Morgunblaðið - 14.05.2002, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 14.05.2002, Qupperneq 39
H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 39 MIKIÐ rosalega höfum við það gott í góðærinu. Það sézt bezt á því hvað hagur öryrkja og eldri borg- ara er framúrskar- andi. Kjör eldri borg- ara hafa verið skert um 17 þúsund á mán- uði miðað við launa- vísitölu. En hverjir hafa ráð- ið málefnum öryrkja og aldraðra? Er það ekki ríkisstjórnin? Og í henni sitja Sjálf- stæðismenn og þar sat Björn Bjarnason við stjórnvölinn s.l. 11 ár. Eftir miklar vangaveltur bauð Björn sig fram í borgarstjórn og D-listinn býðst nú til þess að gera samning við Reykvíkinga, sem inniheldur alls konar gylliboð. Það er ekki nóg að öryrkjar og aldraðir dragist aftur úr með laun heldur þurfa þeir líka að greiða tæp 40% í tekjuskatt af lífeyris- tekjum á meðan þeir ríku greiða 10% í fjármagnstekjuskatt. Ríkisstjórnin neitar að lagfæra þetta og er nú svo komið að málið fer fyrir dómstóla. Fiskveiðistefnan – dýrt húsnæði Af þeim 650 manns sem sótt hafa um húsnæði hjá Félagsþjón- ustu Reykjavíkurborgar eru 300 manns svo illa settir að þeir eru skráðir húsnæðislausir þar sem þeir eiga ekkert öruggt heimili. Er það af því að lóðirnar séu svona dýrar og húsaleigan svo há? Eða er þetta vegna þess að greiðsla til öryrkja og lífeyrisþega er orðin svo lág að þeir eiga ekki fyrir brýnustu nauðsynjum? Önnur ástæða fyrir dýrri húsa- leigu í Reykjavík er kolvitlaus stefna stjórnvalda í fiskveiðimál- um, eða eru menn búnir að gleyma kvótagreifunum, sem seldu kvót- ann úr byggðarlögunum og spóka sig nú í sólinni úti á Spáni og Flór- ída eða hafa keypt sér fyrirtæki á mölinni? Hvað gerðist svo í byggð- arlögum úti á landi? Fólkið flutti unnvörpum suður, því engan kvóta var að fá og þess vegna enga vinnu. Þess utan situr landsbyggð- arfólkið uppi með verðlausar eignir og þarf að leigja í Reykjavík. Súlurit ekki súludans Bæði D-listi og R-listi sem Framsókn á aðild að keppast við að sýna alls konar súlurit og súlu- byggingar (ekki þó súludans), sem eiga að sýna skuldasöfnun eða ekki skuldasöfnun. Það er bara ekki þetta sem málið snýst um, heldur snýst málið um fólk. Það er létt- vægt, rétt fyrir kosningar, að vera með alls konar tölur sem almenn- ingur er bæði orðinn leiður á og botnar hreint ekkert í. DeCODE fékk auð- vitað vilyrði fyrir 20 milljarða ríkisábyrgð, þrátt fyrir það að ef illa fer kosti það hvert mannsbarn á landinu 70 þúsund krónur. Þetta er í lagi því að ráðherra tekur ábyrgðina á sig. Ætlar hann sjálfur að greiða þessa peninga? Í þessu Bananalýð- veldi sem Ísland er orðið ber enginn ábyrgð. Enginn þarf að segja af sér út af einu né neinu. Það er ekki eins og í næstu nágrannalöndum okkar. Ef einhverjum verður á í mess- unni með því að halda fram hjá eða kippa einni og einni brennivíns- flösku með sér heim úr boði verða þeir hiklaust að taka pokann sinn. Selja mjólkurkýr Stjórnin er á bólakafi að selja allar mjólkurskýr sínar. Sjálfstæð- ismenn hafa lýst áhuga á því að selja Orkustofnun Reykjavíkur, sem malar gull. Auðvitað þarf endilega að einkavinavæða Orku- stofnun. Þá fyrst þurfum við í al- vöru að fara að borga fyrir vatnið. Vildarvinir kaupa ekkert nema til þess að græða á því eins og marg- oft hefur komið fram þegar selja átti Símann. Þegar það tekst hækkar símakostnaður upp úr öllu valdi. Það er kominn tími til að veita bæði D-lista og R-lista aðhald og það er það sem við ætlum að gera hjá F-listanum. Góðærið rosalega Erna V. Ingólfsdóttir Höfundur er eldri borgari í 4. sæti F- listans í Reykjavík. Reykjavík Það er kominn tími til að veita bæði D-lista og R-lista aðhald, segir Erna V. Ingólfsdóttir, og það ætlum við að gera hjá F-listanum. Frá Miðjarðarhafinu í apótekið þitt „Pharmaceutical - Grade“ ólífuolía í gelhylkjum með vítamínum, jurtum og/eða steinefnum. Heilsuleikur Þú gætir unnið ferð til Spánar! Aðeins í Plúsapótekunum www.plusapotek.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.