Morgunblaðið - 02.06.2002, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 02.06.2002, Qupperneq 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 29 Félagsþjónustan í Reykjavík veitir í samvinnu við Félagsráðgjöf Háskóla Íslands námsstyrki fyrir skólaárið 2002–2003. Styrkirnir eru eingöngu veittir karlmönnum sem stefna að löggiltu starfsréttindanámi í félagsráðgjöf og sem hafa lokið a.m.k. eins árs námi á háskólastigi. Styrkurinn er kenndur við Þóri Kr. Þórðarson, prófessor og fyrrum borgarfulltrúa, sem var brautryðjandi nútíma félagsþjónustu í Reykjavík. Markmið styrkveitingarinnar er að fá fleiri karla til ráðgjafarstarfa hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík og stuðla að jafnrétti undir formerkjum jákvæðrar mismununar, sem felur í sér að ef hallað er á annað kynið sé réttlætanlegt að grípa til tímabundinna aðgerða til að jafna kynjahlutfall í ákveðnum stéttum og atvinnugreinum. Styrkveitingin er jafnframt hluti samstarfs Félagsþjónustunnar við Félagsráðgjöf Háskóla Íslands, en það samstarf felur m.a. í sér starfsþjálfun félagsráðgjafarnema, rannsóknarsamstarf og kostun tímabundinnar lektorsstöðu í félagsráðgjöf. Umsækjendur þurfa að leggja fram skriflega umsókn þar sem eftirfarandi atriði koma fram: Nafn, kennitala, heimilisfang og fjölskylduaðstæður. Upplýsingar um starfs- og námsferil. Stutt ritgerð með hugmyndum umsækjanda um félagsráðgjöf og mikilvægi þess að karlmenn laðist að greininni. Það skilyrði fylgir úthlutun styrksins að styrkþegi skuldbindi sig til starfa hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík í a.m.k. eitt ár eftir að starfsréttindanámi lýkur. Umsóknarfrestur er til 10. júní nk. Umsóknum skal skila til skrifstofu félagsmálastjóra, Síðumúla 39, 108 Reykjavík (tölvupóstfang: felags@fel.rvk.is). Sérstök úthlutunarnefnd, skipuð fulltrúum Félagsþjónustunnar í Reykjavík og Félagráðgjafar Háskóla Íslands, velur væntanlega styrkþega úr hópi umsækjenda. Styrkir til háskólanáms fyrir karla Félagsmálastjórinn í Reykjavík. K O R T E R Á hluthafafundi Búnaðarbanka Íslands hf., sem haldinn var þann 16. febrúar 2002, var samþykktur samruni Gildingar fjárfestingafélags ehf. við Búnaðarbanka Íslands hf. Samþykkt var að hlutafé yrði aukið að nafnverði allt að 799.664.020 kr. með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar féllu frá forgangsrétti sínum til hlutafjár- aukningarinnar, en veittu hluthöfum Gildingar, öðrum en Búnaðarbankanum forgangsrétt til að skrá sig fyrir hinum nýju hlutum. Áskrifendum var veitt heimild til að greiða fyrir hina nýju hluti með hlutum í Gildingu fjárfestingafélagi ehf. Verðbréfaþing Íslands hf. hefur þann 28. febrúar 2002 skráð hlutafjárhækkun í Búnaðarbanka Íslands hf., samtals að nafnverði 799.664.020 kr. á Aðallista Verðbréfaþings Íslands hf. í samræmi við lög og reglur Verðbréfaþings Íslands hf. Hlutabréfin voru ekki boðin í almennri sölu. Skráningarlýsingu, sem og önnur gögn sem vísað er í, má nálgast hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum, Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Skráningarlýsingu má einnig nálgast á heimasíðu Búnaðarbankans www.bi.is Skráningarlýsing vegna hlutafjárhækkunar í Búnaðarbanka Íslands hf. þann 28. febrúar 2002 Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Sími: 525-6060. Fax: 525-6099. Aðili að Verðbréfaþingi Íslands. Austurstræti 5, 155 Reykjavík, kt. 490169-1219. HÁDEGISTÓNLEIKAR Lista- hátíðar í Hafnarhúsinu hafa gengið vel, og aðsókn góð. Sú var einnig raunin á fimmtudag, þegar Eydís Franzdóttir lék þrjú einleiksverk, Via di gelata eftir Ríkharð H. Friðriks- son, Ortus eftir Atla Heimi Sveinsson og ásjónur kvöldsins eftir Elínu Gunnlaugsdóttur. Aðeins verk Atla hefur heyrst áður, þá á erlendri grund, þannig að öll voru verkin að heyrast í fyrsta sinn hér á landi. Það er því talsverð þrekraun hjá Eydísi að bjóða upp á slíkt á einum litlum há- degistónleikum. Verkin þrjú voru ákaflega ólík. Ríkharður samdi sitt verk í Siena á Ítalíu árið 1990. Það er kannski best hægt að lýsa verkinu sem léttri glettu. Þriggja tóna skali lítillar þríundar ólmast við að brjótast úr eigin viðjum og tekst um stund- arsakir með útúrdúrum í ýmsar áttir. Skemmtilegt verk þótt það léti lítið yfir sér. Verk Atla Heimis var burðarás tónleikanna, Ortus, eða fæðing, sam- ið 1991 fyrir sænska óbóleikarann Helenu Jahren. Atli skipar verkinu í flokk með hugleiðsluverkum sínum; þar er þekktast sellóeinleiksverkið Úr ríki þagnarinnar. Verk Atla reyndist kynngimagnað, þar sem hver taug tilfinngaskalans var þanin í stórbrotinni „fæðingu“ tónlistarinnar. Niðurlag verksins var sérstaklega áhrifamikið, þar sem tón- listin smám saman fjaraði út og hljóð- færaleikarinn hvarf sjónum tónleika- gesta. Hvenær er verkið búið? Hvenær er fæðingu mannsins lokið, áður en hann hverfur inn í mann- mergð hins svokallaða veruleika? Þetta var sterkt og áhrifamikið verk. Ásjónur kvöldsins var lokaverk tónleikanna, eftir Elínu Gunnlaugs- dóttur, samið undir áhrifum frá sam- nefndu ljóði eftir Óskar Árna Ósk- arsson. Sex þættir verksins eru tónbirtingar sumra þeirra mynda sem Óskar Árni dregur upp í ljóðinu. Ólíkt glettu Ríkharðar og innhverfu drama Atla Heimis var verk Elínar ljóðrænt og jafnvel myndrænt. Tón- rænn tröppugangur í kaflanum um Bláu kjallaratröppurnar, og tvíhljóm- andi óbó í Hljómi munnhörpunnar. Í lokaþættinum, Í myrku laufi og í dauflýstum rúðum, tókust á tvö stef, – það dauflýsta falleg útfærsla á stef- broti úr þjóðlaginu Ljósið kemur langt og mjótt. Fínt verk hjá Elínu. Eydís Franzdóttir var í miklum ham á hádegistónleikunum á fimmtu- dag. Hvert verk var fallega mótað af næmri tilfinningu hennar fyrir stíl og karakter. Leikur hennar í verki Atla Heimis var ekkert minna en stór- fenglegur í þeim gríðarlegu hamför- um sem þar voru. Þetta voru góðir tónleikar og hálftíma matarhléi vel varið í upplifun sem þessa. Kynngimögnuð fæðing TÓNLIST Einleikstónleikar Eydís Franzdóttir óbóleikari lék þrjú ís- lensk verk, Via di gelata eftir Ríkharð H. Friðriksson, Ortus eftir Atla Heimi Sveinsson og ásjónur kvöldsins eftir El- ínu Gunnlaugsdóttur. Þetta var Íslands- frumflutningur allra verkanna. Fimmtudag kl. 12.30. LISTASAFN REYKJAVÍKUR Bergþóra Jónsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.