Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 31 Leiðsöguskóli Íslands Menntaskólanum í Kópavogi v/Digranesveg, 200 Kópavogi, sími 594 4025. Netfang: lsk@ismennt.is. Heimasíða: http://mk.ismennt.is/leidny/lsk.htm Valið er þitt… en skemmtilegt nám í leiðsögu erlendra ferðamanna stendur þér til boða! N ý ná m sk rá , b re yt ti r ke nn sl uh æ tt ir Nám og kennsla Leiðsögunámið hefst í byrjun september og spannar tvær annir, kjarna og kjörsvið. Kennsla fer fram mánudaga og þriðjudaga frá 17.30-21.55, miðvikudaga frá 17.30- 20.25. Vettvangs- og æfingaferðir eru á laugardögum og náminu lýkur með 6 daga hringferð um Ísland. Fjarnám í boði í stökum námskeiðum ef næg þátttaka fæst. Námskeið í boði fyrir starfandi leiðsögumenn og starfsfólk í ferðaþjónustu. Innritun og inntökuskilyrði Inntökuskilyrði eru stúdentspróf, 21 árs aldur og gott vald á einu erlendu tungumáli. Inntökupróf á kjörmáli fara fram strax að lokinni innritun. Umsóknir Umsóknarfrestur er til 24. maí 2002. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans eða á heimasíðunni http://mk.ismennt.is/leidny/lsk.htm Afrit af prófskírteini og mynd fylgi umsókn. STJÓRNMÁL snú- ast að mínu mati fyrst og fremst um fólk, líð- an þess og lífsafkomu og þau sjálfsögðu mannréttindi að hafa í sig og á, hvort sem maður hefur dregið stutta stráið eða ekki. Þannig munu borgar- stjórnarkosningarnar 25. maí snúast um fólkið í borginni og þá sem kjósa að búa hér í framtíðinni. Borg- arbúar standa frammi fyrir því að velja þá fulltrúa sem þeir telja best í stakk búna til að tryggja að framtíð borgarinnar sé í ábyrgum höndum. Óábyrg fjármála- stefna D-listans Það er ekki nauðsynlegt að vera hagfræðingur til að gera sér ljóst að það er óábyrg fjármálastjórn að ætla að draga úr tekjum og auka útgjöld á sama tíma eins og kosn- ingafyrirheit sjálfstæðismanna fela í sér. Dæmið gengur einfaldlega ekki upp. Við þurfum aðeins að líta í venjulegt heimilisbókhald til að sjá að skertar tekjur þýða minna svigrúm fyrir útgjöld og fjárfest- ingar. Því er nákvæmlega eins farið með fjármál borgarinnar. Kosn- ingaloforð sjálfstæðismanna eru því á sandi byggð og standast ekki dagsljósið. Einhvers staðar rakst ég á að ætlun sjálfstæðismanna væri að fjármagna mismuninn með „fjölgun fólks og fyrirtækja“. Ég kannast ekki við að stjórnmála- flokkur geti fjölgað fólki si svona nema grípa til afar óhefðbundinna aðferða. Þarna held ég að getan sé að einhverju leyti ofmetin, nema sjálfstæðismenn hafi í huga að ger- ast afar fjöllyndir og fjölga fólki í eigin persónu! Ótrúverðug slagorð Sífelldur söngur sjálfstæðis- manna; „ó borg mín sorg“, kemur mér fyrir sjónir sem hálmstrá sem þeir grípa til vegna skorts á verðugum umkvörtunum og það er með eindæmum hvað þeir tala illa um sína eigin borg, sem svo margir eru ánægð- ir með og stoltir af. Borgarbúar verð- skulda að þeir sem veljast til forystu komi fram við þá af virðingu og jafnframt að þeir ráðstafi skattfé fólks- ins á ábyrgan hátt. Þetta hefur R-listinn gert á undanförnum árum. Í yfirstandandi kosningabaráttu hefur R-listinn staðið af sér óvægnar árásir í formi hálfkveðinna vísna frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Mér hefur alltaf þótt það fráhrind- andi og miður traustvekjandi þegar stjórnmálamenn reyna að upphefja sjálfa sig á kostnað andstæðinga sinna, með ótrúverðugum slagorð- um, eins og sjálfstæðismenn hafa gert í tilraun sinni til að ómerkja starfshætti Reykjavíkurlistans undanfarið. Reykjavíkurlistinn hef- ur gert það að metnaðarmáli sínu að reynast borgarbúum vel. Hann mun nú sem fyrr leitast við að bergmála það bakland sem að baki honum býr, verði honum falið áframhaldandi umboð í komandi kosningum. Að lofa út í bláinn Steinunn Birna Ragnarsdóttir Höfundur er píanóleikari og skipar 13. sæti R-listans í Reykjavík. Reykjavík Reykjavíkurlistinn hef- ur gert það að metn- aðarmáli sínu, segir Steinunn Birna Ragn- arsdóttir, að reynast borgarbúum vel. FORVARNIR gegn vímuefnum hafa verið mikið í umræðunni undarfarið. Þessi um- ræða hefur skapast vegna síaukins þjóð- félagslegs vanda í kjölfar vímuefna- neyslu hér á landi. Stjórnvöld settu sér markmið í fíkniefna-, áfengis- og tóbaks- vörnum í desember 1996. Þar er á skýran hátt tekin ákvörðun um að leggja áherslu á ýmsa þætti forvarna og einnig að styðja og auka meðferðarúrræði. Þessu var fagnað og ýmis góð forvarnarverkefni voru sett á lagg- irnar. Það einkennilega gerðist þó að á sama tíma og leggja átti meiri áherslu á forvarnarstarf tóku að fljóta inn í þjóðfélagið skilaboð í sérkennilegri andstöðu. Áfengisauglýsingar Áfengisauglýsingar hafa undan- farin ár verið að ryðja sér til rúms á Íslandi þó svo að slíkt sé bannað með lögum hér á landi. Hvernig stendur á því að stjórnvöld fylgja ekki eftir að lögum sé framfylgt? Margar erlendar vísindarann- sóknir hafa sýnt fram á að áfeng- isauglýsingar hafa mest áhrif á unglinga og ungt fólk. Það er sá aldur sem fólk er að móta sér skoðanir og finna sér lífsfarveg. Við foreldrar getum öll verið sammála um að vilja ekki að líf barna okkar sé í skugga áfengis- og/eða vímuefnavanda. Því verður að stöðva þessi lögbrot og gera ráðstafanir til að börnin okkar og unglingar þurfi ekki að horfa á auglýsingar þar sem áfengi er haf- ið til skýjanna og otað að þeim. Svo langt hefur þetta gengið að innflutningsaðilar áfengis fá nú auglýsingarými á íþróttaleikvöng- um. Viljum við að bjórauglýsingar blasi við út um allt þegar við för- um með börnin okkar á íþrótta- leiki? Hvar er gamla hugsjónin um að íþróttastarf og áfengi fari ekki saman og að íþróttir hvetji til heil- brigðs lífernis? Eru áfengisauglýs- ingar liður í því hvatningarstarfi? Ísmeygilegar útskýr- ingar á því að verið sé að auglýsa léttöl duga skammt og er sú full- yrðing að hlúa þurfi að íslenskum áfengis- iðnaði til jafns við er- lendan beinlínis hlægileg. Fleiri auglýsinga- máta má nefna eins og þegar þáttastjórn- endur í vinsælum sjónvarpsþáttum drekka áfengi meðan á þættinum stendur, bjór er veittur áhorf- endum í sjónvarpssal, veitinga- staðir eru með skilti framan við staðinn sem auglýsa ákveðnar áfengistegundir og svo mætti lengi telja. Fordæmi erlendis Nú eiga margir eftir að segja: „Hvaða máli skiptir þetta?“ „Sjáum við þetta ekki alls staðar erlendis?“ Rétt er það. Slíkt sjáum við víða erlendis og við sjáum líka afleiðingarnar. Við sjáum að þar sem auglýsingar eru leyfðar, höft hafa verið minnkuð og aðgengi aukið, þar er vandinn mestur, flestir neytendur og hörðustu efn- in. Benda má á fjölda fræðigreina í erlendum lækna- og heilbrigðisrit- um þessu til stuðnings, svo sem tímaritin Addiction, Pediatrics og Journal of Public Health Policy. Jafnframt er vert að nefna að gerðar hafa verið stórar kannanir á viðhorfi almennings til áfeng- isauglýsinga t.d. í Hollandi og Bandaríkjunum. Niðurstöður þess- ara kannana hafa sýnt að meira en 60% aðspurðra hafa viljað banna áfengisauglýsingar í því skyni að efla forvarnir. Spyrjum okkur sjálf: „Erum við að berjast gegn notkun eiturlyfja og annarra vímugjafa sem alltaf eru undanfari þeirra eða viljum við auka veg þeirra?“ Refsingar Að lokum verður ekki hjá því komist að nefna það sem mikið hefur verið í umræðunni í vetur. Annars vegar velta menn fyrir sér hvort lækka eigi refsingar við vægari eiturlyfjabrotum. Ég vil byrja á að svara því til að það eru ekki til „væg“ eiturlyfjabrot. Þessi brot eru öll stórglæpur og sú óhamingja mikil sem fylgir þeim. Lönd víðs vegar um heim hafa reynt þessa leið með slæmum ár- angri. Við skulum ekki fara að apa upp það sem gefist hefur illa er- lendis. Hins vegar hefur verið nefnt að leyfa eiturlyf. Þessu er fljótsvarað. Vill fólk gefast upp og hleypa óhindrað inn þessu eyðileggingar- valdi? Að baki eiturlyfjasölu búa engin falleg markmið eða gildi. Hún snýst einungis um að græða peninga og sölumenn láta sig engu skipta hvaða óhamingja fylgir söluvarningnum. Þessi leið hefur þar að auki reynst illa þar sem hún hefur verið lögleidd og er nærtækast að virða fyrir sér þann vanda sem Hollendingar og aðrir sem gert hafa slíkar tilslakanir standa frammi fyrir í dag. Ég hvet því stjórnvöld til að veita forvarnarmálum meiri at- hygli og brautargengi og hafa eft- irfarandi atriði hugföst: – Gera þarf átak í að lögum um bann við áfengisauglýsingum sé fylgt eftir – Leitið álits sérfróðra þegar verið er að kanna nýjar leiðir gegn vímuefnavandanum – Tökum ekki upp leiðir sem reyndar hafa verið erlendis og hafa aukið vímuefnavandann. Ringulreið í forvarnarmálum Ragný Þóra Guðjohnsen Vímuefni Ég hvet því stjórnvöld, segir Ragný Þóra Guð- johnsen, til að veita for- varnarmálum meiri at- hygli og brautargengi. Höfundur er lögfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.