Morgunblaðið - 24.05.2002, Síða 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSRAELSKA sendiráðið í París
gjöreyðilagðist í eldi í fyrrinótt.
Nokkrir slökkviliðsmenn slösuðust
í baráttunni við eldinn, sem mun
hafa kviknað út frá rafmagni. Unn-
ið var að endurbótum á þeirri hæð
sendiráðsins þar sem eldurinn kom
upp.
Reuters
Eldur í sendiráði
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti leggur áherslu á að ná persónu-
legum tengslum við aðra þjóðarleið-
toga en nokkuð misjafnt er hvernig
tekst til. Sumum þeirra líkar vel
kumpánleg kímni hans og sjálfur
segist hann geta séð hvort mönnum
sé treystandi eftir að hafa hitt þá,
augliti til auglitis. Fyrstu fundir
hans með Gerhard Schröder Þýska-
landskanslara tókust illa, segir í
grein í Washington Post en Schröd-
er braut ísinn er hann lýsti yfir full-
um stuðningi við aðgerðir Banda-
ríkjamanna í Afganistan sl. haust.
Hefur síðan farið mjög vel á með
þeim.
Bush minnist oft á að hann eigi
sitthvað sameiginlegt með gestum
sínum en hefur stundum gengið
brösótt að útskýra hvað hann eigi
við. Eftir fund með Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, í fyrra í
Camp David sagði Bush aðspurður
að þeir notuðu báðir Colgate-tann-
krem. Er hann var beðinn að til-
greina fleira nefndi hann sameigin-
legan áhuga á íþróttum og
líkamsrækt, einnig væru þeir feður
og ættu báðir góðar eiginkonur.
Forsetinn er sagður geta verið af-
ar sannfærandi í tveggja manna
tali, hann sé oft mjög óformlegur.
En sumir gestir hans eiga erfitt
með að venjast því hvernig hann
byrjar stundum umsvifalaust að
fjalla um mikilvæg mál án formála
og hefðbundins kurteisishjals.
Bíltúr með
Abdullah krónprins
Forsetinn á búgarð í grennd við
þorpið Crawford í Texas og hefur
þegar tekið á móti mörgum tignum
gestum þar. Hann hefur þar leikið
sér með hafnabolta ásamt forsætis-
ráðherra Japans, rætt um sportfisk-
veiðar við forsætisráðherra Kan-
ada, fengið forseta Rússlands til að
taka þátt í Texas-dansi og talið Ab-
dullah, rúmlega sjötugan krónprins
Sádi-Arabíu, á að hysja upp um sig
skikkjulöfin, setjast upp í pallbíl og
fara í bíltúr um landareignina.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
hefur lýst því hvernig Bush hafi ver-
ið lýst í sín eyru sem manni sem
ekki gæti hlustað lengi á aðra,
manni sem vildi sjálfur hafa orðið og
skorti þolinmæði. Bush hefði komið
sér þægilega á óvart. „Allt reyndist
þetta með öðrum hætti – í reynd
komust strax á mjög traust tengsl,“
sagði Pútín á fréttamannafundi.
Sérfræðingar vara þó við því að
persónuleg vinátta sé tvíbent leið-
arljós í samskiptum ríkja þar sem
beinharðir hagsmunir ráði þegar
upp sé staðið. Þannig er fullyrt að
Vicente Fox, forseti Mexíkó, sé orð-
inn óþolinmóður og vilji meira en
fögur orð, ekki síst varðandi breyt-
ingar á innflytjendalöggjöf Banda-
ríkjanna. Ekkert hafi enn gerst í
þeim málum. Fox sagði nýlega í
ræðu að úrslitum myndi ráða í sam-
búð þjóðanna hvort Bush léti gjörð-
ir fylgja orðum í innflytjendamálun-
um, þau væru prófið sem sýndi
„hvort við hyggjumst beita okkur
fyrir nýjum og nánum samskipt-
um“.
Reuters
George W. Bush (t.v.) Bandaríkjaforseti gengur ásamt Gerhard
Schröder, kanslara Þýskalands, inn í kanslarahöllina í Berlín í gær.
Kumpánlegt
fas á bú-
garðinum
’ Bush hefur unniðhug sumra en ekki
allra leiðtoga með
óvenjulegum stíl ‘
FULLTRÚAR á þingi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins sögðu í gær, að
þar ríkti „stríðsástand“ eftir að
fellt var að leyfa frumbyggjum að
halda áfram takmörkuðum veiðum.
Einnig var felld tillaga Japana um
að afnema 16 ára gamalt bann við
hvalveiðum í atvinnuskyni.
Tillaga Japana um að íbúar í
nokkrum japönskum þorpum
fengju að veiða 50 hrefnur á ári
var felld og að því búnu beittu þeir
sér gegn tillögu Bandaríkjamanna
og Rússa um áframhaldandi hval-
veiðar frumbyggja. Þegar hún var
felld varð mikið uppistand og sum-
ir lýstu að bragði yfir, að komið
væri upp „stríðsástand“ innan
ráðsins.
Fulltrúi Hollendinga, Frederik
Vossenaar, sagði úkomuna vera
„svartan dag“ í sögu ráðsins, ekki
aðeins fyrir frumbyggja í Alaska
og Síberíu, og Rolland Schmitten,
fulltrúi Bandaríkjanna, sakaði Jap-
ana um leika sér að velferð fólks.
Masayuki Komatsu, fulltrúi Jap-
ana, sakaði hins vegar Bandaríkja-
menn um tvískinnung í hvalveiði-
málum. Vegna eigin hagsmuna
vildu þeir undanþágu fyrir sitt fólk
en væru harðir friðunarsinnar
gagnvart öðrum.
Hugsanlegt er, að einhver mála-
miðlun finnist um þetta og Japanir
kváðust bíða eftir tillögum Banda-
ríkjamanna um það.
Sumir fulltrúanna höfðu á orði,
að aldrei hefði verið meiri hætta á
því en nú að ráðið leystist upp.
„Stríðsástand“
í Alþjóðahval-
veiðiráðinu
Bann við framhaldi veiða frum-
byggja veldur miklum titringi
Shimonoseki. AFP.
„ANNAÐHVORT takið þið fullan
þátt í samstarfinu eða ykkur verð-
ur skipað á bekk með Íslending-
um, Norðmönnum og Svisslend-
ingum.“ Þannig hljóðar boðskapur
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, ESB, ekki síst til Dana,
og þeim sagt í stuttu máli, að
dönsku fyrirvararnir verði að vera
úr sögunni fyrir 2004 þegar nýr
sáttmáli eða stjórnarskrá fyrir
ESB á að líta dagsins ljós.
Framkvæmdastjórnin leggur til,
að nú strax verði farið ofan í
saumana á fyrirvörum einstakra
aðildarríkja með það fyrir augum
að afnema þá. Ríkin verði að gera
upp við sig hvort þau vilji fullt
samstarf eða stöðu á borð við þá,
sem gildir um Ísland, Noreg og
Sviss.
Fyrirvarar gera
samræmda löggjöf erfiða
Poul Nielson, fulltrúi Dana í
framkvæmdastjórninni, sagði í við-
tali við Jyllands-Posten, að staða
Dana nú væri óviðunandi og ætti
eftir að versna. Framkvæmda-
stjórnin gæti ekki annað en vakið
athygli á því, að það væri ekki
hægt að koma á samræmdri lög-
gjöf og tryggja þegnunum jöfn
réttindi þegar einstök ríki væru
með fyrirvara um hitt og þetta.
Nielsen lagði þó áherslu á, að yf-
irlýsingu framkvæmdastjórnarinn-
ar væri ekki sérstaklega beint að
Danmörku.
Per Stig Møller, utanríkisráð-
herra Danmerkur, segist vera
sammála því, að dönsku fyrirvar-
arnir verði að hverfa, ekki síst
með það í huga, að brátt verði að-
ildarríki ESB 25. Talsmenn jafn-
aðarmanna og Radikale Venstre
eru sama sinnis en Sósíalíski þjóð-
arflokkurinn segist andvígur því,
að öllum aðildarríkjunum verði
skipað að ganga í takt.
Yfirlýsing frá fram-
kvæmdastjórn
Evrópusambandsins
Fyrirvarar
og undan-
þágur
skulu burt
MONA Juul, sendiherra Noregs í
Ísrael, fékk í gær skriflega áminn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu
vegna gjafar sem hún fékk á sín-
um tíma frá svonefndum Peres-
sjóði árið 1999 en lét ekki yfirboð-
ara sína í Ósló vita af. Um hríð
var rætt um að Juul yrði beðin að
segja upp starfi sínu vegna máls-
ins.
Peningunum, sem nema 50.000
Bandaríkjadollurum, nær fimm
milljónum ísl. króna, fær Juul að
halda og er því borið við að svo
langt sé um liðið að ekki sé hægt
að gera þá upptæka, að sögn dag-
blaðsins Verdens Gang. Ef Juul
hefði skýrt frá gjöfinni strax hefði
hún ekki fengið að halda fénu.
Carl I. Hagen, leiðtogi Fram-
faraflokksins norska, gagnrýndi í
gær niðurstöðu málsins og sagði
að setja ætti reglur sem gerðu
kleift að hindra að sendiherrar
héldu peningum sem þeir fengju
með þessum hætti. Refsingin sem
Juul hefði fengið væri allt of mild
en áminningin verður fjarlægð úr
skjölum ráðuneytisins um feril
Juul eftir fimm ár. Talsmaður
ráðuneytisins, Karsten Klepsvik,
sagðist ekki muna eftir því að
sams konar mál hefði komið upp í
ráðuneytinu en neitaði að tjá sig
um gagnrýni Hagens.
Mona Juul
slapp með
áminningu
VONIR um, að líf sé að finna á yf-
irborði Evrópu, einu tungla Júpiters,
hafa dofnað mjög. Talið var, að það
gæti leynst í hafinu undir íshellu, sem
umlykur það, en nú bendir margt til,
að ísinn sé allt að 25 km þykkur.
Þetta kemur fram í grein í breska
vísindatímaritinu Nature eftir
bandaríska vísindamanninn Paul
Schenk. Þar segist hann hafa borið
saman loftsteinagíga á Evrópu og
tveimur öðrum ístunglum, Gany-
mede og Gallisto, við gíga á tunglinu
en það er álíka stórt og hin tunglin
þrjú. Á tunglinu eru þeir djúpir með
háum hamraveggjum en á Ganymede
og Gallisto fremur óreglulegir. Á
Evrópu eru þeir hins vegar líkir dal-
verpi með mjög ávölu og sléttu yf-
irborði. Það bendi til, að ísinn sé mjög
þykkur.
Áður var talið, að íshellan á Evr-
ópu væri ekki nema kannski þriggja
km þykk og kynni þá stundum að
brotna og bráðna sums staðar vegna
mikils aðdráttarafls Júpiters. Það
gæti aftur auðveldað tilvist frum-
stæðs lífs.
Lítil von um líf á Evrópu
París. AFP.
♦ ♦ ♦