Morgunblaðið - 14.05.2002, Side 56

Morgunblaðið - 14.05.2002, Side 56
DAGBÓK 56 ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Flemming Sif, Skóga- foss, Kiel og Cec Copen- hagen koma í dag. Ant- onio Enes, Þerney, Cidade de Amarante og Akureyrin fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss kom til Straums- víkur í gær. Obsha og Annie Hillina fóru í gær, Brattegg kemur í dag. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14–17. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun í dag kl. 17–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, leirkera- smíði, kl. 10 boccia, kl. 10 enska, kl. 11 enska og Lance-dans, kl. 13 vinnustofa, postulíns- málun og bað. Árskógar 4. Kl. 9 bók- band og öskjugerð, kl. 13 opin smíðastofa. Allar upplýsingar í s. 535 2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böð- un, kl. 9–9.45 leikfimi, kl. 9–12 tréskurður, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerðir, kl. 10 sund, kl. 13 leirlist. Eldri borgarar Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðjudögumog fimmtu- dögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudög- um. Jóga föstudaga kl. 11. Kóræfingar hjá Vor- boðum, fimmtudaga kl. 17–19. Púttkennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586 8014 kl. 13–16. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 fönd- ur og handavinna. Kl. 14.45 söngstund í borð- sal með Jónu Bjarna- dóttur. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Spilað í Holts- búð kl. 13.30. Vorferð 15 maí Nesja- vellir- Geysir, Flúðir. Brottför kl. 9. Ath. breyttur brott- faratími. Félagsstarfið Furu- gerði. Kl. 9 aðstoð við böðun, bókband og al- menn handavinna, kl. 10 leikfimi, kl. 14 sagan. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Brids, saumur undir leiðsögn og frjáls handavinna kl. 13.30, spænskukennsla kl. 16:30. Á morgun línu- dans kl. 11, pílukast kl. 13.30 og glerskurður kl. 13. Opið hús í boði Rótarí fimmtud. 16. maí. kl. 14, í boði er skemmtiatriði og kaffi. Kór eldri Þrasta og Gaflarakórinn halda tón- leika í Víðistaðakirkju föstud. 17 maí kl. 20, að- gangur ókeypis. Vest- mannaeyjaferð 2. til 4. júlí rúta, Herjólfur, gist- ing í 2 nætur. Upplýs- ingar og skrásetning í Hraunseli sími 555 0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan op- in virka daga frá kl. 10– 13. Kaffi, blöðin og mat- ur í hádegi. Mánud.: Brids kl. 13. Þriðjud.: Skák kl. 13. Miðvikud.: Göngu-Hrólfar fara í göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Göngu-Hrólfar fara í leikhúsferð á Sólheima laugard. 18. maí að sjá Hárið. Brottför frá Ás- garði, Glæsibæ, kl. 14. Allir velkomnir. Skrán- ing á skrifstofu FEB. Dagsferð 27. maí Hafn- arfjörður – Heiðmörk. Kaffi og meðlæti. Leið- sögn: Páll Gíslason og Pálína Jónsdóttir, skrán- ing hafin á skrifstofu FEB. Silfurlínan er opin á mánudögum og mið- vikudögum frá kl. 10–12. í s. 588 2111. Skrifstofa félagsins er flutt í Faxa- fen 12, sama símanúmer og áður. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 vinnustofa, tréskurður, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 10 leikfimi, kl. 12.40 Bónusferð, kl. 13.15 bókabíll. Opið sunnu- daga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 13 boccia. Miðvikudaginn 22. maí er leikhúsferð í Borg- arleikhúsið að sjá Kryddlegin hjörtu, skráning hafin. Veit- ingar í Kaffi Berg. Upp- lýsingar um starfsemina á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik- fimi, kl. 9.30 gler- skurður, kl. 10 handa- vinna, kl. 14 þriðjudagsganga og boccia, kl. 19 brids. Kl. 14 verður opnaður hand- verksmarkaður, kaffi og vöfflur. „Smellur 2…aldrei of seint“ sýnt í Hjáleigunni, Fannborg 2, kl. 14. Gullsmári, Gullsmára 13. Handverksmarkaður verður í dag frá kl. 13– 16. Margt góðra muna á boðstólum. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–16 bútasaumur, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 11 leikfimi, kl. 13 spilamennska. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og leikfimi, kl. 9.45 bankaþjónusta, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 helgistund. Fótaaðgerð- ir, hársnyrting. Allir vel- komnir. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun, kl. 9 glerskurður og tré- málun, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13 myndlist, kl. 13–17 hárgreiðsla. Háteigskirkja eldri borgarar. Á morgun, miðvikudag, samvera, fyrirbænastund í kirkj- unni kl. 11, súpa í Setr- inu kl. 12, spil kl. 13. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 tréskurður og opin vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 9–17 hárgreiðsla. All- ir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 gler- skurður og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13 handmennt og körfugerð, kl. 14 fé- lagsvist. Tómstundastarf eldri borgara í Reykjanesbæ. Sýning á handverki eldri borgara dagana 26.–31. maí, að báðum dögum meðtöldum. Kaffi- húsastemmning og lif- andi tónlist. Tekið á móti munum á sýninguna þriðjud. 21. maí í Selinu. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, leik- fimi kl. 11 í Bláa salnum. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svarað í s. 552 6644 á fund- artíma. Hana-nú Kópavogi. Sýningar á „Smelli…2 aldrei of seint“ eru alla daga kl. 14 til laugard. 18. maí í Hjáleigunni Fé- lagsheimili Kópavogs. Gengið inn baka til. Að- eins þessar sýningar. Pantanir í Gjábakka s. 554 3400 og Dóra s. 899 5508. Félag áhugafólks og að- standenda Alzheim- erssjúklinga og annarra minnissjúkra. Aðalfund- urinn verður miðvikud. 15. maí kl. 20 í húsi í Hörgatúni 2 Garðabæ. Auk venjulegra aðal- fundarstarfa verður sagt frá því nýjasta í málum minnissjúkra og og frá ráðstefnu norrænu Alz- heimerssamtakanna sem var í Danmörku nýlega. Sínawik í Reykjavík, bingófundur í kvöld, 14. maí, kl. 20 á Broadway í sal sem heitir Ásbyrgi, gengið inn hótelmegin. Ath. breyttan fund- arstað. Vestfirðingafélagið. Menningarvaka til- einkuð minningu Sigríð- ar Valdimarsdóttur verður í félagsheimilinu Gullsmára, Gullsmára 13, frá kl. 20 þriðjud. 14. maí. Uppl. í s. 554 3773 eða 566 6500. Kvenfélag Óháða safn- aðarins. Aðalfundurinn verður í Kirkjubæ þriðjudaginn 21. maí kl. 20.30. Í dag er þriðjudagur 14. maí, 134. dagur ársins 2002. Vinnuhjúaskila- dagur. Orð dagsins: Þú kallaðir í neyðinni, og ég frelsaði þig, ég bæn- heyrði þig í þrumuskýi, reyndi þig hjá Meríbavötnum. (Sálm. 81, 8.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 greftrun, 4 fatnaður, 7 setjum, 8 rangt, 9 guð, 11 lifa, 13 sögustaður, 14 þolið, 15 vonda byssu, 17 keyrir, 20 guði, 22 hand- samar, 23 druslu, 24 bætt við, 25 eftirsjá. LÓÐRÉTT: 1 ásýnd, 2 útlimur, 3 vítt, 4 kosning, 5 fýla, 6 dáni, 10 úði, 12 ílát, 13 beina að, 15 refsa, 16 lævís, 18 hreysi, 19 höfðingsskap- ur, 20 yfrið nóg, 21 súr- efni. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 handtekur, 8 hrafl, 9 fella, 10 lái, 11 fenna, 13 rúnir, 15 seggs, 18 sinna,21 tók, 22 sellu, 23 aðild, 24 hundeltir. Lóðrétt: 2 asann, 3 della, 4 erfir, 5 uglan, 6 óhóf, 7 marr, 12 nóg, 14 úði, 15 sess, 16 guldu, 17 stund, 18 skafl, 19 neiti, 20 alda. Víkverji skrifar... VÍKVERJI er Akureyringur.Hann er líka Þórsari. Þess vegna leiðist honum fátt meira en þegar honum er óskað til hamingju með sigra KA. „Hvað ertu ekki Ak- ureyringur?“ spyrja menn hvumsa þegar Víkverji hvessir brún og berar tennur. Vitaskuld. En skilja menn hérna syðra ekki að það að vera Ak- ureyringur er ekki endilega það sama og að vera KA-maður? Á að giska annar hvor maður á Akureyri er raunar KA-maður en hinn er Þórsari. Blóð hans er rautt, ekki gult. Þannig er því farið með Víkverja. Hann gleðst því ekki yfir sigrum KA. Öðru nær. Brögð hafa verið að þessu áreiti næstliðna daga enda skilst Víkverja að KA-menn hafi unnið til einhverra metorða í handbolta á föstudags- kvöldið. Og það er eins og við mann- inn mælt, heillaóskunum rignir yfir Víkverja. Súrt bragð af því regni. Það er á stundum sem þessum að Víkverji þakkar fyrir að vera búsettur í Reykjavík. Hér er færri KA-mönnum að mæta. Þar fyrir utan hefur Víkverji aldrei botnað í handbolta – hann snýst að- allega um fangbrögð og innáskipting- ar. Ótrúlegt að liðum sé leyft að skipta nýjum mönnum inn á þegar farið er úr vörn í sókn. Handagang- urinn er oft svo mikill við varamanna- bekkinn meðan á þessu gengur að það minnir á útsölu í raftækjaverslun. Mildi að enginn liggi sár eftir. Ef til vill furðar fólk sig á þessu við- horfi Víkverja til KA. En svona er þetta nú samt. Rígurinn milli KA og Þórs er snar þáttur í menningarlífi Akureyrar og ógerlegt að hugsa sér bæinn án hans. Víkverji kann góða sögu um þetta. Það var fyrir nokkrum árum, þegar KA gekk sem verst í næstefstu deild í fótbolta, að liðið var að etja kappi við einhverja minni spámenn af Suður- nesjum. Sennilega Reyni Sandgerði. Með fullri virðingu fyrir því ágæta fé- lagi. Langt var liðið á leikinn þegar Þórsari nokkur hringdi niður á Ak- ureyrarvöll til að spyrjast fyrir um stöðu mála. 3:0 fyrir Reyni, var hon- um sagt. Klukkan var langt gengin í tíu. Þórsarinn beið aftur á móti ekki boðanna. Ræsti son sinn, fjögurra eða fimm ára, sem lagstur var til hvílu, klæddi hann og hélt sem leið lá niður á völl. Til hvers? Jú, til að sjá KA-mennina ganga af velli! Einn er þó kostur KA-manna. Þeir tapa alltaf fyrir Þór í fótbolta. Á þessu sumri eru félögin bæði meðal hinna bestu á ný, eftir langt hlé. Víkverji hlakkar því til sparksins. Þá verður aftur gaman að vera Ak- ureyringur! x x x VÍKVERJI hefur sterkar taugartil enska landsliðsins í knatt- spyrnu. Honum líst hins vegar ekkert orðið á blikuna fyrir heimsmeistara- mótið sem er á næstu grösum. Mið- vallarleikmenn liðsins ganga úr skaftinu hver á fætur öðrum vegna meiðsla. David Beckham er tæpur, einnig Steven Gerrard og Kieron Dyer er úr leik. Þetta er mikil blóð- taka. Víkverji er líka forviða á vali Svens Görans Eriksson, landsliðsein- valds, á leikmönnum í stað þessara manna, Danny Murphy og Trevor Sinclair. Á meðan sitja menn á borð við Steve McManaman og Ray Parl- our heima. Tveir frábærir leikmenn með ómælda reynslu af stórleikjum. Hér hafa þeim sænska orðið á mistök. Og enn um Leiðarljós ÉG vil koma á framfæri ósk- um um að sýningum á Leið- arljósi verði ekki hætt. Við sem búum úti á landi höfum ekki kost á miklu afþreying- arefni og er Leiðarljós eitt af því sem við missum aldrei af. Árný Árnadóttir. Þakkir fyrir pistil MARGRÉT hafði samband við Velvakanda og vildi hún koma á framfæri þakklæti til Guðrúnar Thorlacius fyr- ir pistil hennar um sjón- varpsþáttinn Leiðarljós. Segir hún að sá þáttur hafi verið ein mesta ánægja margra eldri borgara og ör- yrkja til margra ára. Stefnumál F-listans LANGAR að lýsa eftir stefnumálum F-listans í málum öryrkja. Öryrki. Múmínálfabækur KONA spyr hvar hægt sé að fá Múmínálfabækurnar eftir Tove Jansson. Sveppasýkingar VEGNA umfjöllunar í Vel- vakanda nýlega um sveppa- sýkingar kvenna vil ég koma á framfæri góðum ráðum til að forðast sýk- ingu. Það er konum algjör- lega nauðsynlegt að sleppa öllum sætindum og borða ger- og sykurlaus brauð sem hægt er að fá í heilsu- búðum. Nauðsynlegt að taka inn daglega acidophil- us sem fæst í apótekum og auka skammtinn þegar sýk- ing á sér stað. Skolun kyn- færa án sápu 1–2 sinnum á dag. Forðast nærfatnað úr gerviefnum og ganga í bóm- ullar- eða silkinærfötum. Sleppa að nota innlegg. Fatnaður sem þrengir að er óæskilegur því hann veldur ertingu sem kemur sveppa- sýkingu oft af stað. Kristín. Ekki hætta að sýna þáttinn SVANFRÍÐUR hafði sam- band við Velvakanda og vildi hún koma á framfæri ósk sinni og annarra um að ekki verði hætt að sýna þáttinn Leiðarljós. Áskorun FINNST slæmt að hætta eigi sýningum á þættinum Leiðarljós. Ég vil skora á ríkissjónvarpið að halda áfram að sýna þættina. Vilborg. Tapað/fundið Popplínfrakki tekinn í misgripum LJÓS popplínfrakki, merkt- ur að innan í kragalíningu með nafni og símanúmeri, var tekinn í misgripum í fatahenginu í Fella- og Hólakirkju á kirkjudegi aldraðra sl. fimmtudag. Upplýsingar gefur Kristín í síma 421 1525. Kvenmannsúr týndist GALINDA kvenmannsúr týndist sl. miðvikudag, lík- lega í mið- eða vesturbæ Reykjavíkur. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 552-3248 eftir kl. 17. Barnabílstóll týndist BLÁR barnabílstóll týndist frá Trönuhjalla 21 fyrir stuttu. Þeir sem hafa upp- lýsingar um stólinn vinsam- lega hafi samband í síma 659-5335. Nike-taska týndist SVÖRT Nike-taska týndist á Hellisgötunni í Hafnar- firði 8. maí sl. Í töskunni voru ungbarnaföt, bleiur, pelar o.fl. og eru þetta dýr- mætar eigur fyrir auralitla námsmenn. Skilvís finnandi hafi samband í síma 898 6999 og 898 4645. Dýrahald Kanína og búr óskast ÓSKA eftir angórukanínu og inni- og útibúri gefins. Vinsamlega hafið samband við Huldu í síma 694 8225. Kettlingur fæst gefins KETTLINGUR fæst gef- ins. Hann er tveggja mán- aða, kassavanur og skemmtilegur. Upplýsingar í síma 557 5918. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is EVA María hélt því fram í Kastljósþættinum á uppstigningardag í yf- irheyrslu yfir Árna Johnsen að áhorfendur heima í stofu vildu vita um svokölluð biðlaun Árna. Sem áhorfandi heima í stofu vil ég láta þá góðu konu vita að mér koma biðlaun Árna ekkert við. Þau hafa líka áreiðanlega ekki verið í líkingu við þær 37 millj- ónir sem Þórarinn fékk. Þau kastljóshjú voru al- veg yfirgengilega frek og ágeng. Mér sýndist að þau ætluðu að taka ómakið af þartilbærum dómstólum með yf- irheyrslum og dómi. Kann fjölmiðlafólk aldrei að skammast sín? Við Árna Johnsen vil ég segja. Ég óska þér alls hins besta og ég treysti þér helmingi betur en þeim sem fannst að þú hefðir sett blett á fínu fötin sín. Gættu þín vel á sessunautum þínum í framtíðinni. Guð veri með þér. Guðlaug, 070131-4049. Yfirgengilega frek 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.