Morgunblaðið - 14.05.2002, Page 2

Morgunblaðið - 14.05.2002, Page 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isGuðni Bergsson í hópi bestu varnarmanna Englands / B2 Guðjón Þórðarson stóð uppi sem sigurvegari í Cardiff / B3, B4, B5 8 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM RANNSÓKNANEFND sjóslysa leggur til að hugað verði að staðsetn- ingu loftinntaka á skipum og minnir á að til séu loftsíur með gildrur fyrir vökva. Þetta er meðal tillagna í ör- yggisátt sem nefndin setur fram eftir rannsókn á sjóslysi 7. desember er Svanborg SH 404 varð vélarvana og fórst við Svörtuloft yst á Snæfells- nesi. Þrír skipverjar fórust en einum var bjargað. Þá telur nefndin í áliti sínu að veðurspá dagsins hefði átt að gefa tilefni til þess að vera ekki á sjó á þessu svæði. Í rannsókn sinni studdist nefndin við gögn frá lögreglu, ferilskráningu frá Tilkynningaskyldu, upptöku frá skýrslutöku nefndarinnar af skip- brotsmanni, myndir og önnur gögn sem nefndin aflaði. Í skýrslu nefnd- arinnar kemur fram að Svanborg hafi farið á sjó að morgni 7. desember og milli kl. 15 og 16 hafi veður versnað og orðið mjög slæmt á stuttum tíma en Svanborg var þá stödd grunnt vestur af Snæfellsnesi. „Um svipað leyti slitnaði stertur (þ.e. tóg – innsk. Mbl.) og lagt var af stað norður fyrir Önd- verðarnes með voðina úti og á að giska 12 tonn af fiski í. Vegna veðurs lét skipstjórinn skera pokann frá og skipverji sem var í lest kom upp á þil- far,“ segir í skýrslunni. Þá kemur fram að brot hafi riðið yfir bátinn, að- alvél stöðvast og ekki tekist að koma henni í gang. Akkeri hafi þá verið sett út og annað náð festu en slitnað skömmu eftir það. Segir að skipið hafi verið í um 20–30 m fjarlægð frá landi þegar akkeri gáfu sig. Svanborgu rak uppí klettana við Svörtuloft kl. 17:46 og komust þrír skipverjar uppá stýr- ishús en einn hafði tekið útbyrðis skömmu áður. „Þegar báturinn hafði skorðast fóru tveir skipverjar niður á þilfar og freistuðu þess að ná taki á klettinum sem skipið hafði skorðast undir en án árangurs. Mikið ólag varð til þess að þeim skolaði fyrir borð en skipverj- anum, sem eftir var á stýrishúsinu, tókst að bjarga með þyrlu varnarliðs- ins við erfiðar aðstæður.“ Nefnd eru í skýrslu nefndarinnar ýmis atriði sem fram komu við rann- sóknina. Þau eru m.a.:  að samkvæmt veðurathugunum frá Gufuskálum og Fróðárheiði breyttist veðrið úr austan 4m/sek. í vestan 41m/sek á um það bil 30 mínútum; að strax um morguninn voru stormvið- varanir frá Veðurstofu Íslands sendar út og ítrekaðar í veðurfregnum;  að samkvæmt vitnisburði þess sem komst af voru skipverjar meðvitaðir um slæma veðurspá;  að ekki kom fram í samskiptum skipverja á Svanborgu og Steinunni hvað hefði valdið því að aðalvél gekk ekki;  að loftinntakskassi fyrir vélarrúm var stækkaður í júní 2001 um 50 cm og inntakinu snúið aftur vegna há- vaða og vandræða með að vökvi átti greiða leið í vélarrúm;  að sams konar bátar hafa átt í vandræðum með loftinntak og höfðu verið gerðar breytingar á einhverjum þeirra með því að setja síuinntak. Í áliti Rannsóknarnefndar sjóslysa segir: „Nefndin telur ekki fyllilega ljóst hvers vegna aðalvél stöðvaðist. Nefndin telur hins vegar sterkar vís- bendingar um að eftir að veður versn- aði hafi mikið magn af sjó átt greiða leið að loftinntaki aðalvélar og stíflað loftsíuna með þeim afleiðingum að vélin stöðvaðist. Loftinntak fyrir vél- arrúmið var að mestu leyti áveðurs á leið skipsins fyrir Öndverðarnes. Nefndin telur að veðurspá dagsins hefði átt að gefa tilefni til þess að vera ekki á sjó á þessu svæði.“ Nefndin setur fram tillögur í ör- yggisátt og leggur hún til að hugað verði að staðsetningu loftinntaka á skipum og minnir á að til séu loftsíur með gildrur fyrir vökva. Þá ítrekar nefndin þær ályktanir sem gerðar hafa verið um að útgerðar- og/eða skipstjórnarmenn fari eftir þeim við- vörunum sem koma fram í veður- spám. Nefndin bendir einnig á að við rannsókn þessa máls og hliðstæðra mála hefur komið í ljós að í mörgum tilfellum eru skip með of litlar elds- neytissíur miðað við olíuflæði að vél- um. Rannsóknarnefnd sjóslysa lýkur rannsókn á því þegar Svanborg SH fórst Veðurspá tilefni til að vera ekki á sjó á þessu svæði DIRRINDÍIÐ ljúfa frá lóunni gleð- ur landsmenn alltaf jafnmikið og mest líklega á vorin, þegar hún skilar sér á ný upp á gamla Frón eftir veturlanga setu á suðrænum slóðum. Hér er lóan í heldur kulda- legu umhverfi á Húsavík í gær. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Snemma lóan… JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri undirrituðu í gær sam- eiginlega viljayfirlýsingu um endur- bætur og uppbyggingu nýrra hjúkr- unarrýma í Reykjavík á árunum 2003 til 2007. Samkvæmt viljayfirlýsing- unni er gert ráð fyrir að 326 ný hjúkr- unarrými verði tekin í notkun í Reykjavík á tímabilinu en 42 eldri rýmum verði lokað eða breytt í sér- býli. Áætlaður stofnkostnaður vegna þessara framkvæmda er á fimmta milljarð króna og þar af greiðir fram- kvæmdasjóður aldraðra 40%. Gert er ráð fyrir að hlutur ríkisins verði 70% í nýbyggingum en kostnaður Reykja- víkurborgar er áætlaður um 1,4 millj- arðar króna. Gengið er út frá því að reist verði 100 rýma hjúkrunarheimili á um 10.000 fm lóð í Sogamýri, austan við Mörkina, og það tekið í notkun í jan- úar 2005, en bjóða á út bygginguna fyrir árslok. Eignarhlutur ríkisins verður 70% en borgarinnar 30% og kostnaður verður greiddur í sömu hlutföllum, en gert er ráð fyrir að rekstur þjónustunnar verði boðinn út eða greitt fyrir hana samkvæmt reiknilíkani ráðuneytisins ef gengið verði beint til samninga við Fé- lagsþjónustuna í Reykjavík eða þriðja aðila um rekstur heimilisins. Enn- fremur er gert ráð fyrir stækkun Hjúkrunarheimilisins Eirar, Hjúkr- unar- og dvalarheimilisins Hrafnistu og Hjúkrunarheimilisins Droplaugar- staða. Á Eir er gert ráð fyrir að fjölga hjúkrunarrýmum um 40 á tímabilinu 2003 til 2005, á Hrafnistu verður hjúkrunarrýmum fjölgað um 60 á sama tíma en dvalarrýmum fækkað um 30 – raunfjölgun því 30 rými – og á Droplaugarstöðum verður bætt við 26 hjúkrunarrýmum 2005 en tvíbýlum fækkað um 12, þannig að raunfjölgun rýma verður 14. Í þriðja lagi á að hefja undirbúning að byggingu nýs 100 rýma hjúkrunar- heimilis í Reykjavík á tímabilinu 2003 til 2005 og taka það í notkun 2007, en ákvörðun um staðsetningu á að liggja fyrir á næsta ári. Auk þess er greint frá því að heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytið muni með markviss- um hætti efla Miðstöð heimahjúkrun- ar í Reykjavík á tímabilinu 2003 til 2007 með fjölgun stöðugilda hjúkrun- arfræðinga og sjúkraliða. Þá muni Reykjavíkurborg skoða með hvaða hætti megi koma upp aðstöðu til heimahjúkrunar í tengslum við þjón- ustuíbúðir aldraðra. Í viljayfirlýsingunni kemur fram að framkvæmd hennar sé háð samþykki borgarráðs og því að nauðsynlegt fé fáist á fjárlögum á tímabilinu. Viljayfirlýsing heilbrigðisráðherra og borgarstjóra um öldrunarþjónustu Hjúkrunarrýmum fjölgað um 284 ORKUVEITU Reykjavíkur hafa borist tvö tilboð í rekstur líkams- ræktarstöðvar sem fyrirhugaður er í nýjum höfuðstöðvum Orkuveitunnar sem nú rísa við Réttarháls í Reykja- vík. Annað tilboðið er frá Birni Leifs- syni í World Class, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins. Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur, eru tilboðin til skoðun- ar hjá ráðgjafarfyrirtæki sem síðar mun leggja þau fyrir byggingar- nefnd hússins. Alfreð vildi ekki upp- lýsa hverjir hefðu lagt tilboðin fram, að öðru leyti en því að það væru að- ilar sem starfræktu líkamsræktar- stöðvar. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins komu tilboðin frá World Class, líkamsræktarstöð Björns Leifssonar, og frá líkams- ræktarstöð í Kópavogi. Nýtt húsnæði Orkuveitunnar Tvö tilboð í lík- amsræktarstöð FJÖLMARGIR listamenn komu fram á menningarhátíðinni List fyrir Palestínu, sem haldin var í Borgarleikhúsinu í gær, en allir sem að sýningunni stóðu gáfu vinnu sína og andvirði verka og aðgangseyrir rann óskertur til hjálparstarfa í Palestínu. Að há- tíðinni stóðu einstaklingar, hópar og samtök íslenskra listamanna auk félagsins Ísland-Palestína. Á hátíðinni komu fram jafnt myndlistarmenn og rithöfundar sem tónlistarmenn og ljóðskáld og var fjölbreytni dagskrárinnar því mikil. Á myndinni er Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari sem lék á stóra sviði Borgarleikhúss- ins á hátíðinni í gær. Morgunblaðið/Jim Smart Safnað fyrir Palestínu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.