Morgunblaðið - 14.05.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KOSTNAÐUR við rekstur sendiráða
Íslands í Evrópu er á bilinu 50–100
milljónir króna við hvert sendiráð.
Ljóst er að ef opna á sendiráð í öllum
löndum Evrópusambandsins nema
Lúxemborg, eins og Baldur Þórhalls-
son, lektor í stjórnmálafræði, lagði til
á málþingi um Evrópumál í Háskól-
anum sl. miðvikudag, er kostnaður
við rekstur þeirra vart undir 300
milljónum króna á ári.
Í erindi sínu sagði Baldur að
styrkja þyrfti sendiráð Íslands í Evr-
ópu og fjölga þeim. Ísland er núna
með sendiráð í átta Evrópuríkjum, en
Baldur sagði að stefna bæri að því að
stofna einnig sendiráð á Spáni,
Portúgal, Grikklandi, Írlandi, Hol-
landi og Ítalíu.
Ekki áformað að opna
ný sendiráð á næstunni
Ísland hefur á síðustu tveimur ár-
um sett á stofn sendiráð í Tókýó í
Japan, Mapútó í Mosambík og Ot-
tawa í Kanada. Sverrir Haukur
Gunnlaugsson, ráðuneytisstjóri í ut-
anríkisráðuneytinu, sagði að utanrík-
isráðuneytið áformaði ekki að opna
fleiri sendiráð alveg á næstunni.
Hann vitnaði í því sambandi til
skýrslu sem utanríkisráðherra flutti
á Alþingi 27. mars sl. en þar segir að
samhliða fjölgun sendiráða sé nauð-
synlegt að efla utanríkisráðuneytið.
Fleiri sendiráð kalli á aukna starf-
semi í ráðuneytinu, bæði úrvinnslu
mála og upplýsinga sem koma frá
þeim og eftirlit með störfum þeirra
og rekstri.
Þörfinni fyrir fleiri starfsmenn hafi
verið mætt með hagræðingu eftir því
sem hægt sé og starfsmenn ráðu-
neytisins séu álíka margir nú og þeir
voru fyrir tveimur árum.
Í skýrslunni segir: „Þegar ákvarð-
anir eru teknar um frekari uppbygg-
ingu utanríkisþjónustunnar er nauð-
synlegt að horfa fram á veginn og
meta hagsmuni Íslands með hliðsjón
af líklegri þróun alþjóðamála, ekki
síður en núverandi stöðu. Þá þarf að
hafa þróun viðskiptalífs og þjóð-
félagsbreytingar hér á landi í huga.
Jafnframt skal bent á það að Ísland
hefur ekki aðeins hagsmuni í alþjóða-
samfélaginu sem það þarf að gæta,
heldur einnig skyldur gagnvart því.
Sem sjálfstæðu vel efnuðu ríki ber Ís-
landi að leggja sitt af mörkum á sem
flestum sviðum; má þar m.a. nefna
þátttöku í friðargæslu, framlög til
þróunarmála og neyðarhjálp. Ís-
lenska utanríkisþjónustan er enn
frekar ung, a.m.k. samanborið við ut-
anríkisþjónustur margra annarra
landa. Uppbyggingu hennar er því
engan veginn lokið. Engar ákvarðan-
ir hafa verið teknar um frekari
stækkun utanríkisþjónustunnar á
allra næstu árum. Í framtíðinni verð-
ur hins vegar að meta þörfina á stofn-
un sendiráða, t.d. í Suður-Evrópu og
Suður-Ameríku.“
Kostnaður við rekstur sendiráða
ræðst ekki síst af því hvort ráðuneyt-
ið á eða leigir húsnæði undir sendiráð
og sendiherrabústaði. Í dag rekur ut-
anríkisráðuneytið tuttugu sendiráð
og/eða fastanefndir. Þar af leigir
ráðuneytið húsnæði undir sendiherra
í átta löndum en í tólf löndum er það í
eigu ríkisins. Skrifstofur sendiráð-
anna eru flestar í leiguhúsnæði ef
Tókýó og Berlín eru undanskildar.
Rekstur sendiráðanna í Evrópu er
ódýrastur í nýjustu sendiráðunum,
þ.e. í Finnlandi og Austurríki þar
sem hann kostar tæplega 50 milljónir
á ári. Dýrustu sendiráðin eru í Bruss-
el og París, en rekstur þeirra kostar
tæplega 100 milljónir á ári. Ef hrinda
ætti tillögu Baldurs Þórhallssonar í
framkvæmd og opna sex ný sendiráð
í Evrópusambandslöndum yrði
kostnaðurinn við það vart mikið und-
ir 300 milljónum á ári. Einhver stofn-
kostnaður er samfara stofnun nýrra
sendirráða. Í flestum löndum hefur
verið farin sú leið að leigja húsnæði,
sem þýðir að stofnkostnaður er ekki
verulegur, en aftur á móti er rekstr-
arkostnaður hærri vegna þess að
greiða þarf húsaleigu.
Dýrustu sendiráðin kosta
um 100 milljónir króna
ÁRNI Mathiesen sjávarútvegsráðherra segir
að stjórnvöld hafi enga formlega afstöðu tekið
til hugmynda um að auðlindagjaldi sem inn-
heimt verður af sjávarútveginum verði varið
til uppbyggingar á landsbyggðinni. Hugmynd-
ir í þessa veru hafi verið settar fram í skýrslu
endurskoðunarnefndar. Upphafleg rök fyrir
auðlindagjaldi hafi hins vegar verið þau að
gjaldið ætti að fara til almennings.
Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri
HB á Akranesi, hvatti til þess í Morgun-
blaðinu á sunnudag að tekjur af auðlindagjaldi
yrðu nýttar til uppbyggingar á landsbyggð-
inni.
Árni sagði að þó að sjávarútvegsráðherra
hefði lagt fram frumvarpið sem kvað á um
álagningu auðlindagjalds væri það ekki á for-
ræði sjávarútvegsráðuneytisins að taka
ákvörðun um hvernig gjaldinu yrði varið, að
öðru leyti en því að hluti af gjaldtöku á sjávar-
útveginn færi í að greiða fyrir þær stofnanir
sem heyrðu undir ráðuneytið. Þessi sjónar-
mið, að gjaldið ætti að renna til uppbyggingar
á landsbyggðinni, hefðu komið fram áður m.a.
í efndurskoðunarnefndinni.
„Hins vegar er kannski rétt að hafa í huga
þegar þetta er rætt að stór hluti af röksemd-
arfærslunni fyrir veiðileyfagjaldinu var sá að
gjaldið væri endurgjald til almennings fyrir
hlutdeild í umframhagnaðinum af sameigin-
legri auðlind. Menn verða þá að spyrja sig
hvort það verði ekki allir að vera jafnir þegar
kemur að því að útdeila þeim peningum sem
koma inn af þessu gjaldi eða hvort einhver
eigi rétt á að fá meira en aðrir. Þessu munu
stjórnvöld væntanlega svara þegar kemur að
ráðstöfun fjármunana í fjárlögum,“ sagði
Árni.
Auðlindanefnd taldi að helmingur
ætti að fara til byggðarlaganna
Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri í Fjarð-
arbyggð, sagðist alla tíð hafa verið andvígur
álagningu auðlindagjalds á eina auðlind um-
fram aðra. Gjaldið væri hins vegar orðið stað-
reynd. Hann sagðist taka undir þau sjónarmið
sem Haraldur Sturlaugsson setti fram.
Guðmundur sagði að sjávarútvegsfyrirtæki
í Fjarðarbyggð kæmu til með að greiða á ann-
að hundrað milljónir á ári í auðlindagjald.
„Það hlýtur að verða krafa til stjórnmála-
flokkanna fyrir næstu kosningar um að þeir
útskýri hvernig þeir hyggjast verja þessu fé.
Ég er viss um að menn munu gera harðar
kröfur um að þetta renni til þeirra sveitarfé-
laga sem þetta kemur úr. Fyrirtækin hafa
notað þessa peninga til uppbyggingar á staðn-
um. Það á a.m.k. við stærstu fyrirtækin í
Fjarðarbyggð, Síldarvinnsluna og Hraðfrysti-
hús Eskifjarðar,“ sagði Guðmundur.
Í skýrslu auðlindanefndar, sem skilaði áliti
árið 1999, segir að nefndin telji sanngirnisrök
mæla með því að byggðarlög þar sem sjávar-
útvegur er og hefur verið meginundirstaða at-
vinnu njóti þess arðs í ríkari mæli en aðrir.
Nefndin lagði til að helmingur af veiðigjaldi
gangi til byggðarlaga í hlutfalli við vægi sjáv-
arútvegs á hverju svæði og verði þá t.d. miðað
við afla þeirra skipa sem skráð séu á svæðinu
undanfarin fimm ár. Hinn helmingurinn komi
öllum almenningi til góða, t.d. í gegnum
skattalækkanir.
Meirihluti endurskoðunarnefndar, sem skil-
aði skýrslu til sjávarútvegsráðherra um
breytingar á lögunum um stjórn fiskveiða,
lagði til að 350–500 milljónum af því sem veiði-
gjaldið skilaði yrði árlega varið til þess að
byggja upp atvinnulíf í öðrum atvinnugreinum
en sjávarútvegi í þeim byggðarlögum sem
fyrst og fremst hafa treyst á sjávarútveg.
Í skýrslunni er lagt til að menntamálaráðu-
neytið fái til ráðstöfunar 70–75 milljónir sem
varið verði til menntamála í sjávarbyggðum,
iðnaðarráðuneytið fái 70–110 milljónir til
stuðnings við iðnað, upplýsingatækni, nýsköp-
un og fleira, sjávarútvegsráðuneytið fái 100–
200 milljónir til að styrkja eldi sjávarfiska,
landbúnaðarráðuneytið 40 milljónir sem fari
til fiskeldis og samgönguráðuneytið fái 70–75
milljónir sem fari til ferðamála.
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra um ráðstöfun tekna af auðlindagjaldi
Rökin voru að
gjaldið ætti að fara
til almennings
JEPPI fór út af veginum við Hofsós við Grafará í Skaga-
firði í gærmorgun og valt niður 15–20 metra brattan
vegkant þar sem hann hafnaði á hvolfi norðan árinnar.
Lögreglunni á Sauðárkróki barst tilkynning um slysið
laust fyrir klukkan 10 en svo virðist sem ökumaður hafi
misst stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum.
Ökumaður kenndi til eymsla í baki og var fluttur með
sjúkrabifreið til Sauðárkróks. Hann var einn í bílnum.
Fór niður brattan vegkant
ORRI Vigfússon, formaður NASF,
Verndarsjóðs villtra laxastofna,
segir það engin ný sannindi að
ástand laxastofnsins í Elliðaánum
sé bágt og segir löngu tímabært að
grípa til aðgerða til að styrkja
stofninn. Fram kom í frétt í
blaðinu sl. laugardag að stefnt
væri að nánari rannsókn á vatna-
svæði Elliðaáa. Orri segir sífelldar
rannsóknir hafa frestað að nauð-
synjalausu aðkallandi aðgerðum.
Misheppnuð stjórnun og
röng forgangsröðun
Orri segist hafa átt fundi með
borgarstjóra og Orkuveitu Reykja-
víkur. Hann segir Reykjavíkurlist-
ann hafa með skipulegum hætti
komið í veg fyrir réttar stjórn-
unaraðgerðir og að allar skynsam-
legar tillögur um að bæta lífríki
ánna nái fram að ganga.
„Engu er líkara en að mark-
miðið hafi verið að útrýma villtum
laxi í Elliðaánum. Misheppnuð
stjórnun og röng forgangsröðun
verkefna hefur haft slæm áhrif og
komið niður á lífríki ánna. Fyrir
flesta voru vandamálin augljós og
þurfti aldrei að rannsaka þau eða
vakta bara til að koma í veg fyrir
nauðsynlegar aðgerðir,“ segir
hann.
Orri segir NASF hafa lagt fram
undanfarin ár ítarlegar tillögur um
úrbætur sem ekki hafi náð fram að
ganga. Lögð hafi verið fram gögn
sem sýndu að ástandið myndi
versna nema breytt væri strax um
stefnu. Orri segir snöggar rennsl-
isbreytingar verstar og best væri
að rífa Árbæjarstífluna því þar
myndu verða bestu uppeldisskil-
yrðin, m.a. vegna mikils bitmýs
sem þar myndi dafna og vera fæði
fyrir laxinn. Hann segir tillögun-
um hafa verið hafnað af heilbrigð-
is- og umhverfisnefnd borgarinnar
og að aldrei hafi ástandið verið
verra en í fyrra þegar veiði á villt-
um laxi hafi vart verið meiri en
280 fiskar.
Bitmý fær ekki að þroskast
„Frjósömustu hrygningar- og
uppeldisstöðvum ánna er haldið í
gíslingu, bitmý fær ekki að þrosk-
ast, rennslisbreytingar skaða seið-
in sem hafa ekki fengið nógu góð-
an aðbúnað og taka því ekki út
eðlilegan þroska. Enginn er því
hissa á því að endurheimtuhlutfall
laxa úr sjónum fer lækkandi.
Meirihlutinn í heilbrigðis- og um-
hverfisnefnd hafnaði einnig að
styrkja hrygningarstofn árinnar
með því að takmarka aflann í ánni,
sem skiptir þó sköpum fyrir við-
gang laxastofnins.
Orkuveita Reykjavíkur hefur
lengi falið sig bak við nýjar rann-
sóknaráætlanir og látið vakta og
rannsaka Elliðaárnar út í hörgul
síðastliðinn áratug, en niðurstöður
þeirra rannsókna hafa ekki leitt til
nauðsynlegra aðgerða til að stöðva
þessa hnignun og hrinda í fram-
kvæmd áætlun um endurreisn
laxastofnanna,“ sagði Orri Vigfús-
son.
Orri Vigfússon segir lax í Elliðaám
lengi hafa verið í bágu ástandi
Tímabært að
styrkja stofninn
með aðgerðum