Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 57

Morgunblaðið - 14.05.2002, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 2002 57 DAGBÓK Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 14. maí, er fimmtug Henný Júlía Herbertsdóttir, Miklubraut 38, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Reynir Sigur- jónsson. Í tilefni afmælisins opnar hún málverkasýningu á afmælisdgainn kl. 17 í Art- studio Gallery, Vesturgötu 12, Reykjavík. 70 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 14. maí, er sjötugur Ingvi Guð- mundsson, heiðursfélagi Stjörnunnar. Af því tilefni er opið hús í Stjörnuheim- ilinu fyrir fjölskyldu, vini og félaga Ingva frá kl. 18–20. LJÓÐABROT FIÐLARINN Þegar hann bogann bendir, birtir að hjartakró. Örvarnar, sem hann sendir, særa’ eigi’, en hæfa þó. Heyri’ eg, er Hrosshársgrani hræra fer strengjabjóð, dauðvona syngja svani, sjávar og klukkna hljóð. Úr gígjunni hregg hann hristir, hríðir og þrumu sköll. Bæjarmagns leikur hann listir, lærðar í Geirröðar höll. Hlær bæði gígjan og hjúfrar, hvað er í annað greypt. Hið leiðara við hið ljúfra lætur hann saman steypt. Grímur Thomsen 1. Rf3 d5 2. g3 c6 3. Bg2 Bg4 4. 0–0 Rd7 5. d3 e5 6. e4 dxe4 7. dxe4 Rgf6 8. h3 Bxf3 9. Dxf3 Rc5 10. Rd2 Bd6 11. Rc4 Bc7 12. b3 b5 13. Ba3 Rfd7 14. Had1 Db8 15. b4 Re6 Staðan kom upp á Reykjavík- urskákmótinu sem lauk sl. mars. Antoaneta Stef- anova (2.451) hafði hvítt gegn Birni Þorfinns- syni (2.279). 16. Hxd7! Hf8 17. Hfd1 bxc4 18. Dg4 Db6 19. Bf1 g6 20. Bxc4 h5 21. Df3 Hd8 22. Dd3 Hb8 23. b5 c5 24. Bxe6 fxe6 25. Dc4 og svartur gafst upp. Minn- ingarmót Capablanca fer senn að ljúka í Havana á Kúbu. Nokkrir íslenskir skákmenn taka þar þátt og er hægt að fylgjast með gangi mála á skak.is.. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. ÞEGAR umsjónarmaður var ennþá blautur á bak við eyrun las hann um brellu í breskum bridsbókum sem kallast „bath coup“. Heitið er mikilfenglegt – baðbragð- ið – en innihaldið rýrt í roð- inu. Tæknin felst í því að dúkka kóngsútspil með ÁGx heima í þeirri von að grun- laus mótherjinn spili aftur upp í gaffalinn. Þessi brella dugði vel á fyrstu árum íþróttarinnar þegar vörnin var spiluð í sambandsleysi, en nú til dags leysa menn þennan varnarvanda með þeirri einföldu relgu að kalla eða vísa frá. Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ ÁK943 ♥ 9 ♦ KG1083 ♣95 Vestur Austur ♠ G107 ♠ D65 ♥ K63 ♥ G1054 ♦ 54 ♦ Á76 ♣KD1074 ♣G32 Suður ♠ 82 ♥ ÁD872 ♦ D92 ♣Á86 Vestur Norður Austur Suður – – Pass 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 1 grand Pass 3 tíglar Pass 3 grönd Pass Pass Pass Spilið að ofan kom upp á OK Bridge á Netinu. AV voru lítt samæfðir og höfðu ekki gefið sér tíma til að ræða varnarstílinn í smáat- riðum. Vestur hóf vörnina með laufkóng og átti slaginn. Vestur treysti sér ekki til að túlka smáspil austurs sem kallspil og skipti yfir í tígul af ótta við að suður ætti ÁGx og væri að láta renna í bað fyrir sig. Sem kom sér ágæt- lega fyrir sagnhafa. Austur drap á tígulás og spilaði lauf- gosa. Suður gaf, fékk næsta slag á laufás og tók svo alla tígulslagina. Nú er lesandinn beðinn um að setja sig í spor sagn- hafa, sem reyndar er for- sætisráðherra landsins, Davíð Oddsson, en makker hans í norður er Jón Steinar Gunnlaugsson. Austur henti tveimur hjörtum í tíglana, en vestur einu hjarta og síðan spaðasjöu og spaðatíu. Stað- an var þá þessi: Norður ♠ ÁK94 ♥ 9 ♦ – ♣– Vestur Austur ♠ G ♠ D65 ♥ K6 ♥ G10 ♦ – ♦ – ♣D7 ♣– Suður ♠ 82 ♥ ÁD8 ♦ – ♣ Óbreyttir þingmenn myndu vafalítið spila upp á svíningu í hjarta, en for- sætisráðherrann hafði önn- ur áform og áhættusamari – hann spilaði smáum spaða úr borði! Austur mat stöðuna svo að suður ætti gosann og rauk upp með drottninguna, svo að Davíð fékk níunda slaginn á spaðahund í blindum. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. FRÉTTIR Sumarbrids hefst í kvöld Sumarspilamennskan hjá Brids- sambandi Íslands hefst í kvöld kl. 19:00. Í boði verður eins kvölds keppni og verður spilað fimm daga vikunn- ar, mán.–fös., en frí laugardaga og sunnudaga. Alltaf byrjað á sama tíma, klukk- an 19.00. Umsjón hefur Matthías Þorvalds- son og er spilað í hinu nýja húsnæði Bridgesambands Íslands, Síðumúla 37. Nánari upplýsingar fást í símum 587-9360 (BSÍ) og 860-1003 (Matthías). Þá verða upplýsingar og fréttir á síðu 326 í textavarpinu. Allir spilarar eru hvattir til að koma og hjálpað er til við myndun para ef spilarar mæta stakir. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Félag eldri borgara í Hafnarfirði Eldri borgarar í Hafnarfirði spila brids, tvímenning, í Hraunseli Flata- hrauni 3 tvisvar í viku á þriðjudögum og föstudögum. Mæting kl. 13:30 Spilað var 7. maí. Þá urðu úrslit þessi: Jón Sævaldsson - Ólafur Gíslason 148 Árni Bjarnason - Þorvarður Guðmudss. 138 Jón Ó. Bjarnason - Jón R. Guðmundsson 119 Ásgeir Sölvason - Einar Sveinsson 115 3. maí. Sigurður Jóhannss - Jón Gunnarsson 92 Ásgeir Sölvason - Einar Sveinsson 89 Árni Bjarnason - Þorvarður Guðmudss 83 Hera Guðjónsdóttir - Árni Guðmundss. 80 Bridsfélag Dalvíkur og Ólafsfjarðar Aðalsveitakeppni Bridsfélags Dal- víkur og Ólafsfjarðar (BDÓ) lauk 6. maí. Spiluð var 3ja kvölda hrað- sveitakeppni. 5 sveitir tóku þátt í mótinu og var dregið saman í þær. Dalvíkurbyggð gaf myndarleg verðlaun fyrir 3 efstu sætin og urðu úrslit eftirfarandi: Eiríkur Helgason, Jón A. Jónsson, Símon Helgason – Vilhjálmur Þórsson 1390 Grzegorz Maniakowski, Tryggvi Guðmunds- son, Kristján Þorsteinsson – Hákon Sigmundsson 1380 Sigríður Rögnvaldsdóttir, Eva Magnúsdótt- ir, Ingvar Jóhannsson – Jóhannes Jónsson 1279 8. maí var svo lokahóf félagsins haldið í Kiwanishúsinu með borð- haldi, verðlaunaafhendingu og spila- mennsku. Stjórn félagsins vill þakka spilur- um fyrir ánægjuleg spilakvöld í vet- ur og vona að menn mæti ferskir að hausti. Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 22 pör til keppni þriðjudaginn 7. maí og urðu úrslit þessi í N/S: Auðunn Guðmundss. – Bragi Björnss. 262 Magnús Þorsteinss. – Guðm. Vestmann 242 Lárus Hermannss. – Sigurður Karlss. 239 Hæsta skor í A/V: Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 259 Jóhann Benediktss. – Pétur Antonss. 249 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss.244 Sl. föstudag mættu svo 20 pör og þá urðu úrslitin þessi: Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 252 Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 246 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss.244 Hæsta skor í A/V: Guðjón Kristjánss. – Magnús Oddss. 280 Auðunn Guðmundss. – Bragi Björnss. 256 Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 246 Meðalskor báða dagana var 216. Með morgunkaffinu Fyrirgefðu að ég trufla. Ég er nýi nágranninn þinn. Ekki getur þú séð af nokkrum gólfborðum? STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert maður til þess að grípa til eigin ráða, þegar nauðsyn krefst. Haltu for- ystunni umfram allt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú getur skerpt á markmið- um þínum með því að ræða þau við einhvern nákominn. Settu þér skynsamleg mörk, því annars er hætt við að allt misheppnist. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það freistar þín mjög að reyna eitthvað nýtt svo þú skalt fyrir alla muni láta það eftir þér. Varastu að leita langt yfir skammt. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Láttu sjálfselskuna ekki ná svo sterkum tökum á þér að þú verðir óalandi og óferj- andi. Leggðu þig þvert á móti fram um að vingast við aðra. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Farðu í gegnum hirslur þínar og losaðu þig við allt sem þú hefur ekki þörf fyrir. Þú gæt- ir rekið augun í eitthvað sem þú hélst að væri löngu glatað. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú kemst ekki hjá því að hugleiða vandlega hvaða af- stöðu þú átt að taka til þeirra hluta, sem máli skipta. Vertu svo trúr þinni sannfæringu. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Til þín er horft um lausn á ákveðnum vanda. Þetta setur þig í klemmu en ekki verri en svo að þú átt að ráða auðveld- lega við málið. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú þarft að huga vel að stöðu þinni bæði í starfi og einka- lífi. Einhvers konar endur- nýjun er nauðsynleg þótt engar stórbreytingar eigi sér stað. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er ekkert víst að allir falli fyrir hugmyndum þínum en það er sjálfsagt að kynna þær og opna augu þeirra fáu sem til þess eru reiðubúnir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú finnur eflaust eitthvað til þess að gefa góðum málstað í dag. Kannski leynist eitthvað í geymslunni sem þú hefur engin not fyrir lengur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ekki er allt sem sýnist. Gefðu þér tíma til að skyggn- ast undir yfirborð hlutanna, aðeins þannig færðu upplýs- ingar sem þú þarft til að ákveða þig. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þótt þér séu allir vegir færir þarft þú eins og aðrir að fá hrós og uppörvun af og til. Sæktu styrk til þeirra sem eru þér nánastir. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert ekki alveg með báða fætur á jörðinni þessa dag- ana. Forðastu ákvarðanir í stórum málum og umfram allt reyndu að ná jarðsam- bandi aftur. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. VELÚRGALLAR Ný sending, nýir litir Stærðir XS - 2XL Nóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá, Sendum í póstkröfu Bankastræti 14, sími 552 1555 Nýtt Bankastræti Glæsilegar vörur Vikutilboð 20% afstáttur FLÍSPEYSUR & HÚFUR fyrir íþróttahópa & fyrirtæki með ísaumuðum merkingum Reykjavíkurvegur 62 220 Hafnarfjörður Sími 565 04 88www.myndsaumur.is                    

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.