Morgunblaðið - 24.05.2002, Side 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
sumar
Nú eru komnar spennandi vörur fyrir sumarið í Mogga-
búðina, kjörið tækifæri fyrir fríska ferðalanga. Þú getur
keypt boli, sundpoka, töskur, golfvörur, geisladiskahulstur,
klukkur, reiknivél o.fl. á einstöku verði beint af Netinu með
öruggum hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og
færð þær sendar heim til þín eða á vinnustað.
Líttu inn hjá okkur
fyrir ferðalagið!
Hvítur bolur,
nú 500 kr.
Brúnn bolur,
nú 500 kr.
Armbandsúr,
nú 750 kr.
Þú getur líka komið við hjá okkur í Morgunblaðshúsinu,
Kringlunni 1, og skoðað vörurnar þar.
EINFALT OG ÞÆGILEGT!
sumartilboð
50% afsláttur!
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
Derhúfa, aðeins 800 kr.
Síðermabolir, aðeins 1.300 kr.
Sundpoki, aðeins 1.000 kr.
Reiknivél, aðeins 950 kr.
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.
Músarmotta, aðeins 450 kr.
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.
í Moggabú›inni
Í KVÖLD fer fram val á fegursta
kvenmanni Íslands við hátíðlega at-
höfn í Broadway. Alls keppa nú 24
stúlkur um krúnuna góðu og eiga
þær það sameiginlegt að hafa kom-
ist áfram í þeim sjö undankeppnum
sem haldnar hafa verið víða um
land.
Að sögn Elínar Gestsdóttur,
framkvæmdastjóra keppninnar,
hefur undibúningurinn gengið eins
og í sögu.
„Stúlkurnar hafa verið í líkams-
þjálfun, ljósum og trimmformi. Allt
verður gert til að líta sem best út á
stóra kvöldinu,“ sagði Elín.
„Þær hafa einnig tekið sér tíma
til að kynnast og skemmta sér sam-
an. Síðustu dögum vörðu þær til
dæmis í ferð upp á hálendi Íslands.“
Fjöldi skemmtiatriða verður í
boði á kepninni sjálfri. Norska
söngkonan Noora tekur lagið,
strengjakvartett leikur undir er
stúlkurnar koma fram á kvöld-
kjólum og sýnt verður atriði úr
dans- og söngsýningu sem frum-
sýnd verður í Broadway í haust.
Hápunktur kvöldsins verður svo að
sjálfsögðu þegar Ragnheiður Guð-
finna Guðnadóttir, ungfrú Ísland
árið 2001, krýnir arftaka sinn.
Kynnar kvöldsins verða Bjarni
Ólafur Guðmundsson og Margrét
Rós og verður sjónvarpað beint frá
Skjá einum.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Ragnheiður Guðnadóttir, ungfrú Ísland árið 2001.
„Hér á landi
fegurst er…“
Fegurðardrottning Íslands á Broadway í kvöld
ÞAÐ er fengur að útgáfum sem
þessum, því hér fá fleiri en þeir sem
sækja hipp-hoppsamkundur að meta
hvað í gangi er í íslenska rappgeir-
anum. Enn fremur
eru diskar sem
þessir ómetanlegar
heimildir um tón-
listarsögulega þró-
un hérlendis.
Í Skandinavíu-
löndum eins og
Danmörku og Svíþjóð dafnar hipp-
hoppmenning, og þar er vitað mál að
ætli menn að öðlast trúverðugleika,
rappa þeir á móðurmálinu. Þetta
hafa ungir íslenskir rapparar einnig
tileinkað sér – loksins leyfist mér að
segja því um árabil hefur það fjarri
verið raunin. Vinsældir XXX Rott-
weilerhunda, svo og sterkar útgáfur
frá Sesari A og Afkvæmum guðanna
virðist hafa ýtt á þetta sjálfsagða
„mál“ og hér rappa allir á íslensku –
fyrir utan þrjá.
Íslenskt mál er langt í frá ómþýtt,
og fellur kannski ekkert sérstaklega
vel, sem slíkt, að rappforminu. Mað-
ur fer ósjálfrátt að pæla í því, hvern-
ig finnska rappheiminum heilsast …
En þegar menn komast á flug og
ná góðu „flæði“ hljómar þetta svo
eðlilega. Að sama skapi hljómar „út-
lenska“ rappið nokkuð út úr kú hér.
Ég meina … til hvers?
Svo virðist einnig sem „íslenskt
rapp“ sé farið að taka á sig mynd,
sem ákveðinn stíll. Lögin eru jafnan
hröð og beinskeytt; með hvössum
textum, hverra umfjöllunarefni er í
flestum tilfellum annaðhvort dóna-
skapur eða hormónalegar vangavelt-
ur um lífið og tilveruna. „Diss“ og
dónaskapur að hætti Rottweiler er
nokkuð algengur hér og sú stemma á
það til að vera bæði leiðigjörn,
ófyndin og fyrirsjáanleg til lengdar,
ef skammturinn er of mikill.
Sjálf tónlistin er oftast í aukahlut-
verki, þar sem aðalmálið er að hafa
„funky drummer“ taktinn sterkan
undir. Og rappið flæðir misvel eins
og við fáum að sjá.
Fyrsta lagið, „Drusla“ á Freydís
Kristófersdóttir. Hörkusvalt lag,
flutt af öryggi og snerpu. Lína eins
og „Þinn reður er hætt að sjúga/því
þú gerir ekkert annað en að ljúga“
skellur á manni eins og „besta“
kjaftshögg. Sannarlega kraftmikil
byrjun og hvatning til stúlkna til að
beita þessu listformi fyrir sig í aukn-
um mæli. Framlag Freydísar færði
henni enda fyrsta sætið í sjálfri
keppninni.
Nokkrir eiga þá virkilega góða
spretti á diskinum. Igore, sem
syngja hið vinsæla „Hverju hef ég að
tapa?“ eiga hér hið frábæra „Sekur-
saklaus“ og Óli Palli og Trausti flytja
vel saminn og melódískan óð, „Nýir
tímar“. Einnig eiga Diplomatic’s,
Pabbi minn og Pudel góð innslög –
hinir síðarnefndu reyna reyndar vel
á þanþol smekkvísinnar. En komast
upp með það, þar sem þeir eru svo
skrambi öruggir á þessu. Kristín Ýr
Bjarnadóttir kemst og vel frá sínu.
Sumt hér, en ekki margt, er held-
ur of hraðsoðið. Sjálfstæði á t.d.
fremur stirt lag og Young Gods eru
hálfstefnulausir í sínu. Upplýsinga-
bækling hefði þá mátt prófarkalesa
betur.
Tónlist
Á íslensku
má alltaf
rappa svarið
Ýmsir
Rímnaflæði 2001
Geimsteinn/Samfés/Miðberg
Rímnaflæði 2001 inniheldur upptökur
með listamönnum sem tóku þátt í þriðju
Rímnaflæðikeppninni, sem fram fór í fé-
lagsmiðstöðinni Miðbergi í Reykjavík,
30. nóvember á síðasta ári. Lög eiga
Freydís Kristófersdóttir, Diplomatic’s, Óli
Palli og Trausti, Mc Einfari, Pudel, Sjálf-
stæði, Pabbi minn, Mc I. Mediary og DJ
Nasi, Igore, MC Steinbítur, Kristín Ýr
Bjarnadóttir, Young Gods, Mc Tony, tP
and the Fuck Faces & Dyzan, Sesar A og
loks Antlew/Maximum og dj. M.A.
63,10 mínútur.
Arnar Eggert Thoroddsen