Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 25

Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 25 N O N N I O G M A N N I I Y D D A • 5 8 4 5 / S ÍA .I SÁrsfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 15. maí 2002 kl. 16.00 á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins er varða aðild Lífeyrissjóðsins Hlífar að sjóðnum. 3. Önnur mál löglega upp borin. Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar sjóðsins rétt til setu á fundinum. Þeim sjóðfélögum sem hafa áhuga á að kynna sér tillögur um breytingar á samþykktum Sameinaða lífeyrissjóðsins er bent á að hægt er að nálgast þær á eftirfarandi hátt: • Á skrifstofu sjóðsins í Borgartúni 30, Reykjavík • Fá þær sendar með því að hafa samband í síma 510 5000 • Fletta þeim upp á vefsíðu sjóðsins, www.lifeyrir.is Reykjavík, 26. apríl 2002. Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins DAGSKRÁ Lífeyrir Sameinaði lífeyrissjóðurinn Borgartún 30 • 105 Reykjavík • sími 510 5000 • fax 510 5010 • mottaka@lifeyrir.is • lifeyrir.is ÁRSFUNDUR 2002 – 15. maí á Grand Hótel Reykjavík Skipst á sko›unum fiórdís Pétursdóttir Sími: 515-1700, netfang: disa@xd.is Björg fiór›ardóttir Sími: 515-1700, netfang: bjorgth@xd.is Ef flú vilt frambjó›anda/frambjó›endur Sjálfstæ›isflokksins á fund e›a í heimsókn haf›u flá samband vi› skrifstofu Sjálfstæ›isflokksins í síma 515-1700. Nánari uppl‡singar gefa: JIMMY Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kom í heimsókn til Kúbu á sunnudag og mun dveljast í landinu í nokkra daga. Þótt um einkaheimsókn sé að ræða tók Fid- el Castro Kúbuforseti á móti hon- um með mikilli viðhöfn, fánar ríkjanna tveggja blöktu á vellinum og Castro hafði klæðst gráum jakkafötum í stað hefðbundins ein- kennisbúnings. Er þjóðsöngur Bandaríkjanna hafði verið leikinn sneri Castro sér að gestinum og sagði þurrlega: „Ég hef ekki heyrt þetta nýlega.“ Ekið í svörtum Zil Bandarískur forseti, fyrrverandi eða í embætti, hefur ekki komið til Kúbu síðan á þriðja áratugnum og Bandaríkjamenn þurfa nú sérstakt leyfi til heima fyrir til að mega heimsækja landið. Castro heiðraði gestina með því að láta aka þeim í svartri Zil-glæsibifreið frá flugvell- inum að hótelinu. „Ég fer með þér í sovéskum bíl sem er að minnsta kosti 100 ára en hann er langþægi- legastur,“ sagði Kúbuleiðtoginn. Leoníd Brezhnev, þá leiðtogi Sov- étríkjanna gömlu, gaf Castro bílinn á áttunda áratugnum. Bandaríski gesturinn, sem er spænskumælandi og kona hans fóru um gamalt hverfi í Havana, veifuðu til fólks og bandarískur ferðamaður fagnaði því að sjá Carter sem í for- setatíð sinni nam ferðatakmarkan- irnar úr gildi. Þær voru síðar lög- festar á ný. Stirð sambúð í fjóra áratugi Skömmu eftir byltinguna 1959 tóku Kúbverjar upp nána samvinnu við Sovétríkin í kalda stríðinu og Kúba varð kommúnistaríki. Sam- búð Kúbverja og Bandaríkjamanna hefur yfirleitt verið mjög stirð síð- ustu fjóra áratugina, árið 1961 gerðu kúbverskir útlagar mis- heppnaða innrás í landið með stuðningi stjórnvalda í Washington. Ári síðar setti John F. Kennedy, þáverandi Bandaríkjaforseti, eyj- una í herkví vegna þess að Sov- étmenn höfðu komið þar upp kjarn- orkueldflaugum sem skjóta mátti á Bandaríkin. Um hríð virtist heim- urinn ramba á barmi kjarnorku- stríðs en málamiðlun fannst. Bandaríkjastjórn setti fyrr í mánuðinum Kúbu á lista yfir svo- nefnd „öxulveldi hins illa“ en það eru fáein ríki sem talin eru styðja hryðjuverk og vilja komast yfir ger- eyðingarvopn. Segja Bandaríkja- menn að Kúbverjar stundi rann- sóknir á sviði sýklahernaðar og hafi látið öðrum ríkjum á listanum í té slíka þekkingu. Þessu mótmæla Kúbverjar og krafðist Castro sann- ana fyrir fullyrðingunum. Stjórn George W. Bush lagðist ekki gegn ferð Carters en hvatti hann til að reyna að fá Castro til að breyta stefnunni. Kúbustjórn bauð gestinum að skoða stofnanir þar sem gerðar eru rannsóknir í líf- fræði og mætti hann taka með sér þá sérfræðinga sem hann vildi. Ekki er vitað hvort Carter þiggur boðið en hann hyggst á hinn bóginn ræða við talsmenn mannréttinda- samtaka og hét Castro því á sunnu- dag að ekki yrðu lagðar neinar hindranir fyrir gestinn í þeim efn- um. Einnig verður ræðu sem hann ætlar að flytja í dag sjónvarpað beint. „Maður sem í miðju kalda stríðinu og í hyldýpi fordóma, rangra upplýsinga og tor- tryggni … þorði að reyna að bæta samskiptin milli þjóðanna á skilið virðingu,“ sagði Kúbuforseti. Carter er 77 ára en Castro 75 ára gamall. Með Carter í förinni eru meðal annars eiginkona hans, Rosalynn Carter, og fleira fólk. Forsetinn fyrrverandi sagðist vilja ræða ýmis mál við Castro, þar á meðal frið, mannréttindi og lýð- ræði. Andófsmenn á Kúbu hafa ára- tugum saman mótmælt flokksein- ræði kommúnista og hafa sumir verið fangelsaðir. Andófsmenn af- hentu í vikunni þingmönnum um 11.000 undirskriftir fólks sem krefst þjóðaratkvæðis um gagnger- ar umbætur í stjórn- og efnahags- málum. Friður og mannréttindi „Við gerum okkur grein fyrir því að ágreiningur er í sumum af þess- um málum en erum þakklát fyrir að fá tækifæri til að kanna hvar við er- um sammála,“ sagði Carter. Hann hefur beitt sér mjög í ýmsum frið- ar- og mannréttindamálum eftir að hann náði ekki endurkjöri sem for- seti 1980 og hefur ferðast mikið um heiminn, einnig hefur hann verið eftirlitsmaður við kosningar í lönd- um þar sem lýðræðið er ekki traust. Bandaríkjamenn hafa árum sam- an haldið uppi viðskiptalegum refsi- aðgerðum gagnvart Kúbu og er Carter andvígur þeirri stefnu. Er hann var forseti á áttunda áratugn- um reyndi hann að bæta sambúðina við Kúbverja, hann kom á takmörk- uðum stjórnmálatengslum og samdi um lausn þúsunda pólitískra fanga úr haldi. Einnig fengu Kúbverjar í Banda- ríkjunum leyfi til að heimsækja ættingja á Kúbu en milljónir fólks af kúbverskum ættum búa í Banda- ríkjunum, margt af því hefur á sín- um tíma flúið einræðisstjórnarfar Castros og mikla fátækt í landinu. Kúbverjar í Bandaríkjunum eru margir hatrammir andstæðingar Castros. Þeir búa flestir í Flórída og geta ráðið úrslitum í kosning- unum þar og jafnframt í forseta- kjöri ef litlu munar á tveim efstu mönnum. Kúbverjarnir nota sér það vald óspart til að tefja fyrir því að samskipti við stjórn Castros verði færð í eðlilegt horf. AP Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og eiginkona hans, Rosalynn Carter, hlýða á þjóðsöng Banda- ríkjanna með hönd á hjartastað, skömmu eftir komuna til Havana. Milli þeirra er Fidel Castro, forseti Kúbu. Carter sæk- ir Castro Kúbuleið- toga heim Er í einkaheimsókn en tekið eins og þjóðhöfðingja Havana. ASP, AFP. MIKLIR hitar á Indlandi höfðu í gær kostað að minnsta kosti 54 menn lífið. Var hitinn mestur í Haryana- ríki á sunnudag, 47 gráður á celsíus. Í ríkinu Andhra Pradesh hafa að minnsta kosti 50 manns látist af völdum hitans og í Madhya Pradesh fjögur börn. Ekki er óvanalegt að mjög heitt sé í landinu á þessum árs- tíma, í maí og júní, en að þessu sinni er svækjan óvanalega mikil H.R. Hathwar, yfirmaður ind- versku veðurstofunnar, segir að hit- inn sé um fimm gráðum meiri en venjulega í stórum hlutum landsins. Þá hafi ekkert verið um annars venjubundna úrkomu á þessum tíma. Bíða menn nú og biðja fyrir monsúnrigningunum í júní. Gífurlegir hitar á Indlandi Fór í 47 gráður í skugga Nýju Delhí. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.