Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Traust menntun í framsæknum skóla Hársnyrtibraut og fataiðnabraut eru meðal eftirsóttustu námsbrautum Iðnskólans í Reykjavík. Hársnyrtar starfa á hárgreiðslu- og rakarastofum. Þeir koma einnig við sögu í tískuheiminum og margir fyrrum nemendur okkar hafa unnið til verðlauna á sýningum innanlands og utan. Í klæðaskurði og kjólasaum er mikil áhersla lögð á sniðagerð og tæknilega hönnun karlmanna- og kvenfatnaðar. Námið er góður undirbúningur undir framhaldsnám í fatahönnun eða skyldum greinum. IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 www.ir.is • ir@ir.is Hönnunarsvið Flott hár og falleg föt Academy of Multimedia Design Kolding - Danmörku Fjölmiðlunarhönnuður • Tveggja ára alhliða nám í: Grafískri hönnun Viðmótshönnun Samskiptarannsóknum Verkefnastjórnun og viðskiptahagfræði • Enskukennsla • Stuðningur við erlenda nemendur: Ráðgjöf Húsnæði og fæði Félagslíf • Staðsett í Kolding sem er miðsvæðis í Danmörku. Þar er ávallt mikið um að vera á sviði menningar og mennta. • Nemendur frá Norðurlöndunum þurfa engin skólagjöld að greiða. Námið heyrir undir hið opinbera danska menntakerfi. • Kennsla hefst í september 2002 Mætið á upplýsingafund í Reykjavík. föstudaginn 14. júní kl. 13.00 á Radisson SAS Saga Hótel, við Hagatorg, 107 Reykjavík, salur D. Tilkynnið þátttöku í e-pósti til jsk@ceukolding.dk. Nánari upplýsingar fást á vefsíðunni www.multimediedesigner.com eða hjá Jens Skov í síma +45 793 20100. Einnig er hægt að senda tölvupóst til jsk@ceukolding.dk Að kunna skil á samskiptum í hinum nýja miðli S ko vv an ge n 28 - 6 00 0 K ol d in g - E -m ai l: ce uk ol d in g@ ce uk ol d in g. d k Safnaðarheimilið Kirkjuhvoli Kvennakór Garðabæjar heldur vor- tónleika sína kl. 20. Efnisskrá spannar allt frá þjóðlögum til djass- standarda. Einnig verður frumflutt lag eftir Karólínu Eiríksdóttur við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur sem samið var sérstaklega fyrir kór- inn. Píanóleikari er Helga Laufey Finn- bogadóttir, kontrabassaleikari er Guðjón Þorláksson og kórstjóri er Ingibjörg Guðjónsdóttir. Kvennakór Garðabæjar er að ljúka sínu 2. starfsári og kórmeðlimir eru 33. Mótel Venus í Hafnarskógi Lokatónleikar Tónlistarfélags Borg- arfjarðar á 35. starfsárinu verða kl. 20.30. Gunnar Ringsted ogfélagar flytja funheitan swingdjass í anda sígaunans Django Rheinhard, blús- lög og rólegar ballöður. Auk Gunn- ars, sem leikur á gítar, eru í hljóm- sveitinni þeir Dan Cassidy fiðluleikari, Ingvi Rafn Ingvason trommuleikari, Jón Rafnsson bassa- leikari og Kristján Guðmundsson pí- anóleikari. Gestasöngvari verður Guðríður Ringsted. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is HANNES Lárusson, sem beið lægri hlut fyrir Pjetri Stefánssyni í for- mannskjöri Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM), segir að í bígerð sé að stofna ný samtök, enda sé óánægja meðal starfandi mynd- listarmanna með störf stjórnar sam- bandsins. Hannes segir að sambandið hafi ekki verið málsvari starfandi lista- manna. „Og alls ekki þess hóps fé- lagsmanna sem telst vera framsæk- inn og metnaðarfullur. Sá hópur hefur orðið undir,“ segir hann. Á aðalfundi sambandsins, sem haldinn var á miðvikudag, var Pjetur Stefánsson endurkjörinn formaður með 111 atkvæðum, Hannes hlaut 69 atkvæði, en Áslaug Thorlacius 63. Í stjórn voru kosin Ragnhildur Stef- ánsdóttir, Þorvaldur Þorsteinsson og Einar Garibaldi. Í varastjórn voru kjörin Ósk Vilhjálmsdóttir og Valgarður Gunnarsson. Einar og Ósk sögðu af sér strax á fundinum, af óánægju með niðurstöðu hans. Kosin var þá ný varastjórn og náðu kjöri Pétur Örn Friðriksson og Inga Elín Kristinsdóttir. Pétur Örn sagði svo af sér. Framboð gegn formanni af svipuðum toga Hannes segir að framboð Áslaug- ar til formanns hafi verið að vissu leyti af sama toga og hans, eiginlega klofningsframboð. „Til þess kom meira af misskilningi en af ágrein- ingi,“ segir hann. Hann segir hugmynd að stofnun nýrra samtaka hafa verið til í nokkur ár. „Menn hafa talið að tími sé kom- inn til að stofna samtök starfandi listamanna, sem væru málsvari þeirra en ekki þeirrar breiðfylkingar sem myndar SÍM og samanstendur að mestu leyti af lítið starfandi áhugafólki,“ segir hann. Hann segir að ákveðið hafi verið að láta einu sinni enn á það reyna hvort hægt sé að breyta SÍM innanfrá, en nú sé það fullreynt og lítið að gera annað en að stofna ný samtök. Afgerandi kosning Um kosninguna á aðalfundinum segir Pjetur Stefánsson formaður það að vissu leyti vera gott að menn takist á. Þarna hafi baráttan snúist um túlkun á lagagreinum. „En nið- urstaðan í formannskosningu var sú að ég hlaut mikið traust og afgerandi kosningu,“ segir hann. Hann vill ekki tjá sig ítarlega um afstöðu þeirra sem sögðu af sér. „Auðvitað er ekki gott þegar fólk segir af sér. Þetta er ágætis fólk, en það verður að gera þetta upp við sig sjálft. Samkvæmt kosningafyrirkomulagi ganga næstu menn inn í stjórnina,“ segir hann. Ný samtök í bígerð Morgunblaðið/Golli Hannes Lárusson Óánægja innan Sambands íslenskra myndlistarmanna SÖNGSKÓLINN í Reykjavík tók formlega við nýju húsnæði skólans við Snorrabraut í gær kl. 16.30. Árið 1978 keypti skólinn Hverfisgötu 45, norska sendiráðið, af norska ríkinu. Nú, 24 árum og næstum 3.000 nem- endum síðar, hefur skólinn keypt Snorrabraut 54 af tölvufyrirtækinu Oz, en húsið er betur þekkt sem hús Osta- og smjörsölunnar. Fyrsti kennarafundur í nýjum heimkynn- um skólans var haldinn strax í gær klukkan fimm. Garðar Cortes skólastjóri segir að nýja húsnæðið muni breyta miklu fyrir starfsemi skólans. „Rýmið eykst gífurlega og við verðum með stærri sali og meira rými fyrir söng- kennsluna. Við flytjum úr 450 fer- metra húsnæði í 800 fermetra hús og 280 fermetra húsi í 380 fermetra hús, þannig að þetta breytir öllu fyr- ir okkur og er miklu rýmra um starfsemina. Þarna eru líka fjörutíu bílastæði og ýmislegt fleira prakt- ískt.“ Á Hverfisgötunni kom Söng- skólinn sér upp annexíu, Smáranum við Veghúsastíg, sem var tónleika- salur skólans. Smárinn var seldur eins og stærra húsið, en á Snorra- brautinni fær Söngskólinn nýjan sal. „Það er góður 150 manna salur nú þegar í húsnæðinu, en svo er þarna líka matsalur og eldhús og margt fleira sem er öðruvísi en á Hverf- isgötunni. Nú er bara að flytja sál- ina af Hverfisgötunni upp á Snorra- braut, en ég hef engar áhyggjur af því að það takist ekki með því góða fólki sem er búið að vera með mér öll þessi ár og hefur búið til þessa góðu sál Söngskólans.“ Morgunblaðið/Kristinn Garðar Cortes tekur lagið ásamt félögum sínum við afhendingu nýja húsnæðis Söngskólans. Söngskólinn í Reykjavík flytur um set
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.