Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 32
UMRÆÐAN 32 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ T vö þúsund og tveir mínus eitt þúsund níu hundruð áttatíu og tveir. Látum okkur nú sjá; tveir mínus tveir eru núll, einn að láni; níu, tíu. Tíu mínus átta eru tveir, níu mínus níu eru núll og einn mínus einn eru víst líka núll. Jú, ekki ber á öðru en 20 ár séu liðin frá þeim merkisdegi að ég kláraði menntaskólann, þrátt fyrir að ég sé fráleitt orðinn 20 árum eldri en 17. júní 1982. Og ekki nema á að giska þrjú ár síðan við hittumst á 10 ára stúdentsafmælinu! Hvernig má það vera? Líklega einhver stærðfræðireglan sem gerir það að verkum. Pýþagóras? Eða tengist þetta radíus hrings? Skrýtið hve námsgreinar henta fólki misjafnlega. Mundi alltaf að Hóp er í Húna- vatnssýslu og að mjólkurfram- leiðsluaðili beygist kýr um kú frá kú til kýr. Svo eru tvö NN í Jór- unni, Sæunni og þeim systrum, í öllum föllum, Akrópólis er í Aþenu, gellur eru ekki fiskteg- und og meginlandsloftslag er þannig að hlýtt er inni í landi og kalt við ströndina. Eða var það öfugt? Beygði altjént sagnir eins og að drekka vatn. Amo, amas, amat … Nei, ann- ars, e.t.v. best að tala ekki um latínuna. Fékk ekki nema í henni (eyðan væntanlega þarna vegna bilunar í prentvél). Líklega undarlegt að segja hana ógleym- anlega fyrst ég man ekkert af henni og mundi aldrei. Eða hvað? Ef djúpt er kafað koma upp í hugann setningar eins og In vino veritas, in aqua sanitas (in penii caritas) og Quo vadis puer? svo dæmi séu tekin. Og svo auðvitað herdeildin gekk tignarlega upp fjallið eða setning eins og Cicero leit hróð- ugur yfir herdeildina eftir sig- urinn, hagræddi hárinu og fór úr stígvélunum. Það var mikið um stríð en lítið um samræður í Latínulandi. + - / x = Ég fæ enn martraðir með reglulegu millibili; vakna þá sveittur og skjálfandi þegar mér finnst ég vera á leið í stærðfræði- próf. Undarlegt því mér gekk venjulega vel í göldrum reikni- listarinnar framan af námsferl- inum. Átti auðvelt með að læra tvisvar og þrisvar sinnum töfl- una, lagði saman eins og þaul- vanur endurskoðandi strax í fyrsta eða öðrum bekk og skildi vel hvers vegna Siggi ætti eftir tvö epli ef hann ætti fyrst sex, borðaði sjálfur eitt og gæfi Dodda feita þrjú. Sat að vísu jafnan við hlið Reynis æskuvinar míns í barna- skóla og í þriðja bekk í MA, á fyrsta ári altso, en setti ekki samasemmerki á milli þess og út- komunnar úr stærðfræðipróf- unum fyrr en í fjórða bekk. Eig- inlega ekki fyrr en í fimmta bekk. Einkunnirnar voru nefni- lega enn sérlega glæsilegar í fjórða bekk, gott ef ég hugleiddi ekki að skipta yfir í einhverja raun(a)greinadeildina eftir að töl- urnar voru hengdar upp. En svo fór að halla undan fæti. Fyrst andlega, þegar vinir mínir í stærðfræðideild tilkynntu að það væri alls ekki stærðfræði sem mér hefði gengið svona vel í. Þrátt fyrir að kennarinn fullyrti annað. Við vorum nefnilega að- allega að reikna út gráður horna eða teikna súlurit og kökurit. Svo hallaði undan vísindalega fætinum, þegar stærðfræðin breyttist í stærðfræði. (Þetta gæti að vísu verið hluti martrað- arinnar, því vel getur verið að við höfum ekki verið í „stærðfræði“ nema upp í fjórða bekk. Man það ekki, frekar en setningarnar í skólaleikritinu í den tid.) Og þetta átti svo sem ekki ein- ungis við um stærðfræðina held- ur allar raun(a)greinarnar. Velti því sem sagt stundum fyrir mér hvort útlit einkunna- línuritsins geti tengst því að Reynir var ekki við hlið mér nema upp í þriðja bekk. Fór í stærðfræðideild, er nú verkfræð- ingur og rekur fyrirtæki en eina stærðfræðin sem ég praktísera er sú að draga frá í tékkheftinu og leggja saman þegar ég stíg á vigtina. Og það urðu mér mikil von- brigði að uppgötva að sú stærð- fræðiregla sem mér þótti alltaf vænst um á skólaárunum á ekki við í lífsins skóla eftir allt saman. Alveg dæmigert. Bankastjórinn minn hefur a.m.k. aldrei viljað fallast á þá kenningu að tveir mínusar geri plús. Kannski vegna þess að mín- usarnir eru alla jafna ennþá fleiri. Svo gerði ég, máladeildarmað- urinn, stórmerkilega uppgötvun í erfðavísindum á dögunum; komst að því að stærðfræðigenið erfist frá móður. Konan mín var sleip í stærðfræði í gamla daga en ég vorkenndi dætrum mínum strax frá fæðingu fyrir að eiga aldrei eftir að geta lagt rétt saman í tékkheftinu. Svo kom í ljós að raun(a)greinagenið getur sem sagt erfst frá móður, guði sé lof. Yngsta dóttirin, fjögurra ára, rak mig meira að segja á gat. Við vorum að reikna út þrí- hyrninga, ég og sú elsta, ný- fermd, þegar Séníið lagði fyrir mig spurningu sem fullvissaði mig um að umrætt raun(a)gen erfðist eingöngu frá okkur í veik- ara kyninu – fyrst í stað. Hún hafði lagt við hlustir, og spurði sposk: „Pabbi, hvað er núllhyrningur?“ – Hann er ekki til, elskan mín. Vertu ekki að trufla okkur, við erum að fara yfir flókna hluti. Þú þarft ekki að læra þetta fyrr en eftir tíu ár, sagði ég spekings- lega. „Pabbi, vertu ekki svona vit- laus. Núllhyrningur er auðvitað hringur. Þar eru engin horn.“ Þótt hún sé sögð líkjast mér í útliti er Sara bersýnilega mun skyldari móður sinni. Líklega rétt að nota 20 ára af- mælið til að skrá hana í stærð- fræðideild hjá Tryggva. Best að drífa sig norður í Eyjafjarðarblíðuna. Plúsar og mínusar Mundi alltaf að Hóp er í Húnavatns- sýslu og að mjólkurframleiðsluaðili beygist kýr um kú frá kú til kýr en ég fæ enn martröð þegar mig dreymir að stærðfræðipróf sé á dagskrá að morgni. VIÐHORF Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is FYRIR skemmstu (27.5.) fullyrti forstjóri Landsvirkjunar, Frið- rik Sophusson, í viðtali við Morgunblaðið að Norðlingaölduveita væri nauðsynleg fyrir Norðurál. Við hjá Náttúruverndarsam- tökum Íslands viljum í því sambandi benda á frétt ríkissjónvarpsins frá 17.5. 2001 þar sem fram kemur að iðnað- arráðuneytið hafi látið ,,...kanna hagkvæmni þess að nýta jarðgufu á Nesjavöllum og Reykjanesi til að mæta orkuþörf Norðuráls vegna 90 þús- und tonna stækkunar á álverinu í Hvalfirði. Sú orka ásamt virkjun á Búðarhálsi dygði fyrir stækkunina. Undirbúningur gæti hafist í haust og framkvæmdir í byrjun næsta árs.“ Samkvæmt því sem segir í fyrr- greindri frétt ríkissjónvarpsins var fyrir ári síðan góður möguleiki á að afla orku fyrir Norðurál án þess að fara í Norðlingaölduveitu, sem er mjög umdeild virkjunarframkvæmd sökum þeirra neikvæðu umhverfis- áhrifa sem hún hefði í för með sér í Þjórsárverum. Þjórsárver eru miklu stærri en núverandi friðland og fyrirhugað miðlunarlón, sem yrði á stærð við Mývatn, yrði allt innan veranna. Í Þjórsárverum er eitt víðáttumesta og fjölbreyttasta gróðursvæði á há- lendinu og hýsir mesta heiðagæsa- varp í heimi. Þýðing þessarar gróð- urvinjar fyrir náttúruauðlegð Íslands og alls heimsins er ótvíræð enda er hún á svonefndri Ramsar- skrá sem er alþjóðlegur samingur um náttúruvernd og gildir um vot- lendi er hafa alþjóðlegt mikilvægi, einkum fyrir vatnafugla. Gísli Már Gíslason, líffræðiprófessor, benti á í grein sem birtist í Morgunblaðinu 21. ágúst 2001 að fyrir hendi sé fjöldi virkjun- arkosta aðrir en Norð- lingaölduveita, sem ekki hafi jafn skaðleg umhverfisáhrif. Samkvæmt mats- skýrslu Landsvirkjun- ar mun mikil aur- og sandeyri teygja sig langt út í lónið innan fárra áratuga, land of- an lónsins hækka um 2–3 metra og halda áfram að hækka. Þá mun Þjórsá að öðru óbreyttu flæmast um gróðurlendið. Samkvæmt matsskýrslunni verður lónið hálffullt af aur eftir um hundr- að ár. Þá munu vindar eiga greiðan aðgang að miklum uppþornuðum aurflákum í lónstæðinu og feykja leirsalla og sandi yfir verin með hroðalegum afleiðingum. Fyrir liggja niðurstöður Þjórsár- veranefndar og Náttúruverndar rík- isins, sem leggjast eindregið gegn Norðlingaölduveitu. Niðurstöður þeirra eru fyllilega samhljóma nið- urstöðum rannsókna dr. Þóru Ell- enar Þórhallsdóttur frá 1994, sem hún vann fyrir Landsvirkjun sam- kvæmt ákvæðum samkomulagsins um friðlýsingu Þjórsárvera frá 1981. Ekkert nýtt hefur komið fram síðan þá, sem haggar meginniðurstöðum dr. Þóru er varðar miðlunarlón í Þjórsárverum. Ennfremur skal bent á að sam- kvæmt niðurstöðum bráðabirgða- mats Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, sem kynnt var í lok maí, yrðu umhverfisáhrif Norðlingaölduveitu í Þjórsárverum mjög mikil en hagkvæmni einungis í meðallagi. Þá skal haft í huga að andstaða heimamanna gegn virkjunarfram- kvæmdum er mjög sterk og á sér langa sögu. Er ekki kominn tími til fyrir Landsvirkjun að hætta aðför sinni að Þjórsárverum eða getur Lands- virkjun engu eirt? Er ekki kominn tími til fyrir stjórnvöld að sýna í verki að þeim sé einhver alvara með tali sínu um að sátt verði að nást um nýtingu hálendisins? Fram hefur komið af hálfu Halldórs Ásgríms- sonar utanríkisráðherra að ekki komi til greina að fórna Þjórsárver- um. Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra hefur lýst því yfir að ekki megi fara fermetri af Þjórsárverum undir vatn og Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra sagði í febrúar 2001 eftirfarandi: ,,…Þjórsárverin hafa gífurlegt náttúruverndargildi og það er ákveðið svæði í Þjórsárverum sem er friðað og ég tel að við eigum ekki að skerða hið friðaða svæði. Svæðið er aðalvarpstöð heiðagæsa og gífurlega frjósamt gróðurfars- lega séð. Ég skoðaði það í sumar með fulltrúum Náttúruverndar rík- isins og Þjórsárveranefnd og ég tel að við eigum að halda hinu friðaða svæði óskertu og eigum ekki að minnka náttúruverndargildi þess með nokkrum hætti. …“ Umsátri Landsvirkjunar um Þjórsárver verður að linna. Það er mál til komið að stjórnmálamenn skilji að þeir hafi ekki siðferðilegt leyfi til að fórna náttúruperlum Íslands fyrir skammtímagróða. Verndum Þjórsárver Árni Finnsson Virkjanir Umsátri Landsvirkj- unar, segir Árni Finns- son, um Þjórsárver verður að linna. Höfundur er formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands. UMRÆÐU um fjar- vinnslu hefur skotið upp með reglulegu millibili, nú síðast á Alþingi nokkrum vik- um fyrir þinglok. Þar svöruðu ráðherrar rík- isstjórnarinnar hver á fætur öðrum fyrir- spurnum frá Kristjáni Möller alþingismanni um það hve mörg störf ráðuneyti þeirra hefðu flutt út á landsbyggð- ina í téða fjarvinnslu. Svörin voru undan- tekningalítið á einn veg. Ekkert! Og hæst- virtur forsætisráð- herra lokaði síðan umræðunni á eftirminnilegan hátt með þeim orð- um að tilraun til fjarvinnslu hefði verið reynd en ekki tekist. Síðan hefur auðvitað enginn tekið sér orðið fjarvinnsla í munn, hvað þá meir. Nú vill svo til að ég tók þátt í hluta ævintýrisins mikla um fjar- vinnsluna sumarið 1999. Og ég get vottað að væntingarnar voru mikl- ar. Jafnt hjá þeim sem stóðu að uppbyggingu fjarvinnslunnar sem og ýmissa sveitarstjórnarmanna og fólks á landsbyggðinni. En þær væntingar voru ekki byggðar á engu. Þær byggðust á því sem ráð- herrar og þingmenn beggja stjórn- arflokkanna sögðu vorið 1999. Fyr- ir síðustu alþingiskosningar. Það voru yfirlýsingaglaðir frambjóðend- ur sem riðu um héruð og mærðu þá nýsköpun sem í fjarvinnslunni fæl- ist með þeirri tækni sem við nú byggjum yfir. Nú skiptu fjarlægðir engu máli og hægt væri að vinna sum störf hvar sem er. Það var þá. Staðir klárar En hvað skyldi nú hafa gerst síðan? Sam- kvæmt orðum ráð- herra ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar ekki ýkja mikið. Störf- in sem þeir sögðu, fyr- ir síðustu kosningar, að væri sem best hægt að vinna hvar sem er, hafa ekki verið unnin úti á landi. Af einhverjum ástæðum hafa einka- fyrirtækin aftur á móti séð ljósið. Nægir að nefna tryggingafélögin í því sambandi. Þau reka sín útibú í fjarvinnslu með fjölda starfsfólks á landsbyggðinni og gengur vel. Það er hægt að færa mörg og gild rök fyrir hagræðingunni sem felst í því að færa einstök verkefni frá Reykjavík út um land. Það hefur verið sýnt fram á það. Ráðamenn eru hins vegar enn svo fastir í gömlum hugsunarhætti að það er eins og við staðan klár að eiga. Þar tala ég af reynslu. Vantar viljann Á Stöðvarfirði, örsmáu sjávar- þorpi á Austurlandi, hefur í þrjú ár verið rekið fjarvinnslufyrirtæki. Það hefur verið gert meira af vilja en mætti, má segja, því ekki hefur verkefnum frá ríkinu rignt þangað inn fremur en öðru. Og að gefnu tilefni er rétt að árétta ég er að tala um verkefni frá ríkisstofnun- um, ekki styrki. Fjarvinnslan hefur hins vegar verið afar kærkomin viðbót við annars fremur einhæft atvinnulíf staðarins. Einkum með tilliti til starfa fyrir konur. Konurnar á Stöðvarfirði hafa unnið við allt frá símsvörun til sölu geisladiska, söfn- un auglýsinga og styrktaraðila til skráningar á allra handa upplýs- ingum í gagnagrunna, m.a. í svo- kallað XML-kerfi. Allt hafa þetta verið störf unnin fyrir einkaaðila sem séð hafa sér hag í að nýta stöðugt og áhugasamt vinnuafl. Ætla mætti að ráðamenn, sem tala fjálglega um fólksflutninga á suð- vesturhornið í hátíðarræðum, sæju sér sama hag, en því er engan veg- inn að heilsa. Vilji er allt sem þarf, sagði annar forsætisráðherra einhvern tíma. Og það er hann sem vantar hjá ráða- mönnum þjóðarinnar. Viljann og skilninginn. Ekki möguleikana. Til- raun til fjarvinnslu mistókst ekki, eins og Davíð Oddsson hélt fram úr ræðustóli Alþingis. Hún var aldrei gerð. Tilraunin mistókst ekki – hún var aldrei gerð Aðalheiður Birgisdóttir Fjarvinnsla Ráðamenn voru yfirlýs- ingaglaðir fyrir síðustu kosningar, segir Aðalheiður Birg- isdóttir, en síðan hefur ekkert gerst. Höfundur rekur SMS-fjarvinnslu- fyrirtæki á Stöðvarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.