Morgunblaðið - 24.05.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SMÁRALIND S. 569 1550
KRINGLUNNI S. 569 1590
AKRANESI S. 430 2500
Þú kau
pir nún
a en bo
rgar ek
ki fyrst
u
afborg
un fyrr
en eft
ir
4 mánu
ði, vax
talaust
.
Og þá
er mög
uleiki
á allt a
ð 32 m
ánaða
raðgre
iðslu.
FYRSTA
AFBO
RGUN
Í OKTÓ
BER!
0VEXTIR%
SJÁÐU!
LAGERLOSUN
28" Steríó
39.995,-
United 28" sjónvarp Utv-1028
28" Flatur Black Matrix myndlampi.
Textavarp. 2x20 W Nicam Steríó
hljóðkerfi. Allar aðgerðir á skjá.
Svefnrofi. 2 Scart-tengi. Fjarstýring.
MUNUR á fylgi Reykjavíkurlistans
og Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
hefur aukist á nýjan leik samkvæmt
nýrri könnun Félagsvísindastofn-
unar ef borið er saman við nið-
urstöður könnunar sem gerð var í
fyrri hluta maí.
Skv. niðurstöðum könnunarinnar
nú, sem gerð var dagana 18.–22.
maí, nýtur R-listi 51,6% stuðnings
þeirra sem afstöðu taka en D-listinn
43,5%, og skilja rúm 8 prósentustig
framboðin að. Þetta er nánast sami
munur á fylgi framboðslistanna og
kom í ljós í könnun Félagsvís-
indastofnunar sem gerð var 19. til
28. apríl en þá mældist R-listinn
með 51,7% og D-listinn 43,4%. Í
könnun sem gerð var 6. til 9. maí
var fylgi R-listans hins vegar 48,8%
og D-listans 45,6%.
6,6% óráðin
og 2,8% neita að svara
Fylgi F-lista Frjálslyndra og
óháðra hefur aukist lítið eitt frá síð-
ustu könnun og mælist nú 4,2% en
var 4% í síðustu könnun og 3,5% í
aprílkönnun Félagsvísindastofn-
unar.
Í könnuninni nú voru þátttak-
endur fyrst spurðir: „Ef borg-
arstjórnarkosningar væru haldnar
á morgun, hvaða flokk eða lista
myndir þú kjósa?“ Þeir sem svöruðu
„veit ekki“ voru þá spurðir: „Hvaða
lista eða flokk telurðu líklegast að
þú myndir kjósa?“ Eftir fyrri spurn-
inguna voru 14,8% óákveðin en eftir
þá síðari var hlutfall óráðinna kom-
ið niður í 6,6% og 2,8% neituðu að
svara spurningunni.
Tölfræðilega
marktækur munur
Ef báðar spurningarnar eru tekn-
ar saman mælist D-listi með 37,9%
fylgi af heildinni, R-listi 45%, Frjáls-
lyndi flokkurinn 3,7%, H-listi Húm-
anista 0,5%, A-listi Höfuðborg-
arsamtakanna 0,0% og Æ-listi
Vinstri-hægri snú 0,1%.
Sé eingöngu litið á hlutfallslega
skiptingu milli svarenda sem taka
afstöðu til framboðslista segjast
43,5% ætla að kjósa D-lista, 51,6%
R-lista, 4,2% F-lista, 0,5% H-lista,
0,0% A-lista og 0,1% Æ-lista.
Ef aðeins eru svo teknir þeir sem
nefna stóru framboðin tvö fær D-
listi 45,7% fylgi og R-listinn 54,3%.
Vikmörkin á fylgi framboðanna í
könnuninni eru 3,36% til eða frá og
er því tölfræðilega marktækur
munur á fylgi stóru framboðanna.
Tæplega 86% þeirra sem kusu D-
listann í síðustu borgarstjórn-
arkosningum segjast ætla að kjósa
hann aftur nú, en rúm 80% þeirra
sem kusu R-listann síðast ætla að
kjósa hann aftur nú. Hins vegar
segjast 5,3% þeirra sem kusu D-
listann síðast ætla að kjósa R-
listann núna, en 9,3% þeirra sem
kusu R-listann síðast ætla að kjósa
D-listann nú. Álíka margir þeirra
sem kusu D- eða R-lista síðast eru
óákveðnir eða 5,6-6%.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar ætla rúmlega 48% þeirra
sem ekki höfðu kosningarétt í síð-
ustu kosningum að kjósa R-listann
nú, tæpt 41% þeirra ætlar að kjósa
D-listann, rúm 7% þeirra ætla að
kjósa F-listann og tæp 4% þeirra
eru óákveðin.
Umtalsverður munur kemur í ljós
á fylgi stóru framboðslistanna eftir
borgarhverfum. Viðsnúningur hef-
ur orðið á fylgi framboðanna í nýju
hverfunum, þ.e. Árbæ, Grafarvogi
og Grafarholti (póstnúmerum
110,112,113 og 116), en þar mælist
R-listinn nú með 52,3% fylgi en D-
listinn 47,7%. D-listinn hafði meira
fylgi í þessum hverfum í fyrri könn-
unum og mældist þar með 60,6% í
seinustu könnun en R-listinn 39,4%.
Þá mælist D-listinn nú með meira
fylgi en R-listinn í Breiðholti, póst-
númerum 109 og 111, eða 55,3%
samanborið við 44,7% fylgi R-
listans. Í síðustu könnun voru fylk-
ingarnar nánast hnífjafnar í þessum
hverfum. R-listinn hefur sem fyrr
mun meira fylgi í eldri hverfum
borgarinnar, með póstnúmerin 101,
104, 105 og 107, og mælist þar með
61,3% fylgi en D-listinn 38,7%.
Samkvæmt mati Félagsvís-
indastofnunar reyndist ekki töl-
fræðilega marktækur munur á fylgi
stóru framboðanna eftir kyni og
aldri í þessari könnun. Af þeim sem
nefndu annaðhvort lista Sjálfstæð-
isflokksins eða Reykjavíkurlistann
sögðust 49,2% karla ætla að kjósa
D-lista og 50,8% R-lista. 42,7%
kvenna sögðust styðja D-listann og
57,3% R-listann.
Könnunin var gerð í gegnum
síma dagana 18.–22. maí meðal
1.200 íbúa Reykjavíkur á aldrinum
18 til 80 ára, sem valdir voru af
handahófi úr þjóðskrá. Alls fengust
svör frá 846 og er það 70,5% svar-
hlutfall. Þegar búið er að draga frá
upphaflegu úrtaki þá sem eru ný-
lega látnir, erlenda ríkisborgara
eða þá sem eru búsettir erlendis er
nettósvörun 71,4%.
Könnun Félagsvísindastofnunar á fylgi framboðslistanna í Reykjavík
Átta pró-
sentustig
skilja á milli
R- og D-lista
R-listinn hefur nú átta prósentustiga for-
skot á D-listann samkvæmt niðurstöðum
nýrrar könnunar Félagsvísindastofn-
unar. Miklar breytingar hafa orðið á
fylgi framboðanna eftir borgarhverfum.
!
" #$ $! %& '
( (!
!
" #$ $! %& '
" #" " "
%) ! *
!"
#
()! + +
()!
+ +
()! + + ,
!
" # %" ! $ )!!
* & ! , -
.! #" " "
25.maí2002
Skoðanakönnun
SAMTALS var hálft sjöunda þúsund
manns búið að kjósa utankjörfundar í
Reykjavík á níunda tímanum í gær-
kveldi. Það er heldur meiri kjörsókn
en í undanförnum sveitarstjórnar-
kosningum, samkvæmt upplýsingum
sem Morgunblaðið fékk í Ármúlaskól-
anum þar sem utankjörfundarkosn-
ingin í Reykjavík fer fram.
Frá 10 í gærmorgun og fram til
klukkan 20 í gærkvöldi höfðu um
1.240 manns greitt atkvæði utankjör-
fundar í Ármúlaskólanum, en þá voru
enn tvær klukkustundir þar til kjör-
stað yrði lokað. Í dag er hægt að kjósa
utankjörfundar í Ármúlaskólanum
frá klukkan 10–22 og á kjördag frá
klukkan 10–18.
Undanfarna daga hefur einnig ver-
ið farið á stofnanir og sjúkrahús og
þeim sem þar eru og ekki eiga kost á
því að fara á kjörstað á kjördag gefinn
kostur á því að kjósa utankjörfundar.
Heldur fleiri
utankjörfund-
aratkvæði
Morgunblaðið/Þorkell
Undanfarna daga hefur fólki á sjúkrahúsum verið gefinn kostur á að
kjósa utan kjörfundar og er þessi mynd tekin á Borgarspítalanum í gær.