Morgunblaðið - 14.05.2002, Page 53

Morgunblaðið - 14.05.2002, Page 53
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 53 NÚ í upphafi sumars úthlutar Harpa Sjöfn 22 aðilum málning- arstyrk til verðugra viðhaldsverk- efna, en þetta er fimmta árið í röð sem fyrirtækið úthlutar slíkum styrkjum. Á þessu tímabili hefur Harpa Sjöfn úthlutað 82 aðilum samtals 14.000 lítrum af málningu til mjög fjölbreyttra verkefna um allt land að verðmæti 6 milljónir króna. Fjölmörg sögufræg hús og mannvirki hafa á undanförnum ár- um hlotið nýtt og fallegt útlit með þessum hætti. Einnig hafa góðgerð- arfélög, þjónustuklúbbar, íþrótta- félög og aðrir notið málning- arstyrkja Hörpu Sjafnar. Meðal þeirra sem hljóta málning- arstyrk Hörpu Sjafnar fyrir árið 2002 eru Kjarvalsstofa á Borg- arfirði Eystri, gamla síldarverk- smiðjan í Djúpuvík, Norska húsið í Stykkishólmi, Blindrafélagið í Reykjavík, Sauðlauksdalskirkja (1863) í Vesturbyggð, Syðstibær – hús Hákarla-Jörundar í Hrísey, Iðn- aðarsafnið á Akureyri, gamla þing- húsið í Maríugerði í Ljósavatns- hreppi í Köldukinn og Þroskahjálp á Suðurnesjum vegna Lyngsels. „Forráðamenn Hörpu Sjafnar vilja með þessum hætti hvetja landsmenn til að mála og fegra um- hverfi sitt. Harpa Sjöfn leggur metnað í að styðja einstaklinga, fé- lög og samtök sem hafa forystu um góð málefni af þessu tagi. Viðbrögð hafa ekki látið á sér standa og hafa forráðamenn ýmissa menningar- félaga, góðgerðarfélaga og fé- lagasamtaka um varðveislu sögu- legra mannvirkja kunnað að meta framlag fyrirtækisins til menning- arsögulegra verkefna undanfarin 5 ár,“ segir í fréttatilkynningu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Harpa Sjöfn úthlutar styrkjum Höfundar BA- ritgerðar um Slangur Þær Freyja Auðunsdóttir sem fædd er 20. desember 1978 og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, fædd 24. okt. 1978, eru höfundar BA-ritgerðarinn- ar Fiðurhaus eða froðuheili, sem fjallar um slangur. Í umfjöllun um ritgerðina urðu myndavíxl og eru því myndir af fræðimönnunum birtar aftur með réttum nöfnum. Níu listamenn í Hafnarhúsi Í Lesbók á laugardag er fjallað um sýninguna Mynd – íslensk samtíma- list í Listasafni Reykjavíkur Hafn- arhúsi og listamennirnir sem þar sýna sagðir átta talsins. Hið rétta er hins vegar að listamennirnir eru níu og láðist að geta Guðjóns Bjarnason- ar, sem sýnir stálskúlptúra í inni- garði safnsins og myndbands- og ljósmyndaverk í safninu sjálfu. Er beðist velvirðingar á þessum mistök- um. Freyja Auðunsdóttir Lilja Dögg Gunnarsdóttir LEIÐRÉTT STYRKUR, samtök krabba- meinssjúklinga og aðstand- enda þeirra, verður með um- ræðufund í Skógarhlíð 8, þriðjudaginn 14. maí kl. 20. Fundarefnið er „Hvað ráð- leggja krabbameinslæknar varðandi vítamín og fæðu- þætti?“ Fummælendur eru Helgi Sigurðsson, dósent í krabba- meinslækningum og yfirlæknir Krabbameinsmiðstöðvar Landspítala – háskólasjúkra- húss og Halla Skúladóttir læknir sem er í sérnámi í krabbameinslækningum í Danmörku og í doktorsnámi sem fjallar um áhættuþætti lungnakrabbameins. Allir vel- unnarar félagsins eru vel- komnir. Rætt um vítamín og fæðu- þætti hjá Styrk MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Kenn- araháskóla Íslands: „Í tilefni af ummælum sem höfð eru eftir Elnu Katrínu Jónsdóttur, formanni Félags framhaldsskóla- kennara, í Morgunblaðinu hinn 10. maí sl. óskar Kennaraháskóli Íslands eftir að koma eftirfarandi á fram- færi: Ummæli Elnu Katrínar eru á þá leið að leiðbeinendur séu oft í mjög erfiðri aðstöðu til að afla sér kennslu- réttinda, sérstaklega leiðbeinendur sem annast kennslu í framhaldsskól- um á landsbyggðinnni og að yfirvöld menntamála hafi lítið aðhafst til að greiða götu þessa hóps með raun- hæfum aðgerðum. Því er rétt að vekja athygli á því að frá árinu 1975 hefur verið boðið upp á kennsluréttindanám við Kennarahá- skóla Íslands fyrir einstaklinga sem lokið hafa fullgildu námi í kennslu- grein sinni og vilja afla sér kennslu- réttinda. Árið 1984 hófst fjarnám á þessari braut og var fyrst með þeim hætti að kennarar skólans fóru út á land þar sem flestir nemendur bjuggu. Nú er námið þannig byggt upp að kenndar eru í Reykjavík tvær staðbundnar lotur á ári. Þess á milli fara samskipti kennara og nemenda fram með tölvusamskiptum. Frá 1984 til ársins 2000 innrituðust 218 nemendur í fjarnám til kennslurétt- inda við KHÍ. Í ágúst nk. byrjar nýr hópur í þessu námi og stefnt er að því að taka inn 70 nemendur í fjarnám. Þá skal þess getið að kennslurétt- indanámið við KHÍ er byggt upp sem hálft nám (15 einingar á ári) til að koma á móts við þá nemendur sem eru í öðru starfi. Auk fyrrnefnds fjar- náms er einnig boðið upp á staðbund- ið kennsluréttindanám við skólann og þá fer kennsla fram eftir hádegi á mánudögum og föstudögum. Þar er einnig verið að koma til móts við þá sem eru í öðru starfi. Gífurleg aðsókn er að kennslurétt- indanáminu og því hefur verið ákveð- ið að taka inn rúmlega helmingi fleiri nemendur í ár en á síðasta ári.“ Athugasemd frá Kenn- araháskóla Íslands VORDAGAR LSH verða haldnir dagana 14. til 16. maí. Þeir eru ár- lega í maí í tengslum við ársfund Landspítala – háskólasjúkrahúss, nú öðru sinni. Almenningur er vel- kominn. „Vísindi á vordögum“ verða í Salnum í Kópavogi í dag, þriðju- daginn 14. maí, kl. 13. Kynning verður á mjög fjölbreytilegu rann- sóknarstarfi vísindamanna á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi. Reynir Tómas Geirsson, forseti lækna- deildar Háskóla Íslands, flytur er- indi um mikilvægi vísindavinnu á háskólasjúkrahúsi. Á eftir verða eftirfarandi rannsóknarverkefni kynnt með erindum: Bólusetning þungaðra músa og vernd afkvæma gegn pneumó- kokkasýkingum. Könnun á algengi síþreytu meðal Íslendinga á aldrinum 19–75 ára. Mígren með fyrirboða, er sjálf- stæður áhættuþáttur fyrir óhvött („unprovoked“) flog hjá börnum. Reynsla aldraðra einstaklinga, sem farnir eru að líkamlegri heilsu, af lífsgæðum á hjúkrun- arheimilum. Algengi stökkbreytinga í hemo- chromatosis (HFE) geni hjá Ís- lendingum. Eftir erindin kynnir Magnús Pétursson forstjóri nýja vísinda- stefnu Landspítala – háskóla- sjúkrahúss og úthlutað verður í fyrsta skipti úr „Vísindasjóði Landspítala – háskólasjúkrahúss“ sem stofnaður var á LSH árið 2001. Veggspjaldasýning um rann- sóknarverkefni á flestum deildum LSH verður opin frá kl. 13 mið- vikudaginn 15. maí í K-byggingu, Landspítala Hringbraut. Höfundar koma kl. 15 og kynna veggspjöld sín. Ársfundur Landspítala – há- skólasjúkrahúss hefst kl. 15 fimmtudaginn 16. maí. Jón Krist- jánssonar heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra flytur ávarp, starfsmenn verða heiðraðir og Lúðrasveit Reykjavíkur leikur. Guðjón Magnússon, rektor Nor- ræna heilbrigðisháskólans í Gauta- borg, flytur erindi um viðhorf stjórnvalda á Norðurlöndum til sjúkrahússrekstrar, segir í frétta- tilkynningu. Vordagar LSH hefjast í dag FYRIRLESTUR verður haldinn á vegum Stofnunar Vigdísar Finn- bogadóttur miðvikudaginn 15. maí kl. 16.15 í stofu 101 í Odda. Jón G. Friðjónsson, prófessor við HÍ, mun flytja fyrirlestur sem nefnist: „For- setningar í íslensku. Eigin merking og hlutverksmerking.“ Í fyrirlestrinum verður vikið fáum orðum að kerfinu sjálfu. Síðan verður fjallað um hvernig haga megi lýsingu þess og jafnframt gef- ið gróft yfirlit yfir hefðbundna framsetningu forsetninga í orð- fræðiritum. Í þriðja lagi verður rætt um kosti og galla hefðbund- innar lýsingar og teflt fram öðrum kostum sem byggjast á því sem kalla má hlutverksmerkingu for- setninga. Í fjórða lagi verður drepið á breytingar á notkun forsetninga. Í því sambandi verða einstakar breytingar ekki til umfjöllunar heldur eingöngu kerfisbreytingar og hugað að þeim orsökum sem að baki liggja. Í fimmta og síðasta lagi verður eftir því sem tími vinnst til vikið að orðfræðilegu hlutverki for- setninga og sögulegum þáttum er varpað geta ljósi á hlutverk þeirra og notkun. Við umfjöllun um þenn- an þátt verður stuðst við verk sem fyrirlesari hefur unnið að um all- langan tíma og tekin sýnishorn úr því. Allir eru velkomnir. Fyrirlestur um forsetningar HANNA Ragnarsdóttir, lektor við Kennaraháskóla Íslands, heldur fyr- irlestur á vegum Rannsóknarstofn- unar KHÍ miðvikudag 15. maí kl. 16.15. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal Sjómannaskóla Íslands við Há- teigsveg og er öllum opinn. Fyrirlesturinn byggist á rannsókn Hönnu á félagslegu umhverfi, mót- töku og aðlögun erlendra barna á leikskólum á Íslandi. Rannsóknin var gerð á árunum 2000–2001 á höf- uðborgarsvæðinu og nokkrum stöð- um á landsbyggðinni og náði til u.þ.b. 50 leikskóla. Í fyrirlestrinum verður fjallað um niðurstöður þess- arar rannsóknar og hvað má læra af þeirri reynslu sem til er orðin á leik- skólum landsins. Fjallað verður um hvers konar starf hefur mótast á leikskólunum undanfarin ár, hvaða áherslur hafa verið ríkjandi í mót- töku barnanna, að hvaða leyti starfið hefur mótast af staðsetningu leik- skólanna og hverjar hafa verið fé- lagslegar aðstæður erlendu barnanna, segir í fréttatilkynningu. Ræðir um erlend börn á leikskólum GARÐYRKJUFÉLAG Íslands held- ur fræðsluerindi í Norræna húsinu, miðvikudaginn 15. maí kl 20. Jón Geir Pétursson skógfræðingur og Steinar Björgvinsson garðyrkjufræðingur flytja erindi í máli og myndum, segja frá Alaskaferðinni og þeim gróðri sem þar vex. Allir eru velkomnir. Inngangseyrir er krónur 500, kaffi og te er innifalið í verðinu, segir í fréttatilkynningu. Fræðsluerindi hjá Garðyrkjufélaginu STARFSMANNAFÉLAG Hafnar- fjarðar efnir til opins fundar um stefnu stjórnmálaflokka í Hafnar- firði og afstöðu til einkavæðingar bæjarstofnana og launastefnu bæj- arins. Fundurinn er öllum opinn og verð- ur í Álfafelli við Strandgötu 15. maí og hefst kl. 20. Kaffiveitingar verða á fundinum, segir í fréttatilkynningu. Fundur með frambjóðendum í Hafnarfirði BANDALAG íslenskra skáta hefur hrundið af stað átakinu Skátastarf í öll byggðarlög. Markmið átaksins er að bjóða börnum og unglingum um allt land að upplifa skátastarf. Í stað þess að stofna skátafélög í hverju byggðarlagi er stefnt að því að stofna sem flesta sjálfstæða skátaflokka sem njóta síðan stuðn- ings frá Skátamiðstöðinni við und- irbúning og framkvæmd starfsins. Í fystu er leitað að 12–14 ára leiðtoga- efnum um allt land sem telja sig hafa það sem til þarf. Viðkomandi er boðið upp á þjálf- un, þátttöku í landsmóti skáta og loks aðstoð við að stofna skátaflokk í haust. Starfsmaður á skrifstofu Bandalags íslenskra skáta mun svo sjá um að „fóstra“ flokkana. Allar nánari upplýsingar er að finna á Skátavefnum: www.scout.is/ flokkar. Skátar í öll byggðarlög UMHVERFISNEFND Bandalags kvenna í Reykjavík efnir til fræðslu- fundar um trjárækt á Hallveigar- stöðum fimmtudaginn 16. maí kl. 20. Gestur fundarins verður Kristinn H. Þorsteinsson garðplöntufræðing- ur og flytur erindi um garðrækt, trjárækt og sveppasýkingu í trjám. Ókeypis aðgangur og allir vel- komnir, segir í fréttatilkynningu. Fræðsla um trjárækt FYRIRLESTUR til meistaraprófs í jarðfræði við jarð- og landfræði- skor HÍ verður fluttur í dag, þriðjudaginn 14. maí, kl. 15 í Odda, stofu 101. Hann fjallar um efnaskipti á milli botns og vatns í Mývatni og er fluttur af Ingunni Maríu Þor- bergsdóttur. Ingunn María lauk BS-prófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands í júní 1999. Hún hóf MS-nám í jarðfræði við Háskóla Íslands í janúar 2000 og er nú komið að lokum námsins. MS-verkefnið var unnið undir leiðsögn dr. Sigurðar Reynis Gísla- sonar, vísindamanns á Raunvís- indastofnun, og dr. Jóns Ólafsson- ar, prófessors við efnafræðiskor. Prófdómari er dr. Stefán Arnórs- son, prófessor við jarð- og land- fræðiskor. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Rætt um efna- skipti í Mývatni MÍMIR-Tómstundaskólinn mun halda námskeið sem nefnist „Töfrar Tékklands og perlurnar í Prag“ fimmtudaginn 16. maí kl. 20–23. Anna Kristine Magnúsdóttir og Pavel Manásek kenna á námskeiðinu. Pavel er Tékki, sem búsettur hefur verið á Íslandi sl. 10 ár. Anna Kristine er kunn af störfum sínum fyrir íslenska fjölmiðla. Á námskeiðinu fjalla þau um sög- una og stikla á stóru í þróun landsins. Skráning á námskeiðið fer fram hjá Mími-Tómstundaskólanum í síma og á mimir.is, segir í fréttatilkynningu. Námskeið um Tékkland FRÆÐSLUNEFND Náttúrulækn- ingafélags Íslands efnir til fundar í kvöld 14. maí kl. 20, með frambjóð- endum til sveitarstjórna á Suður- landi. Fundurinn ber yfirskriftina Áherslur í heilbrigðismálum. Frummælendur verða: Aldís Haf- steinsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Guðni Ágústsson, Framsóknarflokki, Sig- ríður Kristjánsdóttir, Samfylking- unni og Valdimar Bragason, Vinstri Grænum. Árni Gunnarsson fram- kv.stj. HNLFÍ flytur inngangsorð og fundarstjóri verður Ingi Þór Jónsson, formaður NLFR, segir í fréttatilkynningu. Málfundur í Hótel Örk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.