Morgunblaðið - 24.05.2002, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SAMKOMULAG var undirritað í gær milli Fjár-
festingarstofunnar – orkusviðs og aðstoðarfor-
stjóra Alcoa um að halda viðræðum áfram vegna
mögulegrar þátttöku bandaríska álrisans í bygg-
ingu álvers í Reyðarfirði. Gildir samkomulagið til
18. júlí en fyrst var viðræðuáætlun undirrituð fyr-
ir rúmum mánuði. Hefur Alcoa áform uppi um að
byggja 320 þúsund tonna álver í einum áfanga og
fjármagna það alfarið á eigin reikning. Að sögn
Johns Pizzey, aðstoðarforstjóra Alcoa, eru góðar
líkur taldar á að af framkvæmdum verði af þeirra
hálfu. Verði sú niðurstaðan mun Landsvirkjun
hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Kára-
hnjúkavirkjunar á ný.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur
Alcoa mikinn áhuga á að kaupa Reyðarál, sem er í
eigu Norsk Hydro og íslenskra fjárfesta í Hæfi og
undirbúið hefur álver í Reyðarfirði. Beinist áhugi
Alcoa að því að fá til sín sem mest af gögnum og
upplýsingum sem Reyðarál býr yfir frá undirbún-
ingsvinnu síðustu ára. Hefur fyrirtækið varið
hundruðum milljóna króna til verksins, einkum
vegna umhverfismats. Sömu heimildir blaðsins
herma að Norðmenn hafi tekið illa í þessar hug-
myndir Alcoa, ólíkt íslensku fjárfestunum, en ekki
náðist í stjórnendur Norsk Hydro í gær til að fá
þetta staðfest.
Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Reyð-
aráls og framkvæmdastjóri Hæfis, vildi ekki stað-
festa í samtali við Morgunblaðið að formlegar við-
ræður um sölu Reyðaráls til Alcoa hefðu farið
fram, en samtöl hefðu vissulega átt sér stað. Geir
sagði það ljóst að Alcoa hefði hag af því að fá sem
mestar og bestar upplýsingar um verkefnið. Rætt
yrði við fulltrúa Alcoa á næstu vikum, fyrir því
væri jákvæður vilji af hálfu íslenskra fjárfesta.
Davíð Oddsson forsætisráðherra átti fund með
John Pizzey í gær. Hann segir að jákvæð skref
hafi verið stigin en sjálfsagt sé að hafa allan vara á
í ljósi fyrri reynslu. „Mér sýnist á öllu að menn séu
að ræða málin af mikilli alvöru og miklum þunga,“
segir Davíð.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, átti sömuleiðis fund með Pizzey í gær.
Hún segir samkomulag um áframhaldandi við-
ræður gefa tilefni til bjartsýni um að álver rísi loks
í Reyðarfirði. Um sé að ræða jákvætt skref en
málið sé alls ekki í höfn. „Við færumst nær og nær
því markmiði okkar að hefja álvers- og virkjana-
framkvæmdir á Austurlandi, enda erum við komin
það langt með málið af hálfu íslenskra stjórnvalda
að erfitt yrði að snúa til baka,“ segir Valgerður.
Viðræðum haldið áfram næstu sjö vikur við Alcoa vegna álvers í Reyðarfirði
Alcoa hefur áhuga á
að kaupa Reyðarál
Teljum að/34–35
REYKJAVÍKURLISTINN mælist
með 51,6% fylgi og Sjálfstæðisflokk-
urinn með 43,5% samkvæmt svörum
þeirra sem afstöðu tóku í skoðana-
könnun sem Félagsvísindastofnun
gerði fyrir Morgunblaðið dagana 18.
til 22. maí.
F-listi Frjálslyndra og óháðra
mælist með 4,2% fylgi, H-listi Húm-
anista 0,5%, A-listi Höfuðborgarsam-
takanna 0,0% og Æ-listi Vinstri-
hægri snú 0,1%.
Munurinn á fylgi stóru framboð-
anna hefur aukist frá síðustu könnun
Félagsvísindastofnunar sem gerð var
dagana 6. til 9. maí en þá var fylgi R-
listans 48,8%, D-listans 45,9% og F-
listans 4%.
Í könnuninni var spurt hvaða flokk
eða lista svarendur myndu kjósa ef
borgarstjórnarkosningar færu fram á
morgun og til að fækka óákveðnum
voru þeir sem svöruðu „veit ekki“
spurðir hvaða lista eða flokk þeir
teldu líklegast að þeir myndu kjósa.
Eftir fyrri spurninguna voru 14,8%
óákveðin en eftir þá seinni var hlutfall
óráðinna komið niður í 6,6% og 2,8%
neituðu að svara.
Ef aðeins er tekið tillit til þeirra
sem nefndu annaðhvort D-lista eða R-
lista mælist fylgi D-listans 45,7% og
R-listans 54,3%. Munurinn er töl-
fræðilega marktækur þar sem vik-
mörk eru 3,36 prósentustig til eða frá.
48% nýrra kjósenda styðja R-
lista, 41% D-lista og 7% F-lista
Skv. niðurstöðum könnunarinnar
segjast tæp 86% þeirra sem kusu D-
listann í síðustu kosningum ætla að
kjósa hann aftur nú, en rúm 80%
þeirra sem kusu R-listann síðast ætla
að kjósa hann aftur. 5,3% þeirra sem
kusu D-listann síðast segjast ætla að
kjósa R-listann nú og rúm 9% þeirra
sem kusu R-listann síðast segjast
ætla að kjósa D-listann nú.
Rúm 48% þeirra sem ekki höfðu
kosningarétt í síðustu kosningum
segjast ætla að kjósa R-listann, tæpt
41% þeirra ætlar að kjósa D-listann
og rúm 7% ætla að kjósa F-listann.
Úrtakið í könnuninni, sem fór fram
um síma, var 1.200 manns á aldrinum
18–80 ára. Valið var af handahófi úr
þjóðskrá og nettósvörun var 71,4%.
Könnun Félagsvísindastofnunar á fylgi í Reykjavík
R-listi með 51,6%,
D-listi með 43,5%
5
/
6
78/
!
" #$ $! %& '
.69%
-69
/69
FÁTT er eins hressandi og góður
göngutúr í mildum regnúða eins og
þetta par reyndi í gærkvöldi þar
sem það arkaði á gangstíg við Sæ-
brautina. Þótt brautin væri ekki
bein var hún sæmilega breið, að
minnsta kosti fyrir tvo jafnfljóta og
ekki að sjá að eigendur þeirra öm-
uðust við regninu. Víst er að gróð-
urinn tekur vætunni fagnandi og
má ætla að grös og trjásprotar, sem
þegar eru farnir að skarta sum-
arlitunum, verði senn enn grænni.
Morgunblaðið/Golli
Í regnúða
á bugðóttu
brautinni
DULDAR áfengisauglýsingar
eru töluvert algengar í vinsæl-
um fjölmiðlum á Íslandi að því
er fram kom í rannsókn sex ís-
lenskra framhaldsskólanema á
áhrifum fjölmiðla á lífsstíl ungs
fólk sl. haust.
Lára Ósk Hjörleifsdóttir
segir að mjög algengt hafi verið
að þáttastjórnendur eða áhorf-
endur hafi verið að drekka
ákveðna tegund áfengis í út-
sendingu.
Þónokkuð hafi verið um að
fram kæmi að bjórfyrirtæki
styddu ákveðnar uppákomur
eða sjónvarpsþætti.
Sólveig Skaftadóttir segir að
duldar áfengisauglýsingar séu
hvað mest áberandi í fjölmiðl-
um ætluðum ungu fólki.
„Ég nefni PoppTíví, Skjá-
Einn, og Sýn og nokkrar af út-
varpsstöðvum Norðurljósa eins
og FM 957 og Radio-X. Sömu
sögu er að segja af blaðmiðlum
eins og Undirtónum, Séð &
heyrt og Fókusi. Aftur á móti
komu fjölmiðlar eins og Morg-
unblaðið, Rás 1 og Rás 2 og
Stöð 2 vel út úr fjölmiðlavakt-
inni.“
Duldar
áfengis-
auglýs-
ingar
Duldar B/2–3
EFTIR kaup á 15% hlut í Össuri hf.
er sænski fjárfestingarsjóðurinn
Industrivärden orðinn annar stærsti
hluthafi fyrirtækisins, aðeins stofn-
andi þess, Össur Kristinsson, á
stærri hlut, eða tæpan fjórðung
hlutafjár. Seljendur hlutafjárins
voru félag í eigu Össurar Kristins-
sonar, Kaupþing og Össur hf.
Gengi hlutafjárins við söluna var
49 krónur á hlut og heildarandvirði
þeirra bréfa sem skiptu um hendur
var tæpur 21⁄2 milljarður króna.
Lokagengi Össurar hf. á Verð-
bréfaþingi í gær var 51,50 og hækk-
aði það um 3,90 í viðskiptum dagsins,
eða um 8,2%. Skráð heildarviðskipti
voru rúmir 2,7 milljarðar króna.
Forstjóri Össurar hf., Jón Sig-
urðsson, lýsir ánægju með kaup
sænska sjóðsins og telur að þeim
geti fylgt aukinn áhugi annarra er-
lendra fjárfesta.
15% í
Össuri hf.
seld til
Svíþjóðar
Industrivärden/ 22
Átta/6
ÍSLANDSBANKI hefur ákveðið að
lækka verðtryggða útlánsvexti um
0,3 prósentustig frá og með næstu
mánaðamótum.
Lækkunin er tilkomin vegna þess
að ávöxtunarkrafa verðtryggðra
skuldabréfa á markaði hefur farið
lækkandi á undanförnum vikum.
Íslands-
banki lækk-
ar vexti
um 0,3%
Íslandsbanki/26
♦ ♦ ♦