Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Alfa Romeo 147. 1600, f.skr.d. 30.05. 2001, ek. 18 þ. km., 5 d., bsk., 15" álf., spólvörn o.fl. Verð 1.870.000. Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi. Opnunartímar: Mánud.-föstud. kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16. Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is Netfang: bilathing@hekla.is NEFNDARÁLIT dómnefndar, sem fjallaði um umsækjendur um starf lektors/dósents í fornleifa- fræði við heimspekideild Háskóla Íslands, er að sögn Tryggva Þór- hallssonar, lögfræðings Háskóla Íslands, ennþá vinnuskjal og í raun trúnaðarmál. En nokkra athygli hefur vakið hversu stór orð eru notuð um verk umsækjenda í álit- inu. Enginn umsækjenda vildi tjá sig um málið Umsækjendur um stöðuna voru fornleifafræðingarnar dr. Bjarni F. Einarsson, dr. Margrét Hermanns- Auðardóttir, dr. Orri Vésteinsson og Steinunn Kristjánsdóttir. Dóm- nefndin taldi að Orri væri hæfur til að gegna stöðu lektors og dósents í fornleifafræði og að Margrét væri hæf til að gegna stöðu lektors en að hún uppfyllti ekki kröfur til að gegna stöðu dósents. Bjarni og Steinunn voru hins vegar ekki talin hæf til að gegna stöðunni. Enginn umsækjenda vildi tjá sig um málið við Morgunblaðið. Þess má þó geta að Bjarni hyggst koma athuga- semdum sínum vegna niðurstöðu dómnefndarinnar á framfæri við rektor Háskóla Íslands. Páll Skúlason rektor vísaði á lög- fræðing skólans, Tryggva Þórhalls- son. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur, sem var for- maður nefndarinnar, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Tryggvi sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vilja tjá sig um einstök dómnefndarálit en segir að ferlið sé þannig að umsækjendur fái dómnefndarálit í hendur og geti þá gert sínar athugasemdir áður en það verði endanlega samþykkt. „Dómnefnd fær síðan athugasemd- ir umsækjenda til umsagnar, svo það er hugsanlegt að í þessu ferli taki álitið breytingum,“ segir Tryggvi. „Það er háskólarektor sem metur það hvaða athugasemd- ir eru sendar áfram til dómnefnd- ar. Ef umsækjandi vill draga um- sókn sína til baka áður en dómnefndarálit er orðið endanlegt á hann rétt á því að öll umfjöllun um hann sé tekin út úr álitinu þeg- ar það liggur fyrir í endanlegri mynd.“ Aðspurður hvort orðalag það sem viðhaft er í dómnefndarálitinu sé eðlilegt og vanalegt í álitum nefnda Háskóla Íslands, segir Tryggi að ekki sé til neitt fyr- irmyndar dómnefndarálit sem hægt sé að miða við. „Dómnefndin starfar sjálfstætt að sínu verkefni. Hún leggur ákveðin gögn til grundvallar álitinu og síðan fylgir hún ákveðnum regluramma laga Háskóla Íslands um hvernig dóm- nefndir eigi að vinna og gera sitt nefndarálit úr garði.“ Dómnefnd ber ábyrgð á sínu áliti, en þó starfar hún í umboði há- skólarektors, að sögn Tryggva. „Það er háskólarektor sem tekur á endanum afstöðu til þess hvernig farið er með dómnefndarálit.“ Dómnefndarálit trúnaðarmál þar til það verður endanlega frágengið Umsækjendur geta komið athugasemd- um á framfæri JARÐVEGSFRAMKVÆMDIR vegna nýrrar keppnislaugar og lík- amsræktarstöðvar við Laugardals- laug eru hafnar eftir að fyrsta skóflustunga var tekin í lok apríl sl. Reykjavíkurborg og Laugar ehf., sem er félag í eigu Björns K. Leifs- sonar, eiganda World Class, standa sameiginlega að framkvæmdinni. Samningur milli Lauga og Reykja- víkurborgar var undirritaður 24. apríl sl. um samstarf, samvinnu og verkaskiptingu vegna fram- kvæmdanna í Laugardal, sem áætlað er að alls munu kosta 2,5 milljarða króna, þar af á líkamsræktarstöðin að kosta 1,5 milljarða. Verkinu á að vera lokið á árinu 2004. Frumkvæði Björns en rætt var við aðrar líkamsræktarstöðvar Samkvæmt verksamningnum mun félagið Laugar ehf. greiða borg- inni rúmar 158 milljónir króna fyrir byggingarréttinn á líkamsræktar- stöðinni. Félagið hefur þegar greitt rúmar 24 milljónir króna og á að greiða tæpar 60 milljónir fyrir 24. maí nk. Eftirstöðvarnar, um 74 millj- ónir, eiga að greiðast með fjórum jöfnum afborgunum, síðast í apríl ár- ið 2004. Ekkert útboð fór fram á því til hvaða aðila Reykjavíkurborg myndi ganga til samstarfs við við byggingu þessa íþróttamannvirkis. Frum- kvæði um líkamsræktarstöðina var alfarið Björns, að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns Íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur, ÍTR. „Bygging nýrrar 50 metra yfir- byggðrar keppnislaugar kom til um- ræðu á síðasta kjörtímabili og þá var hugmyndin að reisa hana í Grafar- vogi. Niðurstaðan var sú að byggja hana við gömlu laugina í Laugardal og fram fór hönnunarsamkeppni meðal arkitekta, sem Ari Lúðvíksson sigraði í. Síðan kom sú hugmynd frá Birni að tengja sundlaugarmannvirkin við allsherjar heilsuræktarmiðstöð,“ segir Steinunn Valdís. Hún segir að í kjölfar þessa hafi verið leitað til annarra aðila í rekstri líkamsræktarstöðva, m.a. Hreyfing- ar og Jónínu Benediktsdóttur, og kannað hvort þeir hefðu áhuga. Ekki hafi þótt eðlilegt að úthluta verkefn- inu strax til Björns í World Class. Steinunn Valdís lítur svo á að um könnunarviðræður vegna útboðs hafi verið að ræða en þar sem aðrir en Björn hafi ekki sýnt málinu áhuga hafi ekki þótt ástæða til að fara í formlegt útboð. Í borgarráði um miðjan mars árið 1999 var samþykkt að taka upp við- ræður við Björn um málið. Viljayfir- lýsing milli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra og Björns var svo undirrituð í júlí sama ár. Þar segir m.a. að borgin muni að óbreyttu kosta byggingu sundlaug- arinnar og annast rekstur hennar fyrir sinn reikning en Björn kosta byggingu og rekstur líkamsræktar- stöðvarinnar. Síðan segir: „Aðilar munu þó kanna hvort hagkvæmt sé fyrir báða aðila að sameina rekstur- inn að einhverju eða öllu leyti. Það er þó fyrst talið koma til álita eftir að nokkur reynsla er komin á rekstur- inn.“ Aðspurð hvort þetta sé enn í gildi, segir Steinunn Valdís að tíminn verði að leiða það í ljós. Fyrst þurfi að fást reynsla af rekstri mannvirkj- anna áður en farið verði að tala um sameiningu eða frekari samvinnu. Eins og þetta sé hugsað í dag ætli Reykjavíkurborg að annast bygg- ingu og rekstur keppnislaugarinnar og fyrirtæki Björns K. Leifssonar muni sjá um líkamsræktarstöðina. Greiðir 158 millj. fyr- ir byggingarréttinn Samningur Björns K. Leifssonar við Reykjavíkurborg um byggingu íþróttamannvirkis í Laugardal Á ÁRLEGUM fundi sínum í Molde í Noregi sl. sunnudag ræddu forsætisráðherrar Norðurlandanna um málefni Evrópu, stækkun ESB, baráttu gegn alþjóðlegum hryðjuverkum og ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Gestur fundarins var forseti Suður-Afríku, Thabo Mbeki, og ræddu norrænu ráðherrarnir m.a. aukin sam- skipti Norðurlandanna við Suður-Afríku og fleiri ríki í sunnanverðri álfunni. Davíð Oddsson forsætisráðherra sat fundinn og sagði Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður hans, að á fyrri hluta fundarins hefðu norrænu ráðherrarnir rætt ýmis sam- eiginleg mál. Danir gerðu grein fyrir þeim áherslum sem framundan væru hjá ESB en þeir taka senn við for- mennsku þar, rætt var vítt og breitt um málefni Evrópu og forsætisráðherrar Noregs og Íslands ræddu sjón- armið sín varðandi EES-samninginn og samskipti ríkjanna við ESB. Einnig sagði Illugi ráðherrana hafa rætt um ýmis mál sem unnið er að á hinum norræna vett- vangi. Þá ræddu ráðherrarnir um alþjóðlegan leiðtoga- fund sem halda á í Suður-Afríku síðari hluta sumars um sjálfbæra þróun. Á fundi norrænu ráðherranna með forseta Suður- Afríku var einkum rætt um aukin samskipti landanna á ýmsum sviðum. Sagði Illugi að einkum hefði verið fjallað um samkomulag sem gert var í Skagen fyrir tveimur ár- um um að Norðurlöndin leggðu sitt af mörkum til að hvetja til góðra stjórnarhátta í löndum í suðurhluta Afr- íku, hvernig styrkja megi lýðræði í þessum heimshluta til að leggja grunn að efnahagslegum framförum. Reuters Forsætisráðherrar Norðurlanda hittust á árlegum sumarfundi sínum í Molde í Noregi í fyrradag. Frá vinstri: Paavo Lipponen Finnlandi, Anders Fogh Rasmussen Danmörku, Goran Persson Svíþjóð, Kjell Magne Bondevik Noregi og Davíð Oddsson. Ræddu aukin samskipti við Suður-Afríku APForseti Suður-Afríku, Thabo Mbeki, er í opinberri heimsókn í Noregi. Hér takast hann og Haraldur Noregskonungur í hendur en forsetinn hitti einnig forsætisráðherra Norðurlanda. ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slasaðs manns um borð í þýska skólaskipinu Gorch Foch um klukkan 23.30 á sunnu- dagskvöld. Áhöfn skipsins hafði samband við Landhelgisgæslu og óskaði eftir aðstoð þyrlu við að flytja hann á sjúkrahús en maður- inn hafði fallið efst úr mastri niður á dekk og var talinn alvarlega slas- aður. Seglskipið var þá um 83 sjó- mílur suður af Hornafirði. Um kl. 1:30 hafði læknir um borð í skipinu samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti að hinn slasaði væri látinn. Þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, var þá snúið við. Féll ofan úr mastri Banaslys um borð í Gorch Foch
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.