Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 38
MINNINGAR 38 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sími 562 0200 Erfisdrykkjur ✝ Ólafur SigurðurÓlafsson fæddist 7. október 1911 á Suðureyri við Súg- andafjörð. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 29. maí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Ólafur Friðriksson, sjómað- ur á Súgandafirði, f. 29. september 1885, en hann drukknaði 11. september 1911, og kona hans Krist- ín Guðmundína Benediktsdóttir, f. í Gjörfidal við Djúp 5. nóvember 1880, d. 1. október 1948. Ólafur ólst upp hjá hjónunum Einari Ein- arssyni, bónda í Tannanesi við Önundarfjörð, f. 1864, d. 1955, og konu hans Guðmundu Atladóttur, f. 1865, d. 1935, en Einar var ömmubróðir Ólafs í föðurætt. Uppeldisbróðir Ólafs var Torfi Einar Albert, f. 24. ágúst 1907, d. 1. janúar 1974. Ólafur Friðriks- son var sonur Friðriks Verner Gíslasonar, bónda í Kvíanesi í Súgandafirði, f. 1828, d. 1899, og konu hans Guðrúnar Einarsdótt- ur frá Selabóli í Önundarfirði, f. 1859, d. 1935. Kristín var dóttir Benedikts Gabríels Jónssonar, bónda og formanns í Meirihlíð í Bolungarvík, f. 1848, d. 1893, og konu hans Valgerðar Þórarins- dóttur, f. 1851, d. 1931, frá Látr- um í Mjóafirði við Djúp. Systkini Ólafs sammæðra, börn Kristínar með Jóhannesi Guðmundssyni, f. 1878, d. 1907, eru Guðmundur Halldór, f. 16. október 1903, d. 7. dætur hans og Lilju Hilmarsdótt- ur eru Ingibjörg, f. 5. desember 1972, og Ragnhildur, f. 1. október 1979. 2) Helga María, kennari, f. 13. október 1950, gift Axeli Björnssyni, börn þeirra eru Ólaf- ur Ágúst, f. 18. ágúst 1976, og Anna María, f. 3. apríl 1980, sonur Önnu Maríu og Kristbjörns Ey- dals Guðmundssonar er Axel Breki, f. 28. september 1998. Ólafur lauk prófi frá Héraðs- skólanum á Laugum árið 1933, íþróttakennaraprófi frá Tärna Folkhögskola í Svíþjóð 1934, kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1937 og námi í uppeldis- og sálarfræði við Göteborgs Hög- skola 1947. Hann var kennari við Héraðsskólann á Laugum á árun- um 1935–36, Héraðsskólann í Reykjanesi við Djúp 1937–44, Miðbæjarskólann í Reykjavík 1944–45, Ingimarsskóla í Reykja- vík 1947–49, var skólastjóri Hér- aðsskólans í Reykjanesi við Djúp 1949–50 og síðan kennari við Gagnfræðaskóla Austurbæjar (síðar Vörðuskóli) 1950–79 og að lokum við Iðnskólann í Reykjavík 1979–81, er hann lét af störfum. Hann kenndi einnig um nokkurra ára skeið við Kvennaskólann í Reykjavík, Hjúkrunarskóla Ís- lands auk þess sem hann kenndi á sundnámskeiðum víða um land á sumrin. Ólafur sat í stjórn Kenn- arafélags gagnfræðaskólakenn- ara í Reykjavík frá stofnun þess 1956 í mörg ár og var formaður þess í nokkur ár. Hann var for- maður Landssambands fram- haldsskólakennara 1966–79, sat í starfskjaranefnd Bandalags starfsmanna ríkis og bæja 1973– 1978 og var formaður Félags kennara á eftirlaunum 1982–84. Útför Ólafs verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. júlí 1980, Sigríður, f. 14. júlí 1905, d. 9. mars 1992, og Jó- hanna Vigdís, f. 2. ágúst 1907, d. 28. júní 1978. Systkini Ólafs sammæðra, börn Kristínar með Valdi- mar Þorvaldssyni, f. 1878, d. 1976, eru Guðrún Sigríður, f. 20. maí 1913, d. 21. janúar 2001, Þorvald- ur Gissur, f. 23. júlí 1916, d. 5. apríl 1993, og Benedikt Þórar- inn, f. 7. nóvember 1920, d. 28. apríl 1983. Auk þess átti Ólafur þrjú hálfsystkini sem öll dóu barnung, þar af einar tví- burasystur. Hinn 7. október 1944 kvæntist Ólafur eftirlifandi konu sinni, Ingibjörgu Þórðardóttur handa- vinnukennara, f. 16. mars 1922, frá Laugalandi í Skjaldfannardal við Djúp. Foreldrar hennar voru Þórður Halldórsson, bóndi á Laugalandi, f. 1891, d. 1987, og kona hans, Helga María Jónsdótt- ir, f. 1898, d. 1999. Þórður var sonur Halldórs Jónssonar, bónda á Rauðamýri, f. 1857, d. 1941, ætt- aður frá Laugabóli, og konu hans Ingibjargar Jónsdóttur, f. 1855, d. 1902, frá Barmi á Skarðsströnd í Dalasýslu. Helga María var dóttir Jóns Egilssonar, bónda á Skarði á Snæfjallaströnd, f. 1855, d. 1914, og konu hans Kristínar Matthías- dóttur, f. 1862, d. 1935. Börn Ólafs og Ingibjargar eru 1) Þórð- ur, skrifstofustjóri í umhverfis- ráðuneytinu, f. 24. október 1948, Góður ferill gæfumanns er á enda var það fyrsta sem kom upp í huga minn þegar ég spurði lát Ólafs. Langri og gifturíkri ævi er lokið. Mægðir okkar Ólafs tókust þegar ég ung að árum kom í fylgd sonar hans Þórðar inn á heimili hans og Ingibjargar. Ég hafði fyrir ekki margt löngu misst föður minn og frá fyrsta degi skynjaði Ólafur þann mikla missi og reyndist mér alla tíð hinn besti vinur og félagi. Ólafur var vitur maður, með af- brigðum fróður, víðlesinn og hag- leiksmaður hinn mesti. „Hverja réð hann rún sem vildi.“ Þegar ágrein- ingur kom upp á heimili okkar Þórð- ar og dætra okkar Ingibjargar og Ragnhildar um sögulegar stað- reyndir, tilvitnanir, bókmenntir, landafræði o.fl. þá var viðkvæðið hringjum í afa og það brást aldrei, svarið kom. Það var aldrei nein lognmolla í kringum Ólaf fjörugar samræður kryddaðar hans sérstöku kímnigáfu snerust gjarnan um málefni líðandi stundar og um þá sem héldu á fjör- eggi storðar. Ólafur var skoðanafast- ur og hafði ríka skaphöfn en agaður jafnan og virti skoðanir þeirra sem voru á öndverðum meiði. Hann var alla tíð einlægur fylgismaður Fram- sóknarflokksins og þegar ég kom inn í fjölskylduna hafði ég vart heyrt af þeim flokki enda úr Hafnarfirði. Enginn fór bónleiður til búðar þar sem Ólafur var annars vegar. Það var ekkert sem hann ekki gerði fyrir okkur og dæturnar. Fyrir utan að vera til staðar fyrir Ingibjörgu og Ragnhildi hvenær sem á þurft að halda átti hann ófá handtökin í lag- færingum og útfærslu á vistarverum okkar. Hann kom að matargerð heimilis okkar í árdaga þegar hann kenndi húsmóðurinni að búa til jafn- ing sem fórst henni afar óhöndug- lega. Enda hafði hann ungur lært að standa á eigin fótum, laga mat og sauma á sig föt. Ég er forsjóninni þakklát að hafa átt samleið með Ólafi og ekki síst að dætur mínar eignuðust slíka fyrir- mynd sem afi þeirra var. Það var þeim gott veganesti á menntabraut- inni að vita að afi þeirra skyldi að- eins einu sinni hafa skrifað vitlaust orð á sinni skólagöngu en það var vh.þt. af sögninni kryfja. Ástin og umhyggjan sem hann sýndi telpun- um verður seint fullþökkuð. Það er mikið lán að sofna burt úr heimi sáttur við stað og stund. Geta verið stoltur af afkastamiklu dags- verki en Ólafur gerði kennslu að ævistarfi og stóð árum saman í for- ystusveit kennarasamtakanna við að bæta kjör og auka réttindi kennara sem og afla kennarastarfinu þeirrar virðingar sem það verðskuldar. Lífshamingja Ólafs fólst þó fyrst og fremst í hans góðu konu henni Ingibjörgu og að sjá börnin og barnabörnin vera slíkt fyrirmyndar- fólk sem raun ber vitni. Ég kveð Ólaf með þakklæti, hlýju og djúpri virðingu. Lilja Hilmarsdóttir. Sjá, skýjaslæður, himinhátt í hlývindunum vagga sér. Þær svífa létt úr sunnanátt einn sólardagur með þeim fer. Frá aftanskini birtu ber og bjarma slær á Djúpsins fjöll. Minn góði vinur genginn er þá götu sem að förum öll. (Á.K.) Ólafur S. Ólafsson hélt upp á ní- ræðisafmælið sitt í haust í hópi vina og vandamanna. Glaður og reifur og lék á als oddi en svo dró úr þreki og að kveldi 29. maí barst mér fregnin um fráfall hans. Ég horfði á sólroðnu gullbrydduðu skýjaflákana sem liðu á ská yfir dalinn og hurfu í átt að Kaldalóni og Drangajökli. Vorkvöld- ið svo fagurt og friðsælt, skógurinn að byrja að litkast og túnin að koma græn undan snjónum. Mér varð hugsað til baka og minntist þeirrar stundar þegar ég sá Ólaf fyrst. Bráðum 45 ár liðin frá því að ég steig inn í stofuna á Lauga- landi við hlið Halldórs Þórðarsonar sem síðar varð eiginmaður minn og hann kynnti mig m.a. fyrir Ingi- björgu systur sinni og Ólafi manni hennar. Þetta var 12. ágúst, brúð- kaupsdagur Helgu og Þórðar tengdaforeldra minna, og ávallt haldið upp á þann dag með miklum myndarbrag. Handtak Ólafs var fast og hlýtt. Brosið náði ekki aðeins til munnsins heldur einnig til augn- anna, röddin djúp og karlmannleg. Manni hlýnaði ósjálfrátt um hjarta- rætur og þannig get ég ímyndað mér að hann hafi boðið nemendur sína velkomna til náms og starfa og öðl- ast traust þeirra þegar í stað. Þannig fór mér og öll þau ár er eftir fóru var Ólafur traustur og góður vinur. Þau Ólafur og Inga komu með börn sín á hverju sumri að Lauga- landi meðan tengdaforeldrar mínir voru þar við búskap. Það munaði um Ólaf í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur enda var maðurinn ekki gefinn fyrir að doska og víkingur í verki, sama hvort tekið var af nokk- ur hundruð fjár í vorrúningi eða unnið að heyskap. Þau voru góð hrífuförin hans og gaman að sjá hann moka upp lanir á túni eða á heyvagn og svo inn í hlöðu. Hann vann um árabil að smíðum á sumrin og íbúðarhús víðsvegar um Djúp risu upp undir hans stjórn og þótti mál- um vel skipað þar sem hann var í for- svari. Það var hlustað á Ólaf frá Tannanesi, hann fór ekki með veggj- um og stóð vel fyrir sínu, hávaxinn og karlmannlegur með koparrautt hrokkið hár. Þessa dagana eru sjö ár liðin frá því að Halldór maður minn féll frá. Þórð son okkar dreymdi hann nótt- ina áður en Ólafur kvaddi. Mér þykir líklegt að þá hafi Halldór búið sig undir að taka á móti vini sínum og mági. Ég sé þá fyrir mér, kasta á milli sín gamanyrðum og glettnis- orðum vitnandi í Gerplu og Íslands- klukkuna. Ég votta Ingibjörgu mágkonu minni einlæga samúð, einnig Þórði og Helgu Maríu börnum þeirra og fjölskyldum. Það er sjónarsviptir að manni eins og Ólafi S. Ólafssyni en gott er þreyttum að hvílast og guð blessi minningu hans. Ása Ketilsdóttir. Það leit allt út fyrir það að við hefðum afa hjá okkur til eilífðar. En svo varð auðvitað ekki og núna koma endalausar minningar upp í hugann. Allur fróðleikurinn, öll þolinmæð- in, allar keyrslunar, öll pössunin, öll hjálpin með heimanámið … alltaf var afi til staðar. Ég man fyrst eftir öllum stund- unum sem ég eyddi með ömmu og afa í Efstasundinu, ég var reyndar svo mikið þar að ég átti sérstakan vinahóp í götunni. Það sem situr sterkast í minningunni er að afi leyfði mér alltaf að slá garðinn með sér. Hann átti gamla handknúna sláttuvél sem mér fannst alveg óhemju gaman að nota. Líklegast hefur garðurinn aldrei verið sérlega vel sleginn en afa var alveg sama og leyfði mér alltaf að bögglast með vél- ina eins lengi og ég vildi. Svo ekki sé talað um allt hrósið sem ég fékk fyrir framtakið. Svo fluttu amma og afi í Safamýr- ina með stuttu stoppi á Kjarrveg- inum. Það tók mig mörg ár að venj- ast því að hætta að kalla hann afa í Efsta og breyta yfir í afa í Safa. Ann- að breyttist hins vegar ekki mikið, ég fékk alltaf að gista þegar ég vildi, mér var ennþá skutlað í og úr skól- anum, píanótímum, fimleikum og hverju öðru sem ég tók upp á. Það sem kannski var mest spennandi var að á þeim tíma var nýbúið að opna einn fyrsta pitsustaðinn í Reykjavík og ég hálf vonaðist alltaf til að for- eldrar mínir þyrftu að fara út um helgar svo að ég gæti verið hjá afa og ömmu. Ég vissi alltaf hvað ég ætti í vændum, afi væri örugglega til í að kaupa handa mér pitsu, þótt hann skildi engan veginn hvernig hægt væri að borða eitthvað sem bragð- aðist eins og pappakassi. Síðan var auðvitað látið eftir mér að fá ís í eft- irrétt og vaka fram eftir yfir ein- hverri vídeómynd sem þau horfðu bæði á með mér, alveg sama hvað hún var leiðinleg. Þær voru líka ekki ófáar „tískusýningarnar“ sem hann þurfti að horfa á í gegnum tíðina. Mest fannst mér samt gaman að því þegar afi gaf sér tíma til að skoða bækurnar sínar með mér, og það var ekki ósjaldan. Ég átti eina uppá- halds bók sem var með myndum af öllum dýrum hafsins. Hann sat oft og útskýrði fyrir mér hverja og eina mynd. Ef ég var mjög heppin fékk ég að blaða í alfræðisafninu hans með honum. Eftir því sem árin liðu óx ég upp úr því að slá garða, borða pitsur og halda tískusýningar og þá kynntist ég þeirri hlið afa sem ég bý hvað mest að í dag. Eftir að ég byrjaði í menntaskóla og síðar háskóla þreyttist hann aldr- ei á að tala um þau málefni sem voru efst á baugi bæði heima á Íslandi og erlendis og alltaf vissi hann allt um hvað var að gerast. Það var alveg sama hvað ég hélt að ég vissi mikið, alltaf gat afi bent mér á aðra hlið á öllum málum sem vert væri að skoða. Hann ráðlagði mér hvaða bækur væri vert að glugga í og eyddi síðan tíma í að ræða þær þegar ég var loksins búin að lesa þær. Ég held að ég hafi alltaf verið með einhverja bók í láni frá ömmu og afa, hvort sem það voru skáldsögur eða alfræðirit. Það var fátt sem afi ekki vissi því það var alveg sama hvað ég spurði hann, hvort sem það væri um stjórnmál, ís- lenskt mál, landafræði eða sögu – alltaf vissi afi svarið. Það var líkleg- ast þess vegna sem hann fékk aldrei að vera með þegar við spiluðum Trivial Pursuit í fjölskylduboðum því það var alltaf vitað að hans lið myndi vinna. Og meira að segja þegar hann fékk ekki að spila með og erfið spurning kom var litið við og sagt: „Afi, ekki segja þeim“, það var bara gengið út frá því að hann vissi svarið. Ég man til dæmis eftir því að ekkert okkar vissi hvar Timbuktú var nema afi. Þetta er það sem ég er mest þakk- lát fyrir, að hafa átt afa sem var allt- af tilbúinn að gera allt fyrir mig, vissi svona mikið og var reiðubúinn að deila því með mér. Ég kem til með að búa að því það sem eftir er – og svo auðvitað veit ég núna hvar Tim- buktú er. Ingibjörg Þórðardóttir. Við héldum að afi yrði að minnsta kosti 150 ára, erum við viss um að hann hefur haldið það líka. Afi var alltaf svo eldhress á líkama og sál og því var erfitt að horfa upp á orkuna hverfa svona úr þessum stóra og stæðilega manni sem átti góða og langa ævi og var heilsugóður alla tíð. Það er margt sem kemur upp í hug- ann á svona stundu. Afi hafði mikla kímnigáfu og hnyttin tilsvör á reiðum höndum. Hann var víðlesinn, stálminnugur og kom víða við í lífinu. Hann kunni til dæmis ógrynni vísna og sagna sem hann reyndi að kenna okkur barna- börnunum en með litlum árangri. Þegar okkur systkinin rak í vörðurn- ar með heimalærdóminn kom maður aldrei að tómum kofunum hjá hon- um. Það var oftast fljótlegra að fara til afa en á bókasafnið. Fengum við að heyra margar sög- ur af því þegar hann gekk fjarða á milli á roðskónum og voru heiðarnar sem hann gekk á mældar í fjölda af skóm sem eyddust á leiðinni. Flestar voru þær þrennra roðskóa. Þegar afi var rúmlega tvítugur hjólaði hann um Svíþjóð endilanga, nokkuð sem flestum þætti nóg um á nútíma gírahjólum. Sögurnar af afa gerast þó ekki all- ar fyrir okkar tíð. Afi tók til dæmis upp á því á áttræðisaldri að byggja sér hús og á níræðisaldri ákvað hann að fara í heilsuátak og hætti að taka í nefið. Við munum sakna afa sárlega en umfram allt minnast með gleði þeirra góðu stunda sem við áttum með honum. Að sigra heiminn er eins og að spila á spil með spekingslegum svip og taka í nefið. (Steinn Steinarr.) Ólafur Ágúst og Anna María. Frændi minn, Ólafur S. Ólafsson, er látinn. Hann var Vestfirðingur, nánar tiltekið Súgfirðingur. Móðir hans, Kristín Benediktsdóttir, og móðuramma mín, Sigrún, voru syst- ur. Faðir þeirra var Benedikt Gabrí- el Jónsson sem fórst í fiskiróðri við sjötta mann hinn 7. desember 1893. Eiginkona hans (langamma mín) var Valgerður Þórarinsdóttir og eignuð- ust þau þrettán börn, en sex þeirra dóu mjög ung, m.a. 16 ára sonur sem fórst með föður sínum. Óvíða á landinu hefur náttúran haft jafnmikil áhrif á líf hinna al- mennu íbúa og á Vestfjörðum, án þess að farið sé út í landshlutamet- ÓLAFUR S. ÓLAFSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.