Morgunblaðið - 24.05.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 24.05.2002, Síða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 31 Nám í tómstunda- og félagsmálafræði Fjarnám, 45 einingar Nám fyrir þá, sem vinna að tómstunda- og félagsmálum, t.d. í grunnskólum, framhaldsskólum og félagsmiðstöðvum, hjá íþrótta- og æskulýðsfélögum eða á öðrum vettvangi. Fyrsta staðbundna lotan er 28. - 30. ágúst. Þeir, sem sinna skapandi tómstundastarfi, eru hvattir til að nota tækifærið og afla sér menntunar. Umsóknarfrestur er til 1. júní. Sjá nánar á www.khi.is UNDIR yfirskriftinni „Guð, helg- ur andi“, á öðrum degi í hvítasunnu, hélt Mótettukór Hallgrímskirkju söngmessu undir stjórn Harðar Ás- kelssonar. Fysta viðfangsefni tón- leikanna var Guð, helgur andi, heyr oss nú, gamall sálmur frá Wittem- berg, er var sunginn í fallegri radd- setningu Róberts A. Ottóssonar. Hörður nær oft að gæða einfalda sálma trúarlegri tign, sálma sem annars eru sungnir blátt áfram. Tignunin einkennir flutning Mót- ettukórsins og það kom einstaklega vel fram í fjórum mótettum op. 11 eftir Duruflé, er voru næst á efnis- skránni. Þessar stuttu en áhrifaríku tónsmíðar voru einstaklega fallega fluttar. Önnur mótettan, „Maríuv- ísa“, var einstaklega fallega sungin af kvennröddunum en tvær seinni mótetturnar (Tu es Petrus og Tant- um ergo) eru glæsilegar tónsmíðar, þar sem heyra má skemmtileg kontrapunktísk tilþrif hjá Duruflé, og í þessum verkum var söngur Mót- ettukórsins einstaklega glæsilegur. Eftir Messiaen söng kórinn mót- ettuna O sacrum convivium, sem er falleg andstæða verkanna eftir Du- ruflé, þ.e. rithátturinn er sérlega hljómrænn og tónsmíðin nánast bundin í háröddunum, yfir liggjandi hljómferli. Söngur sópransins var glæsilegur og sérstæður og magn- aður hljómgrunnurinn var þéttur og fylgdi lagferlinu eftir en var ekki að- eins „undirleikur“. Tveir íslenskir sálmar voru fluttir, sá fyrri Leiftra þú sól, hvítasunnu- sálmur, sem undirritaður samdi við texta eftir Sigurbjörn Einarsson biskup, og sá seinni Guð sem í ár- daga oss reisti bústað á jörðu, þar sem Hörður Áskelsson og Kristján Valur Ingólfsson stilltu saman strengi sína í hljómi og texta. Tón- mál Harðar er fallega mótað, þótt það sé frekar óvenjulegt að enda tónhendingu á „stökki“, en hvað sem því líður var niðurlag sálmsins sér- lega fallegt. Báðir sálmarnir voru sungnir á þann hátt að efni þeirra skipti máli og mótun tónhending- anna því annað og meira en söng- urinn einn. Þrátt fyrir að norsku tónskáldin Knut Nystedt og Kjell Mörk Karl- sen hafi notað ómstreituna ótæpi- lega eru verk þeirra að því leyti til gamaldags, að lagferlið og radd- fleygunin eru meginuppistaðan í verkum þeirra, og oft glæsilega út- færð, eins og hjá Nystedt í mótett- unni If you receive my words og einnig hjá Karlsen í Songs from the Revelation, sem eru sex sjálfstæðir söngvar. Í báðum þessum verkum var söngur kórsins einstaklega glæsilegur, þéttur, hljómmikill og tignarlegur. Johann Sebastian Bach átti síð- asta orðið, fyrst með sálmútsetning- unni á lagi eftir Nacholai, Skín á himni skír og fagur hinn skæri hvíta- sunnudagur, er var sunginn á þann hátt er einkennir tóntúlkun Harðar og Mótettukórsins. Tónleikunum lauk síðan með mótettunni Der Geist hilft unsrer Schwachheit auf BWV 226 (ekki 22), sem samin er fyrir átta raddir, þ.e. tvöfaldan kór. Mótetta þessi er í þremur þáttum. Fyrsti kaflinn er í eins konar konsertformi og þar er undirleikurinn uppruna- lega hugsaður fyrir strengi. Annar þátturinn er tvöföld fúga og þar eru raddirnar tvöfaldaðar með undirleik tréblásturshljóðfæra (óbó og fagott) en sá þriðji er sálmur. Til eru í hand- riti tónskáldsins útskrifaðar raddir fyrir hljóðfærin og af þeim má ráða að hljóðfærin voru að miklu leyti notuð til að tvöfalda söngraddirnar. Hér var undirleikurinn leikinn á org- el (Brynhildur Ásgeirsdóttir), selló (Inga Rós Ingólfsdóttir) og kontra- bassa (Richard Korn) og var flutn- ingur verksins glæsilegur endir á frábærum tónleikum, t.d. var tvö- falda fúgan ótrúlega þétt í hljóman og sálmurinn fluttur eins og um væri að ræða tónsmíð gædda trúarlegri tilfinningu en ekki sálm ætlaðan til daglegs brúks, sunginn beint af aug- um, eins og oft má heyra við kirkju- athafnir. Það er þetta sem gefur söng Mótettukórsins, undir stjórn Harðar, sérstaka dýpt, að fyrir utan frábærlega mótaðan söngmáta er allur flutningurinn gæddur innilegri tignun, þannig að fagurfræði og trúarleg upplifun verða eitt. „Allur flutningurinn (er) gæddur innilegri tignun, þannig að fagurfræði og trúarleg upplifun verða eitt.“ Frábærir tónleikar TÓNLIST Hallgrímskirkja Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar flutti trúarleg verk er tengjast hvítasunnuhátíð kristinnar kirkju. Mánudaginn 20. maí. KÓRTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson ÁRBÆJARSAFN hefur tekið leiklistina í þjónustu sína og hafið samstarf við leikhópinn Icelandic Take-Away Theatre (ITAT). Sam- starf safnsins og leikhópsins er liður í þeirri viðleitni stjórnenda minja- safnsins að miðla sögu Reykjavíkur á nýstárlegan hátt til gesta. Fyrsta verkefni leikhópsins var frumflutt í safninu síðastliðinn mánudag og tókst í alla staði prýðilega. Hugmyndin að þessari sýningu er bráðsnjöll: „Athafnamaðurinn og heimsborgarinn Þorlákur Ó. John- son býður til skemmtunar fyrir fólk- ið á heimili sínu að Lækjargötu 4, nú staðsett í Árbæjarsafni,“ segir í leik- skrá, og það er í þessu húsi fyrrum heimili áðurnefns Þorláks sem leik- urinn fer fram. Árni P. Reynisson er í hlutverki Þorláks og hann flytur gestum blandaða dagskrá í formi frásagna, söngs, skuggamynda og lítils leikþáttar, auk þess sem hann leiðir þá út á tún í lokin þar sem vinnukonur og tómthúsmenn (leið- sögumenn Árbæjarsafns) stíga kostulegan dans og henda saltfisk á loft. Þorlákur Ó. Johnson var uppi á ár- unum 1838–1917 en hann birtist okk- ur „afturgenginn“, svo að segja, og í frásögn hans blandast fortíð og nútíð saman á snjallan hátt. Þannig notar Þorvaldur í bland nútímamál og til- vísanir í nýjustu tækni um leið og hann notar þá íslensku sem töluð var hér um aldamótin 1900 og slettir óspart ensku – enda sigldur maður. Þorlákur tekur lagið við undirleik „ósýnilegs“ en dálítið uppreisnar- gjarns píanóleikara, sýnir skugga- myndir af gömlu Reykjavík, segir frá athafnamennsku sinni og upphafi blaðaauglýsinga (sem hann átti heið- urinn af) og hann endursegir, með leikrænum tilþrifum, ástarsögu ekkjunnar Sire Otteson og Dillons lávarðar af Englandi (sem Dillons- hús er kennt við). Allt lifnaði þetta skemmtilega í flutningi Árna, sem var reffilegur í hlutverki Þorláks. Leiðsögumenn Árbæjarsafns stóðu sig vel í saltfiskdansinum úti í góða veðrinu, sem var skemmtilegur endapunktur á vel heppnaðri og óvenjulegri sagnamiðlun. Þetta upp- haf á samstarfi Árbæjarsafns og ITAT lofar góðu um framhaldið, en Þorlákur mun bjóða gestum á heim- ili sitt á laugardögum og sunnudög- um í sumar. Á eftir er hægt að fá sér kaffi og meðlæti í huggulegum húsa- kynnum safnsins og skoða sig um á svæðinu. Soffía Auður Birgisdóttir Fortíðarmiðlun í nýjum stíl LEIKLIST Icelandic Take-Away Theatre Dálítil skemmtisaga af athafnamann- inum og heimsborgaranum Þorláki Ó. Johnson. Handrit og leikgerð: Ágústa Skúladóttir. Ráðgjöf og heimildavinna: Starfsfólk Árbæjarsafns. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Leikari: Árni P. Reyn- isson. Búningar, leikmunir og lit- skyggnur: Guðrún Öyahals og Katrín Þor- valdsdóttir. Einnig koma fram leiðsögumenn Árbæjarsafns. Lækjargata 4, nú staðsett í Árbæjarsafni, 20. maí. SPEKÚLERAÐ Á STÓRUM SKALA SÍÐASTA örleikritið í röðinni Níu virkir dagar verður sent út í dag frá Fógetagarðinum við Aðalstræti á Rás 1 kl. 17.05. Verkið nefnist Fótabað og er eftir Kristínu Ómarsdóttur rit- höfund og Gunn- hildi Hauksdótt- ur myndlistar- mann. „Fótabað er eftir okkur báðar enda er það nær því að vera gjörningur en leikrit,“ segir Kristín. Gjörningurinn felst í því að tíu þjóðþekktir einstaklingar úr hópi fjölmiðla- og listafólks hef- ur þegið boð um að fara í fótabað og flytja texta eftir Kristínu á með- an. „Textinn er ekki óskyldur bæn og hver fær sitt brot sem þeir flytja hver á eftir öðrum.“ Uppskriftin að fótabaðinu er eft- irfarandi: 3 bollar af grófu sjáv- arsalti og 15 lárviðarlauf soðin í 2 l af vatni þar til saltið leysist upp. Sjóðandi vatninu hellt oní bala með 15 l af volgu vatni. Að lokum er 2 afhýddum sítrónum bætt útí ásamt 1msk. af ólífuolíu til mýkingar. „Ef rétt er staðið að þessu öllu og textinn fluttur af nægilegri inn- lifun þá á þettaað leið til aukinnar auðmýktar flytjenda og ástar í heiminum,“ segir Krístín. Leik- stjóri er Harpa Arnardóttir. Kristín Ómarsdóttir Örleikrit á Rás 1 á Listahátíð Frægir fara í fótabað Lúðrasveitar- tónleikar verða í Ísa- fjarðarkirkju á morgun, laugardag, kl. 18. Þar koma fram um 90 blásarar ýmist frá Bolung- arvík, Ísafirði eða Reykjavík. Saman leika ungir hljóðfæraleikarar úr grunnskóla á Ísafirði og í Bolungarvík sem vorið 2001 ákváðu að end- urreisa lúðrablástur og hafa það að mark- miði að leika á hátíðardögum, halda sjálfstæða tónleika og taka þátt í landsmótum. Til liðs við þá gengu síðan blásaranemendur tón- listarskóla bæjanna, auk eldri blás- ara úr fyrrverandi Lúðrasveit Ísa- fjarðar og leika nú undir nafninu Lúðrasveit Ísafjarðar og Bolung- arvíkur. Á tónleikunum nú verða þeim til fulltingis trompetleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands, þeir Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson, Einar Jónsson og Guðmundur Hafsteinsson. Þeir munu leika með hljómsveitinni auk þess að flytja eigin efnisskrá. Auk þess koma fram 40 nem- endur sem hafa verið á blokkflautunámskeiði á vegum grunnskólanna. Hljómsveitarstjóri og að- alleiðbeinandi sameiginlegrar Lúðrasveitar Ísafjarðar og Bol- ungarvíkur er Tómas Guðni Egg- ertsson. Eiríkur Örn Pálsson og Ásgeir H. Steingríms- son, liðsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands, eru meðal blásara í Ísafjarðarkirkju. Blásarar sameinast í Ísafjarðarkirkju ÁRNA Ibsen er óþarfi að kynna fyrir íslenskum leikhúsáhorfend- um, hann er eitt virtasta leikskáld á íslenska tungu sem er lífs. Í þessu örverki er hann á alvarlegri nótunum, textinn er hugleiðing um hvernig hinir núlifandi lifa með hinu liðna og þá einnig hvernig hinir liðnu lifa innra með þeim er lifa. Þegar svo er málum farið end- urtekur sagan sig; eftirlifendurnir eru dæmdir til að endurtaka þá lífshætti sem þeir voru innvígðir í sem börn. Þetta verk er meitlað og fullmótað, leikurinn er eins og hringur, upphafs- og endalaus, þar sem kynslóðunum mistekst að leysa úr sömu vandamálum öld fram af öld. Rósu Sigrúnu Jónsdóttur er tvennt efst í huga nú í upphafi fer- ils síns sem myndlistarmanns. Í viðtali sem tekið var við hana fyrir rétt rúmlega ári er hún útskrif- aðist úr skúlptúrdeild Listahá- skóla Íslands leggur hún áherslu á sjónarhorn – eða með hennar orð- um „persónulega sýn á veru- leikann“ – en tenging við rýmið skiptir hana miklu enda hafa þau verk sem hún hefur sýnt kallast á við það. Það sem vakir fyrir Rósu Sigrún er, að hennar sögn, að „dýpka … upplifun af hinu ósýni- lega leikhúsi ímyndunaraflsins fyr- ir þeim sem er á staðnum“. Það er snilldarleg hugmynd að flytja þetta örleikrit ætlað fyrir útvarp fyrir hóp áhorfenda mitt í myrkv- uðum tanki. Að vissu leyti „dýpk- ar“ þetta reynslu áhorfandans af verkinu en það sem Árna og Rósu hefur e.t.v. ekki komið til hugar, fjarlægir þetta áhorfendur líka frá línulegri frásögn örleikritsins. Gerðar hafa verið tilraunir á mönnum sem var komið fyrir í myrkvuðum tönkum, einangraðir frá hvers konar áreiti. Eftir ákveð- inn tíma misstu mörg viðfanganna tengsl við raunveruleikann og sáu ofsjónir. Undirritaður varð ekki fyrir neinni dulrænni reynslu í Öskjuhlíðinni en upplifunin var samt einstök. Hljómburðurinn kom í veg fyrir að hægt væri að greina orðaskil ef leikararnir voru of fjarri en sá hluti textans sem komst til skila er greyptur í vit- undina, enda ekkert sem glapti. Eftirminnilegust er rödd Stein- unnar Ólafsdóttur – sem heyrðist greinilega í myrkrinu þó að orðin yrðu ekki greind – eins og selló- hljómar í algjörri kyrrðinni. Að sjálfsögðu hafði undirritaður vaðið fyrir neðan sig og hefur hlustað á örleikritið af segulbandi. Leikurinn er mjög vel unninn, leikurunum hefur greinilega þótt mikið í textann varið. Það er eins og myrkrið skili sér í túlkun þeirra: óvissan um hverju fram vindur, óttinn við það sem sést ekki – allt minnir á langt harm- þrungið og margþætt ljóð. En að hlusta á verkið og að vera á staðn- um er tvennt ólíkt – eins ólík og leikræn upplifun af „sama“ verk- inu getur framast orðið. Almyrkva LEIKLIST Útvarpsleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík Höfundar: Árni Ibsen og Rósa Sigrún Jónsdóttir. Leikstjóri: Harpa Arnardóttir. Hljóðstjórn: Hjörtur Svavarsson. Tækni- maður: Georg Magnússon. Leikarar: Steinunn Ólafsdóttir, Víkingur Krist- jánsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Mið- vikudagur 22. maí. TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR MISSKILNING ÁKVAÐ MAMMA AÐ BEST VÆRI AÐ ÞEGJA Sveinn Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.