Morgunblaðið - 24.05.2002, Page 35

Morgunblaðið - 24.05.2002, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 35 tnsaflsvirkjun á borð við rkjun. Fyrirtækið hefði vitað um þá miklu und- u sem fram hafði farið. ru það okkar mistök að oðað hér aðstæður áður n við héldum að hér gætu færi einhvern tímann í Eftir nokkrar þreifingar að því að hér var verkefni m hafði verið í undirbún- m samstarfsaðila (Norsk k. Mbl.), sem síðan ákvað um áformum. Við erum með að hafa komist inn í ,“ sagði Pizzey. máli aðstoðarforstjórans ri að skoða álversfram- í heiminum og nú síðast kveðið að ráðast í bygg- rs í Bahrain. Miðað við ramleiðslu um 2–3% á ári ð bæta við sig 100 þúsund ðslu á ári til að halda sín- lut. Yfir tíu ára tímabil kið því að auka fram- a verulega og skoða sem sem byðust. bindum okkur til na hratt og vel“ i Alcoa hafa fengið góðar nskra stjórnvalda og Austfjörðum. Ljóst væri að meiri undirbúningsvinna hefði farið hér fram en þeir hefðu gert sér grein fyrir. Fyrirtækið hefði fengið greiðan aðgang að mikilvægum upplýsingum, sem hefði komið þeim þægilega á óvart. Morgunblaðið spurði Pizzey hvort Alcoa gæti staðið við þá tímaáætlun sem Reyðarál, með þátttöku Norsk Hydro og íslenskra fjárfesta, hafði uppi um álverið á Reyðarfirði. Hann sagði Alcoa geta skuldbundið sig til að vinna málið hratt og vel, búið væri að fram- lengja viðræðuáætlunina um sjö vikur. Samkvæmt henni ætti að leggja málið fyrir aðalstjórn Alcoa, sem kæmi sam- an til fundar í byrjun júlí næstkomandi. Að þeim fundi loknum lægi fyrir hvort fyrirtækið ætlaði fyrir alvöru að ráðast í framkvæmdir. Fram kom í máli Pizzey að 320 þús- und tonna álver gæti tekið 30 til 36 mánuði í byggingu, eða upp undir þrjú ár. Er það svipaður tími og fyrri áfang- inn í Noral-verkefni Reyðaráls átti að taka. Lokaákvörðun af hálfu Norsk Hydro átti einnig að liggja fyrir 1. september nk. „Við getum fullvissað ykkur um að eftir sjö vikur munum við ekki fresta ákvörðunum um aðrar sjö vikur. Auð- vitað getur brugðið til beggja vona en við teljum að miðað við okkar þarfir og forsendur þá muni verða af þessu verk- efni. Við viljum ekki vera sakaðir um að byggja upp falsvonir og vonum að sú staða komi ekki upp. Við munum vinna af heilindum í þessum viðræðum,“ sagði John Pizzey. Hann tók það skýrt fram að Alcoa ætlaði sér að fjármagna álverið sjálft en útilokaði ekki að á síðari stigum yrði samstarf við aðra fjárfesta kannað. Al- coa væri víða í slíku samstarfi en verk- efnið hér væri af þeirri stærðargráðu að fyrirtækið gæti vel ráðið eitt við það. Umhverfissérfræðingar Alcoa eru jákvæðir Fulltrúar Alcoa hafa að undanförnu rætt við talsmenn Norsk Hydro og sagði Pizzey fátt vera því til fyrirstöðu að vinna með því fyrirtæki. Hann minnti þó á að tækni fyrirtækjanna við álframleiðsluna væri mismunandi. Spurður af Morgunblaðinu um um- hverfismál vegna álversins og virkj- unarinnar sagði Pizzey það liggja ljóst fyrir að Alcoa færi ekki í framkvæmd sem þessa nema að hún uppfyllti ströngustu mengunarkröfur. Ekki væri áhugi á að heyja stríð við umhverf- isverndarsinna. „Við munum halda áfram að skoða umhverfisþættina mjög náið en það sem okkar sérfræðingar á því sviði hafa séð hér er mjög jákvætt,“ sagði Pizzey. Honum leist aðspurðum vel á Kára- hnjúkavirkjun og hvernig Landsvirkjun áformaði þá framkvæmd. „Við erum mjög ánægðir með það sem við höfum séð og hvernig umhverfismatsskýrslan lítur út. Virkjunin virðist geta tryggt mjög örugga raforka, sem er mikilvægt fyrir álversframleiðslu.“ Samkvæmt viðbótarsamkomulaginu er sem fyrr segir fyrirhugað að reisa 320 þúsund tonna álver í einum áfanga, sem yrði að fullu í eigu Alcoa. Eru það önnur áform en Reyðarál hafði uppi, sem ætlaði í fyrri áfanga að reisa 240– 280 þúsund tonna álver og svo í seinni áfanga 360–420 þúsund tonna álver. Flugu strax austur Að loknum fundi með blaðamönnum í gær fór John Pizzey austur á land þar sem flogið var yfir virkjanasvæðið við Kárahnjúka og lent á Egilsstöðum það- an sem ekið var til Reyðarfjarðar. Þar var álversstæðið við Hraun skoðað og einnig rætt við forsvarsmenn Fjarða- byggðar. Með Pizzey í för voru fulltrú- ar íslenskra stjórnvalda og samninga- menn Alcoa, þeir Michael Baltzell, Bernt Reitan og Joseph R. Lucot. Stöldruðu þeir stutt við og fóru af landi brott síðdegis í gær áleiðis til Banda- ríkjanna. Þess má að lokum geta að greint er frá undirritun viðræðuáætl- unarinnar frá því í gær á vefsíðu Alcoa, en þar eru aðeins birtar fréttir af helstu samningum og málum sem þetta risavaxna fyrirtæki kemur að. Starfs- menn þess eru nærri 130 þúsund í 38 löndum víða um heim. Slóðin er www.alcoa.com æðuáætlun um byggingu álvers í Reyðarfirði sem gildir til 18. júlí í sumar Morgunblaðið/Kristinn husson, forstjóri Landsvirkjunar, og John Pizzey, aðstoðarforstjóri Alcoa, ræðast við fyrir blaðamannafundinn. „ÞAÐ eru jákvæð skref sem hafa verið stigin þó að sjálfsagt sé að hafa allan vara á vegna fyrri reynslu. Mér sýnist á öllu að menn séu að ræða málin af mikilli alvöru og miklum þunga,“ segir Davíð Oddsson forsætisráðherra um áhuga Alcoa á álveri á Austurlandi en hann átti í gær fund með aðstoðarforstjóra Alcoa. „Allir sem hafa komið að málinu, þeirra á meðal ég, hafa fundið raunverulegan áhuga þessara aðila,“ segir forsætisráðherra jafnframt. Sagði hann aðspurður að ekki væri laust við að munur virtist vera á áhuga Al- coa og NorskHydro um framvindu málsins. „En það er margföld reynsla fyrir því að það borgar sig að tala varlega þar til allt er í húsi.“ Davíð Oddsson sagði aðspurður að það væri jákvætt og flækti ekki málið að Al- coa yrði einn eignaraðili álversins. „Þessi skref eru jákvæð, menn hafa lagt í þetta mikla vinnu og munu vita innan tiltölulegra fárra vikna nákvæmlega hvernig staðan er,“ sagði ráðherra að lokum. Davíð Oddsson forsætisráðherra Jákvæð skref hafa verið stigin FINNUR Ingólfsson, seðlabankastjóri og formaður við- ræðunefndar stjórnvalda í álversmálum, segir að með sam- komulaginu við Alcoa í gær hafi verið stigið gott skref fram á við. Verkefnið í Reyðarfirði sé að skýrast og áhugi Alcoa fari vaxandi. „Mikilvægast í þessu er að sú ákvörðun sem stjórn Alcoa ætlar að taka um miðjan júlí er sambærileg ákvörðun og talað hefur verið um að Norsk Hydro tæki 1. september. Þetta þýðir hins vegar ekki að verkefnið sé að færast fram í tíma heldur það að undirbúningsframkvæmdir hjá Landsvirkjun gætu hafist síðar í sum- ar eða í haust, ef stjórn Alcoa kemst að jákvæðri niðurstöðu,“ sagði Finnur. Hann sagði það einnig mjög mikilvægt að Alcoa ætlaði að standa eitt og sér að verkefninu. Því væri aðeins við einn aðila að semja, sem þýddi að hægt væri að vinna hratt og vel að undirbúningi og allri ákvarðanatöku. Aðspurður hvað geti komið upp á sem kæmi í veg fyrir þátttöku Alcoa, sagði Finnur að reynslan sýndi að það gætu verið mörg atriði, s.s. orkuverð, fjárfestingarsamningar og umhverfismál. Niðurstöður Alcoa til þessa í tækni- og umhverfismálum hefðu að vísu verið jákvæðar sem og skoðun á arðsemi verkefnisins. Eftir væri að semja um orkuverð við Landsvirkjun og skoða ýmsa aðra þætti, m.a. mengun frá álverinu miðað við 320 þúsund tonna framleiðslu. Finnur Ingólfsson seðlabankastjóri Framkvæmdir gætu hafist í sumar g- k- nni i fa ver kki a g- ppi ð erf- geri vik- nnig urð hvaða áhrif áform Alcoa hefðu á fyrirhugaðar stækkanir álvera Ísal í Straumsvík og Norðuráls á Grundartanga sagði Val- gerður að miðað við það að reisa ætti álverið í Reyðarfirði í ein- um áfanga þyrfti að skoða þessi mál sérstaklega. „Við vorum búin að stilla upp verkefnaröð miðað við áform Reyðaráls. Þær áætlanir miðuðust við að byrjað yrði á stækkun Norðuráls þannig að á næstu vikum munum við skoða sér- staklega hvernig áform Alcoa hafa þarna áhrif,“ sagði Val- gerður. herra um samkomulagið við Alcoa „Við færumst nær og nær markmiði okkar,“ segir Val- gerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra við Morgunblaðið. Morgunblaðið/Kristinn GEIR A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Hæfis og stjórn- arformaður Reyðaráls, segist fagna því ef áform um byggingu álvers í Reyðarfirði nái fram að ganga hjá Alcoa. Þar með megi segja að markmiðum Hæfis hafi verið náð, en fyrirtækið hafi verið stofn- að í þeim tilgangi að stuðla að því að álver yrði byggt í Reyðarfirði, með þátt- töku íslenskra fjárfesta. Síðar hafi Reyðarál komið til sögunnar með samstarf- inu við Norsk Hydro. „Alcoa hefur greinilega mikinn áhuga á þessari fjárfestingu og mun innan skamms tíma taka ákvörðun um byggingu álvers. Ef það gerist þá að sjálf- sögðu fögnum við því hjá Hæfi. Þá má segja að okkar markmiðum hafi verið náð. Einnig er ljóst að Alcoa ætlar að eiga þetta álver 100% og því er ekki þörf fyrir íslenska fjárfesta eins og var í samvinnu við Norsk Hydro. Um það er ekkert nema gott að segja, þrátt fyrir að við séum ekki þátttakendur í því. Það má líta á þetta eins og boðhlaup þar sem nýir keppendur hafi tekið við kyndl- inum. Okkur hjá Hæfi er sama hver kemur með þann kyndil í mark,“ sagði Geir. Hann sagði að eftir væri að koma í ljós hversu mikið af þeirri undirbúnings- vinnu sem Reyðarál hefði unnið gæti komið Alcoa til góða. Búið væri að vinna umhverfismat fyrir allt að 420 þúsund tonna álver. Ljóst væri að ef fyrirtækið myndi ráðast í framkvæmdina þá væri hlutverki Hæfis lokið. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að stjórnendur Alcoa hafi sýnt því áhuga að kaupa Reyðarál og þar með alla þá vinnu og gögn sem eru til staðar. Aðspurður hvort viðræður þessa efnis hefðu farið fram vildi Geir ekki staðfesta það. Samtöl hefðu vissulega átt sér stað en engar formlegar samningaviðræður. Hins vegar væri ljóst að Alcoa hefði hag af því að fá sem mestar og bestar upp- lýsingar um verkefnið. Geir sagði að rætt yrði við fulltrúa Alcoa um þessi atriði á næstu vikum, fyrir því væri jákvæður vilji af hálfu íslenskra fjárfesta. Geir A. Gunnlaugsson Reyðaráli og Hæfi Sama hver kemur með kyndilinn í mark „ÉG er mjög glaður í dag og Alcoa hefur sýnt málinu gríð- arlegan áhuga og unnið í því af ótrúlegum krafti,“ segir Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, um ákvörðun Alcoa að halda áfram formlegum viðræðum og stefna að ákvörðun um ál- ver 18. júlí. Smári Geirsson segist vera mjög ánægður með gang mála þar sem viðræður hafi gengið ótrúlega hratt. „Áhugi Alcoa er ótvíræður, það kemur aftur og aftur skýrt fram,“ segir Smári. Hann benti á að síðla í mars hefði verið upplýst um hik Hydro í álverkefninu og þá hefðu ýmsir talið að ekkert myndi gerast í eitt til tvö ár. „Nú eru aðeins liðnir tveir mánuðir og ákvörðun sem Hydro ætlaði að taka í byrjun september, hvort haldið skyldi áfram með verkefnið, ætlar Alcoa að taka 18. júlí, fyrr en eldri áætlun gerði ráð fyrir. Þetta er athyglisvert og sýnir áhuga þeirra,“ segir Smári ennfremur. Smári segir þetta einnig þýða að nú sé í raun opnað fyrir þann möguleika að hefja strax í sumar undirbúningsvinnu vegna Kárahnjúkavirkjunar. „Þær und- irbúningsframkvæmdir gætu því hafist í júlí og það skiptir okkur afskaplega miklu máli hér fyrir austan að Alcoa sýnir þannig áhuga sinn í verki. Þeir hafa unnið hratt en vitanlega njóta menn líka þeirrar undirbúningsvinnu sem þegar hefur farið fram í tengslum við verkefnið,“ segir Smári að lokum. Smári Geirsson Fjarðabyggð Ég er mjög glaður í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.