Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UPP á síðkastið hef ég lesið reglu-
lega um ráðherra frá Íslandi sem eru
að ferðast utan á kostnað skattgreið-
enda til þess eins að láta fjalla um
sig, nú síðast Halldór Ásgrímsson
sem flaug til Ramallah til að fá að
tala við Arafat. Halldóri er náttúru-
lega sama hvað þetta kostar, hann
fær að hitta Arafat. Þótt staðið hafi
stórum stöfum í blöðum Íslands að
friður sé vilji Arafats og að samskipti
landanna muni nú batna sé ég enn
enga ástæðu til þess að Halldór fari
rándýra reisu til Ramallah til þess
eins að fá að heyra þetta, ég per-
sónulega hef enga trú á því að sam-
skipti Íslands og Palestínu verði eitt-
hvað betri þó að tveir menn frá
þessum þjóðernum hafi hist einu
sinni … í klukkutíma. Á sínum tíma
þegar Windows 98 stýrikerfið var
þýtt á íslensku sáu íslenskir embætt-
ismenn ekki annað í stöðunni en að
senda einhvern ráðherra utan, Björn
Bjarnason menntamálaráðherra. Nú
velti ég því fyrir mér hvað íslenskur
ráðherra eða hin íslenska ríkisstjórn
komi því eitthvað við hvort Microsoft
ætli að þýða vöru sína á íslensku.
Persónulega finnst mér þeim koma
það nákvæmlega ekkert við. Svo
sýnist mér sem íslenskir ráðherrar
vaði í peningum, og ef eitthvað sem
viðkemur Íslandi kemur upp annars
staðar en á Fróni sjálfu þá er einhver
embættismaður látinn koma sér á
framfæri, og vart það þegar Halldór
okkar fór utan með allt sitt föruneyti
á kostnað skattborgara fyrir eina
skitna klukkustund með Arafat! Með
mínum skrifum vona ég að fólk líti
þetta sömu augum og ég, sjái hvern-
ig íslenskir embættismenn smána
þjóð sína með endalausum ferðalög-
um á kostnað hins opinbera. NATO
fundir og annað þvíumlíkt finnst mér
hið besta mál því þá er fólk ekki bara
þar upp á sýndarmennskuna eina.
Nú óska ég Halldóri og öðrum
eyðslusömum ráðherrum þess eins
að fara betur með peninga vora og
hugsa aðeins betur um það sem þeir
eru að fara að gera, þeir eru ekki of
ríkir til að lenda í vandræðum.
REYNIR SMÁRI ATLASON,
nemi í Menntaskólanum
á Akureyri.
Eyðslusemi
embætta
Frá Reyni Smára Atlasyni nema:
FORRÁÐAMENN Fréttablaðsins
hafa alllengi haft áhyggjur af erfiðri
fjárhagsstöðu Norðurljósa og efa-
semdir um hvort fyrirtækið geti
staðið við skuldbindingar sínar, eins
og oft hefur komið fram í fréttum
blaðsins. Í Fréttablaðinu 4. júní sl.
segir Sigurður G. Guðjónsson for-
stjóri Norðurljósa hins vegar: „Hér
eru útborguð laun um hver mánaða-
mót, öllum virðisaukaskatti og
tryggingagjöldum er skilað, lífeyris-
iðgjöld eru greidd. Öllum birgjum er
greitt í samræmi við samkomulag
sem og kröfuhöfum.“
Þetta ætti að létta nokkuð á
áhyggjum útgefenda Fréttablaðsins
vegna stöðu Norðurljósa. Hins vegar
væri ekki úr vegi að blaðið leitaði
upplýsinga hjá öðrum fyrirtækjum
sem eiga við rekstrarvanda að etja
og kannaði hvort þau stæðu skil á
launum og lögboðnum gjöldum.
Einnig hvort dæmi er um að fyrir-
tæki hafi starfað í meira en eitt ár
með þeim hætti að taka vaxtalaus lán
í launum starfsmanna að þeim for-
spurðum eða jafnvel svíkja greiðslur
alfarið. Það þarf varla mikla vinnu
rannsóknarblaðamanna til að kanna
mál sem þetta.
SÆMUNDUR GUÐVINSSON,
blaðamaður.
Norðurljós og Fréttablaðið
Frá Sæmundi Guðvinssyni:
MIG langar til að koma fram þeirri
áskorun til þeirra sem héldu
skemmtunina með Kaffibrúsakörlun-
um að halda fleiri skemmtanir með
þeim sem allra fyrst. Ég hef verið
aðdáandi Kaffibrúsakarlanna frá
upphafi og tel þá eitt allra fyndnasta
skemmtiatriði sem komið hefur fram
hér á landi. Og þegar ég frétti að þeir
ætluðu að koma saman aftur þá hugs-
aði ég mér aldeilis gott til glóðarinn-
ar. En af óviðráðanlegum ástæðum
komst ég ekki á þær tvær skemmt-
anir sem auglýstar voru, en frétti frá
kunningjum mínum sem fóru að það
hefði verið fullt hús í Gamla bíói og
hláturinn slíkur að þakið hefði bók-
staflega ætlað að rifna af húsinu.
Þessir kunningjar mínir sögðu að
stemmningin hefði verið slík að þessi
sýning yrði á fjölunum í allt sumar og
ég varð því strax róleg og taldi öruggt
að ég fengi að berja gömlu góðu
Kaffibrúsana augum.
En það olli mér miklum vonbrigð-
um þegar mér var sagt að fleiri sýn-
ingar mundu ekki verða. Hver er
ástæðan fyrir því að ekki verða fleiri
sýningar? Ég veit um fjölda manns
sem ætlaði að fara og fékk ekki miða
eða komst ekki af öðrum ástæðum og
dauðlangar til að sjá sýninguna. Ég
hélt í heimsku minni að ef sýning
gengi vel og mikil aðsókn væri þá
væri sjálfsagt mál að halda áfram
meðan aðsókn entist. En í þessu til-
felli þá er bara hætt fyrir fullu húsi.
Ég skora enn og aftur á þá sem stóðu
fyrir þessari Kaffibrúsasýningu að
koma til móts við allan þann fjölda
sem ekki komst á sýningarnar tvær
og halda fleiri.
VALBORG ELÍN
JÚLÍUSDÓTTIR,
Garðhúsum 4, 112 Reykjavík.
Kaffibrúsakarlar
Frá Valborgu Elínu Júlíusdóttur: