Morgunblaðið - 24.05.2002, Síða 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er mikill erill og greinilega
nóg að gera í öllum hornum í
kosningamiðstöð R-listans á Tún-
götu tveimur dögum fyrir kosn-
ingar. Í þröngu herbergi er hóp-
ur fólks að skrá sig til þess að
bera út bæklinga og í móttökunni
heldur síminn fólki vel við efnið.
Einhvers staðar í allri iðunni er
kosningastjórann, Ingvar Sverr-
isson, að finna og hann segir
stemninguna gríðarlega góða.
„Við finnum geysilegan meðbyr
með því sem við erum að gera og
frambjóðendur okkar eru núna út
um alla borg að ræða við kjós-
endur og dreifa bæklingum. Hér
eru svo liðsmenn komnir til að
dreifa síðustu skilaboðunum okk-
ar til kjósenda í hvern einasta
póstkassa í Reykjavík.“
Hann segir mjög marga hafa
komið við í kosningamiðstöðinni
og milli tvö og þrjú hundruð
manns séu við dreifinguna. „Við
höfum keyrt þetta mun meira á
fólkinu en peningunum, ef maður
getur orðað það þannig. Það hef-
ur tekist mjög vel og andinn er
alveg einstaklega góður.“
„Andinn ein-
staklega góður“
Morgunblaðið/Jim Smart
Hópur fólks í kosningamiðstöð R-listans í Túngötu beið í gær eftir því að
fá afhenta bæklinga til að bera út seinna um kvöldið.
Í VALHÖLL er hópur ungra sjálf-
stæðismanna upptekinn í síman-
um tveimur kvöldum fyrir kosn-
ingar. Á hinum enda línunnar eru
ungir reykvískir kjósendur sem í
fyrsta sinn eru að ganga að kjör-
borðinu á laugardag og meðal
þeirra sem reyna að telja þá á að
nýta kosningaréttinn er Helga
Árnadóttir, kosningastjóri ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík.
„Það eru margir að vinna og
nóg af verkefnum fyrir alla þann-
ig að það hefur verið prýðileg
stemmning síðustu daga,“ segir
hún þegar hún gefur sér tíma frá
símhringingunum. „Það hafa ver-
ið 15 manns að vinna á hverju
kvöldi en auk þess erum við ung-
ir sjálfstæðismenn með alls konar
verkefni, t.d. tifar skuldaklukkan
enn í Kringlunni og skuldahalinn
er á stöðugu vappi um borgina.“
Að sögn Helgu er fólk innan
raða ungra sjálfstæðismanna bar-
áttuglatt. „Við erum með hátt í
100 manns sem munu starfa fyrir
okkur á kjördag. Það er kraftur í
fólkinu og það ætlar ekkert að
láta deigan síga.“
„Nóg af verkefn-
um fyrir alla“
Morgunblaðið/Jim Smart
Ungir sjálfstæðismenn voru önnum kafnir við að hringja í nýja kjós-
endur í Reykjavík í gær.
HEIMASÍÐAN www.xxxd.is, sem
býður kjósendum að fá send SMS-
skilaboð frá fyrirsætum að eigin vali
um að kjósa rétt á kjördag, er ekki á
vegum Sjálfstæðisflokksins. Bríet, fé-
lag ungra femínista, hafði áður mót-
mælt þessu meinta innleggi D-lista-
kvenna í kosningabaráttuna.
Að sögn Péturs Rúnars Guðnason-
ar er um að ræða einstaklingsframtak
fjögurra stuðningsmanna D-lista sem
vilja með þessu höfða til ungs fólks.
Vefurinn var opnaður fyrir fáeinum
dögum en var breytt fyrr í vikunni
eftir athugasemdir vegna mynda af
stúlkum, sem þóttu of klæðalitlar.
„Það er búið að breyta þessu öllu
núna og slípa til,“ segir Pétur.
Að gefnu tilefni vill Elva Dögg Mel-
sted, frambjóðandi D-lista til borgar-
stjórnarkosninga, koma á framfæri á
að hún tengist á engan hátt vefsíð-
unni.
SMS-þjónusta stuðn-
ingsmanna D-lista
Myndir af
fáklæddum
stúlkum
fjarlægðar
FRAMBJÓÐENDUR R-lista
kynntu stefnuskrá sína í Kringlunni í
gær, dreifðu bæklingum og merkjum
til kjósenda. „Við erum með hvatn-
ingarhátíð á morgun á Ingólfstorgi og
kosningavöku á laugardagskvöldið,
erum að kynna það, dreifa bækling-
um og spjalla við fólk,“ segir Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir, sem skipar
4. sæti listans. „Það taka okkur flestir
mjög vel, það er greinilegt að fólk hef-
ur fylgst með og veit greinilega um
hvað er kosið og hvaða málefni skipta
máli,“ heldur hún áfram.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, sem
skipar 11. sæti listans, segir að um
100 mismunandi gerðir af barm-
merkjum hafi verið útbúnar fyrir R-
listann vegna kosninganna. „Við tók-
um þá stefnu að hafa mikla fjöl-
breytni í merkjavalinu og krökkunum
finnst alveg rosalega spennandi að
garfa í merkjunum og velja sér,“ seg-
ir Kolbeinn en bætir við að hann viti
ekki hversu pólitískir þessir kjósend-
ur framtíðarinnar eru.
Aðspurð segir Steinunn að sér
finnist flestir búnir að gera upp hug
sinn þar sem fáir hafi sagst vera óá-
kveðnir. Hún segir að frambjóðendur
listans hafi síðustu daga kynnt
stefnuskrána í öllum helstu verslun-
armiðstöðvum í borginni og að í nógu
sé að snúast.
„Sólarhring-
urinn er náttúru-
lega allt of stutt-
ur, en maður
verður ekkert þreyttur því það er svo
ofsalega gaman að fara út og hitta
kjósendur, heyra hvað þeir hafa að
segja og kynna þau málefni sem við
erum að berjast fyrir,“ segir Kol-
beinn og tekur Marsibil Sæmunds-
dóttir í 10. sæti í sama streng.
Þau segjast spennt að sjá úrslitin á
laugardag. „Það er ekki hægt annað
en vera spenntur að sjá útkomuna
þegar maður er búinn að vinna vikum
saman að ákveðnu markmiði, en mað-
ur treystir því að vel fari,“ segir Kol-
beinn.
„Sólarhringurinn
er alltof stuttur“
Morgunblaðið/Þorkell
Anna Kristinsdóttir í 5. sæti R-lista og Kolbeinn Óttarsson Proppé, 11.
sæti, ræða við kjósendur í Kringlunni.
„VIÐ göngum upp og niður Lauga-
veginn, erum sýnileg, hittum fólk og
spjöllum við það og dreifum málefna-
skránni okkar. Við erum handviss
um að því fleiri sem lesa málefna-
skrána okkar því fleiri kjósa okkur.
Við erum í rauninni að halda áfram
þeirri stefnu
sem sett var í
upphafi, að hitta
sem flesta Reyk-
víkinga,“ segir
Gísli Marteinn Baldursson, sem
skipar 7. sæti framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í borginni.
Hann kynnti stefnu Sjálfstæðis-
manna í miðbænum í gær ásamt
Rúnari Frey Gíslasyni, sem situr í
16. sæti listans, og Þorbjörgu Vig-
fúsdóttur í 19. sæti. Þau dreifðu
bæklingum, barmmerkjum og blöðr-
um og ræddu við vegfarendur.
Þorbjörg segist telja að margir
hafi enn ekki gert upp hug sinn og nú
sé stefnt að því að hitta sem flesta
kjósendur og kynna stefnuna. Rúnar
Freyr sagðist telja að margir ættu
enn eftir að kynna sér málefnin til
hlítar þó stutt væri til kosninga.
„Það hefur verið mikil hreyfing á
fylginu, miklar sveiflur fram og til
baka. Ég er viss um að sú hreyfing er
ekki búin og að fylgið á eftir að
sveiflast fram á kjördag,“ segir Gísli
Marteinn.
Þau segja kosningabaráttuna hafa
verið mjög skemmtilega, gaman sé
að hitta nýtt fólk og kynnast nýjum
flötum á borginni. Dagskráin sé
þéttskipuð, frambjóðendur hafi verið
á ferðinni um allan bæ frá morgni til
kvölds, hafi heimsótt vinnustaði,
verslunarkjarna og aðra mann-
marga staði.
Þau sögðust spennt og full bjart-
sýni fyrir kjördag. „Við vonum bara
að við náum á þessum stutta tíma
sem er eftir fram að kjördegi að hitta
sem flesta, koma okkar boðskap sem
víðast út. Ef við gerum það erum við
alveg sátt á kjördag,“ segir Gísli
Marteinn.
„Erum sýnileg
og hittum fólk“
Morgunblaðið/Þorkell
Rúnar Freyr Gíslason, 16. sæti D-lista, og Gísli Marteinn Baldursson, 7.
sæti, dreifðu stefnuskrá flokksins á Laugaveginum í gær.
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
og formaður stjórnar hjúkrunar-
heimilisins Eirar segir að Reykjavík-
urborg hafi enn ekki svarað með
formlegum hætti erindi Eirar frá því
í febrúar um það hvort borgin muni
taka þátt í kostnaði vegna viðbygg-
ingar við heimilið, þar sem áformuð
eru 40 ný hjúkrunarrými.
„Mér finnst ótrúlegt að fylgjast
með auglýsingum og yfirlýsingum
Reykjavíkurlistans um að Sjálfstæð-
isflokkurinn ætli að bregðast öldruð-
um,“ segir Vilhjálmur. „Öll forysta
varðandi uppbyggingu hjúkrunar-
heimila í Reykjavík undanfarin ár
hefur komið frá Sjálfstæðisflokknum
í borgarstjórn, sjálfseignarstofnun-
um í Reykjavík og frá ríkisvaldinu.“
Vilhjálmur segir að fyrir þremur
árum hafi Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra og Ingibjörg Pálmadóttir,
þáverandi heilbrigðisráðherra, beitt
sér fyrir byggingu Sóltúnsheimilis-
ins, sem hafi verið nýjung að því leyti
að ríkið greiddi í fyrsta sinn allan
stofnkostnað. Reykjavíkurlistinn
hafi hvergi komið að því máli. „Það
sem mun nú bæta úr brýnustu þörf-
inni á næstu þremur árum eru svo
fyrirhugaðar nýbyggingar við Eir og
Hrafnistu, sem R-listinn hefur ekki
sýnt neinn áhuga eins og það sýnir að
borgaryfirvöld hafa ekki virt Eir
svars. Ríkisvaldið undir forystu
Geirs H. Haarde fjármálaráðherra
og Jóns Kristjánssonar heilbrigðis-
ráðherra hefur hins vegar heimilað
að farið verði af stað með þessar
byggingar,“ segir Vilhjálmur.
Hann segir að fyrir hálfu öðru ári
hafi sjálfstæðismenn flutt tillögu í fé-
lagsmálaráði um að stækka Drop-
laugarstaði. „R-listinn hefur ekkert
gert með þá tillögu í eitt og hálft ár,“
segir Vilhjálmur.
Að hans sögn hafa biðlistar eftir
þjónustuíbúðum og hjúkrunarrým-
um lengst úr 330 manns árið 1994 í
605 manns í dag, sem sé nærri því
tvöföldun. Sjálfstæðismenn hafi í
kosningabaráttunni tekið frumkvæði
að því að eyða þessum biðlistum.
„Það er grátbroslegt að heyra úr
munni frambjóðenda R-listans að
sjálfstæðismenn ætli að bregðast
öldruðum, þegar þeir hafa sjálfir
brugðist þeim með þessum hætti
undanfarin ár,“ segir Vilhjálmur.
Erindi Eir-
ar til borg-
arinnar enn
ósvarað
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
♦ ♦ ♦
25.maí2002
Frambjóðendur hafa í nógu að snúast síðustu daga fyrir kosningar