Morgunblaðið - 24.05.2002, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.05.2002, Qupperneq 2
Kylfingar byrja keppnistímabilið með stigamóti í Eyjum / C2 Byrjað að ræða við arftaka Guð- jóns Þórðarsonar hjá Stoke / C1 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR  Indjánar norðursins/B1  Duldar áfengisauglýsingar – dulin áhrif/B2  Svona var ég og svona er ég/B3  Konur og geðlyf – þörf eða þyrnirósarsvefn?/B4  Trúarlegur listiðnaður/B6  Auðlesið efni/B8 I j r r r i l r i l i r li ri r r r l r r ir r r rl r li i r l i i Sérblöð í dag Fyrsta ferð Norrænu í sumar Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson UM 280 farþegar og 100 far- artæki voru með ferjunni Nor- rænu sem kom til hafnar í Seyð- isfirði klukkan níu í gærmorgun í fyrstu ferð sumarsins. Það er um 80 farþegum meira en var með í fyrstu ferð síðastliðið sum- ar. Þetta er síðasta sumarið sem þetta skip siglir á þessari leið því nýtt skip, sem er þrisvar sinnum stærra, verður tekið í notkun næsta sumar. 17 ferðir eru áætl- aðar með Norrænu hingað til lands í sumar en skipið heldur uppi ferðum milli Seyðisfjarðar, Þórshafnar, Esbjerg og Bergen. FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Blaðinu í dag fylgir 32 síðna blaðauki með kosninga- greinum. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Guðmund Inga Þór- oddsson í fimm ára fangelsi, annars vegar fyrir tilraun til að flytja 4000– 5000 e-töflur til landsins frá Amst- erdam og hins vegar fyrir að flytja 994 e-töflur hingað til lands með pósti. Guðmundur skipulagði og fjár- magnaði innflutninginn frá Litla- Hrauni þar sem hann beið dóms Hæstaréttar vegna innflutnings á 3.850 e-töflum. Dómurinn taldi að í ljósi aðstæðna Guðmundar hefðu brotin sem hann er nú dæmdur fyrir verið „einstaklega harðsvíruð“. Faðir Guðmundar var sýknaður af ákæru um aðild að málinu fyrir að hafa skipt peningum í gjaldeyri fyrir son sinn og annar maður var sýkn- aður af ákæru um aðild fyrir að hafa farið til Amsterdam til að sækja e-töflurnar. Tveir menn til voru dæmdir í fimm og tíu mánaða fangelsi fyrir aðild að póstmálinu. Guðmundur Ingi játaði að hafa lagt á ráðin um að flytja inn til landsins allt að 5000 e-töflur á næstu vikum. Hafði hann samband við kunningja sinn, fékk hann í heimsókn til sín í fangelsið og lét hann fá bréf með ítar- legum fyrirmælum. Áður en maður- inn fékk bréfið í hendur höfðu fanga- verðir komist í það og ljósritað. Líkur en ekki sönnun Faðir Guðmundar Inga tók við peningum sem komu frá syni hans og skipti hluta af þeim í hollensk gyllini og afhenti kunningjanum féð. Kunn- inginn fór til Amsterdam í desember og hitti Hollendinginn. Hann bar hins vegar að þegar hann hefði fengið bréfið frá Guðmundi Inga hefði hon- um orðið ljóst að löggæslumenn höfðu lesið það og því hefði ekki hvarflað að honum að leggja út í þennan innflutning. Þess í stað notaði hann peningana í eigin þágu, um 500 þúsund krónur. Héraðsdómur sagði í niðurstöðu sinni, að enda þótt nokkr- ar líkur gætu talist vera fyrir því að maðurinn hefði tekið við fénu í því skyni að fara með það út og kaupa fyrir það fíkniefni væri til þess að líta að hann hefði frá upphafi neitað sök að þessu leyti og ekkert hefði komið fram í meðferð málsins fyrir dómi sem hnekkti frásögn hans. Því bæri að sýkna hann af ákærunni. Grunaði ekkert þótt sonurinn væri í fangelsi Faðir Guðmundar Inga sagðist ekki hafa velt því fyrir sér til hvers peningarnir voru ætlaðir sem hann fékk hjá syni sínum og þeir hefðu ekkert rætt um það. Hefði sú stað- reynd að sonur hans var í fangelsi fyrir fíkniefnabrot ekki vakið neinn grun hjá honum. Hann hefði oft tekið að sér að sjá um ýmsan erindrekstur fyrir son sinn, svo sem að greiða fyrir hann skuldir og senda honum pen- inga til útlanda. Dómurinn segir, að enda þótt nokkrar líkur verði að telja fyrir því að hann hafi grunað að sonur hans ætlaði sér að nota féð til að kaupa fíkniefni sé ekki hægt að úti- loka að hann hafi staðið í þeirri trú að hann væri að greiða skuldir fyrir son sinn. Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Ragnheiður Harð- ardóttir saksóknari sótti málið fyrir ákæruvaldið. Hallvarður Einvarðs- son hrl. var skipaður verjandi Guð- mundar. Aðrir verjendur voru Sveinn Andri Sveinsson hrl., Pétur Örn Sverrisson hdl., Hilmar Ingimundar- son hrl. og Sveinn Guðmundsson hdl. Fíkniefnabrotin voru einstaklega harðsvíruð Skipulagði og fjármagnaði fíkniefnasmygl úr fangelsinu á Litla-Hrauni HARALDUR Örn Ólafsson er kominn á lista yfir helstu afreks- menn heimsins á vefnum www.advent- urestats.com og er hans getið sem nýjasta af- reksmannsins sem farið hefur á „Pólana þrjá“, þ.e. suður- og norðurpólinn og Everest-fjall. Getið er um tólf manns sem farið hafa á pólana þrjá og þar af eru fimm sem farið hafa á „Hátindana sjö“ að auki og er Haraldur þeirra á meðal. Ekki liðu nema nokkrir dagar frá því Haraldur lauk sjötindaleiðangri sínum uns hann var kominn á um- ræddan lista. Móttaka í Smáralind á sunnudag Haraldur er væntanlegur til landsins sunnudaginn 26. maí ásamt unnustu sinni, Unu Björk Ómarsdóttur, og bakvarðasveit- inni en hópurinn hefur verið á ferðalagi um Nepal að und- anförnu. Haldin verður móttöku- athöfn sem hefst kl. 17 á sunnu- daginn í Vetrargarðinum í Smáralind. Haraldur Örn Ólafsson Haraldur Örn kominn á lista yfir afreksmenn Fimm farið á pól- ana og tindana 7 SAMKVÆMT heimildum Morg- unblaðsins hefur Hreinn Loftsson hrl. ákveðið að láta af stjórnar- formennsku í Baugi á aðalfundi félagsins nk. fimmtudag, 30. maí. Hreinn Lofts- son staðfesti aðspurður í gærkvöldi að hann hefði tekið þessa ákvörðun og kvaðst mundu einbeita sér að rekstri lögmannsstofu sinnar á Höfðabakka 9 í framtíðinni. Hreinn Loftsson lætur af stjórnarfor- mennsku Hreinn Loftsson Baugur HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hef- ur dæmt karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þremur stúlkum, barnabörnum mannsins. Sex mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa þuklað á stúlkunum innanklæða. Við þingfestingu játaði maðurinn brot sín. Maðurinn var dæmdur til að greiða stúlkunum, hverri fyrir sig, 400.000 krónur. Logi Guðbrandsson dómstjóri kvað upp dóminn. Játaði kynferðisbrot HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr- skurðaði í gær mann á þrítugsaldri í síbrotagæslu að ósk lögreglunnar í Reykjavík. Maðurinn er grunaður um innbrot í nokkur fyrirtæki í Reykjavík. Að sögn Ómars Smára Ármanns- sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns var maðurinn handtekinn í fyrrakvöld en hann hefur nokkuð komið við sögu lögreglu áður. Óskaði lögreglan eftir því að yfirheyra manninn og úr- skurðaði Héraðsdómur hann í viku gæsluvarðhald. Síbrotamaður í gæsluvarðhald ,,ÞRÓUN tekna ríkissjóðs er um margt athyglisverð og gefur vísbend- ingu um að samdrátturinn í efnahags- lífinu sé í rénun,“ segir í nýútkomnu vefriti fjármálaráðuneytisins. Tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti fyrstu fjóra mánuði ársins hafa aukist um 1½ milljarð kr. frá sama tíma í fyrra, eða sem nemur tæplega 7,5%. Þetta svarar til um ½% samdráttar að raun- gildi, samanborið við 8–9% samdrátt næstu mánuði á undan. Skv. nýjum tölum um greiðsluaf- komu ríkissjóðs fyrstu fjóra mánuði ársins hafa heildartekjur ríkissjóðs hækkað um 5 milljarða frá fyrra ári eða um tæp 7% og skatttekjur hækk- uðu um rúm 5%. Á sama tímabili námu almennar verðbreytingar rúm- um 8%. ,,Þótt of snemmt sé að draga ein- hlítar ályktanir af þessum tölum gefa þær ákveðnar vísbendingar um minnkandi samdrátt í efnahagslífinu. Innheimta vörugjalds af bílum bendir til sömu niðurstöðu [...]. Á hinn bóginn gætir áfram nokk- urrar aukningar í innheimtu tekju- skatts einstaklinga og trygginga- gjalds sem endurspeglar minni launahækkanir,“ segir í vefriti fjár- málaráðuneytisins. Dregur úr samdrætti RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært rúmlega sjötugan karlmann fyrir að hafa dregið sér og notað heimildar- laust í eigin þágu a.m.k. 7,9 milljónir króna af fjármunum háaldraðrar konu meðan hann var skipaður lög- ráðamaður hennar. Hin meintu brot hófust á árinu 1992 og lauk árið 2000 þegar konan lést. Maðurinn hélt samtals eftir tæplega 10 milljónum króna. Til frá- dráttar koma þær upphæðir sem hann notaði í hennar þágu, um 1,8 milljónir króna. Sveik fé af aldraðri konu ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.