Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 34

Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 34
UMRÆÐAN 34 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HINN 26. apríl 2000 var undirritaður samningur Landspít- ala – háskólasjúkra- húss og Barnavernd- arstofu um þjónustu barna- og unglinga- geðdeildar. Markmið samningsins var að tryggja börnum og unglingum með geð- raskanir, vímuefna- vanda og hegðunar- truflanir eins skjóta, góða og örugga þjón- ustu og frekast væri kostur. Samningsaðil- ar skuldbundu sig til að vinna sameiginlega að þessu markmiði með nánu sam- starfi sín á milli. Samningurinn tók gildi 1. júní sama ár og var til tveggja ára. Með bréfi dagsettu 27. febrúar sl. sagði forstjóri Barna- verndarstofu samningnum upp, að höfðu samráði við félagsmálaráðu- neytið, og óskaði eftir viðræðum um gerð nýs samnings, sem tæki mið af fenginni reynslu. Hver er þá reynslan? Ánægja með þjónustu BUGL Eins og réttilega kemur fram í grein Ólafs Ó. Guðmundssonar, yf- irlæknis BUGL, í Morgunblaðinu 4. júní sl. er það samdóma álit þeirra sem að þjónustusamningnum standa að jákvæð áhrif hans hafi verið ótvíræð og skilað sér í bættri þjónustu við börn og unglinga með geðraskanir, vímuefnavanda og hegðunartruflanir. Með auknu sam- starfi meðferðarheimilisins Stuðla og unglingadeildar BUGL hafa samskipti orðið skýrari á milli þess- ara stofnana sem hefur lagt grunn að bættri þjónustu við fyrrnefndan hóp. Eins og kemur fram í grein yf- irlæknisins er regluleg þjónusta barnageðlæknis og hjúkrunarfræð- ings af unglingadeild BUGL við Stuðla tryggð með þjónustusamn- ingnum ásamt vaktþjónustu barna- geðlækna og hjúkrunarfræðinga allan sólarhringinn. Meðferðar- heimili Barnaverndarstofu hafa einnig notið góðs af samningnum, m.a. hafa unglingar sem þar hafa dvalist fengið forgang varðandi inn- lagnir á unglingadeildina og einnig hefur starfsfólk unglingadeildar farið á heimilin til að veita faglega ráðgjöf um meðferð. Framkvæmd samningsins Þjónustusamningur BUGL hefur verið nokkuð til umræðu í fjölmiðl- um undanfarna daga. Í þeirri um- ræðu hefur gætt misskilnings og því nauðsynlegt að geta nokkurra þeirra þátta sem lúta að þjónustu BUGL við Barnaverndarstofu. Ráðstöfun þess fjármagns sem ætl- að var til þjónustunnar hefur í einu og öllu verið í samræmi við mark- mið og ákvæði þjónustusamnings- ins. Aðilum var ljóst að styrkja þyrfti stöðu og starfsemi unglinga- deildar á BUGL til þess að taka við aukinni starfsemi og var það gert m.a. með því að bæta aðstöðu til móttöku bráðsjúkra, með sólar- hringsþjónustu hjúkrunarfræðinga, fjölgun starfsmanna og aukinni starfsaðstöðu. Eins og getið er hér að framan var bakvaktaþjónusta sérfræðinga BUGL styrkt verulega og sérfræðiþjónustu og ráðgjöf komið á í samstarfi við meðferð- arheimilið Stuðla og unglingadeild BUGL auk þeirrar þjónustu sem al- mennt er veitt á BUGL s.s. göngu- deild, sérfræðilegar rannsóknir o.s.frv. Samstarf og samhæfing flókinnar og sérhæfðrar starfsemi samningsaðila er vandasöm og ekki alltaf auðvelt að kostnaðargreina hvern þátt samstarfsins. Þjónusta BUGL hefur aukist verulega á þeim tveimur árum sem samning- urinn hefur varað, sem m.a. sést á mikilli aukningu innlagna á ung- lingadeild BUGL. Þeir fjármunir sem um ræðir hafa að sjálfsögðu einungis verið nýttir til þessarar þjónustu og hafa alls ekki verið not- aðir til að mæta meintum sparnað- araðgerðum á LSH enda hefur BUGL verið hlíft við þeim aðhalds- aðgerðum sem geðsvið og reyndar önnur svið LSH hafa sætt á und- anförnum árum. Lokaorð Það er ljóst að af fenginni reynslu er afar mikilvægt að aðilar endurnýi umræddan þjónustu- samning. Sú reynsla sem orðið hef- ur af samningnum og því samstarfi sem hann hefur stuðlað að milli þeirra aðila sem annast umrædda þjónustu fyrir börn og ungmenni hefur að mestu verið jákvæð og al- menn ánægja með þá samvinnu. Tveggja ára reynsla af framkvæmd samningsins hefur leitt í ljós nokk- ur atriði sem aðilar hafa þegar rætt um og hægt er að leysa með ná- kvæmari ákvæðum í nýjum samn- ingi milli aðila. Þjónustusamning- urinn var og er mikið framfaraspor að okkar mati og flestra sem að honum hafa komið. Við teljum að það varði mjög miklu að hann verði í senn endurnýjaður og bættur og í ljósi þeirrar miklu skörunar sem oft er á milli heilbrigðis- og félagsþjón- ustu teljum við mjög æskilegt að stuðlað sé í auknum mæli að sam- starfssamningum milli þessara tveggja þýðingarmiklu málaflokka. Þjónustusamn- ingur BUGL Eydís Sveinbjarnardóttir Höfundar eru sviðsstjórar á geðsviði. Sjúkrastofnanir Þjónustusamningurinn, segja Eydís Sveinbjarn- ardóttir og Hannes Pét- ursson, var og er mikið framfaraspor. Hannes Pétursson ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.