Morgunblaðið - 02.06.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablaðið „Í góðum gír“
frá Ingvari Helgasyni. Blaðinu
verður dreift um allt land.
GUÐJÓN Guðmundsson, varafor-
maður stjórnar Sementsverksmiðj-
unnar hf., segir að í athugun séu
ýmsir möguleikar á að bregðast við
lágu verði dönsku sementsverk-
smiðjunnar Aalborg-Portland. Hann
vill þó ekki gefa upp hverjar þær
eru. Guðjón segir augljóst að um
undirboð sé að ræða hjá dönsku
verksmiðjunni, í þeim tilgangi að
knésetja Sementverksmiðjuna og
leggja undir sig íslenska markaðinn.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að tonnið af lausu sementi kostaði
1.000 danskar krónur í Færeyjum í
apríl. Nýverið féll úrskurður sam-
keppnisráðs vegna kæru Sements-
verksmiðjunnar á hendur danska
fyrirtækinu og var hann á þá leið að
ekki væri tilefni til aðgerða. Sem-
entsverksmiðjan hefur nú kært fyr-
irtækið til Eftirlitsstofnunar Efta
(ESA) og stendur athugun á því máli
yfir.
Erfitt að hefja
starfsemi á ný
Aðspurður segir Guðjón að erfitt
muni reynast að hefja aftur starf-
semi ef danska fyrirtækið nær að
bola Sementsverksmiðjunni af
markaði og hækkar svo verð í skjóli
þess. „En það er síður en svo mögu-
leiki í okkar huga. Ásetningur okkar
er að halda verksmiðjunni gangandi
og berjast fyrir því. Ef svo illa færi
myndi hún hins vegar ekki fara svo
glatt í gang aftur,“ segir hann. Hann
segir að framleiðsla Sementsverk-
smiðjunnar sé einhver sú alíslensk-
asta sem til sé. „Sandurinn er af
hafsbotni, líparítið úr Hvalfirði, raf-
magn frá íslenskum virkjunum og ís-
lenskt vinnuafl. Við megum auðvitað
ekki láta undan síga með það ætl-
unarverk okkar að halda verksmiðj-
unni gangandi,“ segir hann.
Beðið úrskurðar ESA
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, segir að málið
hafi farið sína lögbundnu leið í kerf-
inu. Kært hafi verið til samkeppn-
isráðs, sem hafi komist að fyrr-
nefndri niðurstöðu. Nú sé beðið
úrskurðar frá ESA og hún geti á
þessu stigi máls ekki gefið neinar yf-
irlýsingar.
Varaformaður stjórnar
Sementsverksmiðjunnar
Ýmsir mögu-
leikar í skoðun
BERGLIND Eik Guðmundsdóttir
útskrifaðist frá Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ 25. maí sl. með
meðaleinkunnina 9,7. Þar með varð
hún dúx skólans. Berglind var í svo-
kölluðu hraðnámi, þar sem hún var
með það góðar einkunnir úr grunn-
skóla, og lauk því stúdentsprófinu á
þremur árum.
Þrátt fyrir það tókst henni að
dúxa, en 9,7 er meðaltal einkunna
úr öllum áföngum sem hún tók á
þessum árum. Fékk hún fjórar átt-
ur, átta níur og rúmlega fjörutíu tí-
ur.
Berglind, sem verður nítján ára í
sumar, segir aðspurð í samtali við
Morgunblaðið að það hafi að sjálf-
sögðu kallað á ákveðna vinnu að ná
góðum árangri. Einnig skipti máli
að ná ákveðinni tækni. „Þetta er
spurning um að vinna jafnt og þétt,
mæta í tímana, ná góðum glósum
og lesa efnið vel yfir,“ segir hún.
Jafnframt því sem hún sinnti nám-
inu var hún gjaldkeri nemenda-
félags Fjölbrautaskólans í Garða-
bæ. Einnig segist hún stunda
íþróttir. Í viðurkenningarskyni fyr-
ir góðan námsárangur hlaut Berg-
lind ýmsar bækur í verðlaun á út-
skriftardaginn. Aðspurð hvað hún
hyggist taka sér fyrir hendur í
haust segist Berglind stefna á lækn-
isfræði við Háskóla Íslands.
Berglind Eik er dúx FG
Fékk fjörutíu tíur
Morgunblaðið/Þorkell
ÞJÓNUSTUSAMNINGI milli barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítala – háskólasjúkrahúss,
Barnaverndarstofu og SÁÁ hefur verið sagt upp
og segir Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir
barna- og unglingageðdeildar, að þar með verði
stórlega dregið úr þjónustu deildarinnar. Í blaðinu
í gær kemur fram að Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra og Magnús Pétursson, forstjóri LSH,
telji að málið sé á misskilningi byggt og ekki
standi til að draga úr þjónustunni að neinu leyti
eða segja neinu starfsfólki upp.
Ólafur segist vona að um misskilning sé að
ræða, en segir jafnframt að þau skilaboð sem
hann, sem yfirlæknir, og deildarstjóri unglinga-
geðdeildar fengu á fundi á föstudaginn, með sviðs-
stjórum geðsviðs, hafi verið að samningurinn
myndi renna út á miðnætti á föstudag og þess
vegna yrðu þau að gera ráðstafanir til að mæta
þeirri staðreynd. „Ég hef ekki fengið nein önnur
formleg skilaboð, þannig að við höfum tekið
ákvörðun um að vaktþjónusta, sú sem að í gildi
hefur verið, verði ekki lengur til staðar, sem og öll
þjónusta, sem kveðið er á um í ákvæðum samn-
ingsins,“ segir hann og bendir á að það breytist
ekki nema hann fái formlegar fyrirskipanir um að
annað gildi.
Fagnar yfirlýsingu ráðherrans
Að hans sögn á það eftir að koma í ljós hvaða
áhrif þessar ráðstafanir eiga eftir að hafa á deild-
ina, en hins vegar segist hann fagna yfirlýsingu
ráðherrans um að það sé fullur vilji til að gera nýj-
an þjónustusamning. „Það er alveg ljóst að sá
þjónustusamningur verður ekki með sama hætti
og núverandi þjónustusamningur, það hefur kom-
ið í ljós í þeim viðræðum sem hafa verið í gangi.
Það eru ákveðin atriði samningsins sem allir aðilar
eru mjög sáttir við, atriði sem hafa breytt miklu í
þjónustu við börn og unglinga með geð- og hegð-
unarraskanir en það eru hins vegar einnig ágrein-
ingsatriði sem hafa ekki verið útkljáð,“ segir Ólaf-
ur og telur veigamesta ágreiningsatriðið vera
hvernig fjármagn samnings hefur verið nýtt.
Magnús Pétursson segir í blaðinu í gær að það
sé ekki hluverk Ólafs á spítalanum að gefa út
fréttatilkynningar, en Ólafur er ósammála. Hann
telur það skyldu sína að upplýsa almenning og alla
þá fjölmörgu aðila, sem að eigi mikið undir þjón-
ustu barna- og unglingageðdeildar komið, um
þessa stöðu og annað sem kunni að skipta máli í
þessu samhengi, enda beri hann mikla ábyrgð á
deildinni. „Þótt formlegt valdsvið yfirlæknis sé
reyndar verulega takmarkað og fari ekki saman
við ábyrgðarsviðið, þá er það réttur yfirlæknis að
tjá sig um þessi atriði,“ bendir hann á og segir það
í samræmi við læknaeiðinn og jafnframt samvisku
sína.
Höfum ekki fengið nein
önnur formleg skilaboð
HÁTÍÐ hafsins, samstarfsverkefni
Sjómannadagsráðs, Reykjavíkur-
hafnar og Reykjavíkurborgar, er
haldin um helgina í tilefni sjó-
mannadagsins. Hátíðin hófst í gær-
morgun með því að skipsflautur
voru þeyttar, en hún fer að mestu
leyti fram á Miðbakka.
Þéttskipuð dagskrá er í boði alla
helgina, allt frá heimsmeistara-
keppni í kúluspili á sandi til erinda
um konur og kvóta og ættu allir
aldurshópar að finna eitthvað við
sitt hæfi. Í gærmorgun var sigl-
ingakeppni Brokeyjar ræst með
fallbyssuskoti fyrir framan Sjáv-
arútvegshúsið á Skúlagötu og var
myndin tekin við það tækifæri.
Morgunblaðið/Þorkell
Hátíð hafsins
ÁRNI Steinar Jóhannsson, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, segir að sér skiljist
að yfirmenn Samherja og Útgerðar-
félags Akureyringa hafi lagst gegn
því að hann flytti hátíðarræðu á sjó-
mannadagshátíðinni, sem haldin er á
Akureyri í dag. Þeir hafi hótað að
styrkja ekki framkvæmd hátíðar-
haldanna. Hann segir þetta alvarlegt
mál, að menn geti haft slík áhrif með
peningum sínum.
Árna hefur verið tilkynnt að hann
flytji ekki ræðuna eins og fyrirhugað
var, en Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra var feng-
in í hans stað.
Árni segist hafa talað við forsvars-
menn ÚA og Samherja og þeir tjáð
honum að óviðunandi væri að maður
með slíka stefnu í sjávarútvegsmál-
um flytti ræðuna. „Mér er sagt að
fyrirtækin hafi hótað að styrkja ekki
sjómannadaginn yrði ég ræðumaður.
ÚA var að vísu, að mér skilst, búið að
láta fé af hendi, en hótaði að starfs-
menn myndu ekki mæta á ballið um
kvöldið,“ segir hann.
Að sögn Árna er málið erfiðara en
virðist í fyrstu. „Það er nú farið að
fjúka í flest skjól ef þessir menn ætla
að fara að ráða öllu. Þeir geta svo
sem sagt að þeir hafi aðeins tjáð
skoðun sína, en auðvitað er ekki tek-
in svona ákvörðun nema fyrir mikinn
þrýsting,“ segir hann.
Vísar ásökunum á bug
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, vísar því á bug að
fyrirtækið hafi haft í hótunum um að
sniðganga hátíðarhöldin, eða beitt
sér fyrir því að skipt yrði um ræðu-
mann. „Ég sagði einungis að það
væri óheppilegt, miðað við að menn
vildu ná meiri sátt í sjávarútvegs-
málum, að hann yrði fenginn sem
ræðumaður. Við styrktum sjó-
mannadagsráð eins og venjulega og
hótuðum ekki að sniðganga hátíðar-
höldin,“ segir hann. „Meðal annars
munum við halda hátíðarkaffi fyrir
Auðunsbræður, sem voru skipstjór-
ar á fyrstu árum félagsins um og
uppúr 1950.“ Hann segir að nú sé
viðkvæmur tími í kjölfar nýrra laga
um auðlindagjald og að ljóst sé að
meiningar um þau séu afar misjafn-
ar.
Ásgrímur Sigurðsson, formaður
sjómannadagsráðs á Akureyri, neit-
aði að tjá sig um málið við Morg-
unblaðið í gær.
Skipt um ræðumann á sjómannadagshátíð
Valgerður fengin í
stað Árna Steinars
Á mbl.is verður í dag opnuð
sýning á myndum Þorkels Þor-
kelssonar frá Palestínu og Ísr-
ael sem hann tók á ferð sinni
þar nýverið. Sýningin er undir
fyrirsögninni Palestína.