Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 9
BJÖRGUNARSVEITIR frá Egils-
stöðum að Djúpavogi fundu rúm-
lega fertugan mann, sem fest hafði
fólksbíl á fjallveginum um Öxi, á
þriðja tímanum á sunnudag.
Maðurinn hafði lagt af stað frá
Egilsstöðum áleiðis til Hafnar í
Hornafirði á laugardagskvöld en
fest bílinn á veginum og ákveðið að
halda kyrru fyrir.
Leit var hafin að manninum um
hádegisbil á sunnudag og tóku tugir
björgunarsveitarmanna þátt í
henni.
Að sögn upplýsingafulltrúa
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
er fjallvegurinn um Öxi hafður
opinn á sumrin en sökum slæmrar
veðráttu í vor hefur færð um veginn
verið með verra móti.
Fjallvegurinn um Öxi
Festi bílinn
á veginum
SJÖUNDI árlegi fundur fjármála-
ráðherra aðildarríkja Eystrasalts-
ráðsins var haldinn í Gdansk í Pól-
landi dagana 9.–10. maí. Aðild að
ráðinu eiga Þýskaland, Pólland,
Eystrasaltsríkin þrjú og Norður-
löndin fimm. Gestgjafi var Marek
Belka, fjármála- og forsætisráð-
herra Póllands. Geir H. Haarde
fjármálaráðherra sat fundinn af Ís-
lands hálfu.
Á fundinum var fjallað um stöðu
og beitingu ríkisfjármála, orku- og
umhverfisskatta og fjármál sveitar-
félaga. Ráðherrarnir voru sammála
um mikilvægi þess að samræma
hagstjórnaraðgerðir til að mæta
skammtíma niðursveiflum og lang-
tímamarkmiðum um stöðugleika í
efnahagsmálum og ábyrga ríkis-
fjármálastefnu til lengri tíma litið.
Fjármálaráðherra, Geir H.
Haarde, greindi frá því að á Íslandi
hefði ekki verið brugðist við nið-
ursveiflunni með því að auka rík-
isútgjöld heldur með víðtækum
skattkerfisbreytingum, þ.á m.
lækkun á fyrirtækjasköttum úr
30% í 18%. Með þessu hefði ekki
eingöngu verið spornað við niður-
sveiflunni heldur hefði íslenskt
efnahagslíf verið styrkt til lengri
tíma litið. Jafnframt benti hann á
að langtímahorfur í ríkisfjármálum
á Íslandi væru betri en víða annars
staðar vegna styrkrar stöðu lífeyr-
iskerfisins.
Ráðherrarnir fjölluðu um um-
hverfisskatta og mikilvægi þess að
beita hagrænum aðgerðum í um-
hverfismálum, sérstaklega hvað
varðar orkunotkun.
Þetta töldu þeir nauðsynlegt
bæði til þess að ná fram hagkvæmri
orkunýtingu og til þess að draga úr
mengun.
Fjármálaráðherra, Geir H.
Haarde, benti á nauðsyn þess að
tryggja stöðugan hagvöxt þar sem
jafnframt væri tekið tillit til um-
hverfissjónarmiða.
Ráðherrann gerði grein fyrir sér-
stöðu Íslands, meðal annars hvað
varðaði sjálfbæra þróun og upp-
byggingu fiskistofnanna og nýtingu
þeirra gífurlegu náttúruauðlinda
sem felast í vatnsorku landsins.
Loks ræddu ráðherrarnir um
fjármál sveitarfélaga og urðu sam-
mála um að í mörgum tilfellum
væru sveitarfélög betur í stakk bú-
in heldur en ríkið til að sinna hinum
ýmsu verkefnum er krefjast góðrar
þekkingar á þörfum íbúanna.
Næsti fundur ráðherranna verð-
ur haldinn á Íslandi að ári.
Árlegur fundur
fjármálaráðherra ÍSLENSKUR karlmaður á áttræð-isaldri, sem var hnepptur í varðhald á
Kanaríeyjum, eftir að sambýliskona
hans lést þegar hún féll af svölum
hótels á eyjunum, er enn í farbanni á
Kanaríeyjum. Atburðurinn átti sér
stað 5. janúar sl. og var maðurinn í
gæsluvarðhaldi þar til um miðjan
febrúar. Síðan hefur hann búið í íbúð
á eyjunum og verið í farbanni.
Maðurinn var fyrst grunaður um
að hafa hrint konunni vísvitandi af
svölunum. Vitni staðhæfir hins vegar
að maðurinn hafi ekki ætlað sér að
hrinda konunni. Um slys hafi verið að
ræða.
Enn í farbanni
á Kanaríeyjum
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
NÝ SENDING
Hágæða undirföt
Mikið úrval
Ermalausar
sumarblússur
flottar undir jakka
stærðir 36—56
Sumartilboð
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Ný
SUMARLÍNA
Stærðir 36-52 (S-3XL)
Opið virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
Sendum lista út á land
Sími 567 3718
Túnika: 4.350
Toppur: 1.880
Buxur: 3.400
Skór: 3.780
Kringlunni - sími 581 2300
SUMARIÐ
2002
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347
Sérhönnun st. 42-56
Spennandi sumarfatnaður
Alltaf eitthvað nýtt
Við sérhæfum okkur í góðum náttúruefnum.
Matseðill
www.graennkostur.is
Þri 14/5: Steikt grænmeti, núðlur &
hummus m/fersku salati, hrísgrjónum &
meðlæti.
Mið 15/5: Grískar guðaveigar &
himneskt meðlæti m/fersku salati,
hrísgrjónum & meðlæti.
Fim 16/5: Austurlenskur karrýpottur &
cous cous m/fersku salati, hrísgrjónum &
meðlæti.
Fös 17/5: Kálbögglar & grænmetissósa
m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti.
Helgin 18/5 & 19/5: Suður-evrópskur &
ofnbakað m/fersku salati, hrísgrjónum &
meðlæti.
Mán 20/5: Pönnukaka og tilheyrandi.
Bankastræti 11
sími 551 3930
Hátíðarfatnaður
Ný sending
Ný sending
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið mán - fös 10-18, laugardag 10-14