Vísir - 09.07.1980, Side 11
vioutt Miðvikudagur 9. júli 1980
Banaslysvaidar í umferðinnl:
Mega vænta
ákæru um
manndráp
af gáleysi
„Þeir sem verða valdir að
banaslysum i umferðinni eru
yfirleitt ákærðir fyrir manndráp
Blómsveiga slóður:
Afhentl Landspítaia
gjörgæslutækl
vlð fæðlngar
Landspitalinn fékk nýlega að
gjöf vandað gjörgæslutæki til
notkunar við fæðingar. Er þaö
talið auka mjög á öryggi móður
og barns meðan á fæðingu stend-
ur og er þaö Blómsveigasjóður
Þorbjargar Sveinsdóttur sem gaf
tækið.
Þorbjörg Sveinsdóttir var kunn
ljósmóðir i Reykjavik á ofan-
verðri 19. öld og lét til sin taka á
mörgum sviðum. Þar á meðal var
hún einn af aðalhvatamönnum
Hins islenska kvenfélags og að
henni látinni stofnuðu félagskon-
ur þess Blómsveigasjóðinn til
minningar um hana. Stjórn sjóðs-
ins skipa Guðrún Benediktsdóttir,
Þorbjörg Jónsdóttir og Guðrún
Jóhannsdóttir. —«j-
af gáleysi”, sagði Sverrir Einars-
son sakadómari er Visir hafði
samband við hann vegna hinna
tiðu banaslysa i umferðinni upp á
siökastiö.
Sverrir tók skýrt fram, að ekki
væri hægt að gefa neina algilda
reglu um það hversu mikla refs-
ingu slysvaldar hlytu, það væri
mjög misjafnt eftir hverju broti
og aðstæðum öllum. Refsiramm-
inn er tiltölulega viður þegar
dæmt er og býður sú lagagrein
sem oftast er beitt upp á sektir,
varðhald eða fangelsi.
Sverrir Einarsson sagði að bú-
ast mætti við nokkur hundruð
þúsund króna sekt og ökuleyfis-
sviptingu i eitt ár i minnsta lagi.
Hann benti á dæmi þess að varð-
hald heföi verið dæmt en i þvi til-
viki hafði ökumaður verið undir
einhverjum áfengisáhrifum, en
annars taldi hann að varðhalds-
eöa fangelsisdómar væru mjög
sjaldgæfir i þessum efnum hin
siðari ár. Sverrir itrekaði, að
mjög erfitt væri að finna
nokkrareglu um refsingar i þess-
um málum þar sem engin tvö til-
vik væru nákvæmlega eins.
—ÓM.
Ljárinn bitur vel hjá Sumarliða. Visismynd: E.J.
„Þá var kaupið
1.30 á tímann”
„Eg er rétt að dunda þetta. Ég
er oröinn gamall og ekki til stór-
ræðanna”, sagði Sumarliði Stein-
grimsson i Borgarnesi þegar Vis-
ismenn bar að garði hjá honum.
„Þegar ég kom hérna árið 1932
voru hér 250 manns að þvi er mig
minnir og lifðu aliir á þjónustu við
sveitirnar i kring. Ég byggði svo
hús hérna 1938. Þá var verka-
maður með 1.30 kr. á timann en
byggingarmeistari 1.90 kr. á tim-
ann. Hvað ætli þeir hafi núna?
Sjálfsagt 30-40 þúsund krónur.
Já, ég hefi séð timana tvo en
mestu breytingarnar eru að
skella yfir núna með Borgar-
fjarðarbrúnni. Þetta er allt til
hins betra, mikil samgöngubót,
en vandræði að hafa þetta svona i
miðjum bænum”, sagði Sumar-
liði.
E.J.
ÞÆR
,'WONA
ÞUSUNDUM!
smáauglýsingar-af 86611
/pEYSUR
OG
BUXUR
Merkjum félögum, fyrirtækjum,
skólum og einstaklingum þessa
búninga, að ósk hvers og eins.
POSTSENDUM
Sportvöruvers/un
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 Sími 11783
E0I53
Tjaldborgarfellitjaldið
Kostar aðeins brot afþví
sem tja/dvagn kostar
og er jafn auðve/t i
uppsetningu og
það sýnist
PÓSTSENDUM
TÓmSTUnDftHÚSIÐ HF
Laugauegi 161-Reyfciauik $=21901