Morgunblaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 55
Frá vinstri: Þórdís Sigurðardóttir og Elísa Wium frá Vímulausri æsku, Lilja Sif Þorsteinsdóttir, ritstjóri Smells,
og Jón Jósep Snæbjörnsson, aðstoðarritstjóri Smells.
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur um samvinnu Vímu-
lausrar æsku/Foreldrahússins og
unglingablaðsins Smells. Verður
starf Vímulausrar æsku/
Foreldrahússins kynnt í öllum
tölublöðum Smells með viðtölum,
greinum og auglýsingum. Einnig
verður safnað styrktarlínum á
vegum blaðsins til að styðja for-
varnarstarf þessara aðila.
Vímulaus æska var stofnuð árið
1986 og hefur unnið að margs
konar verkefnum, einkum for-
vörnum, og rekin er fjöl-
skylduráðgjöf. Unglingablaðið
Smellur verður fimm ára í haust
og fjallar blaðið um málefni ung-
linga.
Hafa ritstjórar Smells lagt
áherslu á að birta forvarnarefni.
Smellur kynnir forvarnarstarf
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 55
Blússur - Pils
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Mikið úrval
Buxur
FRÉTTIR
LENGI vel fögnuðu Íslendingar því
að vorið góða grænt og hlýtt væri
komið. Þessi gleði var skiljanleg þar
sem veturinn var oft harður og gekk
nærri hag almennings. Nú eru
breyttir tímar og við eigum ekki leng-
ur allt okkar undir veðurfarinu. Þrátt
fyrir breytingar í atvinnumálum held-
ur þó sólin áfram að ylja okkur og
gróðurinn færir okkur lit og angan
komandi sumars. Það er vor í lofti. Í
þessari vorstemmingu fer ég að lesa
blöðin og sé þá að þau eru yfirfull af
skrifum um hvað það sé vond lykt í
miðbæ Reykjavíkur. Ég hef búið í ná-
grenni miðbæjarins í 12 ár og farið
nærri því á hverjum degi niður í
miðbæ en þessi vonda lykt hefur al-
veg farið framhjá mér. Það vantar
fólk í miðbæinn og það er vond lykt af
þeim sem þar sjást er viðkvæðið í
greinarhöfundum D-listans. Aðra
ályktun er ekki hægt að draga af
þessum skrifum.
Nú er það alþekkt frá fyrrihluta
síðustu aldar að stjórnmálaöfl vildu
hafa vit fyrir almenningi um hvað
væri æskilegt og ekki æskilegt, þann-
ig var bannað að gefa út rit sem skrif-
uð hefðu verið fyrir árið 1400 með nú-
tímastafsetningu. Að vísu dæmdi
Hæstiréttur þessi lög andstæð stjórn-
arskránni. Það er þess konar forræð-
ishyggja sem kemur fyrst upp í hug-
ann þegar talið berst að vondri lykt í
miðbænum. Væntanlega ætlar þá D-
listinn að koma upp borgarilmi og
væri fróðlegt að vita hvernig sá ilmur
á að vera og hvort hann verður búinn
til á efnafræðilegum forsendum og þá
með ríkisábyrgð? Hvað verður svo
gert við þá sem ekki lykta rétt?
Ég hélt að svona málflutningur
heyrði sögunni til. Það væri keppi-
kefli stjórnmálaafla að horfa til fram-
tíðar og segja hvað þau hefðu fram að
færa en ekki tala eins og allt væri í
kaldakoli. Það býr fólk í miðbænum
og það er fólk á ferli í miðbænum.
Þess vegna er það einkennilegt að
framboð til borgarstjórnar sem vill
láta taka sig alvarlega skuli hafa uppi
málflutning eins og þann að miðbær-
inn sé í rúst og óþef leggi þar yfir allt.
Það er gaman að koma í miðbæinn og
það er gott að búa í Reykjavík.
SIGURBJÖRG
ÁSGEIRSDÓTTIR,
Fjólugötu 25, Reykjavík.
Björn Bjarnason
og vonda lyktin!
Frá Sigurbjörgu Ásgeirsdóttur:
ÉG ER ein þeirra sem ekki geta orða
bundist yfir frökkum framgangi í
málefnum Íslenskrar erfðagreining-
ar. Að setja fram þá ósk að við skatt-
greiðendur þessa lands, í nafni rík-
isins, tökumst á hendur 20 milljaða
kr. ábyrgð fyrir einhvern áhættusam-
asta atvinnuveg sem fyrirfinnst og
það fyrir eitt (erlent) fyrirtæki.
Ég bara spyr eins og Stefán J. Haf-
stein gerir í grein í blaðinu 19. þ.m.
Er Sjálfstæðisflokkurinn áhættu-
fíkill? Vill hann stuðla að óráðsíu með
almanna fé? Eða eru þetta örfáir
áhættufíklar sem láta sér detta í hug
að setja fram frumvarp til laga á Al-
þingi Íslendinga um ríkisábyrgð til
handa einhverju einu fyrirtæki um-
fram önnur, og það af þessari stærð-
argráðu, þrátt fyrir mikinn ágreining
í skoðunum manna á máli þessu?
Voru það ekki orð Björns Bjarna-
sonar, fv. ráðherra, að hið opinbera
ætti ekki að taka þátt í áhætturekstri
fyrirtækja?
Jú, sem betur fer hefur margur
góður borgarinn sett sig á móti um-
ræddu frumvarpi og skiptir þá ekki
máli hvar í flokki viðkomandi eru.
Að gamni vil ég benda fyrirtækinu
Íslenskri erfðagreiningu á hina ís-
lensku þýðingu orðsins de-CODE;
þ.e. að leysa sitt eigið leyniletur og
halda sér í upprunalegu horfi. Gott
væri að þeir færu eftir því.
Ég er þeirrar skoðunar að ef úr
þessari ríkisábyrgð verður, sé nær að
breyta nafni fyrirtækisins í „de-
COY“ sem í íslenskri þýðingu er „tál-
beita“, þ.e. sá sem ginnir eða leiðir
aðra í ógöngur.
Ef illa færi nú varðandi áhættuþátt
ríkisins í þessu máli, hvað mætti ekki
gera margt til góðs í þjóðfélaginu,
fyrir aðeins brot af þvílíkum fjármun-
um.
Nær væri að ríkið legði meiri
áherslu á að ráða fram úr þeim mikla
vanda sem heilbrigðisgeirinn á í, t.d.
fjársvelti spítalanna. Bæta kjör aldr-
aðra og öryrkja og stuðla að jöfnun á
manngildi og velferð þegna sinna. Því
þegnar landsins erum við öll, frá
vöggu til grafar.
ELÍN BIRNA ÁRNADÓTTIR
skipar 18. sæti á lista Framsókn-
arflokksins í Hafnarfirði.
Enn um deCODE
Frá Elínu Birnu Árnadóttur:
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl.
10–14 í neðri safnaðarsal. Skemmtiganga
um Laugardalinn eða upplestur kl. 10.30.
Umsjón Þóranna Þórarinsdóttir. Bæna- og
fyrirbænastund kl. 12 í kirkjuni. Umsjón
Guðrún K. Þórsdóttir djákni. Léttur hádeg-
isverður að stundinni lokinni. Samvera for-
eldra unga barna kl. 14–16 í neðri safn-
aðarsal. Opinn 12 spora starf kl. 19 í
kirkjunni.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.10. Orgelleikur, ritningalestur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimili eftir stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta í
dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05 alla virka daga nema mánudaga.
Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörð-
arstund þar sem Þorvaldur Halldórsson
leiðir sönginn við undirleik Gunnars Gunn-
arssonar. Sóknarprestur flytur guðs orð og
bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá
bænahóps kirkjunnar undir stjórn Mar-
grétar Scheving og hennar samstarfsfólks.
(Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara kl.
16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. For-
eldramorgunn miðvikudag kl. 10–12. Vor-
ferð í Húsdýragarðinn. Umsjón Elínborg
Lárusdóttir.
Fríkirkjan í Reykjavík. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag þriðjudag kl. 12 í kapellu safn-
aðarins á 2. hæð í safnaðarheimili kirkj-
unnar, Laufásvegi 13. Allir velkomnir til
þátttöku.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar kl. 10–
12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. TTT-
klúbburinn í Ártúnsskóla kl. 14.20–15.20.
Barnakóraæfing kl. 17–18.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 18.30.Bænaefnum má
koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans.
Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Vor-
ferð til Grindavíkur. Lagt verður af stað frá
kirkjunni kl. 11 f.h.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11–12 ára
drengi kl. 17.
Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg-
ara kl. 13.30–16.30. Helgistund, handa-
vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf
eitthvað gott með kaffinu. TTT (10–12 ára)
í Engjaskóla kl. 18.30–19.30. Kirkjukrakk-
ar í Engjaskóla fyrir börn 7–9 ára kl.
17.30–18.30. Æskulýðsfélag í Grafar-
vogskirkju, eldri deild, kl. 20–22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 10–12.
Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús
milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara
kl. 13.30–16 í Kirkjuhvoli. Spilað og spjall-
að. Helgistund í kirkjunni kl. 16. Fjölbreytt
kristilegt starf fyrir 9–12 ára stúlkur í
Kirkjuhvoli kl. 17.30 í umsjón KFUK.
Bessastaðasókn. TTT-kristilegt æskulýðs-
starf fyrir 10–12 ára í Álftanesskóla, stofu
104, kl. 17.30. Rúta ekur börnunum heim.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17–
18.30 fyrir 7–9 ára. Kl. 20–22 æskulýðs-
félag yngri félaga.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17–18.30.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lága-
fellsskóla frá kl. 13.15–14.30.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla
þriðjudaga kl. 10–12.
Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar
þriðjudagsmorgna kl. 10–11.30.
Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára starf alla
þriðjudagakl. 17– 18. Helgistund í kirkj-
unni sömu daga kl. 18.15–19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í
Hrakhólum í kvöld kl. 20.
Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9.
Glerárkirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 18.10.
Hjálpræðisherinn, Akureyri: Mánudagur:
Kl. 15 heimilasamband. Síðasti fundur
vetrarins.
Safnaðarstarf
Í HERNAÐARAÐGERÐUM Ísr-
aelsmanna í Ramallah og Jenin var
gert meira en að berjast gegn
hryðjuverkum. Í rauninni snerust
aðgerðirnar ekki um það, heldur að
eyðileggja palestínskt samfélag eins
og það leggur sig.
Í Ramallah réðst Ísraelsher t.d. á
menntamálaráðuneyti Palestínu og
eyðilagði húsgögn, síma og tölvur.
Einnig var peningaskápur í ráðu-
neytinu sprengdur upp og stolið úr
honum. Allar prófúrlausnir palest-
ínskra skólabarna allt að 50 ár aftur í
tímann voru eyðilagðar svo og allir
listar um kennarafjölda og nemend-
ur, allar upplýsingar um skólakerfi
Palestínumanna voru eyðilagðar.
Í heilbrigðisráðuneyti Palestínu
var sama uppi á teningnum. Þar voru
eyðilagðar allar upplýsingar um
lækna, hjúkrunarfólk, sjúklinga og
sjúkdóma þeirra.
Jafnvel hörðustu andstæðingar
palestínsku heimastjórnarinnar í
Ísrael viðurkenndu þó að þessi tvö
ráðuneyti hefðu verið að vinna mjög
gott starf í Palestínu og ekki komið
nálægt hryðjuverkastarfsemi.
Aðrar opinberar stofnanir í Pal-
estínu voru líka lagðar í rúst, eins og
ökuskólinn og höfuðstöðvar öryggis-
sveita Palestínu. Í Jenin eyðilögðu
Ísraelsmenn 800 hús og 5.000 manns
misstu heimili sín vegna þess. Terje
Roerd-Larsen, sendimaður SÞ í Jen-
in, lýsti aðgerðum Ísraelsmanna þar
sem siðferðislegri viðurstyggð.
Hvers vegna vill síðan Ísr-
aelsstjórn ekki leyfa óháðum aðilum
að rannsaka það hvort herinn hafi
framið fjöldamorð í Jenin? Þeir vita
eflaust upp á sig skömmina, í raun-
inni gildir einu hvort herinn hafi
myrt 50 manns eða 500 í aðgerðun-
um, fjöldamorð er fjöldamorð.
Þetta sýnir að stjórnvöld í Ísrael
gerðu annað og meira en að berjast
gegn hryðjuverkum í Ramallah og
Jenin. Reynt var að eyðileggja allar
undirstöður samfélagsins. Það á þó
ekki að þurfa að koma á óvart þar
sem öfgamaðurinn Sharon á sér
þann draum að búa til Stór-Ísrael,
sem nær frá Miðjarðarhafi til Jórd-
anár, ríki sem eingöngu er byggt
gyðingum. En til þess að það takist
þarf hann að koma Palestínumönn-
um burt, og til þess er öllum tiltæk-
um ráðum beitt. Það er engin tilvilj-
un að Sharon studdi opinberlega
Slobodan Milosevic á sínum tíma.
Það segir meira en mörg orð.
SIGURÐUR ÞÓRARINSSON,
Selvogsgrunni 22, Reykjavík.
Um hernað Ísraels
Frá Sigurði Þórarinssyni:
Nýjar náms-
leiðir fyrir
fólk í umönn-
unarstörfum
NÝ námsleið, félagsliðanám, hefur
opnast fyrir fólk í umönnunarstörf-
um og er kennsla hafin í Borgar-
holtsskóla í Reykjavík. Einnig eru að
opnast möguleikar sjúkraliða til
framhaldsnáms í þeirra grein.
Öldrunarráð Íslands boðar til
námsstefnu um þessi mál, þar sem
gerð verður grein fyrir hinum nýju
námsleiðum, bæði um inntak þeirra,
réttindi sem námið veitir og hinn
fjárhagslega þátt. Einnig verður
gerð grein fyrir sjónarhorni Fé-
lagsþjónustunnar.
Námsstefnan verður haldin í
Gerðubergi í Reykjavík miðvikudag-
inn 15. maí kl. 13.30 – 16. Allir eru
velkomnir meðan húsrúm leyfir, en
sérstaklega er boðið til hennar fólki í
umönnunarstörfum við aldraða,
fulltrúum frá öldrunarstofnunum og
frá sveitarfélögum sem skipuleggja
heimaþjónustu aldraðra, segir í
fréttatilkynningu.
Fundur um
feður og föð-
urhlutverkið
Á ALÞJÓÐLEGUM degi fjölskyld-
unnar 15. maí efna fjölskylduráð og
félagsmálaráðuneytið til morgun-
verðarfundar á Grand Hótel Reykja-
vík um feður og föðurhlutverkið.
Umræðuefni fundarins eru þær
breytingar sem jafnt og þétt eru að
verða á stöðu feðra til að sinna föð-
urhlutverki sínu og áhrif þeirra
breytinga á samfélagið.
Fundurinn hefst með ávarpi Páls
Péturssonar félagsmálaráðherra og
síðan tala Ólafur Þ. Stephensen, að-
stoðarritstjóri Morgunblaðsins, Ari
Edwald, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, Garðar Baldvins-
son, formaður félagsins Ábyrgir feð-
ur og Dögg Pálsdóttir hæstaréttar-
lögmaður.
Fundurinn hefst kl. 8.30 og stend-
ur í eina klukkustund. Morgunverð-
ur er framreiddur frá kl. 8 og kostar
850 kr., segir í fréttatilkynningu.
Hestakerru
stolið á Varm-
árbökkum
HESTAKERRU var stolið af efra
kerrustæði við hestahúsahverfið á
Varmárbökkum í Mosfellsbæ á föstu-
dagskvöldið eða aðfaranótt laugar-
dags. Um er að ræða kerru af gerð-
inni Homar fyrir fimm hesta, gráa að
lit með ljósu segli á toppi. Skráning-
arnúmer kerrunnar er SZ 004.Þeir
sem gætu gefið upplýsingar um hvarf
kerrunnar eru vinsamlegast beðnir
að snúa sér til lögreglunnar í Reykja-
vík eða hringja í síma 896 6753.