Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 17 AKUREYRI hefur mikilvægu hlutverki að gegna varðandi það að byggja Eyjafjörð upp sem vaxt- arsvæði í framtíðinni. Um það eru fulltrúar allra flokka sem bjóða fram til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri nú í lok maí sammála. Byggðarannsóknastofnun efndi á dögunum til fundar með fulltrúum stjórnmálaflokkanna þar sem rætt var um Eyjafjörð sem vaxtarsvæði og hlutverk Akureyrar í þeirri þróun. Þóra Ákadóttir, Sjálfstæðis- flokki, sagði byggðamálin m.a. snúast um að sveitarfélögin byðu upp á öfluga grunnþjónustu. Væri hún ekki í lagi gilti einu hvað gert væri til að snúa byggðaþróuninni við. Nefndi Þóra að markaðsátak Akureyrarbæjar hefði vakið at- hygli og styrkt ímynd svæðisins. Akureyri ætti að vera álitlegur valkostur til búsetu fyrir til að mynda fólk sem væri að flytja til landsins frá útlöndum og bærinn ætlaði sér ekki að vera í vara- mannahlutverki fyrir höfuðborgar- svæðið. Greiðar samgöngur skipta öllu Í máli Jóns Erlendssonar, Vinstri grænum, kom fram að greiðar samgöngur um svæðið hefðu mikið að segja þegar vaxt- arsvæði væru skilgreind. Vaðla- heiðagöng réðu því úrslitum hvað varðar greiðar samgöngur austur á bóginn. Vissulega væri líka mik- ilvægt að samgöngur til nágranna í vestri væru góðar. Barátta um opinbert fjármagn inn á svæðið væri hörð og menn þyrftu að for- gangsraða. Að mati Jóns er skynsamlegra að ráðast í göng undir Vaðlaheiði á undan jarðgöngum milli Ólafs- fjarðar og Siglufjarðar. Akureyri hafi frumkvæði Jakob Björnsson, Framsóknar- flokki, sagði hlutverk Akureyrar krefjandi og óvægið, sömu kröfur væru gerðar varðandi þjónustu bæjarins og gerðar væru í Reykja- vík. Hann sagði hlutverk Akureyr- ar að hafa frumkvæði meðal sveit- arfélaga á svæðinu t.d. gagnvart ríkisvaldinu. Oddur Helgi Halldórsson, Lista fólksins, ræddi m.a. um mikilvægi þess að jafna flutningskostnað, en um mikið réttlætismál væri að ræða fyrir fyrirtæki á landsbyggð- inni. „Mér finnst ég alltaf vera að greiða toll til Reykjavíkurhafnar, þegar ég flyt inn vörur. Það þarf að greiða gjald, þó svo að varan sé á leið beint norður og komi aldrei á land í Reykjavík,“ sagði Oddur Helgi. Hann sagðist einnig vilja kanna möguleika á sameiningu orkufyrirtækja á svæðinu með það að markmiði að gera þau öflugri. Mikilvægt að efla nýsköpun og standa vörð um verknámið Ingi Rúnar Eðvaldsson, Sam- fylkingunni, nefndi að byggja þyrfti upp öflugt raungreinanám við Háskólann á Akureyri ef bær- inn ætti að rísa undir nafni sem mótvægi við höfuðborgarsvæðið. Mjög mikilvægt væri að efla ný- sköpun á svæðinu og þá þyrftu menn að huga að verknáminu. Miklum erfiðleikum væri bundið að halda úti verknámi við Verk- menntaskólann á Akureyri og til- hneiging til að flytja það allt suður í Kópavog. Hvatti hann menn mjög til að vera á verði gagnvart þeirri þróun. Nefndi Ingi Rúnar að Samfylk- ingin væri á móti Vaðlaheiðagöng- um í óbreyttri mynd. Þau væru dýrt spaug ef einungis væri um að ræða að búa til sunnudagsbíltúr fyrir bæjarbúa austur í sveitir. Hins vegar ef unnt væri með þeim að stytta vegalengd til Húsavíkur niður í hálftíma akstur þá væri komin nauðsynleg forsenda fyrir mannvirkinu. Ingi Rúnar sagði líka mikilvægt að efla samstarf við Skagfirðinga en til þess þyrfti að laga veginn yfir Öxnadalsheiði. Fulltrúar flokkanna voru sam- mála um að Háskólinn á Akureyri gengdi lykilhlutverki varðandi byggðaþróun á svæðinu og því þyrfti að standa um hann vörð. Eins kom fram í máli fulltrúanna vilji til að sameina sveitarfélög í Eyjafirði og búa þannig til sterka og öfluga einingu. Vilji nágranna- sveitarfélaganna stæði hins vegar ekki til slíkrar sameiningar, málið ætti enn ekki hljómgrunn, en að því hlyti að koma. Hlutverk Akureyrar í þróun Eyjafjarðar sem vaxtarsvæðis Morgunblaðið/Kristján Fulltrúar stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram á Akureyri eru sammála um mikilvægi Háskólans fyrir þróun byggðar á svæðinu. Hér hlýða fundarmenn á framsögur. Háskólinn gegnir lykilhlutverki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.