Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 22
ERLENT 22 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Dugguvogi 4 Veggjakrot kostar einstaklinga og sveitarfélög mikla fjármuni og fyrirhöfn á hverju ári. Nú hefur Slippfélagið sett á markað sérstaka Krotvörn sem veitir hvers konar veggjakroti öflugt viðnám. Eftir að vörnin hefur verið borin á er í langflestum tilfellum nóg að smúla ósómann burt með vatni og endurnýja svo vörnina með einni yfirferð. Haltu veggjunum hreinum á einfaldan hátt með Krotvörn frá Slippfélaginu. N O N N I O G M A N N I | Y D D A • N M 06 48 6 • si a. is YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, stokkaði upp í heimastjórn sinni á sunnudag eftir að margir Pal- estínumenn og ráðamenn á Vestur- löndum höfðu lagt fast að honum að koma á pólitískum umbótum. Ísrael- ar lýstu uppstokkuninni sem „sýnd- armennsku“ og palestínskir stjórn- málaskýrendur sögðu hana ófullnægjandi. Fyrsta fundi nýju heimastjórnar- innar var frestað í gær eftir að fleiri en 70 skriðdrekar voru sendir inn í Ramallah og umkringdu höfuðstöðv- ar Yassers Arafats. Jarðýtur Ísr- aelshers hrúguðu upp grjótmulning- um við inngang höfuðstöðvanna til að loka honum. Saeb Erakat, aðalsamn- ingamaður heimastjórnarinnar, sagði að Arafat væri „á lífi en í hættu“. Fregnir hermdu að einn Palestínu- maður hefði beðið bana í aðgerðum hersins í Ramallah og tveir særst. Að minnsta kosti 27 Palestínumenn voru handteknir. „Ekki sú breyting sem fólkið vill sjá“ Ráðherrum heimastjórnarinnar var fækkað úr 31 í 21. Fimm nýir menn voru skipaðir í stjórnina og tveir þeirra eiga að fara með mikil- vægustu málaflokkana, öryggis- og fjármál. Gagnrýnin á heimastjórnina hefur einkum beinst að frammistöðu hennar í þessum málaflokkum. Að öðru leyti voru breytingarnar álitnar óverulegar og yfirborðs- kenndar. „Ég tel ekki að þetta sé sú breyting sem fólkið vill,“ sagði palest- ínski aðstoðarráðherrann Jihad Waz- ir. „Þetta er miklu fremur aðlögun en umbætur. Samt er þettta skref í rétta átt.“ Hagfræðingurinn Salam Fayyad, fulltrúi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðn- um í Jerúsalem síðustu árin, varð fyr- ir valinu sem fjármálaráðherra og talið er að með því að skipa hann í stjórnina sé Arafat að bregðast við ásökunum um spillingu hennar og óstjórn í fjármálum. Embættismenn í Ísrael hafa lengi sakað heimastjórn- ina um að hafa séð róttækum hreyf- ingum fyrir peningum og byssum. Arafat skipaði einnig 73 ára gaml- an fyrrverandi herforingja, Abdel Razak Yehiyed, í embætti innanrík- isráðherra, sem á að „fara með ör- yggismál á svæðum Palestínumanna og hafa eftirlit með öllum öryggis- stofnunum“, að sögn talsmanns heimastjórnarinnar. Arafat hefur sjálfur farið með ör- yggismálin í heimastjórninni frá því að hún var stofnuð fyrir átta árum. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísr- ael hafa lagt fast að honum að koma á umbótum á öryggissveitum Palest- ínumanna til að koma í veg fyrir hryðjuverk í Ísrael. Yehiyed fékk herþjálfun í Sýrlandi og var lengi foringi í palestínskum út- lagaher í Jórdaníu. Hann er oft lang- dvölum utan palestínsku sjálfstjórn- arsvæðanna vegna eiginkonu sinnar sem á við alvarleg veikindi að stríða. Margir telja að með því að velja Yehiyeh í embætti innanríkisráð- herra vilji Arafat láta líta út fyrir að hann hafi falið nýjum manni að breyta öryggissveitunum en hann hyggist sjálfur stjórna þeim á bak við tjöldin. „Yehiyeh er nýr í stjórninni, en hann kann að hlýða skipunum,“ sagði palestínski stjórnmálafræðing- urinn Khalil Shikaki. Binyamin Ben Eliezer, varnar- málaráðherra Ísraels, sagði að með því að velja Yehiyeh hefði Arafat sýnt að honum væri ekki alvara með lof- orðum um umbætur á öryggissveit- unum. „Þessi maður er fulltrúi eld- gömlu kynslóðarinnar,“ sagði Ben Eliezer um nýja ráðherrann. Danny Naveh, ráðherra án ráðu- neytis í stjórn Ísraels og flokksbróðir Ariels Sharons forsætisráðherra, lýsti uppstokkun Arafats á heima- stjórninni sem „sýndarmennsku“. „Arafat er búinn að vera, það er eng- inn möguleiki á að samningaviðræður verði hafnar að nýju á meðan hann er við völd.“ Kosningar í janúar Yasser Abed Rabbo, upplýsinga- málaráðherra heimastjórnarinnar, sagði að efnt yrði til forseta- og þing- kosninga í janúar og sveitarstjórna- kosninga í haust. Frá því að heima- stjórnin var stofnuð árið 1994 hafa kosningar aðeins einu sinni verið haldnar á sjálfstjórnarsvæðum Pal- estínumanna, árið 1996, og margir Palestínumenn líta svo á að mikil- vægustu umbæturnar felist í því að þjóðin fái að kjósa aftur. Stuðningurinn við Arafat meðal Palestínumanna hefur minnkað veru- lega á síðustu misserum. Aðeins 35% sögðust styðja hann í skoðanakönnun sem gerð var fyrir þremur vikum, en hann naut stuðnings tæps helmings Palestínumanna fyrir tveimur árum, áður en átök Ísraela og Palestínu- manna hófust, og 75% árið 1996. „Palestínumenn vilja óspillta stjórn,“ sagði Shikaki, palestínski stjórnmálafræðingurinn. „Arafat stendur ekki í stykkinu sem leiðtogi nú þegar mikil þörf er á öflugri for- ystu og fólk er reitt við hann. Jafnvel þegar hann er neyddur til að aðhafast eitthvað reynir hann að gera eins yf- irborðskenndar breytingar og nokk- ur kostur er.“ Leiðtogi Palestínumanna stokkar upp í heimastjórninni og fækkar ráðherrunum Uppstokkun Arafats sögð ófullnægjandi ÍSRAELSKIR lögreglumenn stöðva Palestínumenn sem reyndu að koma í veg fyrir að Ísraelar hæfu byggingarfram- kvæmdir á landi í eigu Palest- ínumanna í Austur-Jerúsalem. Palestínumennirnir segjast vera með skjöl sem sanni að þeir eigi landið og ætla að leita réttar síns fyrir dómstólum. Reuters Framkvæmdum Ísraela mótmælt Ramallah, Jerúsalem. AP, Los Angeles Times, AFP. TUGIR gesta sátu í gær opinn fund félaganna Ísland-Palestína og Sam- taka herstöðvaandstæðinga í Húsi málarans í Reykjavík um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Tveir ungir menn, Stefán Þorgrímsson og Hrafnkell Brynjarsson, sem báðir hafa dvalist á átakasvæðunum í Palestínu, sögðu frá reynslu sinni. Þeir voru við hjálparstörf á vegum fyrrnefnda félagsins og eru báðir miðnefndarmenn í því síðarnefnda. Að sögn Viðars Þorsteinssonar, ritara Íslands-Palestínu, sem einnig hefur farið til svæðisins, hafa nú alls tíu Íslendingar farið þangað á vegum félagsins. Auk þess sem þeir hafa veitt aðstoð með því að fylgja hjúkrunarfræðingum sem færðu fólki lyf og fylgja slösuðum á sjúkrahús segja þeir félagar að markmiðið sé ekki síður að veita ákveðna vernd með nærverunni; ísraelskir hermenn gangi ekki jafn hart að Palestínumönnum ef þeir eru í fylgd útlendinga. Þeir Hrafnkell og Stefán lýstu framferði hermannanna með ófögr- um orðum, Palestínumönnum væri sýnd óvirðing með margvíslegum hætti, sennilega til að reyna að brjóta niður siðferðisþrek og bar- áttukjarkinn. Fjölskyldumyndir séu rifnar af veggjunum, húsmunir brotnir. Skriðdrekum væri ekið vís- vitandi á leigubíla og verslanir í borgum Palestínumanna. Ef mynd af Yasser Arafat, leiðtoga Palest- ínu, sæist á vegg á heimili væru íbú- arnir reknir út og húsið sprengt. Hrafnkell var í hópi erlendra sjálf- boðaliða sem var handtekinn í Nablus en sleppt eftir nokkurt þóf. Stefán fór til svæðisins 1. maí og kom til borganna Nablus, Ramallah og Gaza, en með honum var Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari á Morg- unblaðinu og hittu þeir félagar Ara- fat í byrgi hans ásamt fleira fólki. Stefán var spurður hvort sjálf- boðaliðarnir væru í hættu en hann svaraði því til að þeir gætu verið það þar sem til átaka kæmi en al- mennt væri ekki hættulegra að vera í landinu en að „ganga niður í miðbæ klukkan þrjú. Og það er miklu meira um skotárásir í Banda- ríkjunum en í Ísrael.“ Sjálfur sagð- ist Stefán hafa verið smeykastur við að vera á ferli í hverfum gyðinga og í nánd við kaffihús þeirra, en marg- ir sjálfsmorðingjar hafa sprengt sig við veitingastaði. Viðar skýrði frá því að ekki væri vitað til að neinn erlendu sjálfboðaliðanna hefði orð- ið fyrir skoti. Morgunblaðið/Þorkell Frá fundinum í Húsi málarans. F.v. Viðar Þorsteinsson, Stefán Þor- grímsson og Hrafnkell Brynjarsson. „Veitum vernd með nærverunni“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.