Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 35
leikamæling, sem sýndi svart á hvítu
hvort kjósendur vildu fremur styrkja
Samfylkinguna eða vinstri-græna
sem öflugt mótvægi við Sjálfstæðis-
flokkinn. Úrslitin eru öllum ljós.
Kjósendur völdu Samfylkinguna.
Hún átti sér bakland meðal næstum
þriðjungs kjósenda. Samfylkingin
naut yfirburðafylgis meðal kjósenda
á vinstri vængnum. Kosningar eru
prófsteinn raunveruleikans. Þær
sýndu, að fylgi Samfylkingarinnar er
til í raunveruleikanum, svo minnt sé á
orð leiðarahöfundar Morgunblaðsins.
Samfylkingin gegn
flokkakerfinu
Mér þótti athyglisvert að lesa að
leiðarhöfundur Morgunblaðsins taldi
fróðlegt að sjá, hvort Frjálslynda
flokknum tækist ná fótfestu í kosn-
ingunum, og halda þannig áfram at-
lögu sinni að fjórflokkakerfinu. Hon-
um virðist yfirsjást, að þyngsta
atlagan að fjórflokknum var gerð
með stofnun Samfylkingarinnar. Í
henni fólst einbeitt tilraun til að sam-
eina jafnaðarmenn í einum flokki, og
búa til þriggja flokka kerfi. Hvort
menn höfðu erindi sem erfiði í þeim
leiðangri kemur líklega ekki í ljós
fyrr en að afloknum þarnæstu þing-
kosningum.
Orð leiðara Morgunblaðsins gefa
hins vegar tilefni til að vekja eftirtekt
á þeirri stöðu sem nú er komin upp á
sveitarstjórnarstiginu. Þar er fjór-
flokkurinn í reynd dauður. Í stað
hans lifa þrír öflugir flokkar góðu lífi.
Það eru Sjálfstæðisflokkurinn, Sam-
fylkingin og Framsókn. Vinstri-
grænir eru tæpast til á sveitarstjórn-
arstiginu. Stofnun Samfylkingarinn-
ar fyrir tveimur árum var öðrum
þræði uppreisn gegn flokkakerfinu
og tilraun til að búa til nýja stöðu í ís-
lenskum stjórnmálum. Niðurstaða
kosninganna á laugardaginn sýnir að
sú tilraun hefur þegar tekist á sveit-
arstjórnarstiginu. Morgunblaðið hef-
ur að vísu ekki botnað leiðarann, en
miðað við forsendurnar sem höfund-
ur hans gefur sér má ætla að sterkar
líkur séu á að í næstu þingkosningum
takist tilraun Samfylkingarinnar líka
á landsvísu.
Seigla og
trúverðugleiki
Eitt er að hafa óánægjufylgi í
könnunum. Annað er að fá raunveru-
legan stuðning í kosningum. Sam-
fylkingin hefur sannarlega stundum
átt undir högg að sækja. Ég get hik-
laust fullyrt, að enginn annar stjórn-
málaflokkur býr yfir jafnmikilli
seiglu og Samfylkingin. Hvað sem á
hefur dunið hefur Samfylkingin alltaf
haldið sig við málefnin, og agað klass-
íska jafnaðarstefnu sína við þarfir nú-
tímans. Hún hefur forðast upphlaup
og æsingar, og ekki hikað við að
styðja ríkisstjórnina þegar hún hefur
unnið að góðum málum.
Samfylkingin hefur því sýnt að hún
er heiðarlegur og trúverðugur stjórn-
málaflokkur. Það er galdurinn á bak
við velgengni hennar í kosningunum
á laugardaginn. Kjósendur völdu
Samfylkinguna af því þeir treysta
henni best til að verða hið sterka og
málefnalega afl sem íslensk stjórn-
mál þurfa vinstra megin á miðjunni.
Samfylkingin er að verða þroskað-
ur stjórnmálaflokkur. Hún hefur öðl-
ast trúverðugleika í augum kjósenda.
Í þeirra augum er Samfylkingin öfga-
laust og málefnalegt mótvægi við of-
urveldi Sjálfstæðisflokksins. Það er
hin sögulega niðurstaða kosninganna
á laugardaginn.
Höfundur er formaður Samfylking-
arinnar.
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 35
www.gitarskoli .com
Upplýsingar í síma 581 1281
gitarskoli@gitarskoli.com
Gítarnámskeið
Fyrir alla aldurshópa, byrjendur og lengra komna
Hefst 10. júní
4 vikur, kennt 2x í viku