Morgunblaðið - 14.05.2002, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 21
Dell OptiPlex tölvurnar eru hagkvæmar í rekstri, fallegar, fyrirfer›arlitlar
og sérhanna›ar fyrir nútíma skrifstofuumhverfi. Enda er engin tilviljun
a› Dell tölvur seljast eins og heitar lummur út um allan heim.
R
Dell OptiPlex GX50 SD
er á einstöku tilbo›i:
Intel Celeron 1.1 GHz
128 MB RAM
20 GB har›ur diskur
17" Dell skjár
XP professional
3ja ára ábyrg› á vinnu og varahlutum
f
a
s
t
la
n
d
-
8
0
2
6
-
1
4
0
5
0
2
S É R S N I ‹ N A R L A U S N I R O G F Y R I R T Æ K J A R Á ‹ G J Ö F + I S O 9 0 0 1 V O T T A ‹ G Æ ‹ A K E R F I + H A F ‹ U S A M B A N D Í S Í M A 5 6 3 3 0 0 0 + W W W . E J S . I S
Skv. Gartner DataQuest eru Dell söluhæstu PC tölvur heims.
118.500 m/vsk
Mest selda tölva í heimi
SAMSTARFSVETTVANGUR um
framleiðniaukandi aðgerðir fyrir ís-
lenzkt atvinnulíf heldur fund næst-
komandi fimmtudag um hagnýt við-
mið (benchmarking).
Anna Margrét Jóhannesdóttir,
verkefnisstjóri á Impru á Iðntækni-
stofnun segir að hagnýt viðmið sé
eitt af framsæknustu stjórntækjum
fyrirtækja í dag. Með því að nota að-
ferðir hagnýtra viðmiða auðveldi það
stjórnendum að bæta rekstur fyrir-
tækja sinna og taka upp það bezta
sem þekkist í stjórnun hjá öðrum
fyrirtækjum.
„Iðntæknistofnun hefur í sam-
starfi við Samtök iðnaðarins, Ný-
sköpunarsjóð atvinnulífsins, Samtök
atvinnulífsins og Stjórnvísi innleitt
aðferðafræði sem auðveldar íslenzk-
um fyrirtækjum að hagnýta sér
þessa aðferð. Aðferðin gerir fyrir-
tækjum kleift að bera sig saman við
fyrirtæki á alþjóðamörkuðum með
hagnýtingu þekkingarbanka og hug-
búnaðar sem fengið hefur nafnið
Microscope. Um er að ræða tvær út-
gáfur af aðferðinni. Önnur er ætluð
framleiðslufyrirtækjum eingöngu en
hin er ætluð þjónustufyrirtækjum.
Aðferðin hefur nú þegar sannað sig
sem öflugt tæki til umbóta í rekstri
og þar með til aukinnar framleiðni,
meðal annars á Írlandi og Bretlandi,
segir Anna Margrét Jóhannesdóttir.
Fundurinn verður haldinn í Ver-
sölum í húsi Samtaka iðnaðarins
fimmtudaginn 16. maí klukkan 15.30
til 17. Erindi á fundinum flytja Vil-
mundur Jósefsson, formaður SA,
Anna Margrét Jóhannesdóttir, verk-
efnisstjóri á Impru, Magnús Bolla-
son, framleiðslustjóri hjá Nóa & Sír-
íusi og Steinþór Jónsson, hótelstjóri
Hótels Keflavíkur.
Skráning er hjá Impru og Samtök-
um iðnaðarins. Aðgangur er ókeypis.
Fundað um
hagnýt viðmið
VERÐBRÉFASTOFAN hf. hefur
opnað nýtt vefsvæði á www.vbs.is í
samstarfi við Origo ehf., dótturfyr-
irtæki TölvuMynda hf. Tilgangur
nýja vefjarins er að auka þjónustu og
upplýsingaveitu Verðbréfastofunnar
hf. gagnvart viðskiptavinum fyrir-
tækisins.
Á vefnum er m.a. að finna ítarleg-
ar upplýsingar um viðskipti með fé-
lög á aðallista Verðbréfaþings Ís-
lands ásamt nýjustu þingfréttum og
gengi helstu gjaldmiðla. Þar eru
jafnframt reiknivélar fyrir verð og
afföll húsbréfa, en Verðbréfastofan
hf. leitast ávallt við að bjóða kaup-
endum og seljendum húsbréfa hag-
stæðasta verð miðað við markaðsað-
stæður hverju sinni. Verðbréfa-
stofan hf. er samstarfsaðili Carnegie
á Íslandi. Á nýja vefsvæðinu er að
finna allar helstu upplýsingar um
sjóði Carnegie ásamt dags- og mán-
aðaryfirlitum. Frá því Carnegie var
stofnað árið 1976, hefur það vaxið til
þess að verða eitt af stærstu og virt-
ustu fjárfestingarbönkum og verð-
bréfafyrirtækjum Norðurlandanna.
Í dag starfa um 900 manns á skrif-
stofum Carnegie sem staðsettar eru
í höfuðborgum allra Norður-
landanna nema Íslands.
Nýtt vefsvæði
Verðbréfa-
stofunnar
♦ ♦ ♦
alltaf á þriðjudögumÍÞRÓTTIR