Morgunblaðið - 24.05.2002, Side 51

Morgunblaðið - 24.05.2002, Side 51
að hækkun vísitölu neysluverðs hef- ur heldur ekki verið svo mikil síðan um 1990. Jafnframt eru þessar full- yrðingar einkennilegar í ljósi þeirrar staðreyndar að sátt hefur ríkt meðal námsmannahreyfinganna og meiri- hluta stjórnar LÍN undanfarin ár að hækka grunnframfærsluna í sam- ræmi við hækkun vísitölu og því löngu búið að semja um þann árang- ur sem Vaka státar sig af núna. Frítekjumarkið lækkar Ekki var að þessu sinni haldið áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið við endurskoðunina und- anfarin ár að hækka frítekjumarkið. Það verður að teljast miður að sú kjarabót sem hefur náðst í gegn þar skuli nú ganga að hluta til baka vegna verðlagsþróunar. Frítekju- mark upp á 280.000 kr. er langt und- ir hefðbundnum sumarlaunum stúd- enta og dregur úr möguleikum þeirra til að njóta mannsæmandi við- urværis. Í hinum nýju úthlutunarreglum er einnig vegið verulega að tækifærum einstaklinga á vinnumarkaði til að hefja nám og mörgum þeirra gert það allskostar ókleift. Breytingarn- ar felast í 33% niðurskurði á frí- tekjumarki þeirra og mega þeir nú aðeins hafa um 560.000 kr. í tekjur áður en að námslán þeirra skerðast. Þessi upphæð á að samsvara 9 mán- aða launum eða um 62.000 kr. á mán- uði. Áður áttu námsmenn sem komu úr vinnu í nám rétt á þreföldu frí- tekjumarki áður en lán þeirra byrj- uðu að skerðast, eða 840.000 kr. sem er þó allt of lág tala miðað við að þetta á að samsvara 9 mánaða laun- um. Bókalán lækka Önnur breyting sem er mjög óhagstæð námsmönnum er festing bókalánsins. Bókalánið hefur hingað til verið ákveðin prósenta af grunn- framfærslunni og því hækkað með henni m.a. með tilliti til vísitölu. Nú hefur hins vegar bókalánið verið fest og hækkaði það örlítið. Það grátlega í stöðunni er hins vegar að það hefði hækkað meira sem hlutfall af grunn- framfærslu hefði þessi breyting ekki verið gerð, auk þess munu það ekki hækka með tilliti til vísitölu fram- vegis. Skrefin þurfa að vera stærri og í rétta átt Hornsteinn í hugmyndafræði Röskvu er að tryggja jafnrétti til náms og að stuðla að því að nám verði viðurkenndur lífsstíll í íslensku þjóðfélagi. Til að fólk geti helgað sig námi að fullu þarf einfaldlega að hækka námslánin þannig að þau dugi fyrir framfærslu námsmanna. Ef skrefin verða ekki stærri en það sem stigið var í vor mega íslenskir námsmenn bíða lengi eftir að þetta markmið náist. Höfundar eru stúdentaráðsliðar Röskvu og sitja jafnframt í lánasjóðsnefnd SHÍ. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 51 Bómullar-satín og silki-damask rúmföt Skólavörðustíg 21, sími 551 4050 www.hagkaup.is Útsala Fjöldi gíra: 15 • Teg. gíra: Shimano RD-TY15 grip shift • Bremsur: Tektro 833A • Gaffall: 26" Unicrown Stell: MTB argon • Fylgihlutir: Keðjuhlíf, glitaugu að aftan, framan og einnig á pedölum, gírahlíf. Fjöldi gíra: 24 • Teg. gíra: Shimano ST-EF33 shift EZ Fire shift • Bremsur: Tektro 833A • Gaffall: RST m/dempara •Stell: Y-gerð úr áli m/stillanl. dempurum Fylgihlutir: Glitaugu að aftan, framan og einnig á pedölum, standari og bjalla. Fjöldi gíra: 21 • Teg. gíra: Shimano SLRS40 grip shift Bremsur: Tektro 833A • Gaffall: GM842100V m/demp. Stell: Y-gerð m/dempara • Fylgihlutir: Glitaugu að aftan og framan og einnig á pedölum, gírahlíf. Fjöldi gíra: 18 • Teg. gíra: Shimano RD-TY22GSB grip shift • Bremsur: Tektro 833A • Gaffall: CS-7402 Stell: MTB HI-TEN • Fylgihlutir: Glitaugu að aftan og framan og einnig á pedölum, gírahlíf. Fjöldi gíra: 3 • Teg. gíra: Shimano SG-3C40 Bremsur: Shimano fótbr. að aftan og handbr. að framan • Gaffall: 700C Unicrown • Stell: L gerð Fylgihlutir: Glitaugu að aftan og á pedölum, keðjuhlíf, bretti að framan og aftan, bögglaberi, pumpa, bjalla, lukt að framan, karfa og Spring Clamp sæti. ProStyle Boxer 26" 14.924 kr. Verð áður 19.899 kr . 14.924 kr. Verð áður 19.899 kr . 22.499 kr. Verð áður 29.999 kr . 22.499 kr. Verð áður 29.999 kr . 33.749 kr. Verð áður 44.999 kr . ProStyle Jaguar 26" ProStyle Oncilla 26" ProStyle Lady 26" ProStyle Puma 26" Tilboðið gildir til sunnudagsins 26. maí. ProStyle – alvörumerki í hjólum Markmið ProStyle er að bjóða reiðhjól á góðu verði án þess að slá af kröfum um gæði. Þess vegna notar ProStyle einungis viðurkenndar vörur frá heimsþekktum framleiðendum eins og Shimano og Tektro. ProStyle-hjólin eru þýsk gæðahönnun, framleidd í Taívan og verðið finnur þú hvergi annars staðar. 25% afsláttur af öllum ProStyle fullorðinshjólum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.