Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán kl. 4, 6.Ísl tal. Vit nr. 370.
kvikmyndir.is
MBL
Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 4. Ísl tal. Vit 358.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára. Vit 375.
Sýnd kl.2, 4, 6 og 8.
Mán kl. 4, 6 og 8. Vit 379.
Hasartryllir ársins.
Sýnd kl. 10. B. i. 16. Vit 377.
kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Sýnd Kl. 4, 6, 8, 10 og 11.30.
Mán kl. 4, 6, 8, 10B.i. 12 ára Vit 382.
Sýnd kl. 8. Sýnd í lúxus kl. 6 og 9. B. i. 16. Vit 380.
J I M C A R R E Y
T H E M A J E S T I C
1/2kvikmyndir.is
1/2
Kvikmyndir.is
Sánd
RadioX
/
i i i
i
STUART TOWNSEND AALIYAH
FRUMSÝNING
This time there are no interviews
Frá Anne Rice, höfundi Interviewwitha Vampire, kemur
þessi magnaða hrollvekja með Stuart Townsend og
Aaliyahí aðalhlutverki, en þetta var jafnframt
hennar seinasta mynd.
150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti
DV
Sýnd sunnud kl. 2. Ísl tal. Vit 338
Sýnd Kl. 3.45, 5,50, 8, 10.10 og 11.15.
Mán kl. 3.45, 5,50, 8, 10.10.B.i. 16 ára Vit 385.
Kvikmyndir.com
„Snilld“
HK DV
Sýnd kl. 5.45 og 8.
ÓHT Rás 2
1/2HK DV
HL Mbl
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Mán kl. 8 og 10.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Treystu mér
1/2
Kvikmyndir.is
Sánd
RadioX
/
i i i
i
Sýnd kl. 9. B. i. 16. Sýnd kl. 6, 8 og 10.30.Sýnd kl. 10.15. Bi 16.
HK DV
HJ Mbl
MULLHOLLAND
DRIVE
JOHN Q.
Sýnd kl. 6.
Hér er hinn nýkrýndi Óskarsverð-
launahafi Denzel Washington
kominn með nýjan smell. Hér leik-
ur hann JOHN Q, föður sem tekur
málin í sínar hendur þegar sonur
hans þarf á nýju hjarta að halda
og öll sund virðast lokuð.
FRUMSÝNING
Óskarsverðlaunahafarnir Kevin Costner og
Kathy Bates fara á kostum í dularfullum
og yfirnáttúrulegum trylli í anda
THE SIXTH SENSE.
ÞEGAR ÁSTVINUR DEYR... ER HANN ÞÁ HORFINN AÐ EILÍFU?
Ó.H.T Rás2
SK RadioX
Eruð þið tilbúin?
ÞAÐ er hverjum manni
ljóst sem flettir myndasög-
unni Harum Scarum eftir
Lewis Trondheim að bókin á
rætur sínar að rekja til evr-
ópsku myndasöguhefðarinn-
ar. Í fyrsta lagi er það stærðin
(sem skiptir máli). Bókin er í
sama broti og bækurnar um
Ástrík, Sval og Val, Tinna,
Lukku Láka, Viggó Viðutan
og aðrar þær frönskumælandi
hetjur sem gefnar voru út í ís-
lenskri þýðingu á áttunda og
níunda áratugnum. Þann tíma
mætti reyndar kalla gullöld
,,íslenskra“ myndasagna því
þá var gefinn út heill hellingur
af þýddum merkisritum í
þessum geira. Sumum þeirra
var jafnvel gert það hátt undir
höfði að hljóta harða kápu í
takt við þá íslensku hefð að
bækur skuli vera sem ending-
arbestar. Stærðin gerir
myndmálið skýrara og ein-
hvern veginn meira (segir sig
nú eiginlega sjálft) en í því A4
broti sem maður á að venjast í
enskumælandi myndasögum.
Í öðru lagi hefur teiknistíll-
inn mjög óengilsaxneska
áferð. Trondheim leikur sér
með mjög einfaldaðar persón-
ur sem allar bera einkenni
dýra. Pennastrikin eru oft og
tíðum óregluleg og titrandi
sem gefur lesandanum það á
tilfinninguna að teiknarinn
hafi bara rissað myndirnar
upp og látið síðan gott heita.
Reglustika kemur hvergi
nærri teikniborðinu. Þessi
tækni er að sjálfsögðu hugsuð
í þaula og Trondheim byggir
teikningarnar á eldgamalli
hefð þar sem einn af göldr-
unum felst einmitt í þessu ná-
kvæmnisleysi. Þessi stefna
gefur teikningunum lífrænna
yfirbragð en sú dauðhreins-
unar- og fínstillingarárátta
sem oft er að finna í banda-
rískum og breskum mynda-
sögum. Maður getur lengi
dundað sér við að fletta bók-
inni og dást að þeirri færni
sem Trondheim sýnir með
þesum vanmetna teiknistíl.
Í þriðja lagi er söguefnið al-
veg einstaklega afslappað.
Harum Scarum er afþreying
og sýnir enga tilburði í aðrar
og dýpri áttir. Engum lífsgát-
um er svarað, tilvistarpæling-
ar eru sendar í sumarfrí og
gagnrýni á ríkjandi öfl eða
ábendingar um betra heims-
skipulag eru lokaðar inni á
stofnun fyrir fýlupoka. Sagan
er að stofninum til leynilöggu-
saga með skrímslaívafi þar
sem aðalsöguhetjan, kanínan
McConey, flækist inn í dular-
fullt mál. Meginuppistaðan er
þó grín og glens á kostnað
þess konar sagna og það er
engin hætta á því að menn fái
martraðir eða kaldan svita af
spenningi eftir lesturinn.
Fimmaurabrandararnir ráða
hér ríkjum og þegar lestri er
lokið situr eftir dágóð summa
af brosum og léttleika. Trond-
heim veit sem er að þeir sem
bókin var upprunulega stíluð
á (franskir lesendur) njóta
myndasagna á svolítið annan
hátt en bræður þeirra og syst-
ur vestanhafs og hinum megin
við sundið. Myndasagan fær
að njóta sín á kostnað upp-
skrúfaðs innihalds eða æðis-
genginna ofurhetjudáða.
Hefðin er fyrir græskulausu
gamni og sést það best á þeim
snaggaralegu myndasögum
sem nefndar voru hér í upp-
hafi greinarinnar.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Þá erum við komin
til meginlandsins
Myndasaga vikunnar er bókin
Harum Scarum eftir Lewis Trond-
heim. Fantagraphics Books gefur
út 1997. Bókin fæst í mynda-
söguversluninni Nexus.
Blaðamaður á heljarþröm í Harum Scarum.
Heimir Snorrason
SÚ NÝJUNG virðist
nú ná að heilla hverja
stórstjörnunna á fæt-
ur annarri að leyfa
aðdáendum sínum að
fylgjast með sér allan
sólarhringinn. Hvort
þessi nýi áhugi á
rætur sínar að rekja
til velgengni Ozzy
Osbourne fjölskyld-
unnar skal hinsvegar
látið ósagt.
Hjónaleysin Kid
Rock og Pamela And-
erson eru að sögn óð
og uppvæg að koma
fyrir myndavélum á
heimili sínu og senda út all-
an sólarhringinn. Fyrrver-
andi eiginmaður Andersons,
trommarinn Tommy Lee,
hefur einnig lýst yfir áhuga
á að sjónvarpa lífi sínu.
Nýjustu fregnir herma svo
að fyrirsætan og fyrrver-
andi Playboy-kanínan Anna
Nicole Smith ætli að setja á
laggirnar sinn eigin raun-
veruleika-sjónvarpsþátt.
Smith er þó trúlega
þekktari fyrir afrek sín í
einkalífinu heldur en fyr-
irsætuferil en hún hefur
staðið í málaferlum und-
anfarin ár um arf fyrrver-
andi eiginmanns hennar.
Hún giftist 89 ára millj-
arðamæringi, J. Howard
Marshall, árið 1994 en hann
lést svo ári síðar. Smith og
sonur Marshall eyddu svo
næstu árum á eftir í dómsal,
þar sem reynt var að skera
úr um hver væri eiginlegur
erfingi hins látna.
Nú hefur Smith ákveðið
að opna dyrnar fyrir alheim-
inum og leyfa áhugasömum
að fylgjast með ævintýrum
sínum. Auk Smith munu lög-
fræðingur hennar og aðstoð-
armaður koma mikið við
sögu í þáttunum.
Útsending allan
sólarhringinn
Anna Nicole Smith býður öllum
að gægjast inn á heimili sitt.
Reuters