Morgunblaðið - 24.05.2002, Page 57

Morgunblaðið - 24.05.2002, Page 57
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 57 ÞAÐ ríkir spenna í íslensku þjóð- félagi, spenna sem stöðugt eykst með hverjum degi, og tekur á sig nýjar myndir með skoðanakönnunum og baráttu hinna ýmsu frambjóðenda fyrir sinn flokk og hans ágæti. Allir eiga þeir í handraðanum betri lausnir en hinir, sem í mótframboði eru og segjast ætla að stýra þjóðarskútunni, eins og á að gera það. Þeim finnst ekkert sjálfsagðara en að stjórn Reykjavíkurborgar og þá einnig þeirra staða, þar sem senn verður kosið, sé í þeirra höndum næstu fjög- ur ár og sjálfsagt miklu lengur. Það er brýnt að gera upp hug sinn og þá ekki aðeins með tilliti til næstu kosninga, sem framundan eru heldur þeirrar, sem hefur eilífðargildi fyrir þig og mig. Það segir í Jósúabók Biblíunnar: „En líki yður ekki að þjóna Drotni, kjósið þá í dag, hverjum þér viljið þjóna.“ (Jósúabók. 24.15.) Sú kosning er meiri öllum öðrum kosningum og aðeins tveir frambjóð- endur eru í kjöri: Jesús, sonur Guðs, sá sem er „Vegurinn, sannleikurinn og lífið“. Frelsari okkar. Hinsvegar mótframbjóðandi hans sem er Satan faðir lyginnar. Það er barist um sál þína, sem er meira virði en allur heim- urinn. Annar boðar með lygi sinni að ekkert sé að óttast allt sé þér í hag, hafðu engar áhyggjur. Þér er alveg óhætt að fljóta sofandi að feigðaósi. Hinn er Drottinn Jesús, sonur lifanda Guðs. Hann segir: „Því svo elskaði Guð heiminn, að Hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á Hann trúir glatist ekki, heldur hafi ei- líft líf.“ (Jóh. 3.16.) Hann kom til þess að þú, með því að trúa á Hann, glatist ekki. Um þetta er ekki kosið á fjög- urra ára fresti, heldur alla daga, með- an lífsklukka okkar tifar. Kjósið því í dag hverjum þér viljið þjóna. JÓHANN F. GUÐMUNDSSON, Sléttuvegi 11, Reykjavík. Kjósið í dag Frá Jóhanni F. Guðmundssyni: VIÐ erum ekki að tala um peninga- greiðslur til öryrkja – heldur það að búa við öryggi heima hjá sér og góða félagslega aðstöðu. Ég er ung kona um fimm- tugt og var í góðu starfi til fjölda ára eða þar til ég greindist með MS-sjúkdóminn og þurfti fljótlega að láta af störf- um. Ég var hepp- in að fá góðar lífeyrisgreiðslur, en á móti skerðast örorkubætur. Ég bý í íbúð á vegum Öryrkja- bandalagsins en engin þjónusta er á staðnum. Ég nýt heimahjúkrunar á morgnana og kvöldin, en þá fæ ég aðstoð við að hátta mig kannski kl. sjö – hálfátta. Það er svo sem allt í lagi ef ég er ekki að fara út, en ef mér er boðið út, t.d. í kvöldmat, fæ ég enga þjónustu það kvöldið. Þeg- ar ég kem heim um kvöldið þarf ég að basla við að koma mér sjálf í rúmið. Þetta hefur oft þær afleið- ingar í för með sér að ég dett og ligg ósjálfbjarga þar til öryggisverðir svara kalli mínu frá öryggishnappn- um og hjálpa mér í rúmið. Ég hef ekkert jafnvægi, keyri um í hjólastól, get hellt upp á kaffi og get drukkið úr kaffibollanum ef ég nota báðar hendur. Það sem bjargar mér er að ég fer alla virka daga í MS-miðstöðina og fæ þar heita máltíð, aðstoð við böð- un og félagslega afþreyingu. Í blokkinni þar sem ég bý er „þjónustuíbúð“ en hún er tóm og það er engin þjónusta þar. En af hverju? – það veit ég ekki. Í svona húsum þyrfti að vera að- staða til samskipta, t.d. sameiginleg kaffistofa þar sem fólk gæti hist, því maður einangrast mikið hver í sinni íbúð. Ég sé fyrir mér sambýli þar sem ég væri með eitt herbergi fyrir mig sjálfa og sameiginlega stofu þar sem fólk gæti hist og spjallað sam- an. Hvað stendur öryrkjum til boða þegar við getum ekki lengur bjarg- að okkur ein í íbúð? Stendur til að gera eitthvað fyrir okkur sem þannig er ástatt fyrir? Því til þess að komast á hjúkr- unarheimili þarf maður að vera 67 ára. Ég er bara fimmtug! INGA KJARTANSDÓTTIR, öryrki, Sléttuvegi 9, Reykjavík. Öryggi innan heimilisins Frá Ingu Kjartansdóttur: Inga Kjartansdóttir UPPGANGURINN í Kópavogi er ein af þessum frægu álfasögum sem vafrað hafa um holt höfuðborgar- svæðisins undanfarin ár. Í Kópavogi er allt betra en í Reykjavík, segir sag- an. Fólksfjölgunin er örari…og…- og...og… þar endar samanburðurinn. Í fimm ár hafa Sjálfstæðismenn borið saman tvö stærstu sveitarfélög- in án þess að minnast á neitt af því sem skiptir líf íbúanna máli. Menning! Félagsþjónusta! Og fjár- mál! Eigum við ekki að skemmta skrattanum og fara í samjöfnuð og draga ályktanir í anda kosningabar- áttunnar. Byrjum á vaxtagreiðslunum. Ekk- ert svíður einstaklingi einsog að borga háa vexti. Vextir eru blóðpen- ingar sem er blætt í ekki neitt. Vaxta- greiðslur á hvern íbúa í Kópavogi eru tvöfaldar á við Reykjavík; Ályktun: Fjármál Reykjavíkur eru að fara í hundana en í Kópavogi er vönduð stjórn manna sem vanda sig við að styrkja sveltandi fjármagnseigendur. Og áfram með samjöfnuðinn: Framlag til menningarmála í Reykja- vík er nær þrefalt á við Kópavog. Ályktun: Miðborg Reykjavíkur er að koðna niður í tilgangslausu menning- arlífi en í Kópavogi er tónlistarsalur. Framlag til æsku- og íþróttamála í Reykjavík er nær tvöfalt á við Kópa- vog. Ályktun: Æskan í Reykjavík er múruð inni í félagsmiðstöðvum en í Kópavogi hleypur hún um alfrjáls. Félagsþjónustan í Reykjavík er nær tvöfalt öflugri miðað við íbúa en í Kópavogi. Ályktun: Reykjavík er fá- tæktargildra en Kópavogur gefur lágtekjufólki frjálst val um að búa annars staðar. Allur samjöfnuður Kópavogs og Reykjavíkur er draum- ur Pollýönnu á móti opinberum sann- indum. Yfirburðir Reykjavíkur eru svo augljósir. Og ég hef ekki minnst á stjórnunaraðferðirnar, lýðræðið og spillingarmálin. Kúnstin við að stjórna bæjarfélagi er að halda því í jafnvægi. Þannig að það vaxi jafnt og þétt án þess að vöxturinn komi niðrá þjónustu við þá íbúa sem fyrir eru. Ályktun: Kjósum núverandi meiri- hluta! Ekki viljum við góða stjórn í Kópavogi? Eða hvað? Viltu það? (Heimild: Árbækur Sambands ís- lenskra sveitarfélaga 1990-2001) ÞORVALDUR LOGASON, Skjólbraut 7, Kópavogi. Kópavogur – Reykjavík Frá Þorvaldi Logasyni: Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi, Austurvegi 3, 800 Selfossi, sími 482 2849 - fax 482 2801- fasteignir@log.is Skrifstofu okkar hefur verið falið að selja fiskeldisstöðina að Eyjarlandi við Laugarvatn. Stöðin er 500 m² eldishús, 900 m³ eldisrými úti og inni, vatn 400 l á sek. sjálfrennandi. Einnig er fyrir hendi möguleiki á framleiðslu á 35 kw. raforku. Stöðin stendur á 3ja ha leigulóð. Í stöðinni eru nú um 25 tonn af bleikju í stærðinni 50-600 grömm. Nánari uppl. og myndir á heimasíðu Bleikjubæjar ehf., www.bleikja.is og einnig á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi. FISKELDI PRÓFARKALESTUR er nauðsyn- leg þjónusta sem greinarhöfundar eru þakklátir fyrir. Hins vegar verða menn að geta treyst því að merkingu ritsmíða sé ekki breytt að höfundum forspurðum. Frumskógar skammstafana eru vandrataðir og mikilvægt að fara þar með gát. Í grein minni Líflína Alfreðs.Net sem birtist í Morgun- blaðinu í gær hafði í meðferð blaðsins skammstöfuninni Kb/s verið breytt í KB/s. Litla b er skammstöfun fyrir bita (e. bits) sem notað er um flutn- ingshraða en stóra B er notað um bæti (e. Bytes) sem notað er um minni í tölvum. Þessi, að því er virðist litla, breyting blaðsins, gerði því þann kafla greinarinnar merkingarlausan og höfundinn þar með líka í augum þeirra sem vit hafa á þessum málum. GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR, Þykkvabæ 16, Reykjavík. Ofvirkni í próf- arkalestri? ÞEIR sem fylgjast vel með barátt- unni í borgarstjórnarkosningunum og tala við væntanlega kjósendur fá ýmsar spurn- ingar um fullyrð- ingar sem ekki er allar hægt að finna í greinum dagblaðanna. Sjálfstæðisflokk- urinn gerir mikið af því að tala við einstaka kjós- endur og „fræða þá“ um alls kyns málefni sem varða andstæðinginn, Reykjavíkurlistann. Verða hér rak- in tvö dæmi um slíka „fræðslu“. Mikið ber á því að fullyrt sé að ekki sé verið að kjósa Ingibjörgu Sólrúnu sem borgarstjóra. Hún muni hætta sem borgarstjóri eftir eitt ár eða svo. Viðkomandi áróð- ursmaður Sjálfstæðisflokksins kveðst hafa fyrir þessu öruggar heimildir „úr innstu herbúðum R- listans“. Yfirleitt er sagt að í stað hennar muni Alfreð Þorsteinsson verða borgarstjóri, þetta er gert í vissu þess hve lítið fylgi Fram- sóknarflokkurinn er talinn hafa í Reykjavík. Nú er nánast óþarfi að taka fram að saga þessi er uppspuni frá rót- um. Ingbjörg Sólrún hefur marg- tekið fram opinberlega að hún bjóði sig fram til borgarstjóra allt kjörtímabilið næstkomandi eða til ársins 2006. Þetta er svo margsagt að blaðagreinar um málið eru hér um bil hættar að birtast. Þó kom ein slík falsgrein í Morgunblaðinu 16. maí, sennilega eftir kosninga- smala sem hafði ruglast á eigin ósannindum og raunveruleikanum. Sóðalegri er lygin um náin tengsl Reykjavíkurlistans við ein- stakling sem er einn þeirra fjór- menninga sem sæta ákæru auk Árna Johnsens vegna máls hans. Hér er byggt mjög á fréttum Morgunblaðsins um mál þetta nema öllum fyrirvörum blaðsins er sleppt og Árni Johnsen er bókstaf- lega tengdur Reykjavíkurlistanum. Þessi rógur kemur á óvart. Enginn hjá Reykjavíkurlistanum hefur í kosningabaráttunni bent á að það var Björn Bjarnason, menntamála- ráðherra, sem skipaði Árna John- sen formann byggingarnefndar Þjóðleikhússins. En það breytir engu um það að einstaka ákafa- menn meðal kosningasmala Sjálf- stæðisflokksins hafa, með vissri að- stoð Morgunblaðsins, reynt að tengja Reykjavíkurlistann við Árnamál. GUÐNÝ ARADÓTTIR, Úthlíð 6, Reykjavík. Það sem sagt er í kosningabaráttu Frá Guðnýju Aradóttur: Guðný Aradóttir ♦ ♦ ♦ Kaffibollar Cappucino verð kr. 2.700 Mokka verð kr. 1.890 Kaffikönnur verð kr. 1.890 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mánudag-föstudag 11-18, laugardag 11-15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.