Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 28
LISTIR
28 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MEÐ samstilltu átaki Íslensku
óperunnar, Þjóðleikhússins og Sin-
fóníuhljómsveitar Ísland, bauð
Listahátíðin í Reykjavík til mikillar
veislu í Þjóðleikhúsinu sl. laugar-
dagskvöld með uppfærslu óperunnar
Hollendingsins fljúgandi eftir Rich-
ard Wagner. Þarna er hugsanlega
fundin leið til að standa að meiri
háttar uppfærslum á stórverkum óp-
eru-bókmenntanna.
Sýningin var í heildina séð sérlega
áhrifamikil og átti falleg sviðsmynd-
in stóran þátt í að skapa stemmn-
inguna í verkinu, með fallegum litum
og óhlutstæðum en táknrænum
formum og sérlega vel mótaðri lýs-
ingu. Að þessu stóðu Heinz Hauser,
er gerði leikmyndina, og lýsingin var
verk Björns B. Guðmundssonar og
Páls Ragnarssonar. Búningarnir,
sem eru verk Þórunnar S. Þorgríms-
dóttur, voru einfaldir og féllu vel að
sviðsmyndinni og leikstjórinn,
Saskia Kuhlmann, skapaði sterka
sýningu, þó viðbrögð norsku sjó-
mannanna við söng hásetanna á Hol-
lendingnum, væru helst til yfirdrifin
svo og átök norsku hásetanna við að
koma skipi sínu í öruggt lægi, þ.e. í
var og varpa akkerum.
Sinfóníuhljómsveit Íslands, undir
öruggri stjórn Gregor Bühl, lék
mjög vel en fyrir sínu liði fór Sigrún
Eðvaldsdóttir konsertmeistari.
Snilldarlegur hljómsveitarritháttur
Wagners naut sín sérstaklega vel en
hann notar hljómsveitina bæði til að
túlka hamsleysi tilfinninganna og
náttúruhamfarir með fullum hljómi,
en styður einnig mjög fallega við
söngraddirnar án þess að ofbjóða
þeim í styrk og tryggir þar með, að
textinn skili sér með einstaklega
áhrifamiklum hætti, sem er nauð-
synlegt í slíku tilfinningadrama, sem
Hollendingurinn er og ekki síst þar
sem persónurnar segja á stundum
hug sinn í löngu máli, oft án mikilla
leikrænna tilþrifa.
Söngurinn er það sem ber uppi
hina leikrænu framvindu og þar átti
kór Íslensku óperunnar undir stjórn
Garðars Cortes nokkur vel flutt at-
riði. Karlaraddirnar sungu hlutverk
norsku sjómannanna, bæði í upphafi
óperunnar og „Steuermann“-kórn-
um, mjög vel og sérstaklega áhrifa-
mikill var söngur hásetanna á Hol-
lendingnum, sem leikinn var af
„bandi“. Kvennakórinn í dyngju
prjónakvenna var góður og hélt óp-
erukórinn, undir stjórn Garðars
Cortes, vel sínu fyrra rykti sem frá-
bær kór.
Einsöngvararnir mynda saman
meginframvindu leikverksins og þar
bar til tíðenda, að ung söngkona,
Magnea Tómasdóttir, söng sitt
fyrsta hlutverk í óperu hér á landi, í
hlutverki Sentu Dalandsdóttur.
Magnea er sérlega efnileg söngkona,
söng af einstöku öryggi og lagði
áherslu á lýríska mótun hlutverks-
ins, þó hún gæfi sér lausan tauminn,
þar sem tilfinningarnar risu hæst.
Samleikur hennar á móti Erik, sem
sunginn var af Kolbeini J. Ketilssyni,
var mjög sannfærandi og tók mið af
æskuást beggja en þegar hún kemst
undir töfravald Hollendingsins,
breytist atferli hennar allt. Þessi tví-
skipting karaktersins kom mjög vel
fram í frábærum söng og leik Magn-
eu í aríunni Jo ho hoe, Traft ihr das
Schiff og dúettinum Wie aus der
ferne, þar sem Senta svarar Hol-
lendingnum, Versank ich jetzt in
wunderbares Träumen.
Kolbeinn J. Ketilsson söng Erik af
öryggi hins reynda óperusöngvara,
og var frammistaða hans glæsileg,
þar sem hann reynir að sannfæra
Sentu í kvennadyngjunni og syngur
Bleib’, Senta! Bleb’ nur einen Au-
genblick, og ekki síst í kavatínunni
Willst jenes Tag’s du dich nicht
mehr entsinnen, sem var einstaklega
vel sungin en þessi kavatína er í raun
möndulás óperunnar.
Steuermann var sunginn og leik-
inn af Snorra Wium og var hann
mjög góður bæði í leik og söng, er
hann stóð vaktina og söng Mit Ge-
witter und Sturm aus fernem Meer
og í Steuermann-kórkaflanum undir
lok óperunnar. Mary, fóstra Sentu,
var sungin af Önnu Sigríði Helga-
dóttu, er söng sitt af öryggi en náði
ekki að syngja sig frá kórnum, hvað
snertir raddmótun og styrk. Viðar
Gunnarsson fór með hlutverk Da-
lands, föður Sentu, sem á að sýna tví-
skiptan karakter, í föðurást sinni og
annars vegar græðgi, er hann stend-
ur andspænis auðæfum Hollendings-
ins. Viðar söng hlutverkið mjög vel
en náði þó ekki að túlka þennan sér-
kennilega klofning á nægilega sann-
færandi máta, mann, sem elskar
dóttur sína, sem Viðar túlkaði fal-
lega, en gefur hana svo frá sér fyrir
gull og gimsteina, eins og kemur
fram í aríunni Mögst du, mein Kind,
dem fremden mann, og í tersettin-
um, Verzeiht! Mein Volk hält drauss-
en, en bæði þessi atriði voru samt
glæsilega sungin af Viðari.
Eini erlendi söngvarinn á þessari
sýningu var Esa Ruuttunen, er söng
Hollendinginn með glæsibrag, sér-
staklega í upphafsaríuni Die Frist ist
um þar sem Hollendingurinn rekur
raunir sínar og í dúettinum með
Sentu í Wie aus der Ferne og var
stórkostlegur í lokakaflanum, þar
sem hann heldur sig vera svikinn og
syngur Verloren! Ach verloren!, þar
sem grimmd, eigingirni og bölmóður
Hollendingsins kemur ljóslega fram.
Þessi grimmd og eigingirni gerir
fórn Sentu stóra og örvæntingu Er-
iks sára og kemur í raun í veg fyrir
að allt tilstandið verði hlægilega
barnalegt, eins og ævintýri geta
stundum verið en eiga sér þá afsök-
un að vera jú aðeins ævintýri.
Inn í þetta ævintýri eru ofnar
sterkar mannlegar tilfinningar, fórn-
ar- og björgunarlöngun, föðurást og
græðgi, eigingirni og grimmd hins
fordæmda, æskuást, sem allir svíkja
og andvaraleysi alþýðunnar, sem
stendur skilningsvana gegn þessum
tilfinningaátökum. Allar heimspeki-
legar vangaveltur verða jafn barna-
legar og ævintýrið sjálft en það sem
skiptir máli og leikstjórinn Saskia
Kuhlmann dregur fram, og undirbýr
strax í „mímuleiknum“ við forleik-
inn, eru þessi tilfinningaátök, og í
bland við meistaralega tónlist Wagn-
ers, sem í heild var mjög vel flutt, af
einsöngvurunum, Esa Ruuttunen,
Magneu Tómasdóttur, Kolbeini Ket-
ilssyni, Viðari Gunnarssyni, Snorra
Wium og Önnu S. Helgadóttur, kór
og hljómsveit, undir stjórn Gregor
Bühl í sérlega fallegum umbúnaði
sviðsmyndar eftir Heinz Hauser,
búningum Þórunnar S. Þorgríms-
dóttur og ljósaleiknum hjá Birni B.
Guðmundssyni og Páli Ragnarssyni,
varð sýningin á Hollendingnum
fljúgandi falleg og heilsteypt.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðstandendum uppfærslunnar á Hollendingnum fljúgandi var vel fagnað að sýningu lokinni á laugardag.
Falleg og heilsteypt
sýning á stórverki
TÓNLIST
Þjóðleikhúsið
Eftir Richard Wagner. Laugardagurinn
11. maí, 2002.
HOLLENDINGURINN FLJÚGANDI
Jón Ásgeirsson
2
3! !4(
45 !
46!
&! 7!48&!
!"# $%$& '% (" (44.&
) %49 :! &4
. ,(
'" #"**4 ;
! !<(
(=!&& 4
. ,(
+ % 49 :! &4
. ,(
, -(,% %,%"...4>(&?@ &>& )A4
. ,(
$ $/,%") %49 !!48&!
0%(, %4B & & 4/& !
0 % (%1 1 "49 !!48&!
(2%$*3 4!!!; &4/& !
! .! &.. C$%&'()*++,%+-&
) %49 :! &4
. ,(
+ % 49 :! &4
. ,(
4 ' 5$49 :! &4
. ,(
6$ 48 ! /!.&4
. ,(
, " 46!% !&48&!
1&'"/""'4( D4
. ,(
7,%") %$ &",14E & ( .48&!
%"%4E223&.!4/;
%$ ""%$4E223&.!4/;
(&$ 4( D4
. ,(
$%&' ()*++ " ' .(/'%0' "#/
, -(,% %,%"4>(&?@ &>& )A4
. ,(
$ $/,%") %49 !!48&!
0 % (%1 1 "49 !!48&!
0 %#$$% !'(/%0 4! 2&4
. ,(
" !1" %49@ & 4
. ,(
0 %#$$% !(1 $ (& (4! 2&4
. ,(
1 /%$1 ""% 49 !!48&!
4""60$%448&!
" !%" , "8"")%49@ & 4
. ,(
4 $60$%448&!
" !" " %49@ & 4
. ,(
%&''1&2'0( '+"#/
46!
&! 7!48&!
!"# $%$& '% (" (44.&
'" #"**4 ;
! !<(
(=!&& 4
. ,(
0%(, %4B & & 4/& !
(2%$*3 4!!!; &4/& !
$, ,% -- '...49# !< >!! &(88 4
. ,(
9%$,,": ..4F= 8E &&F( !&48&!
;! 4E . &! 7!48&!
& % %4F6!6!&4.
$ %(-% 4 ! 8 48&!
"
34 56
. /= ! &
) . '++'G! H!8&) /= . ) . &/= ) . ,&! ..! I*
)*. !
.7!.& I )!!<=.)*. )
!
F!, . )J .<J .
. E 3 & <K ! F!, . <4( * !<9.H F!,H&<# &!<9.H $%&'()*++%78!
&( % 1 44.&
1 ( 4 ( 48&!
1'4 ! ! 4
. ,(
<$%$ % $% (4( D4
. ,(
= > 1 ( .,4!; 9 ! ! !4(
$ , 43 #&48&!
(, %46!!; & !48&!
4%("% !1?@ ' 4L ( .6 & !4(
= &( 4( F= &4(
9 -%4E 48&!
! *
. )8&! < . . )8&! < !
. )8&! <(!
. )8&! <
. )8&! <8;
. )8&! <( )& . <(!) H&<J!!
F!,H&<9 F!<J!!
F!,H&<( ! Í ANDDYRI sjúkrahússins og
heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi
stendur ný yfir sýning á 22 olíumál-
verkum Bjarna Þórs Bjarnasonar
myndlistarmanns.
Sýningin er liður í hátíðarhaldi í
tilefni 50 ára afmælis stofnunarinnar
og er þriðja sýningin sem sett er upp
á þessu ári af því tilefni.
Bjarni Þór er Akurnesingur, f.
1948, og stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskólann og Mynd-
listaskóla Reykjavíkur á árunum
1974–1980. Hann starfar nú sem
myndlistarmaður á Akranesi auk
þess sem hann er mynd- og hand-
menntakennari við Brekkubæjar-
skóla. Bjarni Þór hefur haldið fjór-
tán einkasýningar.
Sýningunni lýkur á miðvikudag.
Myndlist á sjúkrahúsi
TENÓRINN heimsþekkti Luciano
Pavarotti olli gestum Metropolitan
óperunnar í New York miklum von-
brigðum á laugardag, er hann til-
kynnti forföll innan við klukkutíma
áður en hann átti að stíga á svið.
Pavarotti, sem átti að syngja hlut-
verk Mario Cavaradossi í Tosca á
lokasýningu óperunnar, hafði áður
tilkynnt veikindi á miðvikudag, þá
einum og hálfum tíma fyrir sýningu.
Sýningin á laugardag hefði verið
375. skiptið sem Pavarotti kæmi
fram í Metropolitan óperuhúsinu.
Salurinn var þéttsetinn og höfðu
sumir sýningargesta greitt yfir
1.500 dollara fyrir miðann, eða tæp-
ar 150.000 krónur. Um 3.000 áhorf-
endur höfðu einnig komið sér fyrir
fyrir utan óperuhúsið, tilbúnir að
fylgjast með sýningunni á risaskjám.
Í Pavarottis stað steig hins vegar
Joseph Volpe, framkvæmdastjóri
óperuhússins á svið og tilkynnti
veikindi söngvarans. Sagði hann að
Pavarotti hefði sagst nógu hress til
að syngja um fimmleytið en hann
hefði síðan skipt um skoðun rétt upp
úr sjö og tilkynnt forföll. Að sögn
Volpe bað hann þá söngvarann að
stíga á svið og biðja óperugesti af-
sökunar á fjarveru sinni. Pavarotti
hefði hins vegar sagt, „Það get ég
ekki gert.“ Kveðst Volpe þá hafa
sagt við hann, „Þetta er óskemmti-
leg aðferð við að ljúka glæsilegum
ferli.“
Miklar umræður um framtíð
söngvarans, sem orðinn er 66 ára
gamall, hafa vaknað í kjölfar for-
falla hans. Ljóst þykir að Metropolit-
an óperan muni ekki ráða hann til
sín framar og talið er líklegt að vin-
sældir hans hjá stóru óperuhúsunum
fari minnkandi.
Ferli Pavarottis að ljúka?