Morgunblaðið - 24.05.2002, Page 56

Morgunblaðið - 24.05.2002, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                              BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. KOSNINGAR ykkar Reykvíkinga til borgarstjórnar eru framundan. Kosn- ingabaráttan hefur í of ríkum mæli snúist upp í einvígi tveggja framboða (D- og R-lista) eða jafnvel tveggja ein- staklinga, Björns og Ingibjargar Sól- rúnar, rétt eins og ekkert annað sé til en þessi tvö framboð. Stefnuskrár þessara tveggja fylkinga eru að mestu orðaleppar og „klisjur“ um allt og ekkert. Áróðursmeistarar D- og R- lista hafa reynt að búa til ágreinings- efni og frambjóðendurnir reyna að vera ósammála um allt það sem hugs- ast getur. Framboðsumræðurnar minna um sumt á tvö börn sem eru að kasta sandi og leðju hvort í annað. Þann lærdóm dreg ég af átta ára valdaferli R-listans að það muni skipta fremur litlu máli varðandi starfshætti borgarstjórnar hvort D- eða R-listi hefur vinninginn. Þessi pólitíska staða getur í framtíðinni stuðlað að tveggja flokka kerfi, þar sem kjósendur hefðu einungis tvo mjög áþekka valkosti. Slíkt er lýð- ræðinu skaðlegt og svæfir frjóa hugs- un, en er um leið óskastaða núverandi borgarstjórnarflokka. Það er því fagnaðarefni að Ólafur Magnússon læknir hefur komið fram með þriðja framboðið, F-listann. Hann hefur ákveðnar skoðanir á verndun náttúrunnar og glögga sýn á velferðarmálum aldraðra. Umfram allt er þetta maður sem lætur flokks- valdið ekki kúga sig og gengur póli- tískt „uppréttur“. Heródes og Pílatus urðu vinir á einni nóttu, en ekki verður það sama sagt um Björn og Ingibjörgu Sólrúnu. Hins vegar urðu þau í einu vetfangi sammála um eitt og það er, að telja framboð Ólafs einskis virði og hafa reynt að þegja það í hel með því að beina athyglinni hvort að öðru og þó mest að sjálfu sér. Komist Ólafur ekki inn yrði það miður fyrir eldri borgara – en hann hefur mjög á oddinum mál- efni þeirra – því þá munu borgar- stjórnarflokkarnir báðir telja, að allt tal ellilífeyrisþega um kjör sín sé létt- vægt hjal. Kjósendur Reykjavíkur hafa nú um að velja einræði annaðhvort D- eða R- lista eða þá að kjósa þriðja aflið sem er F-listinn. Okkar stjórnskipan gerir ráð fyrir fjölflokkakerfi með tilheyr- andi samningum og málamiðlunum og hefur slíkt fyrirkomulag viðgeng- ist í sveitarstjórnum víða um land og í landstjórninni. Hví ekki í Reykjavík? Ég bið ykkur því um að taka það til umhugsunar hvort ekki sé rétt að styðja til áhrifa þriðja aflið með því að krossa við F á kjördag, enda er þar í forsvari góður maður með persónu- lega reisn og pólitískt sjálfstæði. GUNNAR GUÐMUNDSSON, frá Heiðarbrún, Freyvangi 15, Hellu. Til frændfólks og vina í Reykjavík Frá Gunnari Gunnarssyni: ÞAÐ er ekki nóg að vera heima hjá sér og horfa á sjónvarpið. Sitja með símann í höndunum og hugsa „það hringir aldrei neinn“. Maður verður einfald- lega að bera sig eftir hlutunum. En hvernig þá? Aðstæður okkar öryrkja eru ekki góðar, því er þessi grein skrifuð. Ég vil reyna að varpa ljósi á þá erfiðu og vonlitlu aðstöðu sem margir öryrkjar eru í hvað varðar húsnæðismál og fé- lags- og heilbrigðisþjónustu. Þeir sem ráða í okkar þjóðfélagi mættu koma meira til móts við okkur og reyna að bæta aðstöðuna. Ég er með MS sjúkdóminn sem hefur valdið því að ég er algerlega upp á aðra kominn og þarf mikla þjónustu, en því miður er hún ekki fyrir hendi. Ég bý í íbúð á vegum Öryrkja- bandalagins en þar er leigan há og þjónustan takmörkuð. Í húsinu er gert ráð fyrir sólarhringsvakt. Meira að segja íbúð fyrir umönnunarfólk en engin fjárveiting virðist til staðar í kerfinu til að veita slíka aðstoð. Að- staðan heima er að vísu góð að því leyti að ég bý í rúmgóðri íbúð, get farið ferða minna á hjólastól innan- dyra og þær manneskjur sem koma og aðstoða mig vinna verk sín vel. Ég fæ heimahjúkrun og aðstoð frá fé- lagsþjónustunni við að borða á kvöld- in og um helgar en fyrir þá þjónustu verð ég að greiða sjálfur. Örorkubæt- ur eru lágar og lítið fæ ég úr lífeyr- issjóði, 4000 kr. á mánuði, þar sem ég var aðeins 22 ára þegar ég datt að mestu út af vinnumarkaðinum. „Hvað á ég að gera?“ Það virðast engin úrræði vera fyrir hendi. Þetta reynir á líkamlega, andlega og fé- lagslega fyrir 33 ára einstakling. Á höfuðborgarsvæðinu eru til tvö hvíldarpláss fyrir fólk yngra en 67 ára og hjúkrunarrými fyrir sama ald- urshóp eru í kringum 50, það segir sig sjálft að það er ekki nærri nóg. En hvað ætti svo sem að gera?  Jú, það mætti bæta þjónustuna við íbúa Öryrkjabandalagsins.  Leggja áherslu á félagsleg sam- skipti, þannig að fólk einangrist ekki.  Auka fræðslu um málefni öryrkja, ég hef ekki valið þessa stöðu.  Það mætti fjölga hvíldar- og hjúkrunarplássum fyrir ungt fólk þannig að það þurfi ekki að fara á elliheimili. Því spyr ég: Hvað er MS-félagið að gera? Hvað er Öryrkjabandalagið að gera? Hvað er ríkisstjórnin að gera? Fyrir fólk eins og mig – Ekki nóg! Getum við öryrkjar gert eitthvað sjálfir? Fyrst og síðast, látum í okkur heyra, því pólitísk umræða er kannski ekki á okkar borði, enda nóg af öðrum í því. EIRÍKUR VERNHARÐSSON, öryrki. Getum við öryrkjar gert eitthvað sjálfir? Frá Eiríki Vernharðssyni: Eiríkur Vernharðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.