Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 11 FORSTJÓRI Byggðastofnunar gekk af síðasta fundi í stjórn stofn- unarinnar, sem haldinn var á Bifröst 7. maí síðastliðinn þegar honum var meinað að taka á dagskrá drög að ársreikningum stofnunarinnar. Hann upplýsti Valgerði Sverrisdótt- ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um stöðu málsins á föstudaginn var. Valgerður kvaðst í samtali við Morgunblaðið hafa fengið afrit af bréfi starfsmanna til forstjórans þar sem þeir lýstu áhyggjum sínum og óánægju með stjórnarformanninn. Kristinn H. Gunnarsson, stjórnar- formaður Byggðastofnunar, segist ekki vilja tjá sig um það sem for- stjórinn hefði sagt opinberlega. „Eðlilegur gangur er að hann leggi það fyrir mig og stjórn þau mál sem hann vill ræða í þessum efnum og það hefur hann nú ekki gert. Síðan ræðum við það bara í okkar hóp,“ sagði Kristinn. Theódór Bjarnason, forstjóri Byggðastofnunar, sagði aðspurður að það væri rétt að hann hefði geng- ið af þessum fundi. „Ég gat ekki sætt mig við að vera meinað að taka til máls á fundinum og það sem ég hafði fram að færa var að fara fram á það við fundinn að drög að árs- reikningum Byggðastofnunar yrðu lögð fram á fundinum til kynning- ar,“ sagði Theódór. Hann sagði að meiningin hefði verið að afgreiða ársreikninginn á næsta fundi á eftir þessum. Þetta væri ferill sem alltaf hefði verið í stofnuninni. Á fyrri fundinum væru reikningarnir lagðir fram og síðan hefðu fundarmenn þann tíma sem þeir þyrftu til að athuga og skoða reikninginn og koma með athuga- semdir og fyrirspurnir fram að næsta fundi. Aðspurður hvort einhver skýring hefði fengist á því afhverju reikning- arnir voru ekki teknir á dagskrá, sagðist hann ekki hafa fengið skýr- ingu á því sem hann gæti tekið gilda. „Nú er það svo að við flutninginn norður höfum við verið nokkuð pressuð með ýmsa þætti, að koma stofnuninni fyrir og framkvæma nokkur praktísk atriði. Eitt af því sem gekk ekki eins hratt og ég hefði kosið er endurskoðun og frágangur ársreiknings. Það hreinlega tafðist beinlíns vegna þessara flutninga, en menn hafa unnið dag og nótt má segja til að ljúka þessu. Þess vegna kom það sér ákaflega illa að það mætti ekki leggja reikninginn fyrir til kynningar,“ sagði Theódór. Hann bætti því við að umfjöllun ársreikninga í Byggðastofnun væri lagaleg skylda og það sem hann hefði gert í málinu væri að sjá til þess að reikningar kæmust til stjórnarmanna og síðan að upplýsa iðnaðar- og viðskiptaráðherra um málið, en ráðherra bæri endanlega ábyrgð á stofnuninni. „Ég átti fund með ráðherra núna á föstudaginn þar sem við fórum yfir stöðuna og afhenti henni afrit af þessum gögnum,“ sagði Theódór. Hann sagðist aðspurður meta það þannig að þessi ágreiningur á milli manna yrði leystur innanhúss. Það væri deginum ljósara að það þyrfti að höggva á hnútinn. Byggðastofn- un væri stofnun sem ekki gæti lokað frá einum degi til þess næsta og hann ætti von á því að haldinn yrði fundur og málin rædd og leyst. „Stofnunin starfar að sjálfsögðu af fullum krafti eins vel og frekast er kostur. Það er búið að byggja stofn- unina upp og hún starfar mjög vel, bæði útlánastarfsemin og þróunar- sviðið, þannig að þetta tengist nú meira þessu ytra umhverfi, sem ég vonast svo sannarlega til að verði leyst fyrr en seinna,“ sagði Theódór. Hann sagði, aðspurður hvort þarna væri um að ræða ágreining milli hans og stjórnar stofnunarinn- ar eða hans og stjórnarformannsins, að það væri mjög gott samstarf milli hans sem forstjóra og einstakra stjórnarmanna. Hann yrði að meta það sem svo að þarna væri fyrst og fremst um að ræða ágreining milli hans og stjórnarformannsins. Stofnunin alveg skilað sínu hlutverki Kristinn H. Gunnarsson, stjórn- arformaður Byggðastofnunar, sagð- ist ekki vilja tjá sig um það sem for- stjórinn hefði sagt opinberlega. „Eðlilegur gangur er að hann leggi fyrir mig og stjórn þau mál sem hann vill ræða í þessum efnum og það hefur hann nú ekki gert. Síðan ræðum við það bara í okkar hóp,“ sagði Kristinn. Aðspurður hvort meintir sam- starfsörðugleikar hans og forstjóra stofnunarinnar hefðu haft áhrif á starfsemi stofnunarinnar sagðist hann telja að stofnunin hefði alveg skilað sínu hlutverki þrátt fyrir að dálítil truflun hefði orðið á starfsem- inni meðan verið var að flytja hana. Hann sagðist aðspurður ekki vilja tjá sig um þessa meintu samstarfs- örðugleika að öðru leyti. Hann skrif- aði ekki upp á það sem skýringu. Menn myndu bara taka hvert mál fyrir sig og ræða það efnislega. Hann bætti því við aðspurður að stefnt væri að því að vera með ann- an stjórnarfund í maí. Kunnugt um mismunandi áherslur Valgerður Sverrisdóttir kvaðst telja samstarfserfiðleika í Byggða- stofnun þannig vaxna að ekki yrði komist hjá því að taka á málinu. „Mér hefur verið kunnugt um að mismunandi áherslur væru á milli stjórnarformanns og forstjóra og ekki nægilega gott samstarf,“ sagði Valgerður aðspurð. Kvaðst hún hafa fengið afrit af bréfi nokkurra starfs- manna Byggðastofnunar til for- stjóra þar sem þeir lýstu áhyggjum og óánægju í garð formanns. Sagði hún það hafa borist áður en síðasti stjórnarfundur var haldinn og málið ætti sér nokkurn aðdraganda. Ráð- herra sagði Byggðastofnun starfa samkvæmt lögum og ekkert væri óafgreitt á sínu borði sem varðaði stofnunina. „Ég reikna með því að þetta mál sé þannig vaxið að ekki verði komist hjá að taka á því og fá niðurstöðu í það fyrir ársfundinn,“ sem hún segir að verði í næsta mán- uði. Hún sagði það alvarlegt ef mis- munandi áherslur manna yrðu til þess að taka frá þeim kraft til þess að vinna af heilindum að byggða- málum. Valgerður kvaðst vilja í lengstu lög bera traust til stjórn- arformanns og forstjóra og vona að menn gætu bætt úr þessum vinnu- brögðum. Forstjóri Byggðastofnunar gekk af stjórnarfundi þegar ársreikningar fengust ekki teknir á dagskrá Hefur upplýst viðskiptaráðherra um stöðu málsins NÝ speglanastofa var tekin í gagnið á meltingarsjúkdómadeild St. Jósefsspítala í Hafnarfirði í gær. Var jafnframt tekinn í notk- un nýr tækjabúnaður sem fé- lagasamtök og fyrirtæki samein- uðust um að gefa spítalanum. Ásgeir Theodórs, yfirlæknir og meltingarsérfræðingur, sýndi gestum nýja búnaðinn og skýrði frá starfi deildarinnar. Nýja stofan er í göngudeild- arhúsi spítalans. Árni Sverrisson, framkvæmdastjóri St. Jósefsspít- ala, segir að með tilkomu hennar tvöfaldist rannsóknargeta melt- ingarsjúkdómadeildarinnar. Hann segir ekki verða ráðið fleira starfsfólk til að byrja með en af- köstin geti aukist vegna betri nýtingar. Segir hann tækjabún- aðinn mjög fullkominn en á deild- inni fara fram hvers kyns rann- sóknir á meltingarvegi, speglanir og skoðanir. Breytingar og endurnýjun hús- næðisins kostaði um 10 milljónir króna og tækin sem færð voru spítalanum kostuðu um 17 millj- ónir. Meðal þeirra sem lögðu fram fjármagn voru deildir Rauða krossins í Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaðahreppi, Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og allmörg fleiri samtök, svo og fyrirtæki og einstaklingar. Betur búin fyrir aukin verkefni Árni segir tilgang endurbót- anna á meltingarsjúkdómadeild- inni meðal annars þann að gera hana betur í stakk búna til að fylgja eftir nýsamþykktri tillögu til þingsályktunar um aðgerðir til forvarna á sviði krabbameins í meltingarfærum. Þannig segir hann ráðgert að halda áfram að bjóða þeim sjúklingum sem greinst hafa með forstig krabba- meins í meltingarfærum upp á eftirlit að þremur árum liðnum. Hafi sjúklingar greinst með sepa, sem geta leitt til myndunar krabbameins, eru þeir yfirleitt teknir og þeim boðið upp á reglu- bundið eftirlit í framhaldi af því. Í göngudeildarhúsi St. Jós- efsspítala er til húsa auk melting- arsjúkdómadeildarinnar augn- deild og göngudeildir sem tilheyra þessum sviðum. Morgunblaðið/Kristinn Ásgeir Theodórs, yfirlæknir meltingarsjúkdómadeildar, og Kristín Ólafsdóttir deildarstjóri. Ný speglanastofa á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði Aukin afköst með nýjum tækjabúnaði ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn- ismála hefur staðfest ákvörðun samkeppnisráðs um að sekta Flug- leiðir, Heimsferðir og Plúsferðir vegna brots á reglum um verð- upplýsingar í auglýsingum, þar sem flugvallarskattar voru ekki innifaldir í verði í auglýsingu. 18. mars s.l. komst samkeppn- isráð að þeirri niðurstöðu að fjög- ur fyrirtæki í ferðaþjónustu hefðu brotið reglur um verðupplýsingar í auglýsingum. Heimsferðum og Úr- vali-Útsýn var gert að greiða 400.000 kr., hvoru fyrirtæki, í sekt en Flugleiðum og Plúsferðum 300.000 kr., hvoru fyrirtæki. Heimsferðir, Flugleiðir og Plús- ferðir áfrýjuðu ákvörðunum ráðs- ins til áfrýjunarnefndar sam- keppnismála og kröfðust þess að stjórnvaldssektirnar yrðu felldar niður en samkeppnisráð krafðist þess að ákvarðanir ráðsins yrðu staðfestar. Ekki deilt um að áfrýjendur hafi gerst brotlegir Málavextir eru þeir að 28. febr- úar 2002 sendi Samkeppnisstofnun bréf til sex fyrirtækja í ferðaþjón- ustu, þar sem rakin voru ákvæði laga og reglna sem gilda um verð- upplýsingar í auglýsingum og við- urlög við brotum á þeim. 10. og 12. mars birtust auglýsingar frá áfrýj- endum í Morgunblaðinu sem að mati Samkeppnisstofnunar virtust brjóta gegn fyrrnefndum ákvæð- um og í kjölfarið var fyrrnefndum fjórum fyrirtækjum gert að greiða sekt til ríkissjóðs eigi síðar en þremur mánuðum eftir dagsetn- ingu ákvörðunarinnar 18. mars. Áfrýjunarmálin þrjú voru flutt skriflega fyrir áfrýjunarnefndinni. Greinargerð samkeppnisráðs barst 30. apríl og var áfrýjendum gefinn kostur á athugasemdum en at- hugasemdir bárust ekki innan til- skilins frests. Í úrskurði áfrýjunarnefndar kemur fram að ekki sé deilt um að áfrýjendur hafi gerst brotlegir gegn umræddum ákvæðum með birtingu auglýsinganna. Í úrskurði nefndarinnar í málinu gegn Flug- leiðum annars vegar og Plúsferð- um hins vegar kemur fram að áfrýjendur hafi ekki mótmælt fjár- hæð álagðrar stjórnsýslusektar sérstaklega, en við sektarákvörðun hafi verið tekið tillit til samstarfs- vilja þeirra. Í úrskurði nefndarinn- ar gegn Heimsferðum kemur fram það álit nefndarinnar að brot ann- arra ferðaskrifstofa geti ekki rétt- lætt brot áfrýjanda og því beri að sekta hann vegna brotsins. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti ákvörðun samkeppnis- ráðs 10. maí. Áfrýjunarnefnd staðfestir ákvörðun samkeppnisráðs Ferðaskrifstof- ur sektaðar RÍKISSJÓNVARPIÐ sýnir þrjá 100 mínútna langa þætti um Tómas Mann og fjölskyldu í september og verða þætt- irnir sýndir hver á fætur öðr- um sitt kvöldið hver. Um er að ræða nýja sjónvarpsþáttaröð sem rekur sögu Mann-fjöl- skyldunnar á dramatískan hátt en þættirnir voru sýndir við feikilegar vinsældir í Þýskalandi um síðustu jól. Í aðalhlutverki er Armin Muell- er-Stahl sem leikur Tómas Mann. Þættir um Tómas Mann sýndir í september
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.