Morgunblaðið - 24.05.2002, Síða 22

Morgunblaðið - 24.05.2002, Síða 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 22 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Viðauki við skráningarlýsingu verðtryggðra skuldabréfa Kaupþings banka hf. 3. flokkur 2001 Stjórn Kaupþings banka hf. samþykkti þann 6. maí 2002 að heim- ila stækkun skuldabréfaflokksins KAUP 01 3 um 2.000.000.000,- tvö þúsund milljónir króna og mun að lokinni stækkun nema allt að 3.000.000.000,- þrjú þúsund milljónir króna. Skráningarlýsingu og þau gögn sem vitnað er til í henni ásamt viðauka er hægt að nálgast hjá Kaupþingi banka hf. Ármúla 13, 108 Reykjavík Sími 515-1500, fax 515-1509 SÆNSKI fjárfestingasjóðurinn Ind- ustrivärden, sem er annar af tveimur stærstu fjárfestingarsjóðum í Sví- þjóð, hefur keypt hlutabréf í Össuri hf. að nafnverði 50 milljónir króna, eða sem svarar til 15% hlutafjár í fé- laginu, á verðinu 49 krónur á hlut. Kaupverð hlutarins nemur alls 2.450 milljónum króna en seljendur hluta- bréfanna eru Kaupþing banki hf., Mallard Holding S.A og Össur hf. Industrivärden er nú annar stærsti hluthafinn í Össuri, á eftir stofnanda félagsins. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, fagnar aðkomu hins nýja hluthafa. „Þetta er rökrétt skref á leið okkar. Við höfum mjög lengi unnið að því að fá sterkan, erlendan aðila að fyrir- tækinu. Það tryggir ekki aðeins að- gang að nægilegu fjármagni til áframhaldandi vaxtar heldur veitir það okkur einnig aðgang að mikilli þekkingu og ekki síst samböndum.“ Aðrir fylgja þeim gjarnan eftir Jón segir fjárfestingu Industri- värden sérlega ánægjulega í ljósi þess að sjóðurinn er þekktur fyrir skynsamlegar fjárfestingar. Það þýði að aðrir fjárfestar fylgi þeim gjarnan eftir. Þá séu þetta ákveðin vatnaskil á íslenskum hlutabréfamarkaði enda sé um að ræða einn virtasta fjárfesting- araðila á Norðurlöndum. Jón segist gera fastlega ráð fyrir að fulltrúar Industrivärden setjist í stjórn Össurar og muni taka virkan þátt í stjórnun félagsins. Í tilkynningu frá Össuri hf. segir að mikil vinna liggi í að kynna fyrirtækið fyrir fjárfestum ytra og unnið hafi verið að því að fá fjarlægðar hindr- anir sem erlendir fjárfestar hafi bent á að standi í vegi fyrir fjárfestingu þeirra á Íslandi. Verður á hluthafa- fundi 6. júní nk. farið fram á heimild til að breyta hlutafé félagsins í doll- ara, líkt og hefur þegar verið gert með reikningsskil þess. Ingólfur Helgason, framkvæmda- stjóri markaðsviðskipta hjá Kaup- þingi, segir að með þessum viðskipt- um hafi stórum áfanga verið náð, sem lengi hafi verið stefnt að. „Væntanlega er þetta í fyrsta skipti sem fram fer einhver alvöru sala til erlendra fjárfesta í skráðu íslensku félagi, án þess að það sé í tengslum við útboð eða slíkt. Það gefur þessu skemmtilegt yfirbragð“, segir Ingólf- ur og játar því að seljendur hafi þarna fengið mjög ásættanlegt verð fyrir hlut sinn. Kaupþing seldi Industrivärden hlutabréf í Össuri að nafnverði 32 milljónir, eða sem svarar til 9,74% eignarhlutar, en söluverð hlutarins er 1.568 milljónir króna. Eftir söluna á Kaupþing 15 milljónir að nafnverði í Össuri eða 4,60%. Mallard Holding, sem er eignar- haldsfélag í eigu Össurar Kristins- sonar, stjórnarformanns í Össuri, seldi bréf að nafnverði 15 milljónir eða tæplega 5%, en söluverðið nam 735 milljónum. Eftir söluna á Mallard Holding tæpan fjórðungshlut í Össuri eða tæpar 80 milljónir að nafnvirði. Össur hf. seldi eigin bréf að nafn- virði 3 milljónir króna eða að söluvirði 147 milljónir. Eftir söluna nema eigin hlutabréf félagsins rúmum 5 milljón- um króna að nafnverði. Einn stærsti sjóður á Norðurlöndum Industrivärden var stofnaður árið 1944 og er annar af tveimur stærstu fjárfestingarsjóðum Svíþjóðar og jafnframt einn sá stærsti á Norður- löndum. Sjóðurinn er skráður í kaup- höllinni í Stokkhólmi og sérhæfir sig í fjárfestingum í skráðum félögum á Norðurlöndum sem talin eru eiga góða möguleika á að þróast áfram. Hrein eign sjóðsins nemur um 3,3 milljörðum dollara en það svarar til rösklega 300 milljarða íslenskra króna. Verð hlutabréfa í Össuri hækkaði um 8,2% í gær í 66 viðskiptum og var í lok dags 51,5 krónur á hlut en hæst fór verðið í 52,5 innan dagsins. Þess má geta að verðmat greiningardeild- ar Kaupþings á bréfum í Össuri er 76,3 samkvæmt nýlegri greiningu. Industrivärden kaupir 15% í Össuri Er nú annar stærsti hluthafinn. Veitir aðgang að fjár- magni, samböndum og þekkingu, segir forstjóri félagsins ÁRSREIKNINGAR Eftir- launasjóðs starfsmanna Hafn- arfjarðarkaupstaðar hafa nú verið birtir. Raunávöxtun sjóðsins á árinu var 2,4%. Nafnávöxtun var 11,58%. Ávöxtun Eftirlaunasjóðs umfram aðra sjóði sem birt hafa ársreikninga sína er á bilinu 3 til 10%, að sögn for- stöðumanns sjóðsins Sigurjóns Bjarnssonar. Stjórn sjóðsins skipa: Magnús Gunnarsson, formaður og Þorsteinn Njáls- son og Albert Kristinsson. Góð ávöxtun GRÁSLEPPUVERTÍÐIN á Bakka- firði stendur nú sem hæst, en margir bátar stunda grá- sleppuveiðar þaðan. Hraungerði efh. verkar mikið af hrognun. Þar ráða ríkjum hjónin Freydís Magn- úsdóttir og Elías Helgason, sem hafa saltað grásleppuhrogn í tólf vertíðar, en síðastliðin tvö ár hef- ur Magnús sonur þeirra verið með þeim. Tuttugu bátar leggja upp hjá Hraungerði ehf., fimmtán heimabátar og fimm aðkomubátar. Að sögn Elíasar Helgasonar hjá Hraungerði ehf. er búið að salta á milli 1.100 og 1.200 tunnur í vor hjá þeim, sem er 300 til 400 tunn- um meira en í meðalári, sem er á milli 700 og 800 tunnur, og vertíð- in er ekki búin enn. Aðspurð sögðu þau að einn dag- urinn í vikunni hefði verið með þeim stærri á vertíðinni en þá komu í land milli 60 og 70 tunnur eftir átta daga brælu hjá bátunum. Til gamans má geta þess að það mesta sem þau hafa tekið á móti á einum degi var 92 uppsaltaðar tunnur sem eru um fjórtán tonn af blautum hrognum. Í einni kavíar- túpu eru 250 g, þar af 140 g hrogn, svo þetta eru nokkrar túpurnar. Á myndinni sést Magnús Elíasson hræra saman hrogn og salt og not- ar hann steypuhrærivél til verks- ins. Morgunblaðið/Áki Guðmundsson Hrognin söltuð Bakkafirði. Morgunblaðið. LÍFTÆKNISJÓÐURINN MP Bio hf. tapaði 128,9 milljónum króna á fyrsta fjórðungi ársins 2002. Þar af var innleyst tap tímabilsins 9,4 milljónir króna en óinnleyst geng- istap nam 119,5 milljónum. Sam- anburðartölur liggja ekki fyrir. Vaxtatekjur sjóðsins námu tæp- um 4,3 milljónum á tímabilinu. Hreinar vaxtatekjur voru neikvæð- ar um 3 milljónir króna. Eigið fé nam í lok tímabilsins 873,1 milljón króna.en var 749,0 milljónir króna um síðustu áramót. Í tilkynningu segir að tapið stafi fyrst og fremst af lækkun á gengi skráðra markaðsbréfa og vegna styrkingar krónunnar gagnvart dollar. „Eignarhlutir félagsins í óskráðum félögum, sem öll eru er- lend, eru sem fyrr metnir miðað við kaupverð í erlendri mynt að teknu tilliti til lækkana gagnvart íslenskri krónu. Gengi bandaríkjadollars gagnvart íslenskri krónu lækkaði um 3,7% á tímabilinu.“ Ennfremur segir að gengi skráðra markaðsbréfa í eignasafni félagsins hafa lækkað töluvert á tímabilinu, t.d hafi gengi bréfa í de- Code lækkað um 41%. Tap af rekstri MP Bio

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.