Morgunblaðið - 24.05.2002, Side 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 49
STEINGRÍMUR J.
Sigfússon formaður
vinstri grænna hefur
þrásinnis að undan-
förnu verið með upp-
hrópanir um bága fjár-
hagsstöðu sveitar-
félaga. Ekki er mér að
fullu ljóst hvort Stein-
grími er meira í mun
að koma höggi á sveit-
arstjórnarmenn fyrir
lélega fjármálastjórn
eða löggjafann fyrir að
veita ekki sveitar-
félögunum nægar
heimildir til tekjuöfl-
unar.
Þetta eru mjög
ómaklegar árásir. Langflestar
sveitarstjórnir hafa á undanförnum
árum sýnt ábyrga fjármálastjórn og
hagur sveitarfélaganna hefur batn-
að enda hafa sveitarfélögin fengið
leiðréttingu á tekjustofnum og ríkið
aðstoðað sveitarfélögin við að ná
tökum á fjármálum sínum.
Allt frá árinu 1991 hafa sveitar-
félögin sem heild verið rekin með
halla. Mestur varð samanlagður
rekstrarhalli sveitarfélaganna,
samkvæmt upplýsingum Þjóðhags-
stofnunnar, kosningaárin 1994 eða
6.811 milljónir og 1998, 4.252 millj-
ónir. Síðan hefur hallinn farið
minnkandi, 1999 var hann 2.714
milljónir, 2000 var hann 2.371 millj-
ónir, 2001 var hann áætlaður 871
milljón og í ár er áætlun Þjóðhags-
stofnunar minnkandi halli.
Vissulega er jafnvægi ekki náð en
staðan hefur þó batnað verulega.
Hafa verður í huga að hér er um
meðaltöl að ræða, samanlagða út-
komu allra sveitarfélaga í landinu
og stórbættur fjárhagur Reykjavík-
ur vegur mjög þungt en árið 1997
námu skuldir borgarsjóðs 96,7% af
skatttekjum borgarinnar en 2001
57,2% af skatttekjum.
Árangur af starfi
eftirlitsnefndar
Eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaga sem lögum samkvæmt
fylgist með fjárhags-
stöðu og fjárhagsáætl-
unum sveitarfélaganna
í landinu sendi í janúar
sl. fyrirspurnir til
þrjátíu og eins sveitar-
félags og óskaði upp-
lýsinga um hvernig
þau hygðust lagfæra
fjárhagsstöðu sína.
Átján þessara sveitar-
félaga hafa að mati eft-
irlitsnefndarinnar gert
fullnægjandi grein fyr-
ir áformum sínum og
hefur nefndin sent
þeim bréf þar sem seg-
ir: „Miðað við fyrir-
liggjandi áform og
áætlanir sveitarstjórnar telur
nefndin ekki ástæðu til að hafa fjár-
mál sveitarfélagsins lengur til sér-
stakrar skoðunar.“
Þessu til viðbótar má geta þess
að átta sveitarfélög eru að gera
grein fyrir áformum sínum og gera
það vonandi með fullnægjandi
hætti.
Stórbætt staða
Á þessu ári hafa mörg sveitar-
félög sem komin voru í fjárþröng
losnað úr skuldafjötrum með sölu
eigna. Salan á Orkubúi Vestfjarða
varð til þess að öll sveitarfélög á
Vestfjörðum eru komin í góða fjár-
hagsstöðu en sum þeirra áttu við
mikla fjárhagserfiðleika að etja.
Sömu sögu er að segja um Sveitar-
félagið Skagafjörð sem eftir sölu á
eignum getur varið fjármunum til
framkvæmda og bættrar þjónustu í
stað þess að nota þá í skuldavexti.
Að sjálfsögðu er aðstaða sveitar-
félaga misjöfn. Sumum þeirra hefur
tekist að einsetja grunnskóla og
byggja íþróttahús án þess að stofna
til verulegra skulda, sem dæmi um
vel rekið sveitarfélag má nefna
Húnaþing vestra. Því miður eru
nokkur sveitarfélög þó ennþá illa
stödd og þurfa aðstoðar við til að
koma fjármálum sínum í lag.
Lausn á vanda félagslega
íbúðakerfisins
Á Alþingi var samþykkt breyting
á lögum um húsnæðismál og var þar
ákveðin fimm ára áætlun um lausn
á vanda sveitarfélaganna vegna fé-
lagslega íbúðakerfisins. Kaup-
skyldu var einnig aflétt ef eigendur
óska og ríki og sveitarfélög munu í
félagi gera félagslega íbúðakerfið
sjálfbært þannig að það íþyngi ekki
fjárhag sveitarfélaga lengur. Árásir
Steingríms J. Sigfússonar á sveit-
arstjórnarmenn og löggjafarvald
eru því mjög ómaklegar.
Fjárhagur
sveitarfélaga
Páll
Pétursson
Höfundur er félagsmálaráðherra.
Fjármálastjórn
Langflestar sveitar-
stjórnir hafa á undan-
förnum árum sýnt
ábyrga fjármálastjórn,
segir Páll Pétursson,
og hagur sveitarfélag-
anna hefur batnað.
Bíldshöfða
Bakhús inni í portinu
Enn meiri
verðlækkun Síðustu
dagar
„Vi› frambjó›endur D-listans bjó›um
alla Reykvíkinga velkomna á kosninga-
skrifstofur Sjálfstæ›isflokksins
í sínu hverfi sí›degis í dag kl. 18-20.“
Komdu í kaffi!
Kristján Gu›mundsson
og Hanna Birna Kristjánsdóttir
Kosningami›stö›in Skaftahlí› 24
Sími: 553 9634 og 553 9632
Sjálfstæ›isfélag Hlí›a- og Holtahverfis
Sími: 553 9650
Sjálfstæ›isfélag Háaleitishverfis
Sími: 553 9642
Opi›: Virka daga kl. 13.00 - 21.00
Helgar kl. 12.00 - 18.00
Benedikt Geirsson
og Margrét Einarsdóttir
Sjálfstæ›isfélag Smáíbú›a-, Fossvogs-
og Bústa›ahverfis
Glæsibæ
Sími: 553 9653
Sjálfstæ›isfélag Langholtshverfis
Sími: 553 9663
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 22.00
Helgar kl. 13.00 - 18.00
Gísli Marteinn Baldursson
og Marta Gu›jónsdóttir
Sjálfstæ›isfélag Árbæjar, Seláss
og Ártúnsholts, Hraunbæ 102 b
Sími: 567 4011
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Gu›laugur fiór fiór›arson
og fiorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Sjálfstæ›isfélag Grafarvogs,
Hverafold 1-3
Sími: 557 7682 og 557 7684
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Vilhjálmur fi. Vilhjálmsson
og Alda Sigur›ardóttir
Sjálfstæ›isfélag Hóla- og Fellahverfis
Sími: 557 7694 og 557 7695
Sjálfstæ›isfélag Skóga- og Seljahverfis
Sími: 557 7694 og 557 7695
Sjálfstæ›isfélag Bakka- og Stekkjahverfis,
Álfabakka 14 a
Sími: 557 7694 og 557 7695
Opi›: Virka daga kl. 17.00 - 21.00
Helgar kl. 13.00 - 16.00
Kjartan Magnússon
og Tinna Traustadóttir
Sjálfstæ›isfélag Vestur- og Mi›bæjar,
Laugavegi 70
Sími: 552 9183
Sjálfstæ›isfélag Austurbæjar
og Nor›urm‡rar,
Laugavegi 70
Sími: 552 9178
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Inga Jóna fiór›ardóttir
og Ívar Andersen
Sjálfstæ›isfélag Nes- og Melahverfis,
Hjar›arhaga 47
Sími: 552 9187
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Jórunn Frímannsdóttir
og Gu›rún Ebba Ólafsdóttir
Sjálfstæ›isfélag Laugarneshverfis,
Laugalæk 6 (vi› hli›ina á Bónusvideo)
Sími: 553 9670
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Haf›u samband vi›
hverfaskrifstofuna flína.
Mundu a› öflugt starf á
kosningaskrifstofunum er
lykilatri›i í baráttu fyrir sigri
Sjálfstæ›ismanna 25. maí.
Viltu leggja
baráttunni li›?