Morgunblaðið - 23.06.2002, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.06.2002, Qupperneq 1
MORGUNBLAÐIÐ 23. JÚNÍ 2002 145. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Það er víðar byggða- röskun en á Íslandi. Í Færeyjum flytur fólk frá litlu byggðunum til stóru þéttbýlis- staðanna. Egill Ólafs- son heimsótti fyrir skömmu Færeyinga sem búa í Svíney. Hann ræddi við „ungdóminn“ í Svíney, sem nú er á milli fertugs og fimm- tugs, um framtíð eyj- arinnar og fræddist um Svíneyinga sem fyrr á árum sóttu sjó- inn á seglskútum við Ísland. /B2 „Ungdómurinn“ í Svíney Prentsmiðja Morgunblaðsins Sunnudagur 23. júní 2002 B Ólíkar áherslur hafa ekki úrslitaáhrif á stjórnarsamstarfið 10 Jafnvígir á að beita kúbeini og aðstoða lækna 18 Dyr að fjármagnsmarkaði 14 FIMM hundruð manns að minnsta kosti biðu bana þegar jarðskjálfti reið yfir norður- og suðurhluta Írans í fyrrinótt að íslenskum tíma. Talið er að hátt á annað þúsund manns hafi slasast. Jarðskjálftinn mældist 6 á Richter og er sá öflugasti, sem yfir Íran hefur riðið um nokkurt skeið. Majid Shalviri, fulltrúi Rauða hálf- mánans í Qazvin-héraði í Norðvest- ur-Íran, sagði að mannfallið væri að mestu bundið við borgina Bouyn- zahra í Qazvin en þar er talið að skjálftinn hafi átt upptök sín. Fregn- ir hafa hins vegar einnig borist um, að þrír hafi dáið í Hamedan-héraði. Skjálftinn reið yfir Bouynzahra um hálfáttaleytið að írönskum tíma, eða um þrjú að nóttu að íslenskum tíma. Um hálftíma síðar reið annar skjálfti yfir og var sá 4,8 á Richter. Hundruð manna eru talin hafa slasast og stóð björgunarstarf allan daginn í gær. Starfsfólk Rauða hálf- mánans stóð í ströngu og þá sendu stjórnvöld þyrlur á vettvang til að aðstoða við björgunarstarfið. 37 þúsund dóu í skjálfta 1990 Skjálftinn fannst vel í höfuðborg- inni Teheran og víða skemmdist innbú í húsum fólks og húsgögn færðust til. Þustu margir út á götu til að átta sig á hvað væri að gerast. Mikil skjálftavirkni er í Íran og minni háttar skjálftar ríða yfir nær daglega. Í júní 1990 skók jarð- skjálfti, sem mældist 7,6 á Richter, Gilan-hérað í Norður-Íran og var mannfall þá gífurlegt. Um 37 þúsund manns biðu bana og meira en hundr- að þúsund manns slösuðust. Þrjár borgir og um 600 þorp voru nánast lögð í eyði í skjálftanum 1990. Mannskæður jarðskjálfti í Íran Meira en 500 biðu bana Teheran. AFP. SUÐUR-Kórea varð í gær fyrsta Asíuþjóðin í sögu heimsmeist- aramótsins í knattspyrnu til að tryggja sér sæti í undanúrslitum keppninnar en Suður-Kóreumenn unnu þá Spánverja í vítaspyrnu- keppni. Þá unnu Tyrkir Senegala 1-0 og fara því einnig í undanúrslit. Fáir áttu von á því fyrir mótið að Suður-Kóreumenn næðu þetta langt í keppninni. Þarf því ekki að fara mörgum orðum um þann fögn- uð sem ríkti meðal þeirra í gær en talið er að tvær milljónir manna hafi komið saman í miðborg Seoul til að fagna sigrinum. Lýsti Kim Dae-Jung, forseti S-Kóreu, því yfir að dagurinn í gær væri sá gleðileg- asti í fimm þúsund ára sögu þjóð- arinnar. Má á myndinni sjá hvar hópur manna fylgist með leiknum í miðborg Seoul en honum var þar sjónvarpað á risaskjá. Suður-Kóreumenn keppa við Þjóðverja í undanúrslitunum nk. þriðjudag en úrslitaleikurinn fer fram í Yokohama í Japan eftir viku. Í hinum undanúrslitaleiknum spila Brasilíumenn við Tyrki sem, eins og Suður-Kóreumenn, hafa aldrei áður komist þetta langt á HM. Reuters Asíuþjóð í undan- úrslit í fyrsta sinn  Suður -Kórea/15 ÞAÐ olli miklu uppnámi á árs- fundi stjórnarflokksins í Malasíu í gær þegar Mahathir Mohamad, sem verið hefur forsætisráðherra í landinu í næstum 21 ár, til- kynnti að hann hygðist segja af sér öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Afsögn Mahathirs kom um tvö þúsund fulltrúum á flokksþinginu gjörsamlega í opna skjöldu. Brugðust þeir hart við, tár streymdu niður hvers manns hvarma og hrópað var einum rómi, „lengi lifi Mahathir“. Sjálf- ur hafði Mahathir verið gráti nær er hann tilkynnti ákvörðun sína og ekki bætti úr skák þegar flokksmenn báðu hann náðar- samlegast að endurskoða ákvörð- un sína. „En ég tók þessa ákvörðun fyrir löngu síðan,“ sagði Mahathir. Engu að síður tókst flokks- bræðrum Mahathirs að telja hon- um hughvarf því að um hádegið tilkynnti Abdullah Badawi að- stoðarforsætisráðherra að Mah- athir væri hættur við að hætta. Þeim tíðindum var fagnað vel og lengi en því er nú spáð að Mah- athir boði til þingkosninga snemma á næsta ári. Reuters Mahathir lét tilfinningarnar ná tökum á sér. Hætti við að hætta Kuala Lumpur. AFP. LEIÐTOGAR Evrópusambandsins lýstu því yfir í gær að tíu ríki, sem sótt hafa um aðild að ESB, gætu vænst þess að verða hleypt inn í sambandið um mitt ár 2004. Getgát- ur höfðu verið uppi um að seinka yrði inntöku nýrra aðildarþjóða en for- sætisráðherrar ESB-ríkjanna, sem funduðu um helgina í Sevilla á Spáni, hétu því að halda sig við þær áætl- anir, sem gerðar hafa verið. Stefnt er að því að Eystrasalts- löndin þrjú, Kýpur, Malta, Ung- verjaland, Pólland, Slóvakía, Tékk- land og Slóvenía ljúki brátt aðildarviðræðum. Ljóst er hins veg- ar að Rúmenía, Búlgaría og Tyrk- land fá ekki inngöngu í þessari lotu. Fundurinn á Spáni var haldinn í skugga sprengjutilræða Aðskilnað- arhreyfingar Baska en tvær sprengjur sprungu í gær, ein á Costa del Sol og ein í Santander á N-Spáni. Ákváðu forystumenn ESB að tengja þróunaraðstoð við fátæk ríki ekki tilraunum til að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda. Þeir urðu þó ásáttir um að herða reglur um ólöglega innflytjendur. Stækkun ESB Halda sig við fyrri áætlanir Sevilla, Malaga. AFP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.