Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 37 Kvennaskólans köllumst ljós kátar ungar meyjar. Óspart senda okkur hrós innanbæjar peyjar. (J.S.G.) Þessi vísa er upphaf á kvæði sem Jóna orti um lífið í Húsmæðraskól- anum á Blönduósi veturinn 1967–’68 og birtist í ljóðabók hennar Muna- blóm. Þennan vetur kynntumst við Jónu þegar við ásamt hópi ungra kvenna stunduðum þar nám. Fæstar JÓNA SIGURBJÖRG GÍSLADÓTTIR ✝ Jóna SigurbjörgGísladóttir fædd- ist í Reykjavík 3. mars 1947. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 2. júní síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Lágafellskirkju 8. júní. Vegna mistaka í vinnslu minningar- greinar Hallfríðar Höskuldsdóttur og Heiðrúnar Sverris- dóttur um Jónu Sig- urbjörgu Gísladóttur á blaðsíðu 49 í Morgunblaðinu á laugardag, féll nafn annars höf- unda greinarinnar niður. Hún er því endurbirt hér á eftir og eru hlutaðeigendur beðnir afsökunar á mistökunum. okkar þekktumst áður en við mættum í skól- ann um haustið, en per- sónuleiki Jónu var þannig að engum gat dulist að þar var á ferð óvenjuleg kona sem ekki fór troðnar slóðir í lífinu. Það þótti til dæmis sérstakt að Jóna hafði verið nem- andi í Bændaskólanum á Hólum en það var fá- títt á þessum tíma að konur færu í bænda- skóla. Hún talaði oft um veru sína á Hólum og fannst okkur stundum sem við- fangsefnin í þeim skóla hefðu höfðað mun meira til hennar en elda- mennska og hannyrðir. Jóna var af- skaplega hrein og bein í allri fram- göngu, kom til dyranna eins og hún var klædd og vildi að aðrir væru líka þannig. Hún hafði ákaflega gaman af að gefa út bækur, sem voru orðnar þó nokkrar en þær innihéldu ljóð, skáldsögur og frásagnir úr eigin lífi. Samskipti okkar síðustu árin voru aðallega í kringum útgáfu á bókun- um sem hún setti sjálf á tölvu, fjöl- faldaði á ljósritunarvél og batt inn sjálf. Alla tíð sýndi hún mikla sjálfs- bjargarviðleitni og í dag eru bæk- urnar okkur ómetanleg minning. Mörg síðustu árin var Jóna mikill sjúklingur og það var aðdáunarvert af hve miklu æðruleysi hún tókst á við það verkefni sem önnur og var gjarnan viðkvæðið hjá henni þegar veikindi voru rædd „uss, blessuð góða þetta er ekkert.“ Þegar við vin- konurnar drifum okkur loksins að heimsækja hana á líknardeildina var hún búin að kveðja þessa jarðvist. Eftir að hafa þegið kaffi hjá því ynd- islega fólki sem þar vinnur vorum við samfærðar um að nú liði henni vel. Fjölskyldunni sendum við innileg- ar samúðarkveðjur. Í hverju sem að höndum ber, og hvað sem bágt oss mætir, þín hjálp oss nálægt ætíð er og allar raunir bætir. (P. Jónsson.) Hvíl þú í friði, kæra vinkona. Hallfríður Höskuldsdóttir, Heiðrún Sverrisdóttir. ✝ Þórunn BjörgMagnúsdóttir fæddist í Kaupangi í Eyjafirði 17. júní 1924. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 4. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Magnús Sig- björnsson, f. 13. des- ember 1893, d. 12. september 1954, og Bergljót Guðjóns- dóttir, f. 23. júní 1893, d. 14. október 1972. Systkini Þór- unnar eru hálfsystir hennar sam- feðra Bjarnheiður, f. 13. janúar 1902, d. 9. september 1981, og Að- alsteinn, f. 28. júní 1920, d. 29. júlí 1924, Ingólfur, f. 10. apríl 1928, búsettur á Akureyri, kona hans Börn þeirra: Þórunn Björg og Heiðrún Inga. Aðalsteinn, f. 26. júní 1962. Ingibjörg, f. 27. nóv- ember 1966, búsett á Akureyri, maður hennar Guðmundur Guð- mundsson. Börn þeirra: Guðrún Rut, Berglind Björk og Helga María. Þórunn átti áður Bergljótu Rafnsdóttur, f. 6. október 1946, búsett í Reykjavík, maður hennar Björn Einarsson. Börn þeirra: Hrönn og Linda. Maður Hrannar er Uve Vetter. Barn þeirra Krist- ín Sunna. Þórunn ólst upp á Akureyri og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Þór- unn og Baldur bjuggu í Kaup- mannahöfn meðan hann lauk þar námi en fluttu svo til Akureyrar og bjuggu þar allan sinn búskap. Hún vann lengi við skrifstofustörf og símavörslu hjá KEA auk hús- móðurstarfa og tók þátt í fé- lagsstörfum, m.a. hjá íþróttafélag- inu Þór og seinna í kvenfélaginu Framtíðinni á Akureyri. Útför Þórunnar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Jenný Karlsdóttir, f. 28. júlí 1939, og Helga Maggý, f. 10. október 1936, búsett á Akur- eyri, maður hennar Lenharður Helgason, f. 8. janúar 1935, d. 4. ágúst 1967. Hinn 29. desember 1953 giftist Þórunn eftirlifandi eigin- manni sínum, Baldri Ingimarssyni lyfja- fræðingi, f. 15. ágúst 1925. Börn þeirra eru: Helga, f. 6. maí 1954, búsett í Balti- more í Bandaríkjunum, maður hennar er Jay Nelson. Börn þeirra: Robert Ian og Erik Ingi- mar. Guðrún, f. 16. desember 1958, búsett í Reykjavík, maður hennar Guðmundur Þór Jónsson. Enn syngur vornóttin vögguljóð sín. Veröldin ilmar, glitrar og skín. Kvöldsett er löngu í kyrrum skóg. Öldurnar sungu sig sjálfar í dá. Síðustu ómarnir ströndinni frá hverfa í rökkurró. (Tómas Guðmundsson.) Að þessu sinni var það hið hinsta vögguljóð sem ómaði fagra vornótt- ina á Akureyri en þeim ómum fylgdi bæði líkn og friður. Þær eru margslungnar, lykkj- urnar á lífsleið hvers manns, og ekki hlotnast öllum sú gæfa að geta á lágnætti lífsins litið næsta sáttur yfir farinn veg og ævistarf sem bar svo ríkulegan ávöxt. Þannig var því hins vegar farið um Þórunni Björgu Magnúsdóttur, sem við kveðjum í dag hinstu kveðju. Þórunn Björg helgaði líf sitt fjöl- skyldu sinni og var henni ætíð stoð og stytta, jafnt þeim sem næst henni voru, sem þeim er fjær stóðu. Hún var hlédræg og tranaði sér hvergi fram, en gerði sér á hinn bóginn far um að laða fram það besta sem í hverjum manni býr og lagði sitt af mörkum til að hæfi- leikar annarra mættu njóta sín. Velgengni annarra varð henni jafn- an til gleði. Hún var heiðarleg og hreinskiptin og vildi hverjum manni vel, hafði margt að gefa af sjálfri sér, var margfróð og minnug en ekki síst hress í lund. Í fjölskyldu okkar var Þórunn Björg alla tíð kölluð Bodda. Sam- gangur var jafnan mikill milli fjöl- skyldnanna í Bjarmastígnum og Byggðaveginum, enda margt sem batt þær traustum böndum, og á erfiðum tímum var stuðningur Boddu og fjölskyldu hennar okkur ómetanlegur. Böndin traustu hafa aldrei rofnað og margs er að minn- ast frá heimsóknum í Bjarmastíg- inn og þá ekki síður frá samveru- stundum í sumarbústaðnum í Fnjóskadal. Síðustu ómarnir í lífi Boddu eru nú hljóðnaðir. Eftir lifa minning- arnar, bjartar og fagrar, ásamt þeim miklu og góðu áhrifum er hún hafði á líf okkar, sem fylgja munu okkur um ókomna tíð. Að leiðarlok- um minnumst við hennar með sökn- uði, mikilli hlýju og þökk. Baldri, Bergljótu, Helgu, Guð- rúnu, Aðalsteini, Ingibjörgu og fjöl- skyldum þeirra vottum við einlæga samúð okkar. Helga Maggý, Jóhann Magnús, Haukur Berg og Lena Kristín. ÞÓRUNN BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar S. 555 4477  555 4424 Erfisdrykkjur Minningarkort Styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l Þ ó rh 1 2 7 0 6 2                              !! " #$ %&                 ' ( )# * + )#  )  & # + )# ,& -& #.  + )#  + + & ))/  )# +  ,# + & ) #)#   &   0  ! "      "      1 - 234 5641   7 " 8!+ %(!    #      "        $    %  ) 7 )# 7%   & %8 %)#   #. & ,& #7 %&  %&     %& ( -7 )# ( %)# 9! ) & 9! ) (7 %)# *  8 .&)& %)# &)) &  &)) 7  %&   &   0  !            &            ! $ 7 !:  ;< 8!!.#     '        ' ( #"     )   $    ' ( #"     *+    *,--  ( )))# '  !& #.  - )#  !& #.7  ) -7 ))# 7 0   & ' 7  !)# + =  + =& ! 0 !& = *))  )# #.  0 !& 7 7 )#   0 !)# -7: !)# #.  0 !: &   &   0 .   !  *  -4 *    /   #      "     0     . * )# *   7 & = >) * & +  )))# -7: ( * )# = ,0   )# = 0 * & -7:   7 )#  ) ,#7 )# ,#7 +  ' ? ! 8! & 7 )) .  0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.