 1. júli.
Sigurvegarinn Guðmundur
Salómonsson sigraði á 129 refsi
stigum og er það langbesti
árangurinn i ár. Jafnframt er
þetta þriðja árið i röð sem Guð-
mundur sigrar i ökuleikninni á
Húsavik.
Guðmundur sem ók á Mazda
1300 er nú langhæstur i öku-
leikninni. 1 fyrra setti hann það
einstæða met að sigra á 88 refsi-
stigum en það er besti árangur i
ökuleikni sem náðst hefur hér-
lendis. Hann varð i öðru sæti i
úrslitakeppninni s.l. haust og
einnig árið á undan. Þá er hann
einnig sá eini sem hefur farið
villulaust i gegnum þrauta-
prófið i keppninni og gerðist það
i fyrra.
Næstur á eftir Guðmundi i
keppninni á Húsavik i ár var
Jónas Kristjánsson á Mazda 818
en hann hlaut 141 refsistig. Er
það jafnframt næstbesti
árangur i ökuleikni 80. Þriðji
varð svo Þorvaldur Árnason á
Bedford-sendibifreið með 177
stig.
Mjög gott veður var meðan
keppnin stóð yfir eða um 25
stiga hiti. Voru 11 þátttakendur i
ökuleikninni og fjölmargir
áhorfendur.
Gefendur verðlauna að þessu
sinni voru þrir: Bilaleiga Húsa-
vikur, bókaverslun Þórarins og
Stefán Óskarsson. Er þaö glöggt
merki um hinn mikla áhuga
sem er á Húsavik i sambandi
við bilaiþróttir.
—HR
Keppendur I ökuleikni 80 á Húsavlk: Fremst t.v. er Þorvaldur
Árnason sem varö i þri&ja sæti, siöan kemur Gu&mundur Salómons-
sonog t.h. er Jónas Kristjánsson sem varð i öOru sæti.
af stórlöxum
20 laxar úr
Laxá I Dölum
Að sögn Jóhanns Sæmunds-
sonar i Ási, sem hefur umsjón
með Laxá I Dölum hefur veiðin
þar verið svipuð og undanfarin
ár.
Ain var opnuð 29. júni sl. og
siðan þá hafa komið 20 laxar á
land sem er svipað og i meðal-
ári. Jóhann sagði, að áin væri
yfirleitt sein til en það sem af
væri virtist sér fiskurinn vera
góður og meðalþyngdin svipuð
og undanfarin ár.
Sex hrygnur
úr Breiðdalsá
„Við opnuðum ána 21. júni og
um mánaðamótin voru komnir
sex laxar á land sem er óvenju
gott”, sagöi Sigurður Lárusson
á Gilsá í Breiðdal en hann hefur
umsjón með veiðinni i Breið-
dalsá.
Siguröur sagði að það mesta
sem fengist hefði i júnimánuði i.
Breiödalsá fram til þessa væru
fjórir laxar. Að sögn Sigurðar
eru þessir sex sem nú eru
komnir á land allt hrygnur en
venjulega ganga hængar fyrr i
ána, sem viðast annars staðar.
Kvaðst Sigurður enga skýringu
hafa á þessu en þetta væri
vissulega óvenjulegt.
Stærsta hrygnan af þessum
sex vó 12 pund og kom hún á
land daginn eftir að áin var
opnuð. Hinar hafa veriö að
jafnaði 8-9 pund.
óvenlufallegur
flskur I Laxá
i Aðaidal
„Þetta er sjöunda sumarið
mitt hérna og ég man ekki eftir
að hafa séð svona jafnfallegan
fisk og komið hefur úr ánni nú i
sumar”----sagði Helga Hall-
dórsdóttir, ráðskona i veiðihús-
inu Vökuholti við Laxamýri en
það tilheyrir Laxá i Aðaldal.
Helga sagði að áin hefði verið
opnuð 20, júni en Húsvikingar
hefðu þó byrjað i henni þann 10.
júni. Siðan þá eru komnir um
390 laxar á land og sagði Helga
þaö vera sæmilegt miðað við
Þessi mynd var tekin í Laxá I Kjós nú nýveriO en þó fyigir engin
„fiskisaga” meö... (Visismynd: G.Þ.G.)
meðal fjöld^i laxa úr ánni. Hins
vegar væru laxarnir óvenju
fallegir og sá stærsti hingaö til
vó 26 pund. Hann var veiddur á
„spoon” og einnig sá næst
stærsti sem var 25 pund. Að
sögn Helgu er meðalvigtin á
löxunum núna 12-13 pund, sem
eróvenju gott, enda sagði Helga
að mikill munur væri á nú I
sumar en t.d. i fyrra.
—Sv.G.