Morgunblaðið - 14.05.2002, Page 16

Morgunblaðið - 14.05.2002, Page 16
AKUREYRI 16 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ VORIÐ ætlar að láta bíða eftir sér enn um sinn, en heldur kuldalegt hefur verið um að litast norð- anlands síðustu daga og gerir spáin ráð fyrir að svo verði næstu daga. Raunar spáðu félagar í Veð- urklúbbnum á Dalbæ því um mán- aðamót að hitastig í maí yrði und- ir meðallagi eða í besta falli kringum það. Einhver klúbb- félaga þóttist sjá fyrir „hvíta- sunnusnas“ og annar var á því að slydda yrði á kosningadaginn, laugardag í næstu viku. Hann Tryggvi Þór, sem arkaði mót norðangarra og snjóflygsum heim úr skólanum í gærdag, hefði ef- laust fremur kosið sól og sunn- anþey. En þessi vinsæla blanda hefur bara ekki boðið sig fram ennþá. Morgunblaðið/Kristján Napur vindur hvín UMHVERFISRÁÐ Akureyrarbæj- ar hefur samþykkt að falla frá aug- lýstri tillögu að deiliskipulagi á reit B við Lindasíðu og að það verði tekið til endurskoðunar í samræmi við bókun bæjarráðs. Bæjarráð fól um- hverfisnefnd að gera tillögu að breyttri afmörkun reitsins og nýjum rammaskilmálum fyrir deiliskipulag hans út frá þeirri forsendu m.a. að ekki verði byggt fyrir miðás Gler- árkirkju. Byggingarfyrirtækið SS Byggir hafði fengið úthlutað umræddu svæði og hugðist hefja þar fram- kvæmdir við byggingu 37 raðhúsa- íbúða á einni og tveimur hæðum í þessum mánuði. Vegna samþykktar umhverfisráðs seinkar framkvæmd- um SS Byggis um eitt ár og er Sig- urður Sigurðsson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, allt annað en sáttur við þá niðurstöðu. Hann sagði vinnubrögð umhverfisráð hreint ótrúleg, miðað við það sem á undan er gengið. Mikið tjón að geta ekki hafið framkvæmdir „Við mættum á 6 fundi með fulltrúum umhverfisráðs við undir- búning málsins, þar sem menn lýstu yfir ánægju með það sem við vorum að gera. Enda fórum við í einu og öllu eftir þeim reglum sem giltu við skipulag og hönnun svæðisins. Síðan kemur fram bréf sóknarnefndar Lögmannshlíðarsóknar sem stöðvar málið og við sitjum eftir með hönn- unarrkostnað upp á milljónir króna. Það er því mikið tjón fyrir fyrirtækið að geta ekki hafið framkvæmdir.“ Sigurður sagði að þessi niðurstaða þýddi að hann gæti ekki ráðið neina sumarmenn til starfa og að hann yrði að fækka starfsmönnum sínum, sem í dag eru 43. „Við erum að ljúka verki við Giljaskóla og hefðum getað hægt á framkvæmdum við Amtsbókasafn- ið í sumar en við komum ekki öllum mannskapnum fyrir í Skálateig,“ sagði Sigurður en á Eyrarlandsholti er fyrirtækið að hefja byggingu 44 söluíbúða og 47 leiguíbúða og verða fyrstu 16 íbúðirnar tilbúnar til út- leigu núna í haust. Reynt verði til hlítar að ná samkomulagi Bæjarráð samþykkti á fundi sín- um í síðasta mánuði að fela umhverf- isráði að kanna til hlítar hvort ekki mætti ná samkomulagi við SS Byggi varðandi reit B samkvæmt tillögu að deiliskipulagi um breytingar á lóða- mörkum til að mæta sjónarmiðum forsvarsmanna Glerárkirkju. Á móti fái lóðarhafi úthlutað lóð norðan Glerárkirkju og vestan núverandi reits B. Sigurður sagði að ekki þýddi annað en að skipuleggja svæðið í heild. Nú þyrfti að skipuleggja svæð- ið aftur, það tæki nokkrun tíma og þá yrði kominn vetur. Byggingarframkvæmdir SS Byggis við Lindasíðu frestast um eitt ár Fækka þarf starfsfólki INNRITUN nýnema við Háskólann á Akureyri stendur nú yfir en um- sóknarfestur rennur út 1. júní næst- komandi. Fimm deildir eru við skól- ann, auðlindadeild, heilbrigðisdeild, kennaradeild, rekstrardeild og upp- lýsingatæknideild. Auðlindadeild er ný deild við há- skólann, en að sögn Þorsteins Gunn- arssonar rektors voru í vetur gerðar umfangsmiklar skipulagsbreytingar á sjávarútvegsdeild háskólans og þótti í framhaldi af þeim við hæfi að breyta nafni deildarinnar. Við auðlindadeild eru fjórar náms- brautir; fiskeldi, líftækni, sjávarút- vegsfræði og umhverfisfræði. „Tvær þessara brauta tengjast sjávarútvegi ekkert sérstaklega,“ sagði Þorsteinn og benti einnig á að nafnabreytingin hefði ekki komið vegna þess að sjávarútvegur virtist ekki höfða til ungs fólks um þessar mundir. „Við höfum fengið góð við- brögð, bæði við nafnabreytingunni og námsbrautunum. Við höfum fengið mun fleiri fyrirspurnir um nám við deildina en áður var,“ sagði Þorsteinn. Innritun nýnema við Háskólann á Akureyri Meira spurt um nám við auðlindadeild SAMÞYKKT var á fundi sem hald- inn var á dögunum um framtíð hand- verksmiðstöðvarinnar Punktsins að stofna félag til að styðja við starf- semina. Valinn var hópur 6 manna til að undirbúa stofnun félagsins og boðar hann nú til stofnfundar, sem haldinn verður í sal Brekkuskóla við Laugargötu kl. 20 á miðvikudags- kvöld, 15. maí. Allir þeir sem láta sig starfsemi og framtíð Punktsins einhverju varða eru eindregið hvattir til þess að mæta á fundinn og taka þátt í stofn- un félagsins, segir í frétt frá hópnum. Stofna stuðningsfélag ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.