Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 18
SUÐURNES
18 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í GÆRMORGUN bárust Lögregl-
unni í Keflavík níu tilkynningar um
að brotist hefði verið inn í bifreiðar í
fyrrinótt, aðfaranótt mánuags. Átta
þeirra voru í Njarðvík og ein í Kefla-
vík. Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í gær var ekki enn vitað
nákvæmlega hversu miklum verð-
mætum var stolið, en meðal þess
sem hvarf úr bílunum var peninga-
vesi, útvarpstæki, kraftgalli, farsími,
hleðslutæki, sjónauki, vasaljós og
lyklar.
Brotist inn
í níu bíla
Keflavík
KENNARAR og nemendur 9.
bekkjar Grunnskólans í Sandgerði
verða á faraldsfæti frá 24. maí næst-
komandi, en þá heldur hópurinn í
skólaheimsókn til Danmerkur og
mun ferðin standa til 2. júní nk. Hóp-
urinn samanstendur af 19 nemend-
um og 4 fararstjórum. Meðan á dvöl-
inni stendur mun hópurinn heim-
sækja tvo samstarfsskóla í Óðins-
véum og einn samstarfsskóla í
Humlebæk. „Við höfum staðið að
undirbúningi ferðar frá haustdögum,
bæði safnað og sótt um styrki,“ segir
í frétt frá hópnum. „Í apríl sl. komu
til okkar danskir nemendur frá
Óðinsvéum en við höfum skrifast á í
vetur og er það hluti af náminu. Við
heimsókn dönsku nemendanna lögðu
margir hönd á plóginn og fengu nem-
endur styrk frá aðilum utan skólans
til þess að gera heimsóknina sem
ánægjulegasta. Allir nemendur 9.
bekkjar og danskir jafnaldrar þeirra
komu saman í skólanum og unnu að
ýmsum verkefnum s.s. ævintýragerð
í anda H. C. Andersen sem þau settu
upp og léku saman. Nemendur stóðu
sig frábærlega og reyndist auðvelt
að nýta sér dönskuna til samskipta.
Í fréttinni segir ennfremur að þar
sem danska hafi átt undir högg að
sækja í samanburði við ensku hafi
grunnskólinn í Sandgerði reynt að
leita leiða til þess að glæða áhuga
nemenda á málinu og sýna þeim
fram á mikilvægi þess að læra nor-
ræn mál.
Ferðalag til
Danmerkur
á döfinni
Sandgerði
FRAMBJÓÐENDUR D-listans í
Reykjanesbæ efna til hverfafunda í
þessari viku. Sá fyrri verður í kvöld,
þriðjudag, kl. 20.30 í Heiðarskóla. Þar
verður stefnuskráin kynnt og fram-
bjóðendur svara fyrirspurnum íbúa.
Síðari hverfafundur vikunnar hjá
frambjóðendum D-listans verður á
miðvikudagsköld kl. 20.30 í Holta-
skóla. Allir velkomnir.
Hverfafundir
sjálfstæðismanna
Reykjanesbær
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
heimsótti Reykjanesbæ á þriðjudag
og átti m.a. fund með frambjóð-
endum D-lista sjálfstæðismanna. Þá
heimsótti hann Hitaveitu Suður-
nesja og kynnti sér starfsemi henn-
ar og ræddi við frambjóðendur sem
voru með honum í för um fyrirhug-
aðan Orkugarð, sem er eitt af
stefnumálum sjálfstæðismanna í
Reykjanesbæ á komandi kjörtíma-
bili. Einnig ræddi fjármálaráðherra
við yfirmenn Hitaveitu Suðurnesja.
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Geir heimsótti hitaveituna ásamt Sigríði Jónu Jóhannesdóttur, Júlíusi
Jónssyni, Árna Sigfússyni og Alberti Albertssyni.
Fjármálaráð-
herra heimsótti
hitaveituna
Reykjanesbær
ÞAÐ var mikil menningaveisla í
Reykjanesbæ um helgina og hver
stórsýningin rak aðra. Sýningarnar
voru allar mjög ólíkar en uppruni
þeirra var þó allur af sama meiði,
þ.e. handverki manna.
Í Njarðvíkurskóla var sett upp
sýning í tilefni af 60 ára afmæli
skólans. Vakin var athygli á ýmsum
munum sem unnir hafa verið af
nemendum í gegnum árin og öðrum
í eigu skólans. Þegar gengið var um
skólagangana kom í ljós að í hverri
stofu hafði verið sett upp sýning á
verkefnum hvers bekkjar fyrir sig
og nemendurnir sáu sjálfir um að
taka á móti gestum. Móttökurnar
voru ekki af verri endanum og allir
höfðu upp á eitthvað skemmtilegt
að bjóða. Þegar gestir höfðu gengið
um húsakynni skólans höfðu þeir
fengið sól í hjarta, bókamerki, vina-
band, skemmtilega málshætti,
spreytt sig í japanskri pappírslist,
gengið inn í ævintýraheima, komið
við í fornum heimi Íslendinga og
gætt sér á kaffi og með því í kaffi-
húsi 10. bekkinga.
Mikið um leirmuni á
handverkssýningu
Handverkssýningin í íþróttahús-
inu við Sunnubraut var ekki síður
fjölbreytt og stemmningin góð. Þar
var samankominn hópur hand-
verksfólks, bæði frá Suðurnesjum
og úr nágrannasveitarfélögunum,
sem sýndi og seldi vörur sínar. Fjöl-
margir lögðu leið sína í íþrótta-
húsið og mátti heyra aðdáunarorð
úr hverju horni, enda verkin lista-
vel unnin. Það fór ekki á milli mála
hvað er vinsælast hjá handverks-
fólki um þessar mundir, en ým-
iskonar leirmunir voru mest áber-
andi á sýningunni. Tvær
leirlistakonur höfðu jafnvel brugð-
ið á það ráð að renna leir á sýning-
unni og þangað söfnuðust margir,
ekki síst börnin sem fannst þetta
mjög spennandi og vildu koma
höndum sínum í leirinn.
Sýning á bátum Gríms í
Duus-húsum opnuð um helgina
Sú sýning sem hins vegar hefur
hlotið mesta athygli er sýning á
bátaflota Gríms Karlssonar sem
opnuð var við hátíðlega afhöfn í
Duus-húsum á laugardag. Skips-
líkön Gríms eru löngu orðin þekkt á
Suðurnesjum og því tímabært að
velja þeim samastað svo hægt verði
að njóta þeirra um ókomna tíð. Á
sýningunni eru 59 líkön en Grímur
hefur smíðað á annað hundrað lík-
ön á þeim þremur áratugum sem
liðnir eru síðan hann byrjaði. Skip-
in eru öll misjöfn að stærð, sem
helgast af því að líkönin hefur
Grímur í réttum stærðarhlutföllum.
Það er ekki að ástæðulausu sem
menn dást að handverki Gríms
enda mikil nákvæmnisvinna að baki
hverju líkani. Að baki hverju þeirra
er líka löng og merkileg saga og á
sýningunni mátti heyra gamla sjó-
menn rifja upp sögubrot sem gerði
alla upplifun innilegri og raunveru-
legri.
Margvíslegir menningarviðburðir á Reykjanesi síðustu helgi
Morgunblaðið/Golli
Leirlistarkonur buðu gestum sýningarinnar Handverk og list, sem fram
fór í íþróttahúsinu við Sunnubraut, að sjá hvernig leirmunir ýmiss konar
verða til. Börnin voru sérstaklega áhugasöm og fylgdust vel með.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Í einni kennslustofu Njarðvíkurskóla gátu gestir spreytt sig á japanskri
pappírslist. Marglit blöð voru brotin saman eftir kúnstarinnar reglum og
blöðin síðan tengd saman og látin mynda ákveðið form.
Fjölbreytt hand-
verk úr margvís-
legum efnivið
Reykjanesbær
Morgunblaðið/Golli
Bátasýningin í Duus-húsum í Keflavík var opnuð um helgina, í ný-
uppgerðu húsi Byggðasafnsins. Þar eru nú til sýnis 59 skipslíkön.
♦ ♦ ♦