Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 26
LISTIR 26 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ K AMMERSVEIT Reykjavíkur leikur á Tónleikum á Listahá- tíð í Listasafni Íslands í kvöld kl. 20.00. Flutt verða verk eftir Hauk Tómasson, Jón Leifs og Atla Heimi Sveinsson og Jón Nordal. Stjórnandi Bernharður Wilkinson. Verk Hauks Tómassonar, Langur skuggi, hefur ekki heyrst áður, og er því um frumflutn- ing að ræða. Verk Atla Heimis Sveinssonar heitir I call it; samið fyrir rúmum aldarfjórð- ungi fyrir söngrödd, selló, píanó og slagverk. Einsöngvari í verkinu er Signý Sæmunds- dóttir. Eftir Jón Leifs leikur Kammersveitin Scherzo concreto op. 58, fyrir 10 hljóðfæri, en einnig Erfiljóð op. 35, fyrir karlaraddir, mezzó- sópran og fiðlu. Einsöngvari er Þórunn Guð- mundsdóttir og einleikari á fiðlu Rut Ingólfs- dóttir. Hluti Erfiljóðanna hefur ekki heyrst áður á tónleikunum, og þar er því einnig um frumflutning að ræða. Rökkurstemmning Þá er enn eitt verk ónefnt, nýtt verk eftir Jón Nordal, sem hann hefur unnið að að und- anförnu og samið fyrir þetta tilefni. „Ég kalla verkið Grímu,“ segir Jón Nordal. „Þetta er lítið næturljóð eða rökkurstemmning. Gríma þýðir líka nótt og jafnvel fyrstu snjóar á haustin. Í þessu tilfelli er þetta frekar nóttin. Verkið er stutt og í einum þætti; þetta er stemmningsverk fyrir litla kammersveit.“ Jón nefnir tríó sem hann samdi fyrir löngu fyrir þrjá blásara, óbó, klarinettu og horn. „Þetta var á þeim árum þegar öll hljóðfæri voru ekki alltaf tiltæk. Þetta var svolítið skrýtin hljóðfærasamsetning. En svo greip ég aftur til þessara þriggja hljóðfæra með strengjunum, en er svo með slagverk líka, píanó og strengi, alls ellefu hljóðfæraleikara.“ Jón Nordal segist ekki hafa samið verk með þessari hljóðfæraskipan áður. „Ég hef samið fyrir strengjasveit, og önnur kammerverk með kraftmikilli strengjasveit og fleiri hljóðfærum. Strengjasveitin hefur oftast verið hryggj- arstykkið í þessum verkum mínum, en ég hef eiginlega aldrei fyrr samið verk með þessum ekta kammersveitarhljóm, og ég veit ekki ennþá hvernig það kemur út, ég er eiginlega al- veg nýbúinn með verkið. En það er gott fólk sem spilar, það vantar ekki.“ Innblástur frá þjóðlögum Haukur Tómasson samdi Langan skugga ár- ið 1998. „Þetta eru sex frekar stuttir kaflar, og hver um sig sækir innblástur í íslenskt þjóðlag, jafnvel tvö í sumum tilvikum. Þetta eru lög sem eru á diskinum Röddum sem Smekkleysa og Árnastofnun gáfu út fyrir nokkrum árum. Þjóðlögin eru þó tæplega þekkjanleg, því ég nota bara brot úr laglínum, rytma, eða jafnvel bara stemmningu.“ Strengjahljóðfærin sjö sem Haukur notar í verkið eru þrjár fiðlur og víóla sem að sögn Hauks er með svolítið sólóhlutverk í miðju hvers kafla; tvö selló og kontrabassi. „Kaflar verksins eru ólíkir innbyrðis, allt frá því að vera mjög hraðir til mjög hægra, og frá því að vera kraftmiklir og niður í veikt; á einum stað er hljóðið til dæmis dempað með æfingademp- urum. Ég reyni svo að láta heildarformið end- urspeglast í hverjum kafla fyrir sig, þannig að kaflarnir séu í sama formi og verkið í heild; með smá víólusóló í miðjunni og svolitlu fiðlusólói í lokin,“ segir Haukur Tómasson. Um verk sitt, Scherzo concreto op. 58, sagði Jón Leifs á sínum tíma: „Verkið mætti kallast á íslensku markviss gamanþáttur og var skrifað sem nokkurs konar svar við fyrirlestri þeim, sem Günther Schüller hélt í Reykjavík nýlega. Í því koma fram 10 hljóðfæri, er eiga að sýna 7 persónur, sem koma fram í þessari röð: 1. háðfuglinn (flautur), 2. hinn tignarlegi, sem stillir til friðar (bás- únufimmundir), 3. meyjan saklausa (óbóa og klarínetta), 4. hinn ástfangni og ástleitni (selló), 5. dóninn (túba og fagott), 6. læðupokinn (víóla), 7. hinn þunglyndi (altóbóa). Persónurnar koma fram eins og í pantómímískum leik, sem lýkur með faðmlögum hins ástleitna og meyjarinnar. – Hlustandinn má ímynda sér sjálfur hvaða hugsun liggur að baki verkinu, og hvort það sé alvara eða háð.“ Árni Heimir Ingólfsson hefur skrifað um Erfiljóð Jóns Leifs: Í minningu dóttur Erfiljóðin op. 35 samdi Jón árið 1947, skömmu eftir að yngri dóttir hans, Líf, drukkn- aði á sundi út af strönd Svíþjóðar, þá 17 ára gömul. Verkið er eitt af fjórum sem Jón samdi í minningu dóttur sinnar ásamt einsöngslaginu Torreki, Requiem fyrir blandaðan kór og strengjakvartettinum Vita et mors (Líf og dauði). Þessi verk eru að mestu leyti hæglát og innhverf (einkum Requiem og strengjakvart- ettinn), en í Erfiljóðunum þremur notar Jón allt litróf tilfinninganna og gengur á margan hátt mun lengra hvað varðar persónulega tján- ingu en í hinum verkunum sem hann samdi í minningu dóttur sinnar. Fyrsti kaflinn, Sökn- uður (við ljóð Jónasar Hallgrímssonar), er sá af þáttunum þremur sem minnir mest á Requiem, en þó er hljómavalið mun fjölbreyttara allt þar til undir lok verksins. Þá víkja þríhljómarnir fyrir eyðilegum samstiga fimmundum, sem að lokum renna saman svo verkið endar á einum og sama tóni í öllum röddum, við línur Jónasar: „því geng eg einn og óstuddur að þeim dimmu dyrum“. Annar þáttur Erfiljóðanna ber yf- irskriftina Sorgardans, og er eitt myrkasta tón- verk sem Jón samdi um ævina. Það sem eykur mjög drungalega stemmningu verksins, fyrir utan sterkar áherslur og dökka moll-hljóma á lágu tónsviði karlaraddanna, er hvernig Jón tónsetur fleiri en einn texta í einu svo að segja út allan kaflann. Eina undantekningin er undir lok þáttarins, þegar allar raddir sameinast með einn texta: „Hold er mold. Hér kemst ekki gleðin á“. Ef þessi tónsmíð Jóns virðist mis- kunnarlaus og óvægin í lýsingu sinni á sorg sem liggur einhvers staðar á mörkum brjál- seminnar, gengur þriðji þáttur Erfiljóðanna (Sjávarljóð) enn lengra. Hér bætast mezzó- sópran og einleiksfiðla við karlaraddirnar og eins og í Sorgardansinum heyrast yfirleitt tveir textar í einu, en ólíkt því sem var í fyrri kafl- anum liggur andstæðan í textunum nú milli ein- söngshlutverksins annars vegar og karlaradd- anna hins vegar. Mezzósópraninn syngur texta sem annars vegar gefur til kynna nærveru Guðs, sem allt að því tælir stúlkuna til sín (t.d. „Guð blessar börnin, bæði stór og smá. Vís er þeim vörnin voðanum frá“, eða „Syntu í sjón- um, sé þér langt“), og hins vegar texta sem Jón leggur Líf sjálfri í munn („Ég er á floti út við sker, öll er þrotin vörnin“). Á meðan syngur karlakórinn vísuorð eins og „hugsa eg til þín löngum“, eða „Mjög hefur Rán ryskt um mig“, svo útkoman verður eins konar samtal föður, dóttur og æðri máttarvalda. Ofan á þennan vef bætist síðan fiðluröddin (þ.e.a.s. Líf sjálf), sem verður sífellt ákafari eftir því sem á líður, þar til hámarki er náð í kafla þar sem Jón túlkar dauðastríð dóttur sinnar í tónum á afar drama- tískan hátt.“ Öruggast að halda sig við aríur og sálma Um sitt verk á tónleikunum segir Atli Heim- ir Sveinsson: „Verkið var pantað af RÚV árið 1974 í tilefni af 1100 ára búsetuhátíð íslensku þjóðarinnar. Það var samið fyrir Ruth L. Magnússon, sem frumflutti verkið og hljóðrit- aði það ásamt Pétri Þorvaldssyni, Jónasi Ingi- mundarsyni, Reyni Sigurðssyni og Árna Schev- ing. Í þá daga var erfitt að fá söngvara hér til að flytja nútímatónlist. Töldu margir þeirra að þess konar fyrirbrigði myndi skemma þeirra viðkvæmu raddir og öruggast væri að halda sig við Verdi-aríur og sálma. En Ruth var tilbúin í tuskið og söng frábærlega vel. Verkið gerði mikla lukku og var flutt nokkrum sinnum. “ Hvert með sín höfundareinkenni Kammersveit Reykjavíkur hefur komið fram á flestum Listahátíðum í Reykjavík og eru tón- leikar hennar á þeim vettvangi mörgum í fersku minni. Má þar nefna fyrsta flutning á Ís- landi á Pierrot lunaire eftir Arnold Schönberg undir stjórn Pauls Zukofskys árið 1980 og frumflutning á balletttónlist Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Steins Steinars, Tímann og vatnið, einnig undir stjórn Pauls Zukofskys ár- ið 1994. Konsertmeistari Kammersveitar Reykjavík- ur og forsvarsmaður er Rut Ingólfsdóttir: „Kammersveit Reykjavíkur bauð Listahátíð þetta prógramm og það var samþykkt. Menn- ingarborgarsjóður styrkti okkur svo til þess að fá nýtt verk frá Jóni Nordal. Haukur Tómasson sendi okkur sitt verk síðasta sumar, og ég er mjög ánægð með að geta frumflutt það á Listahátíð. Verk Hauks er skemmtilegt og krefjandi og rytmískt eins og mörg hans verk, og við ætlum þó að leika það án stjórnanda. Verk Jóns Leifs eru á dagskrá hjá okkur núna, og þau tvö sem við flytjum á tónleikunum fara svo á geisladisk sem við erum að vinna að með verkum hans. Erfiljóðin hafa ekki heyrst áður í heild sinni. Þegar verkið var flutt í Skálholti á afmælisári Jóns 1999 var miðljóðinu sleppt, en við ætlum að taka það með. Þetta er ótrúlega fallegt verk, og í því mikil sorg. Síðasta verkið á tónleikunum verður svo hið mikla gleðiverk Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Þórðar Ben, I call it. Það má segja að þetta sé að verða sígilt skemmtiverk, og þótt það hafi verið samið 1974, hefur það sannarlega staðist tímans tönn.“ Rut segir tilfinningu sína fyrir tónleikum Kammersveitarinnar mjög góða. „Þetta eru frábær verk; fjögur íslensk tónskáld, öll mjög ólík, og hvert þeirra með sín höfundareinkenni. Hóparnir sem flytja verkin eru líka ólíkir og við erum til dæmis ekki vön að vera með karlakór með okkur. Þetta verða fjölbreyttir og skemmtilegrir tónleikar,“ segir Rut Ingólfs- dóttir. Tónleikarnir verða sem fyrr segir í Listasafni Íslands og hefjast kl. 20.00. Krefjandi rytmík, læðupoki og dóni, næturljóð, sorg og gleði Morgunblaðið/Árni Sæberg Jón Nordal tónskáld og Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri glugga í verk Jóns, Grímu, sem verður frumflutt á tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur í kvöld. Verk eftir Jón Nordal og Hauk Tómasson frumflutt af Kammer- sveitinni á Listahátíð Þriðjudagur 14. maí 12.30 Ráðhús Reykjavíkur: Listamaðurinn á horninu. Arnar Þór Gíslason, Barði Jóhannsson, Jó- hann Gunnarsson og Ragnhildur Gísladóttir flytja tilraunakennda, frumsamda tónlist, með og án orða. Verkið sem myndar eina heild er í 4 köflum og fjallar á einn eða annan hátt um ábyrgð og ábyrgðaleysi 17.05 Strætóskýli á horni Lækjargötu: Níu virkir dagar. Bein útsending. Út- varpsleikhúsið og Listahátíð hafa tekist á hendur það verkefni að fella saman myndlistargjörning og leik- ritsflutning. Þennan dag verður flutt verkið Aldur og ævi eftir Ragnheiði Gestsdóttur og Ívar Valgarðsson, leikstjóri er Harpa Arnardóttir. 20.00 Listasafn Íslands: Kammersveit Reykjavíkur flytur verk eftir Hauk Tómasson, Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson og frumflutt verður nýtt verk eftir Jón Nordal. Stjórnandi Bernharður Wilkinson. 20.30 Íslenska óperan: Cenizas de tango. 3. sýning. Úr verkefninu Listamaðurinn á horninu. Listahátíð í Reykjavík 11. – 31. maí Dagskráin í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.