Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 27 ÍSLENSKI dansflokkurinn ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur með því að setja Sölku Völku Halldórs Laxness í dansbúning. Salka sem vildi ekki dansa í sögunni gerir það svo um munar í uppfærslu Auðar Bjarnadóttur. Verkið hefst á því að mæðgurnar Sigurlín og dóttir hennar Salka Valka koma með bát að Óseyri við Axlarfjörð. Mynd er varpað á tjald uppsviðs sem sýnir bát sigla inn fjörð í miklum sjógangi. Sjórinn í sínum ólíku myndum fylgir verkinu allt til loka. Mæðgurnar kynnast plássinu í upphafi verksins. Þær rata inn á samkomu hjá Hjálpræðishernum og kynnast Steinþóri Steinssyni fylli- byttu og örlagavaldi sínum. Steinþór stígur í væng við Sigurlínu og fella þau hugi hvort til annars. Eftir til- raun til að nauðga Sölku Völku flyst Steinþór burt og hverfur úr sögunni um stund. Hann skilur eftir sig barnshafandi móðurina en barn þeirra deyr á unga aldri. Hatur Sölku á Steinþóri magnast þar sem hún kennir honum um óhamingju móður sinnar. Salka kynnist Arnaldi ungum hugsjónamanni og kennara hennar í lestri. Steinþór snýr aftur í plássið. Hann er hættur að drekka og er nú tvíefldur í því að ná athygli Sölku. Athygli hennar fær hann með hring sem hann gefur henni en svo illa vill til að móðir Sölku kemur að þeim. Steinþór flýr í annað sinn burtu. Móðirin sem las sinn sann- leika út úr samskiptum barnungrar dóttur sinnar og Steinþórs gengur í sjóinn skömmu síðar. Sektarkenndin nagar Sölku sem nú stendur ein. Æskuminningar Sölku úr plássinu eru dregnar fram í verkinu. Stúlkur dansa og Salka stendur og horfir löngunaraugum til þeirra og börnin í þorpinu hrópa melludóttir á eftir henni. Arnaldur kemur aftur til sög- unnar veifandi rauðum fána, tákni um baráttu verkafólksins. Salka heillast af eldmóði hans og hugsjón- um og þau fella hugi saman. Spákona í himinbláum kjól, tákn fyrir drauma Arnalds um betri heim, birtist á svið- inu og hugsjónamaðurinn Arnaldur hverfur á braut yfir hafið. Eftir stendur Salka Valka ein og veifar örmunum eins og fugl sem hefur sig til flugs að nýju. Höfundur er trúr atburðarásinni í bókinni. Dansað er í gegnum aðal- atriðin og þeim fylgt fast eftir. Salka Valka er dönsuð af Hlín Diego Hjálmarsdóttur. Danshæfileikar hennar eru miklir og ljóst að hér er á ferð orkumikill og fágaður dansari. Hún skilaði kraftmikilli og barns- legri Sölku. Skáldið lýsir Sölku með ljósa lokka, breiðar, sterkar tennur, sterka fótleggi og þreklegar mjaðm- ir. Hún þótti stórgerður og ruddaleg- ur kvennmaður. Hún gekk í buxum og átti hlut í bát. Salka Hlínar Diego er mun fíngerðari og barnslegri þó að kraftinn eigi þær sameiginlegan. Ofsafengin reiði Sölku við Steinþór var ekki sýnileg í verkinu heldur virtist Salka óttast hann. Hefði reiði Sölku verið sýnilegri hefði það án efa styrkt persónuna. Steinþór Steinson er í höndum Trey Gillen. Hann er nokkuð sannfærandi í sínu hlutverki. Gillen er sterklegur dansari með út- geislun á sviðinu. Skáldið segir Steinþór hafa óskammfeilni í andliti, blandna einhverjum þeim töfrum sem ekki verða skilgreindir, með kjálka sem ekki virtust líklegir til að bila þótt þeir væru barðir með hross- hóf. Í augum hans brann siðblinda. Steinþór Gilliens hefði mátt vera enn grimmari. Arnald Björnsson dansar Guðmundur Elías Knudsen. Honum tekst vel upp í túlkun sinni og skilar manni sem ljómar af hugsjón mann- kynsins. Arnaldi er í bókinni lýst sem hálfgerðum spjátrungi, jafnvel móð- ursjúkum vingli. Í dansverkinu fer lítið fyrir kvennafari hans, lygum og stöðugri þrá eftir nýbreytni. Sigurlína móðir Sölku er í örugg- um höndum Láru Stefánsdóttur. Hún túlkar eymd hennar, vonbrigði, örvæntingu og uppgjöf á sannfær- andi hátt. Tillfinningalega ástæðan fyrir því að Sigurlína fyrirfer sér er ekki nægjanlega sýnileg í verkinu. Þess vegna verður sá hluti ekkert sérlega átakanlegur. Húlahopphringurinn var vel til fundin lausn á gjafahring Steinþórs. Dansgerðin er hröð og hreyfingarnar flæddu vel hjá döns- urunum. Það var ánægjulegt að sjá nýjan, ungan dansara fá að spreyta sig með flokknum og standa sig með prýði eins og hinir dansararnir. Það fer ekki mikið fyrir húmor í verkinu en tækifærin eru fyrir hendi í sögunni. Saga Sölku Völku er ekki einungis raunasaga enda ófáar grátbroslegar uppákomur í bókinni. Sjórinn skiptir sköpum í sögunni um Sölku Völku. Tjaldið uppsviðs skilaði nálægð hans vel í dansverkinu með breytilegri ásýnd hans. Tónlistin leikur stórt hlutverk í dansverkinu. Hún hentaði ágætlega en var fyrirsjáanleg á köflum. Þann- ig var nokkuð víst að þegar Steinþór birtist í átakasenum mátti búast við dýrslegu óhljóði. Búningarnir voru litríkir, vel útfærðir og mikið lagt upp úr þeim. Gular svunturnar og kjólar Hjálpræðisherskvennanna eru gott dæmi þar um. Það er mikið lagt í tónlist, dans og búninga í dansverkinu og óhætt að segja að vel sé að verkinu staðið. Það var fínleg Salka Valka sem steig dans í Borgarleikhúsinu en kraftmik- il engu að síður. Það er helst að skýrri túlkun á persónum sé ábóta- vant. Þær mætti dýpka. Það er ótrú- legt hverju tíu manna danshópur getur áorkað. Dansandi Salka Valka er menningarviðburður sem vert er að berja augum. Hún er rós í hnappa- gat höfundar og Íslenska dansflokks- ins. Næsta sýning er 16. maí. LISTDANS Listahátíð Borgarleikhúsið Íslenski dansflokkurinn. Danshöfundur: Auður Bjarnadóttir. Tónlist: Úlfar Ingi Haraldsson. Sviðsmynd: Sigurjón Jó- hannsson. Lýsingarhönnun: Elfar Bjarna- son. Hljóðmeistari: Ólafur Thoroddsen. Búningar: Sigrún Úlfarsdóttir. Drama- túrg: Guðrún Vilmundardóttir. Aðstoð- armaður danshöfundar: Lauren Hauser. Dansarar: Hlín Diego Hjálmarsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Guðmundur Elías Knud- sen, Trey Gillen, Hildur Óttarsdóttir, Jes- us De Vega, Katrín Ingvadóttir, Katrín Ágústa Johnson, Peter Anderson, Val- gerður Rúnarsdóttir. Laugardagur 11. maí 2002. SALKA VALKA Salka Valka dansar – svo um munar Lilja Ívarsdóttir Morgunblaðið/Kristinn „Það er ótrúlegt hverju tíu manna danshópur getur áorkað. Dansandi Salka Valka er menningarviðburður sem vert er að berja augum. Hún er rós í hnappagat höfundar og Íslenska dansflokksins,“ segir Lilja Ívarsdóttir meðal annars í umsögninni. Dönsurum og öðrum aðstandendum var vel fagnað að lokinni sýningu. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg 5 Sýningu Höddu Fjólu Reykdal lýkur miðvikudaginn 15. maí nk. Þar gefur að líta vatnslitaverk unnin á þessu ári en myndefnið er sótt til náttúrunnar. Sýningin er opin virka daga kl. 10– 18 og laugardaga kl. 11–16. Sýning framlengd Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi Sýningu Erlu Sigurðardóttur er framlengd til 20. maí. Erla sýnir vatnslitamyndir og frummyndir úr þremur barnabókum. Listasetrið er opið frá kl. 15–18, alla daga nema mánudaga. Sýningu lýkur HRAFNHILDUR Hagalín Guð- mundsdóttir ræðir um Halldór Lax- ness í Norræna húsinu í dag, þriðjudag, kl. 17.15. Fyrirlestur- inn er sá fimmti í röð fyrirlestra sem Vaka-Helgafell efnir til í tilefni af aldarafmæli Halldórs Laxness. Fyr- irlesturinn nefnir Hrafnhildur „Var Laxness vont leikskáld?“ Var Laxness vont leikskáld? Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir ♦ ♦ ♦ VE RSLU NAR M IÐSTÖÐI N N I F I RÐI • HAFNAR FI RÐI • SÍM I 565 4533 SENDUM UM LAND ALLT! „Það er ekkert til sem heitir vont veður – einungis mismunandi góð hlífðarföt!“ Cape Crest vika 14. til 18. maí Allur útivistarfatnaður með 40% afslætti Cape Crest útivistarfatnaður Frábær í golfið – góður í flest annað!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.