Morgunblaðið - 23.06.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 23.06.2002, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þ AÐ ER bjart framundan í efna- hagslífi þjóðarinnar, að mati Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra, sem tók svo sterkt til orða í þjóðhátíðarávarpi sínu á Austurvelli 17. júní, að flest benti til að nýtt framfaraskeið í sögu þjóðarinnar væri í burðarliðnum. Forsætisráðherra segir Íslendinga hafa tek- ið stórt stökk inn í nútímann á undanförnum árum. ,,Þetta gerðist svo hratt að sumir töldu að við værum að fara í gamalkunna niður- sveiflu eftir velgengiskafla þegar við fórum í gegnum stutt erfiðleikaskeið. Við héldum því hins vegar fram að efnahagsumgjörðin og að- lögunarhæfnin hefði breyst svo mikið undan- farin tíu ár að það myndi ekki gerast að þessu sinni. Gömlu formúlurnar ættu ekki lengur við. Sumir hagfræðingar voru því miður enn með gamla forritið sitt í tölvunni, sem átti að vera fyrir löngu komið á haugana,“ segir Davíð. Viðskiptahalli minnkar ört ,,Þjóðfélagið er miklu hreyfanlegra en áður var,“ segir forsætisráðherra. ,,Bankakerfið, viðskiptin við útlönd, tilfærsla á vinnuafli, o.fl., allt er þetta nú á valdi einstaklinganna og fyr- irtækjanna, en ekki hins opinbera. Það gerði útslagið. Okkar mat reyndist því vera rétt. Efnahagslífið hægði á sér, en hikstaði þó varla og því síður bræddi það úr sér. Viðskiptahallinn minnkar ört, verðbólga fer hratt lækkandi og vextir lækka jafnt og örugg- lega í kjölfarið, eins og við höfðum spáð. Kjara- samningar stóðust sem fæstir trúðu á um síð- ustu áramót. Þrátt fyrir að við höfum orðið að skera niður þorskveiðar, að hluta til vegna of- mats fiskifræðinga á stofninum, hafa vernd- araðgerðir og föst og fumlaus tök í þeim mál- um haft í för með sér að nú má binda vonir við vaxandi þorskafla á næstu árum og aðrar teg- undir virðast vera í góðu ástandi. ,Þessu til viðbótar bendir flest til að við séum nær því að erlendir og innlendir aðilar festi hér fé í álveri og virkjunum í stærri stíl en nokkru sinni fyrr. Það er að vísu ekki alveg komið fyrir vind en mér hafa aldrei þótt líkindin jafn góð og nú. Við munum fá niðurstöðu í því máli innan mánaðar. Það er því margt sem bendir til þess að það sé mjög gott skeið framundan, ef vel er á haldið,“ segir Davíð. Landsbankasalan sýnir að rík trú er á efnahagskerfinu Forsætisráðherra bendir einnig á að mark- aðurinn hafi trú á efnahagsþróuninni og vísar til eftirspurnar eftir hlutafé í Landsbankanum í útboðinu á dögunum, þegar allt hlutaféð, sem gert hafði verið ráð fyrir að seldist á einum mánuði, rann út á aðeins 15 mínútum. ,,Spár manna um að einkavæðingaráform væru úr sögunni hafa því heldur betur klikkað. Landsbankasalan sýnir að rík trú er á efna- hagskerfinu. Ef allt þetta gengur eftir og við skulum ekki gleyma ,,efinu“, þá gætum við verið að upplifa á nokkrum árum mestu uppsveiflu sem við höf- um fengið og er þá horft til lengdar hennar frá 1994 til 2005-6, svo ekki sé reynt að geta lengra inn í eyður framtíðar. Ég er því afskaplega bjartsýnn á þessa þróun,“ segir hann. Davíð kveðst einnig eiga von á að gengi krónunnar muni halda áfram að styrkjast á næstunni og að vextir lækki í takt við minni verðbólgu. ,,Það þýðir að verðbólgan verður mjög lág og vextir geta lækkað af þeim ástæð- um. Á hinn bóginn þarf ekki að vera æskilegt að gengið styrkist of mikið. Við verðum einnig að gæta okkar í tengslum við þá miklu innspýt- ingu sem kann að verða á næstu árum. Mikil fjárfesting vegna álvers og virkjana og aukin eftirspurn vegna sterkar stöðu krónunnar og ríkur framkvæmdavilji gæti líka leitt til þess að Seðlabankinn teldi nauðsynlegt að fara var- legar í vaxtaákvörðunum sínum til að spyrna við ofþenslu,“ segir Davíð ennfremur. Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin verði einnig að gæta þess mjög vel við fjár- lagagerðina fyrir næsta ár að skila myndarleg- um afgangi hjá ríkissjóði. ,,Það er afar þýðing- armikið, sérstaklega á kosningaári, að okkur takist að halda þannig á málum að ríkissjóður verði rekinn með verulegum afgangi. Við höf- um nýtt aukið fjárhagslegt svigrúm ríkisins til að byggja upp eiginfjárstöðu Seðlabankans jafnt og þétt. Ný lög gera ráð fyrir að eiginfjár- staða bankans verði aukin og skattálagning bankans mun taka mið af því, þar til tilteknu lágmarki verður náð. Bankinn getur því rækt hlutverk sitt enn betur en nú er, þegar trúverð- ugleiki hans styrkist,“ segir hann. Huga að sölu bankanna og ÍA en Síminn fái að jafna sig – Gefur reynslan af sölu hlutabréfanna í Landsbankanum tilefni til að hraða áformum um frekari sölu ríkisfyrirtækja? ,,Ég tel að menn eigi að hugleiða frekari skref í Landsbankanum. Viðskiptaráðherra benti á það í viðtali fyrir fáeinum dögum að rétt væri að huga að því sem áður hefur verið ákveðið að fá öflugan stofnfjárfesti að Lands- bankanum og eins þarf að huga að málefnum Búnaðarbankans og síðan að Íslenskum aðal- verktökum. Það er hins vegar eðlilegt að Sím- inn fái að jafna sig eftir þá orrahríð sem hann gekk í gegnum,“ segir Davíð. Hann kveðst þó aðspurður ekki vilja útiloka að haldið verði áfram sölu Landsímans á þessu ári. ,,En menn eru með fullar hendur í þessum verkefnum núna,“ segir hann. Ákvörðun ekki verið tekin um ríkisábyrgð til handa deCODE – Þrátt fyrir árangur á þessum sviðum hafa undanfarnir mánuðir reynst ríkisstjórninni erfiðir af ýmsum ástæðum og ólíkustu mál komið upp sem vakið hafa deilur og gagnrýni í þjóðfélaginu. Meðal umdeildra mála er ríkis- ábyrgð til handa deCODE Genetics, móður- félagi Íslenskrar erfðagreiningar. Ertu sann- færður um að það hafi verið rétt ákvörðun? ,,Þarna er um tvíþætt mál að ræða. Í fyrsta lagi urðum við að ganga úr skugga um það fyr- ir þinglok, hvort þingið vildi veita ríkisstjórn- inni heimild til að veita þessa ábyrgð, ef rík- isstjórnin teldi það æskilegt og réttlætanlegt. Fyrsta skrefið var því stigið þegar fjármála- ráðherra fékk heimild þingsins. Næsta skref hefur hins vegar ekki verið ákveðið. Nú er ver- ið að fara yfir þá þætti. Verið er að leggja mat á fyrirtækið, framtíðaráform þess og hvað í því felst fyrir íslenskt efnahagslíf til lengri tíma lit- ið og jafnframt að meta áhættuna og svo fram- vegis. Við erum því í fullri alvöru að skoða þessi mál en eins og við sögðum alltaf í þinginu, þá fólust ekki fyrirmæli um ábyrgð í ákvörðun þingsins heldur aðeins heimild til ríkisins að veita hana ef það teldi það rétt. Viðkomandi ráðherra verður að fara mjög nákvæmlega yfir málið í framhaldinu og taka svo ákvörðun af eða á í samráði við ríkisstjórn. Við utanríkisráðherra vorum sammála um að við vildum ekki glata niður þessu tækifæri að óathuguðu máli. Út á það gekk þetta mál og nú höfum við svigrúm til að skoða það vegna þeirrar heimildar sem við höfum fengið frá þinginu. En ákvörðun af eða á hefur ekki verið tekin og hún lá aldrei fyrir, eins og sumir gáfu í skyn,“ segir Davíð. Enginn vafi leikur á því að mati hans að áhættan af ríkisábyrgðinni sé umtalsverð ,,en ávinningurinn er einnig mikill og jafnvel þó allt fari á versta veg er áhættan þó minni en þeir sem dæmdu þetta hvað harðast vilja vera láta. En þetta eru það stórar upphæðir að það þarf að fara að öllu með gát,“ segir Davíð ennfrem- ur. Skipuleggjendur Falun Gong völdu Ísland úr af ásettu ráði – Nýafstaðin opinber heimsókn Jiang Zem- in, forseta Kína, og aðgerðir vegna komu áhangenda Falun Gong vekja ýmsar spurning- ar, m.a. þá hvort Íslendingar hafi nægilegt bol- magn til að taka á móti umdeildum erlendum gestum? ,,Það er alveg rétt. Þetta hefur vakið spurn- ingar í mínum huga og ekki eingöngu vegna viðbragðanna, sem voru sérstök og undarleg hjá ýmsum. Til að mynda fóru sumir fjölmiðl- arnir alveg úr sambandi og misstu ráð og rænu, þegar þetta mál kom upp og er það und- arlegt að tilfinningahiti og pólitísk afstaða ein- stakra fréttamanna getur svipt þá allri dóm- greind á augabragði. En það er auðvitað umhugsunarefni að 500 til 600 manna vel skipulagður hópur útlendinga geti ákveðið að sækja landið heim í þeim eina tilgangi að breyta eða skaða verulega ákvarð- anir sem rétt kjörin stjórnvöld hafa tekið og sett hér allt á annan endann. Við eigum þess ekki kost að ráða við slíkan hóp, sem hingað kemur með tiltekin markmið, eins og þarna var um að ræða, að trufla eða hnekkja ákvörðun að bjóða hingað forseta Kína. Ég er ekki í vafa um að Ísland var valið úr af ásettu ráði af þeim sem skipulögðu þetta, til þess að vinna sigur, sem þeir hefðu líka unnið ef þeim hefði tekist að koma í veg fyrir að forseti Kína kæmi hingað. Þar með hefðu þeir tekið völdin af lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn og náð fram sínum mark- miðum. Þetta má líka sjá af því að þeir fara í hung- urverkfall í París þegar þeim er meinað að koma hingað á föstudegi, en á sunnudegi hélt kínverski forsetinn til Litháen. Af hverju elta þeir hann ekki þangað? Skýringin er auðvitað sú að það var ekki á dagskrá, heldur var mark- miðið að taka yfir hér. Þeir hafa bersýnilega reiknað með að við gætum ekki haft vald á þessu og myndum gefast upp, eins og fjöldi manna vildi að við gerðum. Við áttum bara að láta undan og láta þetta aðkomufólk, með fullri virðingu fyrir því, stjórna hér málum og taka sér ríkari rétt en Íslendingar hafa sjálfir,“ seg- ir Davíð. ,,En í öllu þessu máli skiptir mestu að það var mat lögregluyfirvalda að lögreglan treysti sér ekki til að tryggja öryggi forseta Kína og sendinefndar hans nema fylgjendum Falun Gong yrði meinuð landganga hér. Það hefði verið ábyrgðarlaust af hálfu stjórnvalda að Davíð Oddsson forsætisráðherra í Morgunblaðsviðtali um ágreining formanna stjórnarflokkanna um Evrópumál, Ólíkar áherslur hafa ekki úrsl Davíð Oddsson forsætisráðherra segist ekki vera ánægður með yfirlýsingar Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra um kosti aðildar að ESB. Ágreiningur þeirra hefur þó ekki úrslitaáhrif á stjórnarsamstarfið að hans mati. Forsætisráðherra ræðir við Ómar Friðriksson um uppsveiflu í efnahagslífinu, deilurnar um ESB, stjórnarsamstarf og kosningar og hinar umdeildu aðgerðir í tengslum við opinbera heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.