Morgunblaðið - 24.05.2002, Page 8

Morgunblaðið - 24.05.2002, Page 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Meinatæknafélagið 35 ára Á hraðri sigl- ingu inn í breytta tíma STARF meina-tækna hefurlöngum verið umvafið nokkurri dul- úð. Þar fer fólk í hvít- um sloppum sem vinn- ur bak við luktar dyr og starfar undir þagn- areiði. Þetta er nokkuð fjölmenn stétt, en allra síðustu árin hefur heldur fækkað í röðum þeirra sem vildu leggja fagið fyrir sig, en á sama tíma hefur starfið þó orðið stórum fjölbreyttara og kröfu- harðara. Það eru því umbrotatímar hjá meinatæknum og ekki að ástæðulausu að þeir líta fram veginn. Fyrir skemmstu var haldinn aðalfundur Meinatækna- félags Íslands og var um leið haldið upp á 35 ára afmæli stétt- arfélagsins. Félagið skipti um formann við þetta tækifæri og við formennskunni tók Kristín Hafsteinsdóttir. Kristín svaraði nokkrum spurningum Morgun- blaðsins í vikunni og varpaði ljósi á starfið, fagið og hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir meinatækna. Hver er staða meinatækna á 35 ára afmæli stéttarfélagsins? „Meinatæknar eru á hraðri siglingu inn í breytta tíma. Upp- haflega unnum við eingöngu við meinafræðirannsóknir á lækn- ingarannsóknarstofum en und- anfarin ár hafa æ fleiri meina- tæknar snúið sér að mjög ólíkum verkefnum sem eiga það eitt sameiginlegt að vera tengd líf- sýnum af einhverju tagi.“ Hvert er hlutverk formanns slíks félags? „Formaður stýrir skútunni. Og ég hef góða áhöfn, sem er áhugasöm stjórn. Við erum á hraðri ferð í óvissu og erum í leit að öruggri leið til framtíðar.“ Er meinatæknifélagið eftirsótt og vel launað? „Meinatæknar voru vel laun- aðir hér áður fyrr. Í mínum ár- gangi sættum við fjöldatakmörk- um, við vorum 24, en nemum hefur farið fækkandi á síðustu árum. Starfið er spennandi, fjöl- breytnin mikil, aðferðir og tæki þróast mjög hratt. Það er því al- veg ljóst að launin fæla nýnema frá stéttinni. Eins ber á því að nýútskrifaðir meinatæknar með B.S. gráðu fari beint í fram- haldsnám og skili sér þar með hægt inn á vinnumarkaðinn.“ Hvað gera meinatæknar, í stuttu máli sagt? „Við vinnum við rannsóknir á flestu því sem tengist líkama manna og dýra. Þekktust erum við fyrir blóðrannsóknir sem mjög mörg vinna við, en allir vef- ir og vökvar líkamans verða okkur að verk- efnum, ásamt sýklum og veirum. Hröðust er þróunin núna í erfða- fræðirannsóknum. Störf okkar eru unnin undir þagnarskyldu, við vinnum á lok- uðum rannsóknarstofum og þar sem fólk sér okkur ekki nema rétt á meðan við skjótumst til að safna sýnum erum við oft kölluð blóðsugur. Í rauninni erum við tæknilið, rannsóknartæki, að- ferðarfræði og viðmiðunarmörk eru okkar heimur.“ Hvers vegna er mikill meiri- hluti meinatækna hér á landi konur? „Og hvílíkar konur! Við erum flest mjög sjálfstæð í vinnu- brögðum, jafnframt því sem við finnum ríkt til samkenndar. Við höfum mörg sveigjanlegan vinnutíma miðað við flestar aðr- ar stéttir og lengi voru laun okk- ar vel boðleg til að framfæra fjölskyldu. Karlar og konur í stéttinni eru alveg jafnáhugasöm fyrir verkefnum sínum.“ Er eitthvað áformað í tilefni af 35 ára afmæli félagsins. Eitthvað til hátíðarbrigða? „Við komum saman á afmæl- isþingi. Meinatæknar kynna allt of sjaldan sínar rannsóknir. Við viljum gera meira af því í fram- tíðinni.“ Mun hlutverk meinatækna eitthvað breytast í fyr- irsjáanlegri framtíð? „Okkur sýnist að það sé kominn tími til að taka alvarlega á ýmsum verkefnum. Okkur líst illa á rannsóknarfúsk sem boðið er upp á allt of víða. Fólk kemur óttaslegið vegna ábyrgðarlausra „mælinga“ í verslunarmiðstöðvum til dæmis. Eins finnum við fyrir því nú að á meðan við sátum í einangrun með okkar rannsóknir urðum við ósýnileg og föllum ekki vel inn í önnur kerfi. Þessu þurfum við að breyta.“ Kristín Hafsteinsdóttir  Kristín Hafsteinsdóttir er fædd 23. febrúar 1951 í Reykja- vík, en alin upp í Keflavík og Grindavík. Stúdent frá nátt- úrufræðideild Menntaskólans í Reykjavík 1971 og fór síðan í nám í meinatækni í Tækniskóla Íslands. Sérgreinar voru mein- efnafræði og lífeðlisfræði. Síðan tók hún BA í ensku frá Háskóla Íslands og M.Phil. í bókmennta- fræði við Sydney-háskóla í Ástr- alíu. Kristín hefur unnið sem meinatæknir á Íslandi og í Eng- landi, starfað við greinarskrif, kennslu og við söfn, verið dag- skrárgerðarmaður á Rík- isútvarpinu Rás 1, sett upp Fræðasetrið í Sandgerði. Hún starfar nú við lyfjarannsóknir í meinefnafræðideild á Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi við Hringbraut og er formaður Meinatæknafélags Íslands. Kristín á þrjú börn, Gísla Jökul lögreglumann, Hafstein, nema í Tækniskóla Íslands, og Þor- björgu, nema í Menntaskólanum í Reykjavík. Okkur líst illa á rann- sóknarfúsk Tíu tutla fjóra. Sérblað alla sunnudag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.