Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 13
ÞAÐ vantaði ekki líf í Laug-
ardalshöll á laugardag þegar
tuttugu og fjögur íþróttafélög
kynntu þar starfsemi sína. Kynn-
ingin var haldin í tengslum við
Sportdag Landsbankans, sem
fram fór sama dag.
Á kynningunni gátu gestir og
Morgunblaðið/Golli
Kraftmik-
il kynning
í Höllinni
Laugardalur
gangandi viðað að sér upp-
lýsingum um íþróttagreinar á
borð við golf, fimleika, skák,
körfubolta, knattspyrnu,
hjólabretti og frjálsar íþrótt-
ir svo eitthvað sé nefnt.
Þekktar íþróttahetjur á borð
við landsliðsmenn í handbolta
veittu áhugasömum eig-
inhandaráritun, hægt var að
kanna golfhæfileikana á þar
til gerðum púttbrautum og
fjörkálfar gátu fengið útrás á
trampólínum utan við Höll-
ina.
Hér er það Edda Blöndal
sem kennir tveimur kraft-
miklum strákum und-
irstöðuatriðin í karate og eru
þeir harðir í horn að taka af
myndinni að dæma.
að vera með timburhús sem væri fær-
anlegt. Eftir að það brann sóttu þeir
um að fá að byggja tveggja hæða
steinhús en það er hins vegar ekki
heimilt samkvæmt skipulagslögun-
um.“
Sigurður segir að ekkert sé því til
fyrirstöðu að Ásgarður fái að byggja
færanlegt timburhús í stað þess sem
brann og á fundi hans og forsvars-
manna Ásgarðs í gær hafi þetta verið
rætt. Niðurstaða þess fundar hafi
verið að Ásgarðsmenn hygðust sækja
um byggingu slíks húss nú þegar.
En hvað þá með framtíðarstarf-
semi Ásmegin í Lækjarbotnum? „Það
er mun flóknara mál sem við höfum
sagt að við værum tilbúnir til að
ræða. Það er dálítið mál að skipu-
leggja íbúðabyggð svona langt í burtu
frá bænum. Þarna verður allt starfs-
fólk og allar íbúðir innan eins sveitar-
félags að hafa sama rétt þannig að við
yrðum að veita sömu þjónustu og
annars staðar.“
Hann segir bæinn hins vegar tilbú-
inn til að framlengja núverandi samn-
ing þannig að hann gildi í tíu ár héðan
í frá eða til ársins 2012. Hann segir
ekki koma til greina að afgreiða deili-
skipulag umrædds reitar þannig að
hægt sé að tryggja framtíðarveru Ás-
megin á svæðinu. „Maður deiliskipu-
leggur ekki örlítinn skika þannig að
öll byggð í kring verði síðar að taka
tillit til hans heldur deiliskipuleggur
maður stærra svæði og fellir þetta
inn í þannig að vel fari með vegagerð,
ræsum, lögnum og öðru slíku,“ segir
hann.
2002 til 2003 er Reykjavíkurflugvöll-
ur skilgreindur sem áætlunarflug-
völlur í flokki I, þ.e. flugvöllur sem
þjónar innanlandsflugumferð og er
varaflugvöllur fyrir þotuumferð. Þá
kemur fram í samkomulagi milli sam-
gönguráðherra og borgarstjóra frá
1999 að Reykjavík verði miðstöð inn-
anlandsflugs til 2016.
Segir í greinargerð Skipulags-
stofnunar að ríkisvaldið virðist ekki
hafa markað stefnu um flugsamgöng-
ur til jafnlangs tíma og gert er í að-
alskipulagi Reykjavíkur, þ.e. til árs-
ins 2024. „Þó liggur ekki fyrir að uppi
séu áform af hálfu ríkisvaldsins um
að leggja Reykjavíkurflugvöll niður
sem miðstöð innanlandsflugs, flug-
vallar fyrir æfinga-, kennslu- og
einkaflug og varaflugvallar fyrir
millilandaflug,“ segir í greinargerð-
inni.
Mælt með staðfestingu
með fyrirvara
Þá segir í greinargerðinni: „Skipu-
lagsstofnun fellst [...] ekki á að sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu geti
tekið bindandi ákvörðun í svæðis-
skipulagi um að leggja Reykjavíkur-
flugvöll niður í áföngum á meðan ekki
liggur annað fyrir af hálfu ríkisins en
að miðstöð innanlandsflugs, varaflug-
vallar millilandaflugs á SV-horninu
og æfinga-, kennslu- og einkaflugs á
höfuðborgarsvæðinu sé á Reykjavík-
urflugvelli.“ Segir að öðru máli hefði
gilt ef sett hefði verið fram almenn
stefnuyfirlýsing um vilja sveitarfé-
laganna til að vinna þessu máli braut-
argengi hjá samgönguyfirvöldum.
Segir að þannig virðist vera ósam-
ræmi á milli stefnu svæðisskipulags-
ins og stefnu samgönguyfirvalda á
landsvísu og telur stofnunin af þeim
sökum ekki unnt að mæla með stað-
festingu Svæðisskipulags höfuðborg-
arsvæðisins 2001–2024 hvað varðar
stefnu um flugsamgöngur. „Skipu-
lagsstofnun mælir því með því við
umhverfisráðherra að Svæðisskipu-
lag höfuðborgarsvæðisins 2001–2024
verði staðfest með fyrirvara um
stefnumörkun sem tekur til Vatns-
mýrarinnar og flugsamgangna,“ seg-
ir í greinargerðinni. „Staðfesting
stefnumörkunar svæðisskipulagsins
um Vatnsmýri og flugsamgöngur sé
háð því að fyrir liggi samkomulag
Reykjavíkurborgar og samgöngu-
ráðherra um landnotkun og flug-
starfsemi á Reykjavíkurflugvelli út
skipulagstímabilið 2001–2024.“